Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000
Sport
Elísabet Sif Haraldsdottir og dansherra
hennar, Scott Montague. eru aö gera þaö
gott í dansheiminum um þessar mundir.
dsdóttir gerir það gott í dansheiminum
- í heiminum í suðuramerískum dönsum
Ellsabet Sif Haraldsdóttir hefur
síðustu fjögur ár búið í Englandi
og æft þar og keppt í dansi, nánar
tiltekið suðurameriskum dönsum.
Hún einskorðar keppni sína hins
vegar ekki við Bretlandseyjar og
hefur ásamt dansherra sínum,
Bretanum Scott Montague, náð
góðum árangri á alþjóðavettvangi
og standa þau framarlega 1
heiminum í sinni íþrótt í dag.
Síðustu misseri hefur parið
verið að ná betri og betri árangri
á opnum áhugamannamótum hér
og þar um heiminn og hafa aldrei
staðið jafn framarlega og nú.
Þau kepptu fyrir skömmu á
einu af þremur stærstu
áhugamannamótum í heiminum,
Intemational Championships,
sem haldið var í Royal Albert Hall
í London. Þar komust þau í
undanúrslit 12 para en 260 pör
tóku þátt í mótinu. Þess má geta
að Elísabet Sif, sem er 19 ára, var
langyngsti dansarinn á mótinu.
Af öðrum mótum á síðustu
vikum má telja sterkt mót i
Barcelona á Spáni þar sem þau
höfnuðu í þriðja sæti og mót í
Danmörku, svokallað World
Ranking opið mót áhugamanna,
en þar lentu þau í fjórða sæti. Á
öll þessi opnu mót mæta pör
hvaðanæva úr heiminum.
Sýna á gamlárskvöld í Kuala
Lumpur
Elísabet Sif og Montague
virðast eiga mjög vel saman í
dansinum ef miða má við árangur
þeirra upp á síðkastið. Þau æfa
mjög stíft, að meðaltali fjóra tíma
á dag, en þá eru ekki meðtalin
þrekæfingar og fyrirlestrar um
dansíþróttina.
Fyrir árangur þeirra á mótinu í
Royal Albert Hall hefur þeim
verið boðið til Kuala Lumpur í
Malasíu til þess að sýna þar dans
á gamlárskvöld en þau halda utan
þann 27. desember næstkomandi.
al þeirra
bestu
^ Evrópumótin í handknattleik:
Olafur skoraði
11 mörk í Úkraínu
- Magdeburg tapaöi naumt en á heimaleikinn eftir
Aron allur
að koma til
- Skjern sigraði
Danska liðið, sem Aron Krist-
jánsson leikur með, sigraði
júgóslavneska liðið RK Sin-
telon, 33-28, í
fyrri leik lið-
anna í Evr-
ópukeppni
bikarhafa í
handknatt-
leik í gær.
Aron stjórn-
aði sóknar-
leiknum hjá
Skjem og
skoraði þrjú
mörk.
„Þetta var mjög góður sigur
en það er spuming hvort þessi
flmm mörk duga okkur því
júgóslavneska liðiö er örugg-
lega mjög erfitt heim að sækja.
Við hefðum með smáheppni
getað unnið stærri sigur en um
tíma í fyrri hálíleik vorum við
með átta marka forystu. Undir
lok leiksins klúðruðum við
vítakasti, þeir brunuðu upp og
skoruðu og náðu þannig að
minnka forskotið niður í fimm
mörk,“ sagði Aron Kristjánsson
í samtali við DV.
Hann sagðist allur vera aö
koma til eftir hnjámeiðslin og
væri bjartsýnn á framhaldið.
Aron kemur heim í frí 18. des-
ember og þá hefst undirbúning-
urinn með landsliðinu fyrir HM
í Frakklandi.
íslenskir dómarar stóöu
sig vel
Guðjón L. Sigurðsson og Ólaf-
ur Haraldsson dæmdu leikinn í
Skjem og komust þeir vel frá
hlutverki sinu.
„Það var haft á orði eftir leik-
inn hvað dómararnir hefðu
komust vel frá leiknum. Þeir
Guðjón og Ólafur höfðu mjög
góð tök á leiknum," sagði Aron.
-JKS
Ólafur Stefánsson skoraði 11
mörk fyrir Magdeburg sem tapaði
fyrir Saporoshje frá Úkraínu,
23-22, 1 fyrri leik liðanna í EHF-
keppninni í handknattleik um
helgina. Síðari leikurinn verður í
Magdeburg um næstu helgi og
verða möguleikar þýska liðsins að
komast áfram í 8 liða úrslit keppn-
innar að teljast góðir. Ólafur átti
mjög góðan leik en hann hefur
staðið sig mjög vel með liðinu í
vetur. Rússinn Kuleschow skoraði
fjögur mörk. Hjá Saporoshje gerði
Oleg Veliki 11 mörk og sagði Al-
freð Gíslason að ef honum yrði
haldiö niðri i síðari leiknum væri
hann bjartsýnn á að komast
áfram.
Alfreö ánægöur þrátt fyrir
ósigur
„Þrátt fyrir tap var ég nokkuð
ánægður með leikinn en það er
mjög erfítt að koma hingað og
leika,“ sagði Alfreð í viðtölum eft-
ir leikinn.
Þýsku félagsliðin komust annar
vel frá leikjum sínum á Evrópumót-
inu um helgina. Kiel lék á heima-
velli við ítalska liðið Pallamano
Trieste í meistaradeildinni og sigr-
aði, 34-24, en þar áður tapaði liðið
fyrir Braga á útivelli. Fyrri hálf-
leikur var jafn gegn Trieste og hafði
Kiel þá aðeins eins marks forystu,
15-14, í síðari hálfleik skildi hins
vegar leiðir og þýska liöið tryggði
sér tíu marka sigur. Daninn Nikolaj
Jakobsen skoraði 10 mörk fyrir
Kiel og Magnus Wislander skoraði
fímm mörk.
Lemgo sigraði Partizan Belgrad,
19-20, i Júgóslavíu og er svo gott
sem komið áfram. Khermann
skoraði sjö mörk fyrir Lemgo og
Baumgartner skoraði fímm mörk.
Flensburg háði erfiðan leik
gegn sænska liðinu Skövde á
heimavelli. Þýska liðið hafði i lok-
in fimm marka sigur, 30-25, sem
er ekki víst að nægði liðinu en síð-
ari viðureignin verður í Skövde
um næstu helgi. Daninn Christi-
ansen skoraði tíu mörk fyrir
Flensburg.
Góður útisigur
hjá Nordhorn
Guðmundur Hrafnkelsson og
félagar unnu góðan útisigur,
28-35, á WiOstatt í þýsku
bundeslíg-
unni í
handknatt-
leik í gær.
Þetta var
annar sigur
liðsins í röð
og greini-
legt á öUu
að liðið er
hrokkið í
gang.
Róbert Róbert Duranona
Duranona hefur leikiö vel
skoraði eitt meó Nettelstedt
mark fyrir en lét sér nægja
Nettelstedt e'h mark um
sem sigraði helgina.
Wetzlar, 27-26, á heimaveOi. Sig-
urður Bjarnason í herbúðum
Wetzlar var ekki í hópi marka-
skorara liðsins. Þá sigraði Sol-
ingen lið Bad Schwartau, 28-21.
Vegna þátttöku þýsku liðanna
á Evrópumótunum fóru aðeins
fram þrir leikir í deildinni.
Staðan:
Flensburg 16 11 3 2 453-394 25
Magdeburg 15 11 2 2 392-306 24
Massenheiinl5 11 2 2 413-370 24
Lemgo 15 10 2 3 362-347 22
Essen 16 10 2 4 394-367 22
Kiel 14 10 0 4 384-330 20
Bad Schw. 16 9 1 6 371-380 19
Nordhorn 15 8 2 5 399-348 18
Grosswalds. 15 8 1 6 369-354 17
Solingen 16 7 1 o 1 œ 15
Gummersb. 15 6 2 7 389-381 14
Nettelstedt 16 7 0 9 397-420 14
Minden 15 6 1 8 378-390 13
Eisenach 15 5 2 8 365-378 12
Hameln 15 5 1 9 346-378 11
Wetzlar 16 5 0 11 400-418 10
Dormagen 15 4 1 10 322-374 9
Willstatt 16 3 3 10 396-435 9
Wuppertal 15 2 1 12 311-382 5
Hildesheim 15 1 1 13 322-412 3
-JKS
-JKS
Ólafur Stefánsson skoraöi 11 mörk fyrir Magdeburg, þar af sex mörk mörk
úr vítaköstum í Úkraínu um helgina. Siöari viöureignin veröur í Magdeburg
um næstu helgi.