Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Síða 5
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000 25 DV Sport Léttir og Grindavík áfram ÍA vann stórsigur á Létti, 93-57, á Akranesi. Trausti Freyr Jónsson skoraði 18 stig fyrir ÍA og Sveinbjörn Ásgeirsson 17. Ingi Karl Ingólfsson skoraði 15 stig fyrir Létti. Grindavik sigraði Þór Þorlákshöfn, 88-110, í Þorlákshöfn en heimamenn voru yfír í hálfleik, 43-42. Grindvíkingar kæffærðu síðan Þór í byrjun seinni hálfleiks. Grindvíkingar hittu 16 af 27 i 3ja stiga skotum. Kim Lewis spilaði ekki með Grindvíkingum, hann er meiddur og spilar ekki meira fyrir jól. Stigahæstir hjá Grindavík voru Guðlaugur Eyjólfsson með 29 (6 af 10 í 3ja) og Páll Axel Vilbergsson með 20 stig. Gamon Baker var allt í öllu hjá Þór og skoraði 45 stig. -BG/JKS 19 þriggja stiga körfur ÍR vann Selfoss í bikarkeppni í körfuknattleik, 96-64, í gærkvöldi. Leikurinn var hinn fjörugasti fyrir þá áhorfendur sem mættu, með skemmtilegum sóknarleik, nítján þriggja stiga körfum og fjölmörgum fallegum sendingum og troðslum. Einnig vörðu ÍR-ingar nokkur skot Selfyssinga glæsUega. Allir leikmenn virtust vera komnir til að hafa gaman af leiknum og það sama má segja um dómarana. Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 24, Eiríkur Önundarson 21, Cedrick Hoimes 20, Halldór Kristmannsson 10, Sigurður Þorvaldsson 8, Benedikt Pálsson 7, Ólafur Sigurðsson 2, Ólafur Þórisson 2 og Rúnar Sævarsson 2. Stig Selfoss: Leon Perdue 21, Ólafur Guðmundsson 14, Þorkell Bjamason 7, Marvin Valdimarsson 6, Gestur Guðjónsson 6, Þorkell Haraldsson 5 og Guðmundur Á. Böðvarsson 5. - KR-ingar skelltu Njarðvíkingum á útivelli, 83-89 „Ég er mjög stoltur af mínum mönnum. Vörn og fráköst var það sem átti aö leggja áherslu á en það gekk ekki fyrr en í 4. leik- hluta. Með frábærri vörn í lokin kom sjálfstraustið í sókninni. Ólafur Jón, fyrirliði hefur verið veikur frá því á flmmtudag og því þurftu aörir að stíga upp sem þeir og gerðu,“ sagði Ingi Þór Stein- þórsson, þjálfari KR, í leikslok. Heimamenn byrjuðu betur í leikn- um og voru að leika frábæra vörn í fyrri hálfleik. Teitur Örlygsson var að leika vel i sókn og vörn og Brenton var atkvæðamikill í sókninni og skor- aði 20 stig í fyrri hálfleik. Vöm KR var slök í fyrri hálfleik og i sókn- inni virtist sjálfstraustið ekki vera til staöar og Jón Arnór Stefánsson og Keith Vassel voru þeir einu sem tóku af skarið. Ingi Þór virt- ist þó hafa lesið yfir sínum mönn- um í hálfleik því KR byrjaði á að skora fyrstu 5 stigin en þá kom Teitur Örlygsson til sögunnar og skoraði tvær 3ja stiga körfur á stuttum tíma og munur- inn hélst því í 7 til 10 stigum út leikhlutann og staðan 65-57 er 4. leikhluti hófst. Þá hófst kafli í leiknum hjá KR-ingum þar sem þeir skoruöu 9 stig í röð, Hermann Hauksson skoraði 3ja stiga körfu og kom þeim í 65-66 og KR yfir í fyrsta sinn í leiknum. Frá þeim tíma var sjálfstraustið hjá þeim röndóttu. Njarðvíkingar voru komnir í villuvandræði og er 2 mínútur voru eftir voru allir leikmenn Njarðvíkur á vellinum með 4 vill- ur. Það má svo segja að úrslitin hafi ráðist er rúm mínúta var eft- ir og staðan 80-82 og vandræði i sókn KR sem endaði með því að Logi Gunnarsson slæmdi hendi í boltann og út af. Skotklukkan var endurræst og eftir fundarhöld ákváðu Kristinn Albertsson og Helgi Bragason að það væru 12 sekúndur eftir af tímanum en raunin var sú aö það gat vart staðist því skömmu áður en boltinn fór út af kallaði Ingi Þór, þjálfari KR, til sinna manna að þaö væru 6 sekúndur eftir og þær fóru niður í 2 áður en knötturinn fór út af. Út frá þessu skoraði Steinar Kaldal og þá má segja að björninn hafi verið unninn. Njarðvíkingar reyndu hvað þeir gátu en tíminn var of naumur og lokatölur 83-89 KR i vil. Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 26, Teitur Örlygsson 21, Jes Hansen 12 (13 fráköst), Friðrik Ragnarsson 10, Logi Gunn- arsson 10, Ragnar Ragnarsson 2, Halldór Karlsson 2. Stig KR: Keith Vassel 23 (8 frá- köst), Jón Amór 18, Magni Haf- steinsson 12, Hermann Hauksson 10, Steinar Kaldal 9, Tómas Hermannsson 2, Amar Kárason 1. -EÁJ Valsmaöurinn Guömundur Björnsson, sem skoraöi 13 stig, er hér umkringdur Haukamönnum. Gestirnir unnu sigur í Grafarvoginum og eru komnir áfram í bikarnum DV-mynd KK Bikarkeppnin í körfuknattleik: Hamar sterkur í Hveragryfjunni - baráttusigur gegn Tindastóli DV, Hverageröi: „Þetta var mikil barátta," sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Ham- ars, og hefði sigurinn geta lent hvar sem er. Tindastóll er með mjög gott lið og það er gaman að vera búinn að vinna alla leiki á heimavelli á þessu tímabili sagði Pétur að lokum. í liði Hamars leika þrír stráka frá Sauðakrók og var þetta að sjálfsögðu mjög sætur sigur fyrir þá. Eini ljóti bletturinn á leiknum voru dómarar leiksins, þeir Krist- inn Albertsson og Jón Halldór Eð- valdsson, þeir höfðu engin tök á leiknum og voru allan leikinn að reyna að bæta fyrir ranga dóma sem þeir dæmdu á leikmenn beggja liða. Leikurinn var mjög haröur og fengu t.d. Hamarsmenn 27 villur og Tindastóll 18. Þetta var þó eins og bikarleikir eiga að vera, spenn- andi frá byrjun til enda. Bestir í liði Hamars voru Chris Dade og Pétur Ingvarsson en Pét- ur tók á skarið í lok leiksins og hélt Hamri inni í leiknum. Hjá Tindastóli var Shaun Myers og Svanur Birgisson bestir. Stig Hamars: Chris Dade 32, Pét- ur Ingvarsson 22, Skarphéðinn Ingason 6, Ægir Jónsson 6. Hamar tók 34 fráköst og voru Chris og Svavar Páll með 7 hvor Stigahæstir hjá Tindastóls- mönnum voru Shaun Myers með 25 stig og Svanur Birgisson skor- aði 13 stig. Tindastóll tók 29 frá- köst og var Shaun með 12. -EH Davis sterkur - þegar Keflvíkingar lögðu Skallagrím Borgnesingar komu til Kefla- víkur í annað sinn á þremur dögum og gestunum tókst að stríða Keflvíkingum framan af leik, rétt eins og á fimmtudag, en lokatölur voru 105-91. Keflvíkingar byrjuðu betur og skoruðu 10 fyrstu stig leiksins. Gestirnir réttu þó sinn hlut en heimamenn höfðu 21-15 forystu eftir fyrsta leikhluta. Keflvíkingar virtust ætla að klára leikinn um miðjan annan leikhluta og höfðu þá 19 stiga forskot en hálfleikstölur voru 51—42. Það var fyrst og fremst vegna stórleik Sigmars Egilssonar í leikhlutanum að munurinn var ekki meiri og skoraði hann 16 stig í fyrri hálfleik. I seinni hálfleik var eins og Keflvíkingar færu í stutt frí, Tomilovski hélt Davis í aðeins 2 stigum og 2:3 svæðisvörn Kefl- víkinga var alls ekki kröftug og gestimir gengu á lagið og staðan var 72-70 er fjórði leikhluti hófst. Ari Gunnarsson hitti vel á þessum tíma og staðan var 78-78 er 7 mínútur voru eftir. Þá vakti Sigurður Ingimundarson sína menn og á 4 mínútum skoruðu þeir 18 stig gegn 2 og sigurinn var því í höfn. Calvin Davis átti frábæran leik hjá Keflvíkingum að vanda og tróð hvað eftir annað. Hjá gestunum átti Sigmar Egilsson góðan dag og Ari Gunnarsson hitti vel. Stig Keflavíkur: Calvin Davis 30 Guðjón Skúlason 14, Hjörtur Harðarson 13, Gunnar Einarsson 12, Magnús Gunnarsson 11, Albert Óskarsson 10, Birgir Öm Birgisson 7, Gunnar Stefánsson 6, Amar Freyr Jónsson 2. Stig Skallagríms: Warren Peebles 26, Sigmar Egilsson 24, Ari Gunnarsson 16, Pálmi Sævarsson 9, Evgenij Tomilovski 8, Egill Örn Egilsson 3, Alexander Ermolinskij 3 (11 fráköst), Hafþór Gunnarsson 2. -EJ Haukar áfram „Ég var mjög óánægður með hvemig við lékum í þessum leik og í heildina séð var hann dapur hjá okkur en það er alltaf gaman að vinna og gott að vera áfram í bikarkeppninni," sagði Jón Arn- ar Ingvarsson, fyrirliði Hauka, eftir sigur þeirra, 82-86, á liði Vals/Fjölnis í sextán liöa úrslit- um bikarkeppninnar á laugar- daginn. Lið Vals/Fjölnis hóf leik- inn af miklum krafti og náði fljótlega ágætri forystu. í öðrum leikhluta spýttu Haukamir í lóf- ana og tókst með góðum leik að ná tveggja stiga forystu þegar flautað var til leikhlés. Fjóröi leikhluti einkenndist af mistök- um og lélegri skotnýtingu. Jón Amar, Marel og Mike báru uppi leik Haukanna. Það eru stór batamerki á leik Vals/Fjölnis og það hlýtur að fara að koma að því að þeir haldi út heilan leik. Herbert var þeirra bestur. Stig Hauka: Marel Guðlaugsson 23, Mike Bargen 21, Jón Arnar Ingv- arsson 19, Guðmundur Bragason 12, Lýöur Vignisson 6, Leifur Leifsson 3, EyjólfurJónsson 2 Stig Vals/Fjölnis: Herbert Arnarson 25, Guðmundur Björnsson 13, Brian Hill 13, Bjarki Gústafsson 11, Stein- dór Aðalsteinsson 7, Sigurbjöm O.Björnsson 5, Brynjar Karl Sigurðsson 5, Kjartan O. Sigurðsson 3 -SMS Stjarnan stóð í Þórsurum Stjarnan kom á óvart þrátt fyrir tap, 82-92, þegar liðið tók á móti Þór frá Akureyri. Stjarnan átti fullt erindi í Þórsara þrátt fyrir að vera í deild fyrir neðan og með smá- heppni hefðu Garðbæingar get- að unnið en tapaðir boltar í lokin gerðu vonir þeirra að engu. Þegar rúm mímúta var eftir var staðan 82-84 gestun- um i vil en Þórsarar skoruðu síðustu 8 stig leiksins. Hjá Stjörnunni voru örvar Kristjánsson og Eiríkur Sig- urðsson i aðalhlutverkum. Jón Kr. Gíslason var í búningi og spilaði liðið miklu betur þegar hann var inná. Hjá Þór voru Clifton Bush og Hermann Hermannsson bestir. Stig Stjörnunar: Örvar Kristjánsson 25, Eiríkur Sigurðs- son 23, Jón Kr. Gíslason 10, Jón Þór Eyþórsson 9, Davíð Guð- laugsson 7, Neil Þórisson 2, Steinar Hafberg 2, Jón Magnús- son 2, Hjörleifur Sumarliðason 2. Stig Þórs: Clifton Bush 23, Her- mann Hermannsson 19, Einar Öm Aðalsteinsson 14, Magnús Helgson 11, Óðinn Ásgeirsson 9, Hafsteinn Lúðviksson 9, Einar Hólm 3, Sigurður Sigurösson 1. -BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.