Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Blaðsíða 8
28 Sport Grótta/KR-Valur 21-17 0-2, 3-2, 5-3, 6-7, 10_8, (11-10). 11-12, 12-14, 16-15, 18-17, 21-17 Grótta/KR Mörk/viti (Skot/viti): Hilmar Þórlinds- son 8/4 (16/5), Aleksandr Petersons 4 (13), Kristján Þorsteinsson 3 (8), Alfreð Þorsteinsson 2 (4), Atli Þór Samúelsson 2 (3), Magnús A. Magnússon 1 (2), Davíð Olafssonl (4). Mörk úr hraóaupplilaupum: 3 (Davíð, Petersons, Magnús). Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/víti (Skot á sig): Hlynur Mortens 12 (28/3, 43%), Hreiðar Guö- mundsson 0 (1/1, 0%). Brottvísanir: 2 mínútur Valur Mörk/viti (Skot/víti): Valdimar Gríms- son 5/4 (6/4), Freyr Brynjarsson 4 (6), Daníels Ragnarsson 3 (5), Júlíus Jónas- son 2 (4), Geir Sveinsson 1 (3), Valgarð Thoroddsen 1 (2), Bjarki Sigurðsson 1 (1), Markús Michaelsson (6), Snorri Guð- jónsson (3). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Freyr 3, Júlíus). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (Skot á sig): Roland Eradze 16 (36/4, eitt víti í slá, 44%), Stefán Hannesson 0 (1/1, 0%). Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson, Jónas Eliasson 5. fíæói leiks (1-10): 3. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Júlíus Jónasson, Val. Fram-FH 28-20 0-1, 2-4, 2-6, 3-8, 6-10, 8-10, 11-11, (12-11), 13-11, 15-13, 16-15, 18-17, 20-17, 22-18, 24-18, 27-19, 28-20 Fram Mörk/viti (Skot/viti): 7/4 (7/4), Gunnar Berg Viktorsson 6/0 (14/2), Róbert Gunn- arsson 5/1 (5/1), Hjálmar Vilhjálmsson 5 (_6), Guðjón Drengsson 3 (5), Njörður Árnason 2 (3), Björgvin Björgvinsson 1 (3), Ingi Þór Guðmundsson (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Hjálmar 3, Róbert 2, Njörður 1). Vítanýting: Skorað úr 5 af 7. Varin skot/viti (Skot á sig): Sebasti- an Alexendarsson 11/0 (37/3). Brottvísanir: 4 mlnútur FH Mörk/viti (Skot/víti): Héðinn Gilsson 7/2 (11/3), Valur Arnarson 6 (9), Hálfdán Þórðarson 4 (5), Sigurgeir Ægisson 2 (5), Guðmundur Pedersen 1 (5), Sverrir Þórðarson (1), Viktor Guðmundsson (1), Lárus Long (1), Pálmi Hlöðversson (1), Hjörtur Hinriksson (3). Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Hálfdán 2, Guðmundur 1, Valur 1) Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Varin skot/viti (Skot á sig): Berg- sveinn Bergsveinsson 6/2 (25/6), Jónas Stefánsson 3/0 (13/1). Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson (7). Gœöi leiks (1-10): (7). Áhorfendur: 160. Maöur leiksins: Róbert Gunnarsson, Fram KA-ÍBV 36-32 1-1 4-1, 6-2, 6-7, 7-8, 9-9, 10-12, 12-12, 14-13 (15-15). 16-17, 19-20, 23-24, 27-27 (28-28). 30-28, (32-29). 34-30, 36-32. KA Mörk/viti (Skot/víti): Andreas Stelmokas 10 (14), Guðjón Valur Sigurðs- son 9/6 (14/7), Heimir Om Ámason_7 (9), Halldór Sigfússon 5/2 (7/3), Saevar Árna- son 4 (6), Giedrius Csemiavskas 1 (3). Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Aandr- eas 3, Sævar, Heimir) Vitanýting: Skorað úr 8 af 10 . Varin skot/víti (Skot á sig): Hörður Flóki Ólafsson 9 (29/8, 31%), Kári Garöarsson (11/6.) Brottvisanir: 16 mínútur ÍBV Mörk/viti (Skot/viti): Jón Andri Finnsson 11/10 (16/13), Sigurður Stefáns- son 6 (10), Eymar Krúger 6 (11), Svavar Vignisson 4 (4), Armias Frovolas 2 (5), Guðfinnur Kristmannsson 1 (3), Erling- ur Richardsson 1 (2), Sindri Haraldsson 1(2). Mörk úr hraöaupphlaupum: Engin. Vitanýting: Skorað úr 11 af 14 . Varin skot/viti (Skot á sig): Gísli Guðmundsson 15/1 (39/8, 38,5%), Kristinn Jónatansson 1/1 (2/2, 50,0%). Brottvisanir: 14 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur I.eifsson, 5. Gceöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 350. Maður leiksins: Andreas Stelmokas, KA Spennan hélt áhorf endum viö efnið - Grótta/KR lagöi Valsmenn á Nesinu Grótta/KR sigraði Valsmenn, 21-17, á heimavelli sínum á Sel- tjarnarnesi í leik sem var með ein- dæmum slakur handboltalega séð. Það sem hélt áhorfendum við efnið var að leikurinn var lengst af jafn og í raun hefði sigurinn getað lent hvorum megin sem var. En það voru slakir sóknartilburðir sem urðu Valsmönnum að falli í leikn- um. Valsmenn byrjuðu líflega. Bjarki' Sigurösson skoraði fyrsta mark leiksins eftir tæpar 20 sekúndur en hann átti síðan ekki eitt einasta skot á markið þangað til honum var skipt út af í síðari hálfleik. Það var jafnræði með liðunum en sóknartil- burðir beggja liða voru með hrein- um ólíkindum. Stórskytturnar Hilmar Þórlindsson og Aleksandr Peterson áttu afar erfitt með að flnna netið fyrir Gróttu/KR og end- uðu skot þeirra ýmist fyrir utan rammann eða í Roland Eradze sem varði geysilega vel í byrjun leiks. Vandamál Valsmanna var hins vegar af öðrum toga því þeir glutr- uðu boltanum oft í hendurnar á andstæðingnum með lélegum send- ingum eða með því að hreinlega missa boltann. Liðin skiptust á um að hafa forystuna í fyrri hálfleik en í leikhléi munaði einu marki Gróttu/KR í vil. í síðari hálfleik settu Valsmenn Daníel Ragnarsson í skyttustöðuna hægra megin í stað Valdimars Grímssonar og átti hann fína inn- komu. Það var mikið fyrir hans til- stilli sem Valsmenn náðu tveggja marka forskoti, 12-14, eftir 11 mín- útna leik í síðari hálfleik. En svo fór Daníel í sama farið og aðrir félagar lians í Valsliðinu. Þeir fóru aftur að missa boltann kiaufalega eða skjóta illa og við þetta náði Grótta/KR forystunni þrátt fyrir að þeirra sóknarleikur væri langt frá því að vera laus við vandamál af svipuðum toga. Grótta/KR náði þriggja marka for- ystu, 20-17, þegar fimm minútur voru eftir og Valsmenn nýttu þær sóknir illa sem eftir voru til að minnka muninn. Hvorugt liöiö átti glansleik Eins og að framan sést átti hvor- ugt liðið neinn glansleik. Það var helst að góð tilþrif sæjust í varnar- leik og þar má benda á Einar Bald- vin og Magnús Agnar hjá Gróttu/KR og þá Júlíus og Geir hjá Val auk þess sem Roland Eradze varði vel í byrjun leiks eins og áður sagði. Aðrir voru langt frá sinu besta og var sérstaklega dapurlegt að sjá hvað skytturnar náðu sér illa á strik, sérstaklega hjá Val, þó að Hilmar Þórlindsson tæki reyndar aðeins við sér í siðari hálfleik. -HI Skin og skúrir í Safamýrinni: 14 marka sveifla - Fram fór úr 3-9 í 28-20 og lagði FH-inga að velli Fram vann góðan sigur á FH í gærdag, 28-20, og fylgir þar með Haukum fast eftir á toppi deildarinnar. Gestimir byrjuðu þó mun betur og komust fljótlega sex mörkum yfir en Framarar voru fljótir að nýta sér það þegar FH-ingar fóru að láta reka sig út af. Alls voru FH-ingar einum færri í 8 mínútur í fyrri hálfleik. Bergsveinn Bergsveinsson byrjaði vel í markinu og varði tvö víti frá Gunnari Berg en náöi ekki að fylgja því eftir og fengu gestimir lítið frá markmönnum sínum megniö af leiknum. Fram komst einu marki yfir fyrir hlé og var síðan mun betra liðið f seinni hálfleik. Munurinn var aðeins eitt mark um miðjan seinni hálfleikinn en þá fóru leikmenn FH aö gera einhvern fáranlegan gjöming í sókninni sem varð til þess að heimamenn hreinlega völtuðu yfir þá. Gestimir einfaldlega hættu og þegar lokaflautið gall var munurinn orðinn átta mörk. „Leikurinn byrjaði ekki nógu vel hjá okkur og það var eins og menn væru værukærir. Svo þegar við byijuðum að spila eins og menn var ekki aftur snúið og við náðum 14 marka sveiflu. Við bara byijuöum ekki þegar dómai-amir flautuðu leikinn á og það er mjög slæmt. FH-ingar spiluðu mjög vel í upphafi og það má ekki taka það af þeim en síðan náðum við tökum á leiknum. Ætli menn hafi ekki bara verið orðnir þreyttir á að hlusta á skammirnar frá þjálfaranum og ákveðið að rífa sig upp. Hann getur ekki skammað okkur þegar við spilum vel. Þetta var mikill bamingur og dómararnir leyfðu mikla hörku en það kom ekki niður á öðru liðinu heldur notfærðu bæði lið sér það. Við höfum oft náð góðu forskoti og tapað því niður en núna héldum við áfram að bæta við og ég er mjög ánægður meö það, sagði Róbert Gunnarsson, leikmaður Fram, við DV eftir leikinn. Hjá Fram var Róbert sterkur og duglegur að fiska vítaköst og Maxim skilaði sínu. Gunnar Berg var góður í seinni hálfleik eftir frekar dapran fyrri hálfleik en annars var liðsheildin góð. Hjá FH voru Valur Amarson og Héðinn Gilsson bestir og var Héöinn tekinn úr umferð megnið af leiknum eftir að hafa skorað grimmt í byrjun. Hann má þó setja meiri orku í leikinn sjálfan í staö þess að vera sífellt vælandi yfir dómgæslunni. -BG Gáfust aldrei upp - sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir sigurinn á ÍBV DV, Akureyri: Fyrirfram var búist við örugg- um sigri KA á ÍBV þegar það kom í heimsókn í KA-heimilið á föstu- daginn var. KA var fljótlega búið að ná fjögurra marka for- skoti þegar um átta mínútur voru búnar af leiknum. Næstu 10 mín- útum þar á eftir vilja KA-menn örugglega gleyma sem fyrst. Ekkert gekk upp og náðu Eyja- menn að komast yfir, 6-7. KA- menn hrukku þá í gang og héldu í viö þá fram til leikhlés. Leikur liðanna var mjög grófur og voru ófáar brottvísanir í fyrri hálfleik. KA haföi fengið fimm í fyrri hálf- leik og ÍBV fjórar. Seinni hálfleikur var æsispenn- andi og var aldrei dauð stund í honum. ÍBV haföi yfirhöndina allan seinni hálfleikinn þar til um ein mínúta var eftir af leikn- um. Mikil barátta var í liðunum, Erlingur Kristjánsson og Svavar Vignisson eldu m.a. grátt silfur á línunni. Jónatan Magnússon fékk svo rautt spjald þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum og þá fyrir að brúka kjaft. KA komst yfir í síðustu mínútunni en Jón Andri Finnsson jafnaði þegar um hálf minúta var eftir úr víti. KA fór í sókn og fékk aukakast í lokin en náði ekki að nýta sér það og varð framlenging staöreynd. KA verðskuldaði framlenging- una, spilaði af reynslu og var komið með þriggja marka forystu eftir fyrstu fimm mínúturnar. Það hélt uppteknum hætti og vann framlenginguna meö íjög- urra marka mun. Jón Amar Finnsson var markahæstur maður HK með 12 mörk, þar af 11 úr vítum, Gísli Guðmundsson var öflugur í marki ÍBV. Guðjón Valur og Andreas Stolmokas voru bestu menn KA í leiknum. Ánægöur meö sóknina „Þetta var mjög erfiöur leikur. Þeir eru búnir að tapa fimm leikj- um í röð. Þeir eru mjög skynsam- ir í sínum sóknarleik, stóöu sig mjög vel í leiknum en okkur tókst mjög illa að verjast. Ég er hins vegar mjög ánægður með sóknar- leikinn okkar í dag, við gáfumst aldrei upp og kláruöum þetta í restina. Ég held að menn hafl haldið að þetta væri búið í stöð- unni 6-2 og væri auðvelt eftir það. Þetta er lið sem gefst aldrei upp og er mjög klókt í sínum að- gerðum. Við eigum eftir einn leik eftir fyrir jól á móti HK á útivelli. Deildin er það jöfn að við þurfum lifsnauðsynlega á þessum stigum að halda,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir leikinn. -JJ + MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000 29 Sport Afturelding-Stjarnan 29-27 1-0, 2-2, 4-5, 6-7, 10-8, (13-13), 14-13, 16-15, 19-19, 22-21, (24-24), 24-25, (26-27), 27-27, 29-27. Afturelding Mörk/víti (Skot/viti): Bjarki Sigurðs- son 9/3 (11/3), Savukynas Gintaras 8 (11/1), Magnús Már Þórðarson 3 (4), Haukur Sigurvinsson 3/1 (4/1), Hjörtur Arnarson 2 (2), Himar Stefánsson 2 (4/1), Þorkell 1 (2), Galkauskas Gintas 1 (4). Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Gintaras 2, Bjarki, Haukur, Þorkell). Vitanýting: Skorað úr 4 af 6. Varin skot/viti (Skot á sig): Reynir Þór Reynisson 16 (45/2, 36%). Brottvísanir: 12 mínútur (Bjarki rautt fyrir brot). Stiarnan Mörk/víti (Skot/viti): Magnús Sigurðs- son 7/2 (18/2), Eduard Moskalenko 6 (8), Arnar Pétursson 5 (9), David Kekelia 4 (4), Sæþór Ólafsson 3 (4), Konráð Olavs- son 1 (2), Bjarni Gunnarsson 1 (3), Sig- urður Viðarsson (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: Ekkert. Vitanýting: Skorað úr 2 af 2. Varin skot/viti (Skot á sig): Birkir ívar Guðmundsson 8/2 (37/6, 22%). Brottvísanir: 12 mínútur (Eyjólfur Bragason rautt og Kekelia rautt fyrir brot). Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Óinarsson (7). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 350. Maöur leiksins: Savukynas Gintaras, Aftureldingu. Þaö var hart barist aö Varmá á laugardaginn og ýmis brögö í tafli eins og sést hér hjá þeim Arnari Péturssyni og Konráö Olavssyni (á gólfinu) sem taka frjálslega á Sakukynasi Gintaras. DV-mynd Hilmar Þór Haukar 12 11 1 365-286 22 Fram 12 10 2 319-267 20 Grótta/KR 12 8 4 296-296 16 Afturelding 12 7 5 337-306 14 KA 12 7 5 307-296 14 Valur 12 6 6 293-277 12 FH 12 6 6 287-273 12 ÍR 12 6 6 272-270 12 IBV 12 5 7 328-328 10 Stjarnan 12 4 8 301-310 8 HK 12 2 10 274-322 4 Breiðablik 12 0 12 246-394 0 Nœstu leikir í Nissan-deildinni verða um næstu helgi en á tostudag mætast ÍR og Fram og FH og Afturelding. Á laugardag spila síðan Stjarnan og Grótta/KR, HK og KA, og Breiðablik og ÍBV. að Varmá í jöfnum leik þar sem Mosfellingar sigruðu Stjörnuna í framlengingu, 29-27 NISSANj- deildin Það var háspenna á Varmá á laugardagnn þegar Stjaman kom í heimsókn í Nissandeild karla. Leikurinn var mjög jafn og nokkuð harð- ur og úrslit réðust ekki fyrr en i franlengingu, 29-27 heimamönnum í vil en staðan í hálfleik var 13-13 og að loknum venjulegum leiktíma 24-24. Þetta gefur von um hörkuleik þegar liðin mætast á miðvikudag í SS-bikarkeppninni i Ás- garði en þar vann Afturelding í leik liðanna fyrr í vetur. Það var strax ljóst í upphafí að Stjömumenn ætluðu sér að berjast hatrammlega fyrir sigri og þeir náðu fljótt yfirhöndinni í leiknum en náðu þó ekki að slíta sig frá Aftureldinga svo einhverju nam. Afturelding náði að klóra sig aftur inn í leikinn og um miðjan fyrri hálfleik, einkum og sér í lagi fyrir slaka skotnýtingu gestanna. Heimamenn náðu aö komast fram úr með tveimur mörkum, 9-7, eftir að gestimir höfðu verið tveimur mörkum yfir, 3-5, en Stjarnan náði að jafna fyrir leikhléið. Fimm gul spjöld og fimm brottvikningar litu dagsins ljós í fyrri hálfleik og er það gott dæmi um hversu vasklega menn gengu fram. Þrjú rauð spjöld Síðari hálfleikurinn var nánast spegilmynd af þeim fyrri og aðeins einu sinni munaði meira en einu marki á liðum en það var í upp- hafi hálfleiksins þegar heimamenn komust í 15-13. Bjarki Sigurðsson fór fyrir sínum mönnum á þessum timapunkti og skoraði nokkur falleg mörk og spilaði mjög vel. Hinum megin var það hins vegar David Kekelia sem fór fremstur á sama tíma, var mjög ógnandi í sókninni og spilað fantavel í framliggjandi stöðu í vöminni. Það var því leiðinlegt að sjá þegar þessum leikmönnum lenti saman og kom til nokkurra ryskinga sem urðu til þess að báðir fengu rautt spjald. Auk þess fékk Eyjólfur Bragason rautt spjald fyrir að fara inn á völlinn í leyfisleysi til þess að skakka leikinn. Þegar hér var komið sögu voru heimamenn einu marki undir en þeir tóku á sig rögg án þjálfara síns og náðu frumkvæðinu í leiknum. Þeir áttu góða möguleika undir lok venjulegs leiktíma til þess að vinna leikinn en Magnús Sigurðsson og Birkir ívar Guðmundsson komu í veg fyrir það, Magnús varði tvö skot á mikilvægum augnablikum og Birkir varði víti þegar ein og hálf mínúta varð eftir og heima- menn voru yfir og gestimir náðu að jafna og knýja fram framlengingu. Lokaspretturinn heimamanna Stjaman byrjaði betur í framlengingunni og skoraði fyrsta markið og síðan gekk boltinn liða á milli og menn virtust taugaóstyrkir beggja vegna. Stjömumenn höfðu yflr, 26-27, þegar síðari hálfleikur framlengingar hófst. Nú virtist sem heimamönnum fyndist nóg komið og þeir lokuðu á sóknarleiðir Stjömu- manna sem leiddi til erfiðra skota þar sem að- eins eitt rataði á rammann en það fór í stöng. Heimamönnum gekk hins vegar betur og þeir skoruðu þrjú mörk gegn engu og höfðu sigur, 29-27. Hjá heimamönnum var Bjarki Sigurðsson bestur meðan hann hélt skapinu í skefjum en rauða spjaldið batt enda á þátttöku hans. Savukynas Gintaras var ákveðinn í sókninni og skoraði nokkur falleg mörk auk þess að spila uppi félaga sína. Reynir Þór Reynisson hefur átt betri daga en stóð sig þó ágætlega. Magnús Már Þórðarson og Galkauskas Gintas voru sterkir í annars ágætri vöm heima- manna. Magnús Sigurðsson var mesta ógnin hjá Stjömunni, hann var ekki heppinn með skot sín en var sem klettur í vörninni. Amar Pét- ursson átti nokkra ágæta spretti báðum megin á vellinum. Bestur gestanna var Eduard Moskalenko sem tók af skarið þegar mest lá við undir lok leiksins. Kekelia átti mjög góðan leik allt þar til hann missti stjórn á skapi sínu og lenti i ryskingum við Bjarka Sóknarleikurinn hausverkur Konráð Olavsson var að vonum ekki ánægö- ur með lyktir leiksins. „Þetta var hörku- spenna og gat í raun dottið hvoram megin sem var. Það var ekki mikið um vamir framan af, það er ekki mikið af hraðaupphlaupum í þess- um leik af því að vamimar eru ekki að verja neitt og þá er líka litið sem markverðirnir geta gert. Við gáfum Aftureldingu færi á að byggja upp sjálfstraust þegar leið á leikinn og það efldist síðan eftir því sem á leið. Við hefð- um getað slegið á fingurna á þeim í byrjun en misstum af tækifærinu. Sóknarleikurinn hefur alltaf verið vanda- málið hjá Stjömunni, við erum yfirleitt með mjög góða vöm og góða baráttu og þegar það er tO staðar og með markmann eins og Birki fáum við hraðaupphlaupin. Hausverkurinn er sóknarleikurinn, menn em að spila óskynsam- lega, mikið um varasamar línusendingar og skot úr lélegum fæmm sem verður síðan til þess að við fáum á okkar hraðaupphlaup._ Þetta er okkar hausverkur og verður það áfram,“ sagði Konráð eftir leikinn. Spenningur í báðum liðum Magnús Már Þórðarson, línumaður Aftur- eldingar, var nokkuð kátur með úrslitin. „Þetta var svipuð barátta og í síðasta leik á móti þeim og við höföum líka sigur þar. Þeir voru að spila vel, rétt eins og við. Við vissum að þetta myndi ráðast undir lokin og því var mikilvægt að halda dampi út leikinn. Að mínu mati vorum við komnir með þetta undir lok venjulegs leiktíma en þá klúðruðum við tveimur sóknum og þeir komust inn í leikinn aftur. Vamimar voru ekki góðar og markvarslan var kannski ekki eins og við var að búast. Menn voru að fá ágæt færi og því er kannski ekki við markmennina að sakast að því leyti. Það er kannski smáspenningur í báðum lið- um, það er stórleikur milli okkar á miðviku- daginn í bikamum sem kannski skiptir meira máli, menn eru svona að þreifa hver á öðrum núna og kannski ekki að sýna sínar bestu) hliðar," sagði Magnús og hló við. -ÓK +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.