Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Blaðsíða 3
20
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
21
Sport
NBA-DEILDIN
Övænt
Tvö mjög óvænt úrslit urðu í
NBA-deildinni í nótt. Sacra-
mento Kings, sem hafði tapað
fæstum leikjum allra liða í deild-
inni til þessa, tapaði á útivelli
fyrir Atlanta Hawks, 107-99, og
Los Angeles Lakers beið lægri
hlut á heimavelli fyrir
Milwaukee Bucks, 105-109. Bana-
biti leikmanna Sacramento var
bakvörðurinn Jason Terry, sem
skoraði 38 stig. Terry hitti úr öll-
um mögulegum og ómögulegum
skotum og hefur aldrei skorað
jafnmörg stig í leik. í Los Angel-
es voru örlög manna æði mis-
jöfn. Sam Cassell var hetjan en
hann skoraði níu stig á síðustu
fjórum mínútunum fyrir
Milwaukee. Kobe Bryant, hjá
Los Angeles Lakers, var skúrk-
urinn en hann hitti aðeins úr
átta af 31 skoti sínu utan af velli.
Úrslit í nótt:
Toronto-Indiana......104-90
Cárter 33, Oakley 22 (10 frák.), A.
Davis 13, Willis 13 - Rose 22, Miller
19, O'Neal 17 (11 frák.), Croshere 17.
New Jersey-Minnesota . . . 116-94
Marbury 27, Martin 20, S. Jackson 14,
Aa. Williams 13 (13 frák.) - Garnett 21
(10 frák.), Szczerbiak 13, Billups 12.
Cleveland-Dallas .....92-87
Ilgauskas 24 (12 frák.), A. Miller 22,
Harpring 13 (10 frák.) - Nash 21,
Finley 15, Eisley 14, Nowitzki 12.
Atlanta-Sacramento...107-99
Terry 38, J. Jackson 20, A. Henderson
18, Maloney 13 - Webber 22 (13 frák.),
Ja. Williams 21, Christie 20.
Denver-Miami .........86-95
McDyess 22 (12 frák.), McCloud 18,
Posey 13, Van Exel 11 - E. Jones 28,
Mason 15, T. Hardaway 13.
Seattle-Orlando ......97-92
Payton 21, Patterson 18, Lewis 15 (10
frák.), Ewing 14 - D. Armstrong 25,
McGrady 20, Doleac 12, Hill 9.
LA Lakers-Milwaukee . . 105-109
S. O'Neal 26 (17 frák.), Bryant 25,
Penberthy 16, - Allen 35, G. Robinson
26 (13 frák.), Cassell 25, Hunter 13.
Golden State-Portland . . . 93-101
Jamison 30 (15 frák.), Jackson 27,
Blaylock 16, Hughes 13 - R. Wallace
29 (11 frák.), Sabonis 15. -ósk
rrf- ÞÝSKALAND
Unterhaching-Schalke.....0-2
0-1 Sand (26.), 0-2 Hoogdalem (60.).
Stuttgart-Frankfurt......4-1
1-0 Maljkovic (34, sjálfsm.), 1-1
Gebhardt (38.), 2-lSoldo (60.), 3-1
Ganea (76.), 4-1 Dundee (84.).
Wolfsburg-Freiburg.......1-2
0-1 Kehl (31.), 0-2 Konde (59.), 1-2
Juskowiak (66.).
ff *)■ HOLLAND
Waalwijk-PSV Eindhoven ... 1-1
Twente-Roda JC ..........0-2
QTlfi ENGLANP
Úrslit í deildabikar:
Birmingham-ShefBeld Wed. . . 2-0
1-0 Danny Sonner (27.), 2-0 Dele
Adebola (56.)
Úrslit í 2. deild:
Bristol City-Brentford..1-2
ÍTALÍA
ítalska bikarkeppnin:
Udinese-Lazio ...........4-1
1-0 Sottil (4.), 2-0 Margiotta (9.), 2-1
Mihajlovic (21., víti), 3-1 Margiotta
(80.), 4-1 Walem (90.).
Evrópska knattspyrnan:
Schalke á toppinn
Waalwijk hélt jöfnu gegn PSV
Schalke komst aftur á topp
þýsku Bundesligunnar, að
minnsta kosti í sólarhring, í
gærkvöldi þegar liðið sigraði
Unterhaching á útivelli, 0-2. Efsti
maður á markalista deildarinnar,
Norðmaðurinn Ebbe Sand, kom
gestunum yfir með 13. marki sínu
á tímabilinu og Marco van
Hoogdalem skoraði síðan síðara
markið. Heimamenn sköpuðu sér
þó nokkuð af færum en Oliver
Reck varði oft frábærlega i marki
Schalke. Leverkusen á leik til góða
á Schalke en þeir leika við
Bochum í kvöld.
Stuttgart rétti aðeins úr kútnum
í gærkvöldi eftir heldur dapurt
gengi í upphafi leiktíðar þegar
liðið mætti Frankfurt á heimavelli
en heimamenn sigruðu í leiknum,
4-1. Jafnt var framan af leiknum
en leiðir milli liðanna skildi í
stöðunni 1-1 þegar markvörður
Frankfurt, Dirk Heinen, þurfti að
fara meiddur af velli og nýliðinn
Sven Schmitt tók stöðu hans í
sínum fyrsta leik. Schmitt fékk á
sig þrjú mörk og vill sjálfsagt
gleyma þessum leik sem fyrst.
Sigurinn kom Stuttgart úr
botnsætinu og hefur líklega
bjargað starfi Ralfs Rangnick,
þjálfara liðsins.
Wolfsburg tapaði sínum fyrsta
heimaleik síðan í desember á
síðasta ári þegar Freiburg skoraði
tvö mörk gegn einu heimamanna.
Jafnt hjá Waalwijk
Hollensku meistaramir i PSV
Eindhoven töpuðu tveimur
mikilvægum stigum í toppbaráttu
hollensku deildarinnar þegar þeir
gerðu jafntefli, 1-1, við Jóhannes
Karl Guðjónsson og félaga í RKC
Waalwijk á útivelli. Leikurinn var
viðburðalítill en bæði mörkin
komu fyrir leikhlé. Jóhannes Karl
spilaði allan leikinn fyrir
Waalwijk. PSV er nú þremur
stigum á eftir Feyenoord sem er í
efsta sæti deildarinnar en
toppliðið á einn leik til góða. í
hinum leik kvöldsins í deildinni
skoraði Grikkinn Yannis
Anastasiou bæði mörk Rodu JC
gegn Twente í 0-2 sigri. -ÓK
Adskilnaóarsveitir Baska, ETA,
hafa tilkynnt Bixente Lizarazu,
leikmanni Bayem Munchen og
franska landsliðsins í knattspymu,
að hann skuli styðja málstað þeirra
með fjárframlagi eða hann muni sjá
eftir því. Fæðingarstaður Lizarazu
er skammt frá landamærum Spánar
og Frakklands og er í raun basnesk-
ur bær og það vom foreldrar leik-
mannsins sem fengu sent bréf þessa
efnis.
Tiger Woods hefur verið valinn
valdamesti maðurinn í iþróttaheim-
inum af tímaritinu Sporting News.
Hann er aðeins annar íþróttamað-
urinn til að vera í efsta sæti á list-
anum sem gefinn hefur verið út síð-
an 1990 en Michael Jordan var
efstur á listanum 1997. Yfirleitt eru
það stjómendur sambanda, eigend-
ur fjölmiðla og aðrir slíkir „skrif-
stofumenn" sem hreppa hnossið.
-ÓK
Leifur meö
fleiri leiki
Leifur Garðarsson hefur ekki
bara staðið sig vel í dómgæslunni í
körfúnni hér heima því hann er
staddur erlendis þessa daganna þar
sem hann dæmir leiki í
Evrópukeppni félagsliða.
í gær var hann í Frakklandi þar
sem hann dæmdi leik Basket
Racing Paris og Caja San Femando
frá Sevilla á Spáni fyrir fullu húsi,
5000 manns, og i kvöld dæmir hann
svo leik Sarthe Basket frá Le Mans
og Athlon Ieper frá Belgíu, liös
Helga Jónasar Guðfmnssonar.
Mikil umgjörð var um leikinn í
Frakklandi og það er ljóst að Leifur
er að vinna sig upp metorðalistann
hjá FIBA en þetta er önnur ferð
hans utan í vetur. -ÓÓJ
Knattspyrnudómarar brutu upp hversdaginn í gær þegar þeir mættu tii ieiks
á árlegt keilumót í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. í fyrra féll reyndar mótið niður af
óviðráðanlegum orsökum en í ár tóku 12 dómarar þátt í mótinu að þessu
sinni og sýndu margir skemmtileg tilþrif. Rikjandi meistari var Garöar Örn
Hinriksson en hann missti hins vegar titil sinn nú til nýliðans f dómgæslu f
efstu deild, Erlends Eirfkssonar. Keilan er ekki eina „hliðarfþrótt"
dómaranna þvf þeir bregða fyrir sig golffætinum einu sinni ári og keppa sfn
á milli. Á myndinni má sjá Egil Má Markússon munda kúluna en fétagar hans
fyigjast grannt með. DV-mynd KK
Átta liða úrslit SS-bikars kvenna í handknattleik:
Skólabókin
- Stjarnan og FH tryggðu sér sæti í undanúrslitunum
FH-stelpur eru komnar í undanúr-
slit SS-bikarsins í handknattleik eftir
góðan sigur, 18-23, á Val á Hlíðarenda
í gærkvöld.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en gestirnir leiddu með einu
marki, 12-13, í hálfleik. FH-liðið kom
sterkt til seinni hálfleiks og þétti vöm-
ina til muna. Valsstúlkur áttu i hinu
mesta basli með að koma skoti að
marki FH og skoruðu þær einungis
þrjú mörk fyrstu 22 mínútur seinni
hálfleiks.
Vörnin skóp sigurinn
Hjá Val var engin sem stóð upp úr
en Marín Madsen tók sig til í lok leiks-
ins og átti góð uppstökk en það kom of
seint. Dagný Skúladóttir og Hafdís
Hinriksdóttir voru langbestar hjá gest-
unum og skoruðu þær stöllur t.d. 9 af
10 mörkum liðsins í seinni hálfleik.
Gunnur Sveinsdóttir var góð í fyrri
hálfleik. Það var fyrst og fremst vöm
liðsins í seinni hálfleik sem skóp
þennan sigur.
Mörk Vals: Anna Grímsdóttir 4, Marín
Sörens Madsen 4, Kolbrún Franklín 3, Elfa
Björk Hreggviösdóttir 2, Hafrún Kristjáns-
dóttir 2, Anna Guðmundsdóttir 2, Árný
Björg ísberg 1.
Varin skot: Berglind Hansdóttir 10/0.
Mörk FH: Hafdís Hinriksdóttir 8, Dagný
Skúladóttir 7, Gunnur Sveinsdóttir Björk
Ægisdóttir 2, Hildur Erlingsdóttir 1, Harpa
Vífilsdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 2/0,
Kristín Guöjónsdóttir 4/2.
Létt æfing hjá Stjörnunni
Stjömustúlkur fóru létt í gegnum
átta liða úrslit bikarkeppni kvenna.
Lokatölur urðu 11-26 fyrir gestina úr
Garðabæ eftir að staðan í hálfleik var
7-13 Stjörnunni í vil.
Gestimir komu ákveðnir til leiks og
ekkert vannmat var hjá þeim og náðu
þær sex marka forskoti eftir 13 mín-
útna leik og jókst það eftir því sem
leið á leikinn og munurinn var orðinn
15 mörk þegar leiknum lauk. Sóknar-
nýting Stjömunnar var rétt undir 50%
í leiknum en 25% hjá ÍR í fyrri hálf-
leiknum þar sem úrslitin í leiknum
réðust.
Alltaf má spyrja sig þegar þjálfarar
em reknir eins og ÍR-ingar gerðu í upp-
hafi leiktíðar eftir nokkra leiki. Síðan
er það mat blaðamanns að leikur ÍR-
liðsins hafi farið mikið niður á við eft-
ir þjálfaraskiptin. Stelpurnar eru óör-
uggar fyrir utan og boltinn gengur illa
og lítil ógn er af leik þeirra. Það er
með ólíkindum að einn og sami leik-
maðurinn þurfl að skjóta flestöllum
skotum liðsins á markið til að leiktöf sé
ekki dæmd. Heiða Guðmundsdóttir
lenti í því hlutverki í gærkvöldi skaut
hún alls 16 skotum ásamt tveimur vit-
um og skoraði ekkert mark í leiknum.
Ótrúlega létt
„Þetta var ótrúlega létt miðað við það
sem maður bjóst við, þær fóru í fjögura
liða úrslit í fyrra og voru mun erfiðari
í deildarleiknum í vetur en núna. Þetta
small nokkurn veginn hjá okkur og all-
ar fengu að spila. Mér finnst hléið á
deildinni vera í lengra lagi,“ sagði
Nína Kristín Björnsdóttir eftir leik-
inn.
Siggeir Magnússon þjálfari hvOdi
Guðnýu Gunnsteinsdóttur, Höllú Mar-
íu Helgadóttur og Hind Hannesdóttur
í leiknum. Hjá Stjömunni áttu Nína
Kristín, Inga Lára og Sóley markvörð-
ur ásamt Svetlana Theretheta,
erlendum leikmanni Stjömunnar sem
fiskaði meðal annars flmm víti og þrjú
mörk úr hraðaupphlaupum, góðan
leik. En hjá ÍR var fátt um flna drætti
í þessum leik sem öðrum í vetur.
Mörk ÍR: Anna M. Sigurðardóttir 4, Ás-
laug Þórisdóttir 3/3, Björg Elva 2/1, Þor-
björg Eysteinsdóttir 1, Sigrún Sverrisdóttir
1.
Varin skot: Aöalheiöur Þórólfsdóttir
13/1.
Mörk Stjömunnar: Nína K. Bjömsdótt-
ir 7/6, Svetlana Theretheta 6, Inga Lára Þór-
isdóttir 3, Hrund Scheving 2, Margrét Vil-
hjálmsdóttir 2, Hrund Grétarsdóttir 2, Her-
dís Jónsdóttir 1, Anna Blöndal 1, Sóley Hall-
dórsdóttir 1. Varin Skot: Sóley Halldórs-
dóttir 18/2. -BG/BB
Sport
Enski deildabikarinn:
Rigndi á kaf
- tveir leikir af þremur urðu rigningu að bráð
Birmingham tryggði sér í gær
sæti í undanúrslitum ensku deilda-
bikarkeppninnar, Worthington-bik-
arsins, á meðan hinir tveir leikir
kvöldsins í keppninni urðu rign-
ingu aö bráð.
Birmingham vann góðan sigur á
Sheffíeld Wednesday á heimavelli,
2-0, með mörkum frá Danny Sonn-
er, fyrrum leikmanni Wednesday,
og Dele Adebola. Paul Jewell, knatt-
spyrnustjóri Wednesday, þurfti að
horfa á síðari hálfleik viðureignar-
innar úr stúkunni eftir að hann var
sendur á brott fyrir að agnúast út í
dómara leiksins.
Birmingham verður nú að bíða í
viku til þess að vita hverjum þeir
mæta i undanúrslitaleiknum þar
sem leikur Manchester City og
Ipswich var flautaður af vegna rign-
ingar um miðjan fyrri hálfleik þeg-
ar staðan var 1-1. Graham Poll,
ágætur dómari leiksins, gerði fyrst
hlé á leiknum meðan reynt var að
laga aðstæður en þegar Ijóst var að
Nágrannaslagur
Norðmenn og Danir mættust í
gær í nágrannaslag á Evrópu-
móti kvennalandsliða sem fram
fer í Rúmeniu. Norðmenn, sem
ekki höfðu unnið leik á mótinu,
sigruðu í leiknum, 29-22, og
sneru við mikilli óheillaþróun
hjá einu sterkasta liði heimsins
undanfarin ár. Danir hafa held-
ur ekki verið likir sjálfum sér og
aðeins unnið einn leik. -ÓK
ekki var viö neitt ráðið ákvað hann
að flauta leikinn af. „Á svona kvöldi
í mikilvægri keppni eins og þessari,
þar sem sæti í Evrópukeppni er í
húfl, væri leiðinlegt að sjá klaufa-
mark skiija á milli tveggja góðra
knattspymuliða,“ sagði Poll eftir
leikinn. Joe Royle, knattspymu-
stjóri City, studdi ákvörðun Poll
heilshugar. „Það þurfa bara að
koma til eins slæm meiðsli við
svona aðstæður og þá er hægt að
kenna dómaranum um. Hann (Poll)
var ákveðinn í að láta það ekki ger-
ast.
Þriðji leikur kvöldsins, milli
Crystal Palace og Sunderland, var
flautaður af áður en leikmenn fóru
inn á völlinn. Fulham og Liverpool
mætast í fjórða leik átta liða úrslit-
anna í kvöld.
Stoke greiði gerður
Brentford, lið Ólafs Gottskálks-
sonar og ívars Ingimarssonar, vann
góðan útisigur á Bristol City, 1-2, í
Drykkjan hindrar
kaup á Soma
Kaup West Ham á Norðmann-
inum Ragnvald Soma urðu að
engu þegar leikmaðurinn til-
kynnti að honum líkuðu ekki
drykkjusiðir enskra leikmanna
og að hann vildi heldur fara til
Ítalíu heldur en þurfa að finna
áfengislykt af samherjum sínum
á æfingu. -ÓK
ensku 2. deildinni í gær en þeir
Ólafur og ívar stóðu sig vel í leikn-
um og fengu báðir sjö í einkunn á
sports.com. Þeir gerðu löndum sin-
um hjá Stoke góðan greiða en
Bristol er einu stigi fyrir ofan Stoke
í deildinni en hefur nú leikið einum
leik fleiri. Hinum leiknum, sem fara
átti fram í 2. deild, milli Nort-
hampton og Swansea, var frestað
vegna rigningar. -ÓK
Góður árangur
Ólafur Th. Árnason frá ísa-
firði varð í 33. sæti á sterku móti
í skíðagöngu sem fram fór sl.
sunnudag. Keppt var í 15 km
göngu meö hefðbundinni aðferð
og var mótið liður í Skandinav-
íubikamum sem verðui- einmitt
aðalverkefni islenska skíða-
göngulandsliðsins í vetur. Ólafur
varð 2.23 mín. á eftir sigurvegar-
anum, Eldar Rönning frá Noregi,
en Ólafur keppir í flokki 17-20
ára. AIIs hófu 111 keppendur
keppni en 102 luku henni.
Árangur Ólafs er mjög góður
og ljóst að hann er á góöri upp-
leið. Jakob Einar Jakobsson frá
ísafirði varð í 69. sæti í sömu
göngu. Hins vegar herjuðu veik-
indi á þá Baldur Ingvarsson og
Helga Heiðar Jóhannesson frá
Akureyri sem urðu að hætta
keppni í karlaflokki. Liðið kem-
ur til landsins í dag þar sem það
mun dveljast yfir hátíðarnar en
heldur út eftir áramót.
Verðlaunaafhendingar knattspyrnumanna:
Svekktar stjörnur
- Luis Figo og Gheorghe Hagi lýsa yfir óánægju sinni með afhendingarnar
Ef Evrópukeppnin var aðal-
ástæöan fyrir kjörinu þá skil ég
þetta ekki alveg, því hún stendur
yfir í mánuð og í einu ári eru
fleiri en einn mánuður. Auk þess
vinnur einn maður ekki heila
Evrópukeppni, það þarf 22 til
þess.“
Figo segir það hafa verið ljóst
fyrir fram hver myndi vinna í
kjörinu og þetta hefði því ekki
komið honum á óvart. Hann neit-
aði því hins vegar að einhver
tengsl gætu verið milli þess að
Adidas, sem er bakhjarl Zidanes,
styrkti kjörið hjá FIFA og úrslita
kjörsins.
Hagi trítilóður
Ef hægt er að segja að Figo hafi
verið óánægður með kjör FIFA þá
er óhætt að segja að Rúmeninn
Gheorghe Hagi, leikmaður Evr-
ópumeistara Galatasaray, hafi ver-
iö trítilóður
vegna tilnefn-
inga tímaritsins
France Football
til leikmanns
ársins í Evrópu.
Á 50 manna lista
tímaritsins er
ekki einn ein-
asti leikmaður
tyrknesku
meistaranna og
Hagi gat ekki
orða bundist
eins og von var.
Luis Figo kemur til FIFA-samkvæmisins í Róm ásamt -Það er ekki
kærustu sinni. Reuter eðlilegt hvemig
Portúgalinn Luis Figo, sem varð
annar í kjöri um knattspymu-
mann árisins hjá Alþjóða knatt-
spyrnusambandinu (FIFA) á
mánudag, gagnrýndi kjörið mjög i
gær og sagði Zinedine Zidane að-
eins hafa orðið fyrir valinu vegna
árangursins á Evrópumótinu síð-
astliðið sumar og að verðlaunin
ættu því með réttu að kallast
„knattspymumaður Evrópu árið
2000“.
„Ég hefði kjörið Figo,“ sagði
Portúgalinn knái og bætti við:
„Mér fmnst ég hvorki yfir aðra
hafinn né lakari en aðrir en ef ég
ver mig ekki hver gerir það þá? Ég
heföi viljað vinna til þess að geta
tileinkað verðlaunin öllum sam-
herjum mínum hjá Barcelona,
Real Madrid og landsliðinu auk
áhangenda en sérstaklega öllum
Portúgölum sem hefðu orðið mjög
stoltir hefði ég unnið.
Gheorghe Hagi lætur sjaldnast lítiö
fara fyrir sér. Reuter
komið er fyrir þessum tilnefning-
um,“ sagði Hagi í viðtali við rúm-
enska fjölmiðla. „Galatasaray átti
frábært tímabil í fyrra og við unn-
um nánast allt, deildina, bikarinn,
UEFA-bikarinn og meistara meist-
aranna í Evrópu og erum komnir
í milliriðla í Meistaradeild Evr-
ópu. Samt er enginn okkar á 50
manna listanum.
Það er ljóst að við sem erum að
spila í Austur-Evrópu gerum það
til einskis. Aðeins 10-14 leikmenn
eru taldir vera stórstjömur í Evr-
ópu en við hinir eigum ekki mögu-
leika," sagði Hagi að lokum en
hann hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna að loknu tímabil-
inu. -ÓK