Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Síða 1
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
33
Formúlu-
bíllinn
Bílarnir sem umboðin tilnefndu eru:
Tegund
Umboð
1. Mercedes Bens C 200 K Ræsir hf.
2. Mazda Premacy Ræsir hf.
3. Kia Grand Sportage Kia umboðið
4. Opel Zafira 1,8 Bílheimar
5. Alfa Romeo 156 2,0 Sportwagon ístraktor
6. Volvo S60 Brimborg
7. Ford Focus Brimborg
8. Citroen Xsara Picasso Brimborg
9. Daihatsu Sirion 1,3 4x4 Brimborg
10. Hyundai Santa Fe 2,7 V6 B&L
11. Renault Scenic RX4 B&L
12. BMW X5 4,4 B&L
13. Land Rover Freelander V6 B&L
14. Mitsubishi Pajero 3,5 GLS Hekla
15. VW Golf Variant 4Motion Hekla
16. Skoda Fabia 1,4 Comfbrt Hekla
17. Audi A6 2,4 V6 Hekla
18. Suzuki Ignis GL 4WD Suzuki bílar
19. Toyota RAV4 P. Samúelsson
20. Lexus IS200 P. Samúelsson
21. Honda CRV Advance Honda á íslandi
22. Peugeot 206 XR 1,1 Honda á íslandi
23. Nissan Almera Ingvar Helgason hf.
24. Subaru Legacy Sedan Ingvar Helgason hf.
25. Porsche 911 Turbo Bílabúð Benna
Hér stendur Þór við Víðistaða-Fordinn sem Pétur gerði upp af miklum hag-
ieik fyrir safnið.
Varðveisla
til framtíðar
Eins og sjá má er áramótablað DV-
bíla með aðeins öðruvísi sniði en
venjulega. Þar gefum við okkur tíma
til að líta yfir farinn veg og í þetta
sinn heimsóttum við Þór Magnús-
son, fyrrum þjóöminjavörð. Eitt af
hans hugarfóstrum hefur verið
varðveisla og uppgerð gamalla bila
fyrir Þjóðminjasafnið og í geymsl-
um þess leynast margir dýrgripir í
misgóðu ástandi. Þeir bíða þar betri
tíma á meöan á viðgerð safnhússins
stendur en draumurinn hefur alltaf
verið að reist yrði yfir þá og önnur
tæki sérstakt tækniminjasafn. Sjá
viötal við Þór á baksíðu.
■ (M;
JH-T ■■
Allt milli himins og jarðar..
áaugl'
550
Skoðaðu smáuglýsingarnar á
■■BÉMBMMmIÉMÉwMÍ
Bíll ársins 2001:
DV veitir Stálstýrið í fyrsta sinn
Föstudaginn 12. janúar mun DV ásamt Skjá einum,
FÍB blaðinu Ökuþór og Séð & Heyrt velja bíl ársins
2001, en það er í fyrsta skipti sem slíkt val fer fram hér
á landi. Keppt er um Stálstýrið, fallegan sérsmíðaðan
grip úr burstuðu, ryðfríu stáli, milli 25 bíla sem umboð-
in tilnefndu, einn frá hverju merki. Fimm bíla komast
svo í sérval og verða prófaðir af bílablaðamönnum
miðlanna og útkoman úr því prófi ræður svo hver fær
þennan heiðurstitil. Einnig verða veitt sérstök verðlaun
fyrir bíl fólksins, Gullvísirinn svokallaði í boði Vísir.is
og Lýsingar. Hægt er að fara inn á visir.is og taka þar
þátt í valinu og bera þar saman hluta þeirra upplýsinga
sem blaðamennirnir nota í sínu vali.
Við val á bíl ársins þarf að taka margt til greina. Bera
þarf saman tölur um innanrými, kraft, gírhlutfóll, verð
og eyðslu svo eitthvað sé nefnt. Einnig þarf að prófa
þætti eins og veghljóð, rásfestu, millihröðun, bremsu-
getu og fleira og því mikil vinna að baki val-
inu. Reynt var að horfa sérstaklega á hluti
sem skipt geta máli hérlendis ásamt því að
miða við svipaðar keppnir erlendis. Úrslitin verða svo
tilkynnt við hátíðlega athöfn 12. janúar nk. Stefnt er að
því að gera þetta að árlegum viðburði og verður þá mið-
að við útkomu nýrra bíla frá síðsutu keppni hverju
sinni. Einnig er ætlunin að flokkaskipta valinu og verð-
ur þá horft í reynslu manna af þessu fyrsta vali.