Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Page 13
1
5. janúar 2001 f Ókus
I
Tíl þess að af samruna tveggja manneskja (ja, eða fleiri) geti orðið þarf að stilla saman strengi svo að
nokkur samhljómur myndist. Þegar hitnar í kolunum finnst sumum gott að grípa til tónlistarinnar, annað-
hvort til að framkalla ákveðnar tilfinningar, eða sér til halds og trausts í öllum hamaganginum. Fókus
spurði nokkra snillinga spjörunum úr, varðandi tengsl tónlistar og kynlífs.
Frábærl
„Ég er búinn aö gera víðtækar
rannsóknir á samruna tónlistar og
kynlífs. Niðurstaðan er i stuttu
máli sú að tónlist og gott kynlíf
þarf alls ekki að fara saman. Ekki
frekar en fólk vill. Sumt fólk er þó
einfaldlega með hærri tónlistar-
greind og upplifir tónlist á allt ann-
an hátt en „við hin“. Þess vegna
getur ákveðin tónlist virkað kyn-
ferðislega örvandi á þessa einstak-
linga ef kyngetan er mikil að sama
skapi. Þetta er bara túlkunaratriöi
þvi við erum jú að tala um listform
- ekki frumhvöt! Þessi ákveðna teg-
und tónlistar skiptist jafnan í tvo
flokka: Mjög taktfasta og mek-
aníska tónlist, svo sem dynjandi
krydd á
klúbbamúsík, Kraftwerk, diskó og
tölvupopp. Og svo löturhæga seið-
andi tónlist, hugleiðslutónlist,
ambient, Sade og klámmyndatón-
list. Persónulegur listi minn yfir
mest sexí lög síðustu aldar er:
1. Love Hangover-Diana Ross
Intróið er rúmlega 3 mínútur,
nægur timi til að koma hvaða hálf-
vita sem er á sporið. Svo fer allt á
fullt í seinní helmingi lagsins, og
maður bara gleymir sér i grúvinu.
2. Je T’aime... Moi non plus -
Serge Gainsbourg & Jane Birkin
Uppáhalds kynlífslag allra, fal-
legasta ástarlag í heimi, yndisleg
melódia, himneskt orgel, dásamleg
strengjaútsetning, tímalaus klassík
sem
„Tónlistin tengist kynlífi svo sann-
arlega, hún skiptir hellings máli. Það
breytir ekki beint öllu hvaða lög þú
hlustar á þegar þú ert að gera do-do,
tónlistin er bara „moodsetter",
stemningin getur ráðist af henni. Það
er lykillinn að rómantísku kvöldi að
velja réttu tónlistina. Tónlist getur
verið útspil sem segir hvað verður í
lok kvölds. Ef þú ert kominn í sófann
og setur „Last resort" með Papa
Roach í græjurnar, þá gæti þetta orð-
ið brútal. Þess vegna tengist þetta í
svona víðari mynd. Tónlistin getur
skipt sköpum og virkað rómantísk,
rétt eins og rétt rauðvín, gott kerta-
ljós eða hlýtt teppi. Þau lög sem mér
þykja persónulega mest sexí, í fljótu
bragði hugsað, eru Let’s Get it on
með Marvin Gaye. Fiðlukonsert
Brahms í flutningi Nigel Kennedy
finnst mér geggjaður. Lagið Blue
Roses með Kombói Ellenar Kristjáns-
dóttur hefur dreymandi áhrif. Það er
svo rólegt og djassað. Maður hrein-
lega svífur með því og það er gott lag
til að enda á góða kvöldstund.
„Sándtrakkið" úr myndinni ‘Round
Midnight er yndisleg, seiðandi, róleg
plata. Það er ekki tónlist sem þarf að
einbeita sér sérstaklega við að hlusta
á. Hún getur verið bakgrunnsmúsík
eða alvöru skemmtun. Svo finnst mér
líka nýi diskur Margrétar Eirar al-
veg frábær. Hann er passífur og rosa-
lega persónulegur og hlýr.“
Jón Jósep Sœbjörnsson, söngvari
hljómsveitarinnar í svörtum fötum
Tónlistarfó
forskot
Riðið
unaðsstundina
Framkallar réttu
stemninguna
„Mér finnst vera skýr
tengsl á milli tónlistar
og kynlífs. Sú tónlist :
sem ég vil helst hafa i
græjunum meðan ég
geri það er sennilega
þungarokk, og þá frekar
rólegar þungarokksballöð-
ur. Kannski eitthvað af
S&M, plötu Metallica.
Eða ef maður væri
virkilega til í
tuskið þá
myndi
maður
setja a
eitt-
hvað
hart
með Sepultura eða Soulfly
og svo væri það bara „let’s
get it on“,“ segir Einar og
hlær. „En það er bara ef
maður er til i eitthvað
virkilega hrátt,“ hnýtir
hann við. „Út á tónlistar-
flutninginn hef ég líka feng-
ið nokkur gylliboð um kyn-
líf, án þess að gera neitt
mikið í því og ég er viss
um að fólk sem er í
tónlistarbrans-
anum hefur
ákveðið for-
skot á hina
hvað kynlíf-
ið varðar."
E i n a r
Úrn Kon-
ráðsson
trúbador
- og þau tvö voru að gera það í al-
vöru! Lausleg þýðing: HÚN: „Ég
elska þig, elska þig oh ég elska
þig.“ HANN: „Ekki ég heldur!"
3. Erotica - Madonna (William
Orbit Remix)
Pottþétt endurhljóðblöndun,
virkar miklu betur en upprunalega
útgáfan. Auk þess öðruvísi og öllu
dónalegri texti!
4. Amore Toxico - Moana Pozzi
5. Sexy porno Shop - Cicciolina
6. Heatstroke - úr bíómynd
7. Love to love you baby - Donna
Summer
8. Let me be your Underwear -
Club 69
9. All night lovin’ - Imagination
10. I Need Somebody to
Love Tonight - Sylvester.
Þegar upp er staðið er
það jú rekkjunauturinn
sem skiptir meira máli en
tónlistin í bakgrunninum.
Jú, rétta tónlistin er frá-
bært krydd til að skapa
réttu minninguna um un-
aðstundina sem slíka -
en hún er ekki bráðnauö-
synleg.“
Páll Óskar Hjálmtýsson,
tónlistarmaður og sjálf-
menntaði kynlífsspek-
úlantinn Dr. Love
„Það kem-
ur nú fyrir
að ég noti
tónlist þeg-
ar ég geri
það, en það
er ekkert
möst. Það
er helst ef
i þetta á að
v vera eftir-
m i n n i -
legt, eða
ef maður
vill rifja
eitthvað sér-
stakt upp, þá notar maður ák-veðin
lög til þess að framkalla réttu
„Mér flnnst, og er ekki í neinum
vafa um að tónlist er mjög gagnleg
til að mynda ákveðna stemningu
fyrir kynlífið. En svo hlýtur mis-
munandi tónlist að henta mismun-
andi fólki og misjöfnu kynlífi. Sum-
ir flla kannski svona harða dans-
tónlist eins og Prodigy, en sjálf kýs
ég Portishead og aðra rólegri tóna.
Tónlistin er auðvitað allt í kring-
um okkur og getur virkað örvandi.
Sum tónlistarmyndbönd eru til
dæmis mini-klámmyndir, full af
erótisku efni, rössum og svoleiðis.
Robbie Williams gekk nú alla leið í
því og aðeins lengra meira að segja
með myndbandi sinu við lagið
„Rock DJ“, en mér fannst það flott.
Ég gæti líka trúað því að sumir
noti tónlist sem hljóðdeyfi. Sumir
eru svo viðkvæmir fyrir ýmsum
kynlífshljóðum og þá er ég ekki
endilega að tala um stunur heldur
einnig svona „splask-hljóð“ úr öðr-
um líkamspörtum," segir Ragn-
heiður og á bágt með að byrgja inni
hláturinn. „Takturinn gæti líka
skipt suma máli. Það væri ábyggi-
lega gaman að vera með mismun-
andi taktfasta tónlist í geislaspilar-
anum og setja á random meðan
maður gerir það. Þá yrði úr nokk-
urs konar taktleikur þar sem eitt
lag gæti verið með Black Sabbath,
sum með þessum valíum-takti og
önnur með manndráps-takti. Það
getur líka verið skemmtilegur kyn-
lífsleikur að dansa við þann sem
maður ætlar seinna um kvöldið að
leika við í láréttri stöðu."
Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkr-
unarfrœðingur og kynlífsráðgjafi, á
persona.is.
stemninguna. Ef ég set einhverja
tónlist á þegar ég geri það, þá væri
það helst Era, það er svona frekar
róleg músík, eða Creed.“ í bak-
grunninum hljómar einmitt tónlist
Creed, en hlæjandi fullyrðir Andr-
ea að ekki sé verið að trufla hana
neitt sérstaklega og heldur áfram.
„Ég er samt alveg pottþétt á því að
kynlif og tónlist tengist mjög svo.
Ég hef svo sem lent í strákum sem
eru með einhver ákveðin lög sem
þeir virðast setja á við ákveðin
tækifæri og ég held að margir séu
með sérstakar plötur fyrir kynlíf-
ið.“
Andrea Unnarsdóttir, íslands-
meistari í strípidansi
moll