Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Page 1
15
NBA-deildin:
9 sigrar í röð
- hjá Portland
Boston-Miami.........86-76
Walker 27, Pierce 26, Stith 7,
Potapenko 6 (10 frák.) - Jones 20.
Grant 14, Hardaway 11, Bowen 8.
Wahington-Seattle....101-104
Whitney 22, Howard 21, Nesby 19,
Smith 14 (10 frák.) - Payton 20,
Patterson 19 (12 frák.), Baker 16.
Detroit-Toronto.....83-110
Stackhouse 23, Smith 12, Cleaves 11,
Wallace 8 - Oakley 19, Peterson 18,
Carter 18, Davis 12, Jackson 9 (12 sto.)
Philadelphia-Portland.75-93
McKie 15, Iverson 12, Hill 12- Wallace
18 (10 frák., 5 varin skot), Stoudamire
17 (11 stoðs.), Wells 13, Sabonis 11.
Minnesota-Dallas....86-106
Garnett 26 (13 frák. 6 stoðs.), Brandon
12, Ellis 10 (12 frák.) - Nowitzky 28,
Finley 26, Laettner 14, Eisley 12.
LA Clippers-Denver...91-86
Odom 15 (13 fr.), Parks 15, Richardson
14, Piatkowski 14 - McDyess 29 (13
frák.), Van Exel 24, LaFrentz 11.
Sacramento-Cleveland . . .108-101
Webber 30 (14 frák.), Stojakovic 27,
Williams 24 - Gatling 38, Miller 27,
Weatherspoon 12 (11 frák.).
Arfaslakir
Enska úrvaisdeildarliðið Liver-
pool tapaði óvænt fyrir 1. deildar-
liði Crystal Palace, 2-1, á útivelli í
fyrri leik liðanna í enska deilda-
bikarnum. Lettinn Andrejs Rubins
skoraði fyrra mark Palace um
miðja síðari hálíleik og Clinton
Morrison bætti um betur um
stundarfjórðungi fyrir leikslok en
mínútu síðar minnkaði varamað-
urinn Vladimir Smicer muninn
fyrir gestina. Liverpool fékk
ógrynni góðra færa í leiknum og
þarf sókn þeirra sannarlega að
fara í rækilega endurskoðun. -ÓK
- segir Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
fyrir átökin á Spáni um helgina og á HM í Frakklandi
Spánarfarar
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelss., Nordhom
Birkir í. Guðmundss., Stjömunni
Aðrir leikmenn:
Björgvin Björgvinsson, Fram
Guðjón Valur Sigurðsson, KA
Guðfinnur Kristmannsson, ÍBV
Erlingur Richardsson, ÍBV
Einar Örn Jónsson, Haukum
Valgarð Thoroddsen, Val
Róbert Sighvatsson, Dormagen
Dagur Sigurðsson, Wakunaga
Patrekur Jóhannesson, Essen
Gústaf Bjarnason, Minden
Aron Kristjánsson, Skjern
Ólafur Stefánsson, Magdeburg
Heiðmar Felixson, Wuppertal
Ragnar Óskarsson, Dunkerque
Ekki í Spánarhópnum:
Sebastian Alexandersson, Fram
Róbert Gimnarsson, Fram
Julian Duranona, Nettelstedt
(er lítillega meiddur og verður
undir handleiðslu sjúkraþjálfara
hér heima)
Þórir Ólafsson, Selfossi
Gunnar Berg Viktorsson, Fram
íslenska landsliðið í handknattleik
keppir um helgina á fjögurra liða
móti á Spáni og er það stór liður í
undirbúningi liðsins fyrir HM í
Frakklandi sem hefst síðar í mánuð-
inum. Auk Spánverja mætir liðið
landsliðum Noregs og Egyptalands
en þeir siðastnefndu eru einmitt
mótheriar íslenska liðsins í riðla-
keppni HM. Þorbjörn Jensson til-
kynnti hóp sinn fyrir Spánarförina á
blaðamannafundi í Laugardalshöll í
gær en tók það jafnframt fram að hér
væri ekki um endanlegan HM-hóp að
ræða og að leikmennirnir sem sitja
eftir heima eigi enn möguleika á að
sanna sig í leikjum gegn Bandaríkja-
mönnum í næstu viku.
DV-Sport hitti Þorbjöm að máli
eftir fundinn.
Hver er stefna landsliósins á mót-
inu á Spáni?
„Maður vill auðvitað alltaf ná hag-
stæðum úrslitum en fyrst og fremst
vil ég leggja áherslu á að við reynum
að ná varnarleiknum í gang og þar af
leiðandi markvörslunni líka í þessari
ferð. Ég verð mjög óánægður ef það
verða ekki töluverðar framfarir í
vörn og markvörslu í ferðinni."
Nú eru einhver meiðsli í hópnum,
hvaða áhrif geta þau haft?
„Við eigum að hafa nægilega breið-
an hóp í verkefnin sem fram undan
eru, svo framarlega að ekkert kemur
upp á því þá verðum við fljótt fáliðað-
ir. Ragnar Óskarsson er rétt að kom-
ast í gang og þá verður einnig að
nefna til sögunnar Aron Kristjáns-
son, við þurfum að koma honum í
gang líka. Hann er að spila bæði í
vöm og sókn og hann er mjög fjöl-
hæfur sóknarmaður og gott að hafa
slíka leikmenn sem geta leyst margar
stöður. Við einbeittum okkur
kannski of mikið að því að vinna
Frakkana, eins og alltaf er og því
fékk hann kannski ekki eins mörg
tækifæri í sókninni. Hann fær tæki-
færi á Spáni og við sjáum hvemig
það kemur út.“
Tökum vel á móti Egyptum
Nú mœtir liðið Egyptum um helg-
ina sem veróa mótherjar liósins í
riólakeppninni á HM. Hvernig hef-
urðu hugsaö þér aó mæta þeim nú?
„Það er alltaf spurning hvemig
maður mætir liði í æfmgaleik sem
maður mætir í alvörukeppni síðar,
eins og verður nú með Egypta. Á
maður að vera með tilraunastarf-
semi, koma þeim á óvart og gera þá
óömgga eða á maður að fara af full-
um styrk í leikinn og sjá hvað maður
getur? Þetta em spurningar sem
maður þarf að velta fyrir sér og við
þurfum að vera með klár svör við
þeim á fostudaginn þegar við mætum
þeim. Við ætlum að leggja ofurá-
herslu á góða vörn á móti þeim og
við tökum vel á þeim.
Það sem ég hef séð til Egyptanna,
t.d. í Sydney, er að þeir hafa verið að
spila meira og minna 6:0 vöm, t.d.
gegn Svíum en þeir geta líka spilað
framarlega og það getur vel verið að
þeir ákveði að spila slíka vöm gegn
okkur og því verðum við að vera við-
búnir báðum möguleikum. Það er
mjög júgóslavneskur stíll á leik
þeirra, enda þjálfarinn Júgóslavi sem
við höfum mætt áður og þekkir okk-
ur vel og Egyptamir hafa verið stíg-
andi hvað getu varðar. Daniel
Costantini, þjálfari Frakka, hefur
spáð þeim ofarlega á HM og að við
verðum á eftir þeim og Svíum í riðl-
inum.“
Meiri hugur í mönnum
Nú tapaði liðió tvisvar gegn Frökk-
um. Hvernig er andinn í hópnum?
„Menn vilja auðvitað alltaf vinna,
hvort sem er í æfmgaleikjum eða
öðrum leikjum, og menn eru auðvit-
að fúlir yfir því að hafa ekki unnið í
gær (á þriðjudag) og þannig vil ég
hafa það. Maður á að hugsa eins og
sigurvegari en ekki segja bara eftir
leik: „Þetta kemur næst,“ það er
ekki rétta viðhorflð.
Við getum alltaf búist við öllu af
íslenska landsliðinu, ef við eigum
góðan dag þá getum við allt. Það mun-
aði ekki miklu að við spiluðum um
verðlaunasæti í Kumamoto og það
voru ekki margir sem reiknuðu með
því. Við ætlum okkur sannarlega að
reyna allt sem við getum.
Það er miklu meiri hugur í mönn-
um nú en fyrir EM í Króatíu enda
væri annað óeðlilegt, öUum hefur
gengið vel hjá sínum félagsliðum og
menn koma miklu betur undirbúnir
heldur en í fyrra, hafa verið aö spila
miklu meira og gera miklu meira en
fyrir EM,“ sagði Þorbjöm.
Framlengdur samningur
Á fundinum skrifuðu Halldór Krist-
jánsson, bankastjóri Landsbankans,
og Guðmundur Ingvarsson, formaður
handknattleikssambands íslands
(HSÍ), undir samning um áframhald-
andi samstarf til þriggja ára en sam-
starf hefur verið milli aðilanna frá þvi
1989 og er þetta lengsta samstarf HSÍ
við einn bakhjarl. HaUdór lýsti því í
máli sínu að þetta samstarf væri gott
dæmi um stefnu Landsbankans í slík-
um málum, langt og farsælt samstarf
og traust væru mikUvægir þættir í
þeim vinnubrögðum sem bankinn
vUdi tUeinka sér. Samningurinn er
árangurstengdur og sagði HaUdór að
þær greiðslur sem inntar væru af
hendi væru greiddar með glöðu geði
þó svo að þær hækkuðu. -ÓK