Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Side 2
16
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001
17
Sport
Stjörnuleikur KKI á laugardag í Njarðvíkum:
Sigurður og Valur
völdu sterk lið
KKÍ í samvinnu við Doritos og Pepsi halda hinn ár-
lega stjömuleik í körfuknattleik sem verður háður í
Njarðvík á laugardaginn kemur kl. 16. í hálfleik verður
troðslukeppni og þriggja stiga skotkeppni en þátttak-
endur verða ekki valdir fyrr en í kvöld.
Þjálfarar tveggja efstu liðanna i Epson-deildinni um
áramótin völdu liðin. Þetta eru bræðurnir Sigurður og
Valur Ingimundarsynir en sá fyrrnefndi þjálfar Keflvík-
inga og sá síðamefndi Tindastól. Þeir völdu í gær í lið-
in til skiptis og fékk Sigurður að byrja þar sem lið hans
er ofar i deildinni. Hvor þjálfari mátti aðeins velja þrjá
erlenda leikmenn i lið sitt en alls völdu þeir 12 leik-
menn og tvo til vara. Aðeins mátti velja þrjá leikmenn
úr hverju liði.
ÍLið Sigurðar er þannig skipað: Galvin Davis,
Keflavík, Chris Dade, Hamri, Keith Wassel, KR, Ei-
ríkur Önundarson, ÍR, Magnús Gunnarsson, Kefl-
avík, Kristinn Friðriksson, Tindastóli, Páll Axel Vil-
bergsson, Grindavik, Jón Amór Stefánsson, KR,
Friðrik Stefánsson, Njarðvík, Guðlaugur Eyjólfsson,
Grindavik, Gunnar Einarsson, Keflavík, Herbert
Arnarson, Val. Til vara eru þeir Maurice Spillers,
Þór, og Bragi Magnússon, Haukum.
Lið Vals lítur þannig út: Shawn Myers, Tindastóli,
Brenton Birmingham, Njarðvík, Warren Peebles,
Skallagrími, Logi Gunnarsson, Njarðvík, Jón Arnar
Ingvarsson, Haukum, Magni Hafsteinsson, KR, Ólaf-
ur Ormsson, KR, Teitur Örlygsson, Njarðvík, Jón
Hafsteinsson, Keflavík, Pétur Ingvarsson, Hamri,
Guðmundur Bragason, Haukum, Óðinn Ásgeirsson,
Þór. Til vara voru valdir Svavar Birgisson, Tinda-
Valur Ingimundarson (t.h.) velur liös sitt og viö hliö hansstóli' og Dwayne Fontana’ KFL
er Pétur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKÍ.
-JKS
Auðfenginn sigur
- hjá ÍBV á döpru liði ÍR
Ekkert breytist hjá ÍR-stúlkum
enn og aftur tapa þær leik og nú
fyrir Eyjastúlkum sem léku sinn
slakasta leik í vetur án efa. Leik-
urinn byrjaði eins og flestir leikir
ÍR, gestimir náðu fjögurra marka
forskoti um miðjan fyrri hálfleik
sem þær juku allan leikinn sem
endaði 10-21 eftir að staðan var
4-9 í fyrri hálfleik.
Það sem kom í veg fyrir að ÍR-
stúlkur næðu að halda í við Eyja-
stúlkur var markvörður þeirra
síðarnefndu, Vigdis Sigurðardótt-
ir, sem varði átta skot í fyrri hálf-
leik, meðal annars þrjú víti, fyrir
utan að vörn gestanna varði flmm
skot í fyrri hálfleik.
Sóknarleikur ÍR verður slakari
og slakari með hverjum leiknum
sem liöur en þær komu ákveðnar
til leiks í síðari hálfleik og náðu
að halda í við ÍBV fyrstu tíu mín-
útumar en eftir það fjaraði leikur
þeirra út. Leikmenn misnotuðu
flmm vítaköst í leiknum og þar af
ÍR-ingar fjögur.
Vantar samæfingu
„Við vorum að spila hrikalega í
fyrri hálfleik og samæfíngu vant-
aði í hópinn þar sem erlendu leik-
mennirnir okkar fóru heim til sín
milli jóla og nýárs. En markmiðið
hjá okkur var aö bæta
markatöluna og það tókst þó að
sigurinn heföi mátt vera stærri,“
sagði Vigdís Sigurðardóttir,
markvörður ÍBV.
Stúlkurnar úr Breiðholtinu eru
að missa leikmann en það er
Aðalheiður Þórólfsdóttir mark-
vörður sem er að fara utan til að
vinna.
-BB
Staðan
Haukar 10 10 0 259-180 20
Fram 10 7 3 260-211 14
Stjarnan 10 7 3 220-197 14
Víkingur 10 6 4 223-178 12
ÍBV 10 6 4 196-205 12
Grótta/KR 10 5 5 235-207 10
FH 10 5 5 241-223 10
KA/Þór 10 2 8 190-237 4
Valur 10 2 8 158-216 4
ÍR 10 0 10 127-255 0
Næstu leikir
Föstudagur 12. janúar
IBV-Stjarnan kl. 20.00
Laugardagur 13. janúar
Fram-KA/Þór kl. 15.30
Víkingur-FH kl. 16.00
Grótta/KR-Haukar kl. 16.30
Valur-ÍR kl. 16.39
Einkar slakt
- þegar Haukar unnu KA/Þór
1 Naukar-KA/Þor 26-201
3-0, 6-1, 8-2, 9-5,11-5,12-7, (12-10), 14-10, 15-12, 20-13, 21-15, 23-16, 24-18, 25-20, 26-20. Haukar Mörk/viti (Skot/viti): Tinna Halldórs- dóttir 4(6), Harpa Melsteð 4/2 (7/2), Hanna G. Stefánsdóttir 4(8), Brynja Steinsen 3/2 (5/2), Telma Björk Ámadótt- ir 3(6), Auður Hermannsdóttir 3(6), Sandra Anulyte 2(2), Inga Fríða Tryggva- dóttir 2(3), Hjördís Guðmundsdóttir 1(3), Björk S. Hauksdóttir (1), Eva H. Loftsdótt- ir (1), Sonja Jónsdóttir (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 8 (Telma 3, Tinna 2, Hanna 2, Sandra). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (Skot á sig): Jenný Ás- mundsdóttir 9 (25/2, 36%), Berglind Haf- liðadóttir 5 (9/1, 56%). Brottvisanir: 4 mínútur KA/Þór Mörk/viti(Skot/víti): Inga Sigurðardótt- ir 6/3 (12/3), Ásdls Sigurðardóttir 5(13), Eyrún Káradóttir 4(10), Elsa Birgisdóttir 3(4), Ása Gunnarsdóttir 1(1), Guðrún Guð- mundsdóttir 1(5), Martha Hermannsdótt- ir (3), Klara Stefánsdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Ásdís, Elsa, Inga). Vitanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/víti (Skot á sig): Sigurbjörg Hjartardóttir 10 (31/3, 32%), Selma Sigurðardóttir 6(11/1, 55%). Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson, 4.. Gœói leiks (1-10): 3. Áhorfendur: 50.
Maður leiksins: Ásdfs Sigurðardóttir, KA/Þór
Haukar lögðu Þór/KA eins og
við var að búast á heimavelli
sínum að Ásvöllum í gærkvöldi.
Sigurinn var kannski ekki eins
stór og búast hefði mátt við en
leikurinn var lengst af slakur og
hafði lítið skemmtanagildi fyrir
þá fáu áhorfendur sem mættu.
Haukar byrjuðu
reyndar vel, nýttu
sjö fýrstu sóknir sín-
ar og komust í 8-2
eftir 13.30 mínútur.
Eftir það fór leikur-
inn á byrjendaplanið
og eitt af því fáa sem
gladdi augað var
ágæt markvarsla
Sigurbjargar Hjart-
ardóttur í marki
Þórs/KA en hún
varði oft úr opnum færum
Haukanna. En á síðustu frnim
mínútum leiksins kom góður
kafli hjá Þór/KA þegar þær
minnkuðu muninn í tvö mörk
fyrir leikhlé en síðustu tvö
mörkin komu reyndar úr hraða-
upphlaupunum eftir að Hauka-
stúlkur höfðu hreinlega kastað
boltanum til þeirra.
Bitiö fór úr sókninni
í síðari hálfleik juku Haukar
síðan smátt og smátt forskotið
og bitið virtist svo end-
anlega fara úr sóknar-
leik Þórs/KA þegar
þeirra besti leikmaður,
Ásdís Sigurðardóttir,
var tekin úr umferð.
Við það náðu Hauka-
stúlkur mest sjö marka
forskoti og héldu því
til leiksloka án teljandi
fyrirhafnar.
Það má segja að allir
leikmenn Hauka hafi
leikið undir getu í þessum leik
og er þvl erfitt að taka einhverja
sérstaka úr því liði. Sigurbjörg
og Ásdís voru bestar í liði
Þórs/KA. -HI
Ásdfs Siguröardóttir,
KA/Þór.
Stjörnustúlkan Guöný Gunnsteinsdóttir missir bolt-
ann en Víkingarnir Kristín Guðmundsdóttir og Eva
Halldórsdóttir eru viö öllu búnar. Á innfelldu mynd-
inni þurrkar Margrét Vilhjálmsdóttir gólfið meö hné-
hlíf sinni en þau Guöbjörg Guömannsdóttir úr Vík-
ingi og Tómas Sigurdórsson dómari fylgjast meö.
DV-myndir E. ÓL.
Liðsandinn
- fundinn hjáVíkingstúlkum sem unnu Stjörnuna í Garðabæ, 18-20
Víkingsstúlkur hafa greinOega nýtt
jólafríið sitt vel því þær byrjuðu seinni
umferðina með sigri á Stjömunni í
Garðabæ, 18-20, liðinu sem skipaði 2.
sætið og vann fyrri leik þessara liða með
sex mörkum i Víkinni í haust.
Það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að
leikgleðin og hinn góði liðsandi sem átti
mikinn þátt í deildarmeistaratitlinum í
fyrra hafði komið upp úr jólapökkunum
hjá Víkingsstúlkum. Víkingsliðið vann
boltann í fyrstu sókn Stjörnunnar og var
komið í 1-4 eftir níu mínútur.
Stefán Arnarson, þjálfari Víkings, fékk
ekki bara endurbættan liðsanda frá sin-
um stelpum í jólagjöf heldur einnig Stein-
unni Bjarnason sem fékk sitt fyrsta al-
vöru tækifæri og nýtti það frábærlega.
Steinunn byrjaði á að stoppa Nínu
Kristínu Bjömsdóttur í vöminni en Nína
misnotaði átta sóknir á fyrstu 14 mínút-
um og fékk sér að því loknu sæti á bekkn-
um. Steinunn, sem hafði aðeins skorað
eitt mark í fyrstu niu leikjunum, skoraði
síðan funm glæsileg mörk úr sjö skotum
það sem eftir var leiks og var lykilmann-
eskja í að tryggja Qórða útisigur Víkinga
í röð. Víkingm- er taplaus i venjulegum
leiktíma á útivelli í deildinni í vetur, eina
tapið kom í framlengingu gegn FH.
Víkingsstelpur höfðu frumkvæðið
fram að hálfleik en Stjömustúlkur
vom ekki á því að gefast upp og náðu
forustunni eftir hlé, ekki sist fyrir góð-
an leik Höllu Maríu Helgadóttur sem
leysti Nínu af hólmi. Stjaman komst í
16-14 með hraðaupphlaupsmarki frá
sínum besta leikmanni, Svetlönu
Tcheretchetcha, og virtist vera að
komast í góða stöðu.
Gerður Beta Jóhannsdóttir kom þá inn
á hjá Víkingum. Hún haföi þurft að sitja
á bekknum vegna frábærrar frammistöðu
Steinunnar en ætlaði að sanna sig líka.
Gerður kom líka með aukakraft, gerði
gott mark og gaf þrjár stoðsendingar á
lokakaflanum. Á þessum tíma gat Stefán
einnig hvílt Kristínu Guðmundsdóttur
sem skoraði síðan tvö síðustu mörk liðs-
ins í lokin, endurnærð eftir smáhvíld.
Stjarnan átti á sama tíma í miklum erfið-
leikum með að nýta góð færi því Helga
Torfadóttir, markvörður Víkinga, varði
mikilvæg skot á lokakaflanum.
Viljinn og stemningin
„Hópurinn fékk sér gott að borða um
jólin og drakk jólaöl með og lifnaði við.
Steinunn hefúr ekki fengið mörg tæki-
færi en nú sýndi hún það fyrir mér og
öðrum að hún á skilið að fá miklu fleiri
tækifæri. Viljinn og stemningin vann
þetta í dag, við erum með bestu vömina
og besta markvörðinn og vinnum út frá
því,“ sagði Stefán í leikslok.
Léleg vörn
„Við vorum bara ekki tilbúnar í þenn-
an leik, þetta var alltof flatt hjá okkur og
það vantaði alla stemningu í liðið. Við
spiluðum lélega vörn og þar var óöryggi
allan tímann sem skilaði sér síðan einnig
út í sóknina. Það hefúr verið langt hlé og
mér fmnst okkar lið einkennast af þvi.
Jólin sitja kannski enn svolítið í okkur
þessum „gömlu“,“ sagði Guðný Gunn-
steinsdóttir Stjörnustúlka.
Stjarnan tapaði þama sínum öðram
heimaleik í röð en hafði unnið tiu deild-
arleiki í Ásgarði þar á undan. Sóley gerði
vel í að verja þrjú víti, Svetlana og Halla
María gerðu góð mörk en annars var lið-
ið langt frá sínu besta.
Steinunni var vel fagnað af félögum
sínum í leikslok. „Maður verður að nýta
sín tækifæri þegar maður fær þau. Ég er
búin að æfa vel en bíða lengi og var því
staðráðin í að sanna mig í kvöld. Við er-
um búnar að taka okkur mikið á í fríinu,
það vora nýjar stelpur að koma inn í
haust og það tók þær smátíma að komast
inn í hópinn en nú er það komið og þetta
er allt að smella saman hjá okkur," sagði
Steinunn ánægð í leikslok.
Hjá Víkingi léku þær Steinunn og
Kristín vel en ekki má gleyma framlagi
Heiðrúnar Guðmundsdóttur sem nýtti öll
sín þrjú færi auk þess að fiska víti og tvo
leikmenn Stjömunnar út af. Helga varði
líka oft mjög vel. -ÓÓJ
Rúmlega 100 þátttakendur á Ólymp-
íuleikunum og Ölympíumóti fatlaðra í
Sydney eru enn í Ástralíu þrátt fyrir
að landvistarleyfi þeirra sé útrunnið
en þeir hafa hunsað viðvaranir útlend-
ingaeftirlitsins ástralska að þeir skuli
koma sér til síns heima annars gætu
þeim verið vísað úr landi. Fæstir
„hinna ólöglegu" voru keppendur á
leikunum og mjög fáir frá minna þró-
uðum ríkjum og stærsti hópurinn
reyndar kominn frá Bandaríkjunum.
Útlendingaeftirlitið segir það samt vel
sloppið hjá þeim að aðeins rúmlega 100
skuli hafa ílengst af þeim 38 þúsund
sem fengu tímabundin landvistarleyfi.
Breskir boxarar mega í framtíðinni
búast við reglulegum þyngdarprófún-
um sem beitt verður til að greina
mögulega ofþomun vegna hraðrar
megrunar, sem getur leitt til heila-
skemmda. Breska hnefaleikasamband-
ið ákvað þetta eftir að hafa skoðað
skýrslur um mál hnefaleikakappans
Pauls Ingle sem hlaut lifshættulega
áverka í desember vegna högga. Þeir
óttast að ofþomun hafi veikt mjög heil-i
ann þannig að höggin valdi meiri
skaða en ella.
Italskir fjölmiðlar kenna breska
knattspymusambandinu um snemm-
bæra afsögn Svens Göran Eriksson frá
Lazio og vandræði liðsins á tímabilinu.
ítalska blaðið Corriere della Sport vill
meina að Adam Crozier, framkvæmda-
stjóri sambandsins, hafi persónulega
ýtt við Eriksson að morgni uppsagnar-
dagsins og það hafi verið síðasta bragð-
ið af mörgum sem sambandið hafi not-
aö til að fá Eriksson fyrr til starfa.
Les Ferdinand verður á næstunni
boðinn nýr samningur hjá Tottenham.
Ferdinand, sem er 34 ára gamall, ætlar
því að ljúka ferlinum hjá Spurs en hef-
ur um um þrjár milljónir í vikulaun
hjá félaginu.
Umræðan um það hvað Dennis Berg-
kamp gerir virðist loks vera að taka
enda. Hann mun á næstu dögum skrifa
undir nýjan tveggja og hálfs ár samn-
ing við Arsenal. Hann hefur lýst því yf-
ir að hann vilji enda sinn feril á
Highbury.
-ÓK/JKS
4-
Sporí
^ Grótta/KR-Valur:
Ovæntur sigur
- Valsstúlkur hefndu ósigursins á Hlíðarenda
Valsstelpur unnu góðan sigur á
Gróttu/KR, 19-24, á Seltjarnarnesi í
gærkvöld í Nissan-deÚd kvenna.
Valsstúlkur leiddu með þremur
mörkum í hálfleik en góður enda-
sprettur í lok leiksins tryggði þeim
þennan mikilvæga sigur og gefur
liðinu sjálfstraust sem vantað hefur
í vetur.
Alla Gokorian var tekin úr umferð
strax í upphafi og mátti hafa yfir-
frakka á sér allan leikinn og saknaði
Grótta/KR-liðið þess að geta ekki leit-
að meira til hennar í sókninni.
Valsliðið tapaði mörgum boltum í
fyrri hálfleik sem gaf heimastúlkum
möguleika á hraðaupphlaupum sem
þær náði ekki að nýta sér nógu vel. í
stað þess að skora hvert markið á
fætur öðru glopruðu þær boltanum
klaufalega hvað eftir annað.
Rétt fyrir miðjan fyrri hálfleik
mátti litlu muna að illa færi fyrir
Berglindi Hansdóttur, markverði
gestanna. Valsliðið tapaði einum af
mörgum boltum sínum i sókninni og
Alla áttaði sig snögglega á að Berg-
lind var ekki í markinu og lét skot
vaða frá eigin vítateig. Á einhvern
ótrúlegan hátt náði Berglind að
spretta aftur á bak í markið og henda
sér fyrir boltann þar sem hann fór i
þverslána og út. Berglind lenti illa
og mátti þakka fyrir að hafa aðeins
meiðst á hendi. Hún þurfti að yfir-
gefa völlinn um tíma en María Magn-
úsdóttir stóð sig vel í markinu á með-
an.
Grótta/KR skoraði fyrstu þrjú
mörk seinni hálfleiks og jafnaði strax
metin. Eftir þetta var leikurinn í
járnum og var nánast jafnt á öllum
tölum. en í stöðunni 17-17 skildu
leiðir. Nú fóru heimastúlkur að tapa
boltanum í sókninni og gengu Vals-
stúlkur á lagið. Grótta/KR gerði að-
eins tvö mörk síðustu níu mínútur
leiksins og annað þeirra úr víti.
Gestirnir reyndust sterkari í lokin og
tryggðu sér mikilvægan og sann-
gjaman sigur.
Elvar Erlingsson, þjálfari Vals, var
ánægður með sigurinn. „Við höfum
verið að vinna að þessum sigri í’
nokkurn tíma og ég er virkilega stolt-
ur af stelpunum, þær stóðu sig alveg
frábærlega. Þær unnu sig út úr þeim
vandamálum sem þær komu sér í.
Við spiluðum fyrri hálfleik þokka-
lega en vorum að stjórna okkar leik
vel. Þær ná síðan að jafna í byrjun
seinni hálfleiks og við höfum oft ver-
ið að tapa okkar leikjum í lokin en
núna fundu stelpurnar trúna og klár-
uðu þetta. Þær eiga heiður skilinn
fyrir það. Þó þetta sé ungt lið þá eru
stelpurnar orðnar þokkalega sjóaðar
og geta gert ýmsa hluti,“ sagði Elvar
við DV-Sport eftir leik. -BG
Aldrei spennandi
- Fram vann góðan útisigur á FH
Fram sigraði FH með 30 mörk-
um gegn 26 í efstu deild kvenna í
Kaplakrika í gærkvöldi. Leikurinn
náði aldrei að verða verulega
spennandi því Framarar náðu
undirtökunum snemma leiks og
slepptu þeim aldrei þótt ekki yrði
munurinn mjög afgerandi.
Svo virtist sem leikmenn beggja
liða hefðu borðað yfir sig um jólin
því leikurinn var slakur og upp-
fullur af mistökum þótt lengstum
hefði hann verið frekar hægur.
Það var ekki fyrr en alveg í blálok-
in að almennilegur hraði færðist í
leikinn og komu þá mörkin á færi-
bandi. Fram náði mest fjögurra
marka forystu í fyrri hálfleik, 8-12
og 10-14, en aðeins einu sinni
tókst FH að komast yfir; gerði
fyrsta mark leiksins.
Staðan í hálfleik var 11-14 Fram
í vil en FH-ingar náðu snemma í
seinni hálfleik að minnka muninn
í eitt mark, 15-16, en þá rönkuðu
Framarar við sér og juku foryst-
una á skömmum tíma í sex mörk,
18-24, og segja má að þá hafi úr-
slitin ráðist. Á þessum kafla var
vörn Fram mjög sterk en að sama
skapi var sóknarleikur FH-inga
hugmyndasnauður. Eftir þennan
kafla leystist leikurinn nokkuð
upp og í lok hans skoruðu liðin
grimmt á báða bóga eins og áður
sagði og var það skemmtilegasti
kafii hans.
Bæði lið þurfa að hrista af sér
þó nokkurt slen ætli þau sér að
gera eitthvað af viti það sem eftir
lifir vetrar; FH þó sýnu meira.
Hugrún stóð sig ágætlega í mark-
inu hjá Frömurum og þá voru
Díana, Marina og Irina góðar. Hjá
FH bar langmest á Hafdísi en
Björk og Ragnhildur voru ágætar.
„Leikurinn bar þess merki að
liðin eru búin að vera í löngu fríi
og það var mikið um tæknileg mis-
tök. Fyrir þennan leik munaði
ekki nema tveimur stigum á þess-
um liðum og því var sigurinn
mjög ánægjulegur sem og mikil-
vægur,“ sagði Gústaf Adolf Björns-
son, þjálfari Framara, að leikslok-
um. -SMS
FH- Fram 26-30
1-0, 1-2, 4-5, 6-9, 8-12, (11-14), 15-16,
16-18, 18-22, 20-25, 23-27, 26-30.
FH
Mörk/víti (Skot/viti): Hafdís Hinriks-
dóttir 11/4 (20/5k Björk Ægisdóttir 4 (6),
Ragnhildur Guðmundsdóttir 4 (6), Dröfn
Sæmundsdóttir 3 (8), Harpa Vífilsdóttir 2
(6), Hiidur Pálsdóttir 1 (1), Hildur Er-
lingsdóttir 1 (2),
Mörk úr hraöaupphlaupum: 3 (Hafdís
2, Harpa 1)
Vítanýting: Skorað úr 4 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Jolanta
Slapikiene 8 (25/3), Kristín Guðjóns-
dóttir 7 (20/1)
Brottvísanir: 2 mínútur
Fram
Mörk/viti (Skot/viti):
Marina Zoueva 7/4 (8/4), Díana Guðjóns-
dóttir 6 (9), Irina Sveinsson 4 (5), Hafdís
Guðjónsdóttir 3 (5), Björk Tómasdóttir 3
(6), Svanhildur Þengilsdóttir 2 (2), Guð-
rún Þ. Hálfdánardóttir 2 (2), Signý Sigur-
vinsdóttir 1 (1), Kristín B. Gústafsdóttir
1 (1), Katrín Tómasdóttir 1 (3)
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5 (Díana 3,
Signý 1, Svanhildur i)
Vitanýting: Skorað úr 4 af 4.
Varin skot/víti (Skot á sig):
Hugrún Þorsteinsdóttir 15 (32/3, 47%,
eitt skot yfir), Stella Kristmannsdóttir
0(9/1)
Brottvisanir: Engin.
Dómarar (1-10): Stefán Amaldsson
og Gunnar Viðarsson (7).
Gœði leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 75.
Maður leiksins: Díana
Guðjónsdóttir, Fram.
Stjarnan-Víkingur 18-20
0-2,1-2,1-4,4-4,4-5,5-5,5-7,7-7,7-8,9-8,
9-11, (10-11), 12-11, 12-12, 15-13, 16-14,
16-16, 17-16,17-19, 18-19, 18-20.
Stiarnan
Mörk/víti (Skot/viti): Svetlana Tcher-
etchetcha 8/3 (12/3), Halla María Helga-
dóttir 4 (8), Margrét Vilhjálmsdóttir 2 (3),
Nína Kristín Bjömsdóttir 2/1 (11/3), Inga
Lára Þórisdóttir 1 (1), Hmnd Grétarsdótt-
ir 1 (2), Guðný Gunnsteinsdóttir (1), Sóley
Halldórsdóttir (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Tcher-
etchetcha 3)
Vítanýting: Skorað úr 4 af 6.
Varin skot/víti (Skot á sig): Sóley Hall-
dórsdóttir 9/3 (29/7, 33%, víti í stöng)
Brottvísanir: 4 mínútur.
Vikingur
Mörk/viti (Skot/viti): Kristín Guð-
mundsdóttir 7/4 (16/6), Steinunn Bjama-
son 5 (7), Heiðrún Guðmundsdóttir 3 (3),
Guðbjörg Guðmannsdóttir 2 (3/1), Mar-
grét Egilsdóttir 1 (1), Eva Halldórsdóttir 1
(2), Gerður Beta Jóhannesdóttir 1 (3/1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Guð-
björg)
Vitanýting: Skorað úr 4 af 8.
Varin skot/viti (Skot á sig): Helga
Torfadóttir 12 (30/4, 40%, víti fram hjá,
víti í stöng)
Brottvísanir: 4 minútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur Er-
lendsson og Tómas Sigurdórsson (3).
Gceði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 50.
Maður leiksins: Steinunn
Bjarnason, Vfkingi.
Grótta/KR-Valur 19-24
0-1, 1-2, 3-2, 4-4, 5-6, 6-7, 6-9, 7-9,
(8-11), 9-11, 12-12, 14-13, 15-14, 16-16,
17-17, 17-20, 18-21, 19-24.
Grótta/KR
Mörk/viti (Skot/viti): Alla Gokirian
7/4 (13/4), Ágústa Edda Bjömsdóttir 4/1
(11/1), Edda Kristinsdóttir 2 (2), Eva
Hlöðversdóttir 2 (3), Jóna Pálmadóttir 2
(7), Ragna Sigurðardóttir 1 (3), Kristín
Þórðardóttir 1 (3), Eva Þórðardóttir (3).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Alla 2,
Edda 2).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Þóra
Hlíf Jónsdóttir 5 (28, 18%) eitt víti
fram hjá), Hildur Gísladóttir 0/0
(11/1).
Brottvisanir: 4 mínútur.
Valur
Mörk/víti (Skot/víti): Hafrún Krist-
jánsdóttir 7 (7), Anna Guðmundsdóttir 5
(5), Kolbrún FTanklín 4/1 (10/2), Eivor
Blöndal 3/0 (5/1), Anna Grímsdóttir 2
(4), Eygló Jónsdóttir 2 (3), Ámý ísberg 1
(4).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5 (Anna,
Kolbrún, Hafrún, Anna, Eivor).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3.
Varin skot/viti (Skot á sig):
Berglind Hansdóttir 11 (37/4, 30%),
María Magnúsdóttir 2 (7/1, 29%).
Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurös-
son og Ólafur örn Haraldsson (8).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 60.
Maöur leiksins: Hafrún
Kristjánsdóttir, Val.
ÍR - ÍBV10-21
0-3, 1-4, 2-6, (4-9), 5-11, 6-13, 8-15,
8-20, 10-21.
ÍR
Mörk/viti (Skot/viti): Anna Margrét
Sigurðardóttir 2 (3), Áslaug Þórsdóttir 2
(4/1), Björg Elva Jónsdóttir 2/1 (17/1), El-
isabet Gunnarsdóttir 1 (1), Sólveig L.
Kjærnested 1 (2), Sigrún Sverrisdóttir 1
(2) , Inga Jóna Ingimundardóttir 1/1
(3/2), Heiða Guðmundsdóttir (14/1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 2 (Björg
Elva, Elísabet)
Vítanýting: Skorað úr 2 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Aöal-
heiður Dóra Þórólfsdóttir 0 (4, 0%), Al-
dís Bjamadóttir 4/1 (21/3, 19%, víti
fram hjá)
Brottvísanir: 4 mínútur.
ÍBV
Mörk/víti (Skot/viti): Aníta Andreason
6 (7), Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 5/2
(7/2), Amela Hegic 4 (6/1), Edda B. Egg-
ertsdóttir 2 (4), Tamara Mandizch 2 (4/1),
iris Sigurðardóttir 1 (1), Gunnley Berg 1
(3) , Bjarný Þorvarðardóttir (1).
Mörk úr hraðaupphlaupunu 7 (Anita 5,
Edda, Ingibjörg Ýr)
Vítanýting: Skorað úr 2 af 4.
Varin skot/viti (Skot á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 17/3 (27/5, 63%)
Brottvísanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Anton Pálsson og
Hlynur Leifsson (7).
Gϗi leiks (1-10): 3.
Áhorfendur: 17.
Maöur leiksins: Vigdís
Siguröardóttir, ÍBV
%