Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2001, Qupperneq 2
16
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2001
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2001
17
Sport
DV DV
Sport
Björn G. Sigurösson með fallegan urriöa en hann er einn af þeim
fjölmörgu sem finnst veiöa og sleppa aöferöin gengin út f öfgar.
Veiða og sleppa aðferðin:
Afturföi
segir Björn G. Sigurðssoi
Sú þróun í veiðinni að veiða ein-
göngu á flugu í ríkari mæli og
sleppa fiskinum, fellur í grýttan
jarðveg hjá fjölda veiðimanna.
Veiðimanna sem vilja veiða í soðið
og hirða allavega í matinn handa
sér og sínum.
„Mér finnst þetta slæm þróun og
reyndar afturfór í þessum máli
öllu.
Maður vill geta farið og veitt og
sleppt fisknium ef mann langar til,
en líka hirt hann allan ef svo ber
undir,“ sagði veiðimaðurinn, Björn
G. Sigurðsson, formaður Dorgveiði-
félags íslands, í samtali við DV-
Sport.
Mjög skiptar skoðanir eru um
veiða og sleppa aðferðina og hreina
fluguveiði í fjölda veiðiáa.
„Það er allt í lagi að gera þetta
þar sem þess er þörf, en þetta rugl
er orðið allt of mikið. Erlendum
veiðimönnum fjölgar og fjölgar og
þeir vilja þennan veiðiskap, þetta
er komið frá þeim, þetta veiða og
sleppa út um allar jarðir. Veiðiám-
ar eru líka að komast á hendur
færri og færri manna. Það er ekki
góð þróun. Maðkurinn er ekki aö
drepa laxveiðiárnar, það hafa alla
tíð komið hæðir og lægðir í veiði-
skapinn, það vita allir sem hafa
fylgst með. Þetta er ekkert ný bóla,
sem byrjaði í fyrra eða árið þar
áður.“
- Þú vilt sem sagt
fara til veiða, hirða afl-
ann og veiða mikið. Er
það ekki rétt?
„Jú, ég er alinn upp við
veiðiskap frá blautu bams-
beini og hef veitt marga fiska í
gengum tíðina. Fátt er skemmti-
legra en að fá góða veiði og væna
fiska, hvort sem það er á dorg á
veturna eða við góða veiðiá eða
vatn á sumrin. Veiðimenn hafa
sleppt fiski í fjölda ára en héma
fyrir 5 til 10 ámm höfðu menn
þetta bara fyrir sig. Núna þurfa all-
ir að vita um þetta og helst að sagt
sé frá því í öllum fjölmiðlum lands-
ins. í Litluá í Kelduverfi hef ég oft
veitt og þar á að fara að veiða og
sleppa næstu árin.
Það gæti orðið erfitt í henni, áin
er mjög heit og fiskurin er slappur
eftir að maður hefur haft hann á í
nokkum tíma, Mér líst ekki vel á
þetta þar með veiða og sleppa, en
Litlaá er góð veiðiá og það er allt í
lagi að gera hana að hreinni flugu-
veiðiá," sagði Björn G. í lokin.
Björn hefur stundað dorgveiði í
fjölda ára og segir að dorgveiðin sé
ekki komin af stað ennþá, ís sé
kominn á vötn, en þetta bytji ekki
fyrir alvöru fyrr en í febrúar.
Hann hefur aðeins kíkt en
lítið reynt enn þá.
-G. Bender
Ermolinskij
Alexander Ermolinskij er önnur besta
þriggja stiga skyttan frá upphafi í úr-
valsdeild ef tekin er inni í nýting þeirra
leikmanna sem hafa náð að setja niður
100 þriggja stiga körfur. Ermolinskij hef-
ur nýtt 156 af 353 skotum sem gerir
44,2% nýtingu. Enginn sem hefur skorað
fleiri þriggja stiga körfur hefur nýtt
skotin sín betur fyrir utan þriggja stiga
linuna en Damon Johnson nýtti 107 af
238 þriggja stiga skotum sínum sem ger-
ir 45,0% nýtingu.
Ermolinskij likar örugglega einna
best að spila gegn Valsmönnum, því
hann setti sitt persónulega met í úrvals-
deildinni í stigum (37), fráköstum (21) og
stoðsendmgum (10) í leikjum gegn Val
auk þess sem hann hefur nýtt 22 af 33
þriggja stiga skotum sínum gegn Val
sem gerir 66,7% nýtingu.
Ermolinskij er meö yfirburðaforustu í
vörðum skotum í sögu úrvals-
deildar þótt fyrst væri
ekki farið að
taka þá töl-
fræöi sam-
an fyrr
^ Enska knattspyrnan í gær:
Islendingaslagur
Stoke styrkti sig í fimmta sæti 2. deildar í Englandi með 1-0 sigri á Brentford í
íslendingaslag í Stoke í gær. Sex íslenskir leikmenn komu við sögu i þessum leik og sá
sjöundi, Stefán Þórðarson, sat á bekknum hjá Stoke. Guðjón Þórðarson tefldi fram Birki
Kristinssyni, Brynjari Bimi Gunnarssyni, Ríkharði Daðasyni og Bjarna Guðjónssyni í
5inu byrjunarliði en þeir Ólafur Gottskálksson og ívar Ingimarsson léku með Brentford.
Það kom því kannski ekki á óvart að sigurmarkið væri alíslenskt. Ríkharður Daðason
skoraði þaö með góðum skalla á 22. mínútu eftir góða fyrirgjöf Bjama Guðjónssonar. Allir
íslensku strákamir stóðu sig vel og voru með betri mönnum á vellinum.
Aston Villa áfram í fjórðu umferö
Aston Villa er komið í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á Newcastle í
öðram leik liðanna en þeim fyrri lauk með jafntefli, 1-1, á St. James Park. Darius Vassell
skoraði sigurmarkið á 50. mínútu eftir góðan undirbúning Paul Merson. Aston Villa
mætir Leicester í 4. umferð.
Sunderland vann Crystal Palace 4-2 á Selhurst Park en þurfti til þess framlengingu í
endurteknum leik. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2. Clinton Morrison og Steve
Thomson skoruðu fyrir Palace en Njáll Quinn Kevin Phillips tvö og Kevin Kilbane
skoruðu fyrir Sunderland. Þá vann QPR 2-1 sigur á Luton i þriðja og síðasta leiknum.
-ÓÓJ
en tveimur árum eftir að hann byrjaði
að spila og hann orðinn 35 ára. Ermol-
inskij hefur varið 311 skot í úrvalsdeild,
136 fleiri en Torreyt John sem kemur
næstur honum á listanum.
Ermolinskij er einnig mjög ofarlega á
öðrum listum, hann er í 17. sæti yfir flest
stig (3367), fimmti í fráköstum (1852) og
12. i stoðsendingum (594) en þar vantar
hann aðeins 7 stoðsendingar I viðbót til
að komast upp fyrir Jóhannes Krist-
björnsson og upp í 11. sætið á listanum.
Alexander hefur náó einni þrefaldri
tvennu á ferlinum en aftur á móti 75 tvö-
fóldum tvennum. Þrennunni náði hann í
leik með Skallagrími gegn Tindastóli í
Borgamesi þar sem hann skoraði 11 stig,
tók 14 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.
Hann hefur siöan veriö þrisvar sinnum
aðeins einni stoðsendingu frá þrefaldri
tvennu en 74 af tvennunum hafa verið í
stigum og fráköstum en ein í fráköstum
og stigum. -ÓÓJ
Alexander Ermolinskij er enn að á 42. aldursári og hefur skapað sér mikla virðingu samherja jafnt sem andstæðinga
Alexander Ermolinskij þekkja aliir
sem hafa fylgst með körfuknattleik síð-
asta áratug. Alex, eins og hann er kall-
aður, hefur heldur betur betur stimplað
sig inn í deildina hér heima og er enn
að. Benedikt Guðmundsson tók hann
að tali og fékk valinkunna aðila til
að lýsa sinum kynnum af mannin-
um.
Alex fæddist í Sovétríkjunum
gömlu 11. nóvember 1959 og
því á fertugasta og öðru ári.
Hann byrjaði að leika
körfuknattleik 13 ára
gamall og varð stax
efnilegur. Hann
fót fljótlega eftir
þaö i
:í0m
.
'rm§ W§ f
íþróttaskóla þar sem hann æfði
körfuknattleik og stundaði nám með
eins var í Sovétríkjunum á þeim tíma.
í besta skóla Sovétríkjanna
Á þessum árum var mikil gróska í
körfunni í landinu og var Alex mjög
heppinn að komast inn í skólann þar
sem hann þótti besti skólinn í landinu.
Þjálfarinn var landsliðsþjálfari Sovét-
rikjanna og var einstaklega fær. Hann
dreymdi um að búa til lið eingöngu með
leikmönnum yfir tvo metra og var Alex
látinn spila bakvörð. Margir leikmenn
úr skólaliðinu fóra síðan í atvinnu-
mennsku erlendis og léku í mörg ár
með landsliðinu Eftir skólann fór hann
að spila með félagsliðum í heimaland-
inu, þar á meðal Samara sem er sterkt
lið í Evrópu. Hann var valinn í lands-
liðið á sínum tíma og lék marga
landsleiki fyrir gömlu Sovétríkin. Eft-
ir að hafa leikið í heimalandinu
um skeið opnuðust dyr fyrir
leikmenn að fara að spila
erlendis sem atvinnu-
menn. Alex fór til
Ungverjalands
og spilaði með
Honved í tvö
ár.
Kom í gegnum Lazlo Nemeth
Síðan atvikaðist að honum bauðst að
leika á íslandi og með góðri aðstoð
Lazlo Nemeth, sem þjálfaði KR á þess-
um tíma, sló Alex til og hóf að leika
með Skallagrími. Þetta var 1992 og er
kallinn enn þá að tæpum 9 áram seinna
og sér ekki fyrir endann á því. Á þeim
tíma sem Alex hefur leikið hér landi
hefur hann skapað sér stóran sess í ís-
lenskum körfuknattleik og notið virð-
ingar allra þeirra sem hafa séð hversu
frábær leikmaður og þjálfari hér er á
ferð. Hann er einstakt prúðmenni í alla
staði og kemur ávallt vel fyrir. Hann
hefur ekki fengið þá viðurkenningu
sem hann hefur átt skilið enda ekki
hans stíll að koma
sér sviös-
ljósið. Hann er ábyggilega með þeim
hlédrægustu sem finnast og er mikill
fjölskyldumaður. Hann hefur komið
með nýjar víddir inn i íslenska körfu-
boltann og verða menn seint leiðir á aö
sjá hann taka sitt ágæta sveifluskot.
Kossinn ógleymanlegi
Menn gleyma seint 3ja stiga körf-
unni sem sem hann hitti eftir að hafa
kysst boltann áður. Það verður varla á
neinn haOað að útnefna hann besta
vamarmann sem hefur spUað hér á
landi. Hann hefur varið þvílíkan fjölda
af skotum og hafa margir Kanamir lent
í vandræðum þegar þeir hafa mætt Al-
ex undir körfunni. Hann fékk íslenskt
rikisfang 1996 og lék með
íslenska
lands-
Hlustar á líkamann
Einar Einarsson, þjálfari Grindavikur, þjálfaði
Alex í fyrra hjá Grindavík og segir það vera heið-
ur að hafa fengið að þjálfa kaUinn: „Alex er eðal
Rússi. Algjör úrvalsnáungi sem hefur gert ómet-
anlega hluti fyrir íslenskan körfuknattleik. Al-
gjör atvinnumaður fram í fingurgóma sem lagði
sig ávaUt vel fram þrátt fyrir að vera orðin fer-
tugur. Hann er besti varnarmaður landsins að
mínu mati og frábær sendingamaður. Ég tel mig
heppinn að hafa verið þess heiðurs aðnjótandi að
þjálfa manninn og átti hann mörg góð innskot í
fyrra sem nýttust vel. Það kemur mér ekki á
óvart hvað hann er að gera góða hluti í Borgar-
nesi núna í vetur. Hann hugsar vel um skrokk-
inn á sér og mættu margir taka það sér til fyrir-
myndar hversu vel hann hlustar á líkamann,"
sagði Einar. -BG
Veit sín takmörk
Henning Henningsson, þjáUari kvennaliðs KR,
spilaði með Alex hér á árum áður með SkaUa-
grími og þekkir vel tU hans: „Alex er algjört ljúf-
menni og góður félagi. Hann lifir fyrir körfubolt-
ann og heldur líkamanum vel við tU að geta spU-
að sem lengst. Hans vinnur eins og sannur at-
vinnumaður og hann er algjör fyrirmynd-
aríþróttamaður. Það eru fáir sem hugsa eins vel
um líkamann og Alex. Hann er mjög skynsamur
innan sem utan vaUar og hefur gert margt fyrir
íslenskan körfuknattleik. Hann veit sín takmörk
og reynir ekkert sem hann ræður ekki við - því-
líkt skynsamur leikmaður og gætu margir lært
heUing af honum. Hans þjálfunaraöferðir eru
öðravisi en menn eiga að venjast hér heima en
hann nær ávaUt góðum árangri," sagði Henning.
-BG
liðinu á smáþjóðaleikunum sem fram
fóru á íslandi sumarið 1997. FeriU hans
sem þjálfara hér á landi er einnig glæsi-
legur og er hann í dag að gera frábæra
hluti í Borgarnesi. Hann var t.d. valinn
þjálfari ársins eftir tímabilið ‘96-’97.
Margir hafa tekið upp á því að kaUa
hann Alex kóng en hann sjálfur gerir
ekki mikið úr þeim afrekum sem hann
hefur unnið hér á landi. En hvað telur
Alex vera hápunktinn á ferlinum hérna
á íslandi. „Líklegast þegar ég varð bik-
armeistari með Grindavík i fyrra. Það
er eini titUlinn sem ég hef unnið hér á
landi. Ég vann titla bæði í Sovétríkjun-
um og síðan í Ungverjalandi.
En hvaða leikmenn telur Alex hafa
skaraö fram úr þann tíma sem hann
verið hér á landi. „Það eru nokkrir leik-
menn sem mér finnst hafa leikið ein-
staklega vel. Guðmundur Bragason var
mjög góður og Jón Kr. Gíslason var
mjög góður leikstjórnandi. Teitur
Örlygsson er auðvitað góður
leUcmaður og Herbert Arn-
arson var frábær þegar
hann kom heim eftir
að hafa verið í
Bandaríkjunum
tog spilaði með
ÍR. Þetta era
þeir leik-
menn
sem
hafa
leik-
Til fyrirmyndar I Dugnaðarforkur
Einar Bollason körfuknattleikssérfræðingur
hefur fylgst með Alex í þau ár sem hann hefur
spUað hér á landi og segir það einsdæmi að
leikmaður á hans aldri skuli enn vera að gera
það gott sem leikmaður: „Alex hefur haft geysi-
lega mikU áhrif og góð á körfuboltann á Vest-
urlandi. Enginn annar erlendur leikmaður hef-
ur gert eins mikið fyrir körfuna og hann.
Framkoma hans hefur aUa tíö verið tU mikiUar
fyrirmyndar. Að hann skuli vera enn að spUa
og kominn yfir fertugt er einsdæmi. Hann held-
ur sér virkilega vel við likamlega og það sýnir
mikinn sjálfsaga. Hann hefur náð góðum ár-
angri sem þjálfari og átti sérstaklega góð ár á
Akranesi," sagði Einar. ' -BG
„Hann er algjör dugnaðarforkur þvi hann hef-
ur ekki gengið alveg heill tU skógar síðustu ár.
Það er rosalega margt sem islenskir stórir strák-
ar geta lært af honum. Hann er svo rólegur inni
á veUi og hans ákvarðanatökur eru svo yfirveg-
aðar. Hann virðist aldrei stíga nein feUspor í því.
Hann er frábær sendingamaður, kann leikinn
rosalega vel og svo tel ég hann bara fæddan sig-
urvegara. Hann er búinn að gera rosalega mik-
ið fyrir þá í Borgarnesi og svo líka uppi á
Akranesi. Hann virðist halda tryggð við Borgnes-
inga. Hann er góður sendingamaður og sérstak-
lega með auga fyrir sendingum þegar menn
hlaupa af honum. Hann er kannski ekki óstöðv-
andi skorari en það má ekki líta af honum, þá
refsar hann manni með körfu því hann hittir
aUtaf. Vamarlega hefur hann gert mörgum erfitt
fyrir og hafa margir Kanamir fengið að kynnast
því. Það hefur aUtaf verið erfitt fyrir mann að
keyra að körfunni þegar hann hefur verið í vörn-
inni,“ sagði Teitur Örlygsson. -BG
ið best þann tíma sem ég hef verið hér.
Svo má ég ekki gleyma Val Ingimund-
arsyni. Þessir ungu leikmenn í dag
eiga eftir að verða mjög góðir eftir 2-3
ár.“ En er eitthvert félag sem hefur ver-
ið erfiðara að leika gegn en önnur.
„Það var aUtaf erfitt að leika gegn
Njarðvík þegar Rondey Robinson var
með þvi og sama má segja um Haukana
þegar John Rhodes var upp á sitt
besta,“ segir Alex.
Hentar betur hægari bolti
Ef skoðuð er tölfræði í leikjum í
gegnum tíðina virðist Alex aUtaf eiga
góða leiki gegn Val, hvernig skyldi
standa á því. „Kannski er ástæðan að
þeir hafa ekki verið að leika eins hrað-
an bolta og mörg önnur félög. Það hent-
ar mér betur að spUa hægari bolta og
hef ég notið mín kannski betur gegn
þeim féögum. Þeir reyndu að keyra upp
hraðann þegar Frank Booker var hjá
þeim en það gekk ekki vel hjá þeim,“
Hvað telur Alex íslenskan
körfuknattleik þurfa að leggja áherslu
á. „Það þarf að sjá tU þess að ungir
krakkar fái góða yngri flokka þjálfara.
Ekki að skipta of ört um þjálfara hjá
yngri flokkunum. Reyna að hafa sama
þjálfarann í nokkur ár með sama Uokk-
inn. Síðan þarf ríkið eða bæjarfélögin
að koma með fjármagn svo félögin geti
eflt yngri flokka starfið. Sums staðar
eru áhugalifiir þjálfarar að þjálfa Uokka
og er það mismunandi eftir félögum.
Síðan þurfa yngri leikmenn að fá meiri
reynslu gegn öðram leikmönnum er-
lendis. Það er reynsla sem getur eHt
leikmenn til muna. Það eru aUtaf
kannski 10-12 leUonenn sem fara með
yngri landsliðum að keppa erlendis en
það er fuUt af öðrum leikmönnum sem
þurfa að fá þessa reynslu líka. Félögin
gætu skapað krökkunum þessa reynslu
ef þau hefðu fjármagn frá rikinu eða
bæjarfélaginu. Þeir sem hafa umsjón
með landsliðum þurfa líka að bæta sam-
skipti við félagsþjálfarana og vinna með
þeim. í Sovétríkjunum vora landsliðs-
þjálfararnir í góðum samskiptum við fé-
lögin og samvinnan var mikil enda aU-
ir að stefna á að bæta leikmennina."
Einn dagur í einu
En hvað ætlar Alex að spUa mörg ár
enn. „Það er ómögulegt að segja. Ég tek
aðeins einn dag fyrir í einu. Stundum
er maður orðinn þreyttur á þessu. Ég
vonast til að þjálfa í framtíðinni og hef
gaman af því. Ég reyni að halda mér í
formi en núna reyni ég að nýta mér
hæðina því hér er hæðin ekki mikU í
deUdinni. Stundum þarf ég að spila þó
ég sé meiddur en maður reynir að
gleyma sársaukanum," segir þessi ein-
staki leikmaður. En hverjir vinna deUd-
ina í vetur? „Njarðvíkingar era sterk-
ir. Ég spáði þeim tifiinum fyrir mótið.
Þeir voru ekki sannfærandi fyrir ára-
mót en með komu Friðriks Stefánsson-
ar eru lokum
-BG
Ermolinskij
Besta sigurhlutfallinu náði hann
með Grindavík í fyrra (17 sigrar, 4
töp) en næst á eftir eru 15
sigurleikir í 22 leikjum með ÍA 1996
Al-
exand-
er Ermol-
inskij kyssir hér
körfubolta á heimili
sínu í gær en hann var einmitt
þekktur fyrir aö kyssa boltann áöur
en aö hann tryggöi Skallagnmsmönn-
um sigur á ÍR-ingum í úrslitakeppninni
1995. DV-mynd Hilmar Pór
_ Alexander Ermolinskij lék sinn
fyrsta leik á íslandi í Grindavík þegar
hann og félagar hans i Skallagrimi komu í
heimsókn. Ermolinskij skoraði 30 stig og tók
9 fráköst í leiknum en kappinn nýtti 8 af 11
skotum sínum þar af eina þriggja stiga skot-
ið. Ermolinskij átti þá aðeins 38 daga í 33 ára
afmælið sitt.
Alexander hefur leikiö 213 úrvalsdeildar-
leiki og verið 112 sinnum í sigurliði sem er í
52,6% tilfella. Alexander hefur aðeins misst
úr fjóra úrvalsdeildarleiki frá þvi að hann
kom hingaö 1992 og það er kannski lýsandi
um mikilvægi hans að allir þeir leikir hafa
tapast hjá þeim liðum sem hann lék þá með.
til 1997.
Ermolinskij hefur markaö stór spor í
körfuboltasögu Skallagríms enda hefur hann
verið í þáttakandi í 61 af 99 sigrum liðsins í
úrvalsdeild. Með Ermolinskij innanborðs
hefur Skallagrímur unnið 48,4% leikja sinna
en án hans aðeins 32,5%.
Tölur Ermolinskij i vetur eru frábærar ef
tillit er tekið til þess að hann er á 42. ald-
ursári. Ermolinskij hefur skorað 9,6 stig, tek-
ið 8,4 fráköst, gefið 2,7 stoðsendingar og varið
1,5 skot í leik auk þess að hitta úr 54,1%
þriggja stiga skota sinna og 88,2% vitanna en
Ermolinskij hefur gert 1,5 þriggja stiga körfur
að meöaltali í leik. -ÓÓJ