Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
Umsjón: Vidskiptablaöiö
Reuters First opnar upplýsinga-
þjónustu fyrir íslenskt viðskiptalíf
Alþjóðlega upplýsinga- og frétta-
miðlunin Reuters hefur hleypt af
stokkunum nýrri upplýsingaþjón-
ustu fyrir íslenskt viðskiptalíf,
Reuters First, sem sérhæfir sig í
norrænum fjármálamarkaði.
Reuters First veitir hraðar og
áreiðanlegar upplýsingar um fjár-
málamarkað á Norðurlöndum,
ætluðum verðbréfamiðlurum og
sjóðstjórum. „Með aukinni
áherslu á íslenskan fjármálamark-
að veitir fyrirtækið upplýsingar
um almennan hlutabréfamarkað
um leiö og þær berast og gefur yf-
irsýn yfir sögulegar staðreyndir
sem varpa ljósi á núverandi stöðu
fyrirtækja," segir í tilkynningu
vegna tilkomu Reuters First.
Reuters veitir fróðleik um verð-
bréfamarkaðinn á Norðurlöndun-
um og um hlutabréf norrænna fyr-
irtækja sem eru skráð á NYSE og
Nasdaq. Aö auki veitir Reuters
First yfirlit yfir gengi hlutabréfa í
tilteknum fyrirtækjum og miðlar
einnig upplýsingum um alþjóðleg-
ar vístitölur, skuldabréf, gjald-
miðla og hrávöruverð á hverjum
tíma.
„Reuters First hefur yfir að
ráða háþróaðri tækni til að meta
stöðu hlutabréfa sem gera mögu-
legan samanburð milli fjárfest-
ingaleiða innan ýmissa geira við-
skipta- og atvinnulífsins og milli
valkosta einstakra fjárfesta," segir
í tilkynningunni.
Reuters er stærst
Jean-Frangois Rallier, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs Norðurlanda, telur ísland
vera mikilvægt markaðssvæði fyr-
ir fyrirtæki, með hliðsjón af vexti
landamæralausra viðskipta.
Reuters First mun gefa íslensku
viðskiptalífi aðgang að norrænum
mörkuðum til jafns við alþjóðlega
fjármálamarkaði með þjónustu
sinni. Reuters hefur fjárfest í stór-
um stíl í innri byggingu sam-
skiptanetsins milli íslands og ann-
arra Evrópulanda. Þeir hafa
einnig haft frumkvæði að samn-
ingi við Háskóla Reykjavíkur, sem
notar Reuters-þjónustu fyrir verk-
menntun sem tengist fjármála-
mörkuðum.
Reuters, leikur stórt hlutverk á
viðskipta- og fjármálamörkuðum
á sviði alþjóðlegra upplýsinga og
frétta. Stefna Reuters er að virkja
viðskiptamarkaði á Internetinu.
Reuters er stærst alþjóðlegra
frétta- og sjónvarpsmiðlara meö
1.957 fréttamenn, ljósmyndara og
kvikmyndatökumenn á 185 frétta-
stofum sem i 153 löndum leggja
stund á öflun og framleiðslu
frétta á 24 tungumálum. Instinet,
sjálfstætt dótturfyrirtæki
Reuters, rekur heimsins stærsta
rafræna verðbréfamiölarann.
Fram kemur aö forskot Reuters
byggist á orðspori hraða, ná-
kvæmni, hlutlægni og tækniþró-
un. Reuters sér 900 heimasíðum
fyrir fréttum og upplýsingum um
peningamarkaðinn 30. júni 2000
voru 17.067 manns í 215 borgum í
98 löndum starfandi hjá samstæð-
unni.
Salan á Vífilfelli liður í endurskipulagn-
ingu í framleiðslu Coke á Norðurlöndum
Kaup íslenskra fjárfesta á Vífilfelli
hf. eru liður í endurskipulagningu á
sölu- og framleiðslu Coca-Cola á Norð-
urlöndunum. Framleiðsla afurða
Coca-Cola á Norðurlöndunum hefur
verið í höndum Carlsberg-Coca-Cola
Nordic Beverages, sem er í samein-
ingu í eigu Carlsberg og Coca-Cola, en
upp úr samstarfínu slitnaði við sam-
einingu Carlsbergs og norsku drykkj-
avörusamsteypunnar Orkla í maí í
fyrra.
CCNB festi kaup á Vífilfelli fyrir
þremur árum en þá hafði Vífilfell að
mestu verið í eigu Péturs Björnsson-
ar. Kaupin voru i samræmi við stefnu
CCNB um að framleiðsla afurða Coca-
Cola á Norðurlöndunum yrði á einni
hendi. Þar sem grundvöllur samstarfs
Coca-Cola og Carlsberg brast með
sameiningu Carlsberg og Orkla (sem
m.a. framleiðir Pepsi í Svíþjóð og Nor-
Islenskir fjárfestar keyptu Vífilfell
Kaupin eru liöur í endurskipulagningu á sölu Coca-Cola á Noröurlöndum.
egi) var ákveðið aö endurskipuleggja
framleiðslumálin og slíta CCNB fyrir
árslok 2001. Nú hefur verið ákveðið að
Carlsberg sjái um framleiðslu Coca-
Cola í Finnlandi og Danmörku en
Coca-Cola Company sjái sjálft um
framleiðsluna í Svíþjóð og Noregi.
Öðru máli gegnir með tsland en
samkomulag er nú í höfn um að þeir
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vifil-
fells, Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu
hf., og Kaupþing hf. kaupi Vífilfell en
boðað hefur verið til blaðamanna-
fundar í dag þar sem kaupin verða
formlega kynnt.
Eins og greint hefur verið frá í Við-
skiptablaðinu eru allar líkur á því að
Vífilfell og Sól-Víking hf. verði sam-
einuð en síðastliðið haust festi Kaup-
þing kaup á meirihluta í Sól-Víking
og á nú ríflega 90% hlut í félaginu.
Sameining í hugbúnaðargerð fyrir handtölvur
Fakta ehf., Handtölvur ehf. og Króli
verkfræðistofa ehf. hafa undirritað
samning um sameiningu handtölvu-
deildar Fakta við Handtölvur en jafn-
framt verður Króli verkfræðistofa hlut-
hafi í Handtölvum. í tilkynningu frá
fyrirtækjunum kemur fram að hand-
tölvudeild Fakta hefur unnið að strika-
merkjalausnum í handtölvugeiranum
um árabil og hefur meðal annars unn-
ið að talningar-, pantana- og verðeftir-
litskerfi fyrir verslunarmarkaðinn
(Vörupálma), EAN-128 strikamerkja-
lausn fyrir sjávarútveg, gæðaeftirlits-
kerfi og EDI-forsölukerfi með GSM-
tengingu.
Með samningnum munu þessar
lausnir færast yfir til Handtölva og
sameinast þeirri hugbúnaðarþróun
sem þar á sér stað.
„Með samningnum er verið að færa
hugbúnaðargerðina í eitt fyrirtæki,
Handtölvur, sem verður fyrir vikið
sterkari eining á markaði og ötlugur
samstaifsaðili okkar,“ segir Sigurður
Hjalti Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Króla verkfræðistofu. „Þessar lausnir
munu nýtast viðskiptavinum og sam-
starfsaðilum Króla vel og tryggja þeim
áframhaldandi góðar hugbúnaðar-
lausnir."
„Samningurinn gefur okkur tæki-
færi til að einbeita okkur frekar að
þeim pappírslausu kerfum sem höfum
verið að þróa,“ segir Kjartan Ólafsson,
framkvæmdastjóri Fakta. „Við höfum
átt góð viðskipti við Króla verkfræði-
stofu í rúm tvö ár og ég hef trú á því að
handtölvulausnir okkar séu komnar í
góðar hendur hjá Handtölvum sem er
metnarfullt fyrirtæki með skýra
áherslu á þessu sviði hugbúnaðargerð-
ar.“
„Þessi sameining styrkir stöðu
Handtölva í sessi sem öflugt hugbúnað-
arhús i handtölvulausnum," segir Dav-
íð Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Handtölva. „Með þessu erum við að
sækja inn á ný svið og breikka vöru-
línu okkar. Hugbúnaðarlausnir Fakta
eru vel unnar, hannaðar með tilliti til
þarfa markaðarins og gefa okkur tví-
mælalaust enn frekara forskot á hand-
tölvumarkaði.“
PwC kaupir
Rekstur og
ráögjöf ehf. á
Norðurlandi
Starfsemi hjá Pricewaterhouse-
Coopers á Norðurlandi hefur ver-
ið aukin með kaupum á Rekstri
og ráðgjöf ehf. Með sameining-
unni styrkist enn frekar starf-
semi PwC á Akureyri, bæði með
auknu þjónustuframboði, sem og
getu til að vinna að umfangsmeiri
verkefnum.
Fram kemur í frétt frá PwC að
starfsemi fyrirtækisins á Norður-
landi, Akureyri og Húsavík, hef-
ur verið vaxandi undanfarin ár
og lögð hefur verið áhersla á
aukna þjónustu við viðskiptavini.
Mikið og gott samstarf er milli
skrifstofa PwC sem eru alls fimm
á íslandi. Sérfræðingar PwC í
Reykjavík taka þátt í verkefnum
á Norðurlandi og á sama hátt
taka sérfræðingar skrifstofunnar
á Akureyri þátt í verkefnum ann-
ars staðar á landinu og verður
svo áfram.
Þrír nýir ráðgjafar koma til
liðs við PwC á Akureyri en þau
eru Bjarni Kristinsson, Einar Ás-
kelsson og Sigrún Jakobsdóttir.
Rekstur og ráðgjöf hefur um ára-
bil þjónað sveitarstjórnum og
annarri opinberri stjórnsýslu,
auk þess að vinna með fyrirtækj-
um og einstaklingum á Norður-
landi, sem og annars staðar á
landinu.
Á skrifstofu Pricewaterhouse-
Coopers, Glerárgötu 32 á Akur-
eyri, eru nú starfandi 12 starfs-
menn við ráðgjöf og endurskoð-
un.
Sjónvarps-
0 handbókln
hefur fengið nýtt
símanúmer
550 5850-
Fax
550 5999
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001
DV
HEILDARVIÐSKIPTI 4450 m.kr.
- Hlutabréf 166 m.kr.
- Húsbréf 1884 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
: SÍF 33 m.kr.
Skýrr 28 m.kr.
Opin kerfi 13 m.kr.
MESTA HÆKKUN
OÚA 8,5 %
©SR-mjöl 4,9 %
: O Hraðfrystihúsið-Gunnvör 4,2 %
MESTA LÆKKUN
: OSkýrr 5,7%
©Tangi 3,4 %
: ©Olís 2,7 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1211 stig
- Breyting O 0,21 %
Obreytt-
ir vextir
í Evrópu
Evrópski seðlabankinn hélt vöxt-
um sínum óbreyttum í 4,75% og
sýndi þar með að hann ætlaði ekki
að taka þátt í þeirri vaxtalækkunar-
hrinu sem hefur einkennt mörg
lönd eftir að bandaríski Seðlabank-
inn lækkaði vexti sína um 1% í jan-
úar til að örva hagvöxt.
Breski seðlabankinn lækkaði
vexti sína í síðustu viku um 25
punkta og eru þeir nú 5,75%.
Efnahagslífið í Evrópu hefur
hægt á sér eftir mikinn uppgang og
vöxt á öðrum ársfjórðungi síðasta
árs þegar hagvöxtur á ársgrundvelli
mældist 4%. Wim Duisenber, seðla-
bankastjóri evrópska seðlabankans,
hefur tilkynnt um hagvaxtarspár
bankans sem gefa til kynna að um-
svifin í efnahagslífi Evrópu muni
vaxa um 3% á þessu ári.
Microsoft
enn til rann-
sóknar
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
hefur enn einu sinni hafið rannsókn
á Microsoft á grundvelli banda-
rískra samkeppnislaga. í Was-
hington Post, sem út kemur í dag, er
greint frá því að nú sé til skoðunar
fiárfesting Microsoft í kanadíska
hugbúnaðarfyrirtækinu Corel Corp.
l*ÍKan. dollar
fiSPöntk kr.
fip~Nor*kkr
£Ss«mk kr.
3Nn.matk
J SjFra. franki
(nfooig. franki
t3| Sviss. ffankl
Qml gyllini
HHfoýtkt mark
1 Ifo lira
ist. sch.
'ort. escudo
j * jSpi. pesoti
yen
Irskt pund
SDR
ggECU
16.02.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
86,350 86,790
125,340 125,980
56,270 56,610
10,5080 10,5660
9,5850 9,6380
8,7340 8,7820
13,1854 13,2646
11,9515 12,0233
1,9434 1,9551
51,0800 51,3600
35,5749 35,7886
40,0836 40,3244
0,04049 0,04073
5,6973 5,7315
0,3910 0,3934
0,4712 0,4740
0,75030 0,75480
99,543 100,141
111,3900 112,0600
78,3967 78,8677