Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Síða 20
24
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001
^Tilvera x>"V
mmm
Crouching Tiger, Hidden Dragon
irkirk Frábær kvikmynd. Þaö er eins
og listin hafl loksins rataö aftur heim í
Qölleikahúsiö. Maður situr í sætinu
• sínu og er borinn gegnum ævintýriö,
undrandi og þakklátur eins og barn.
En myndin er líka svolitið skrýtin.
Leikaramir em allir meö sama
íbyggna svipinn og bera fram textann
eins og þeir séu aö lesa hann af blaði.
Og ömgglega á einhverri mállýsku sem
þeim er ekki eiginleg. En viö héma
uppi á íslandi segjum bravó og tökum
þaö sem hluta af ævintýrinu. -GSE
A Hard Day’s Night
kkkk Myndir um rokktónlist og rokk-
ara eldast yfirleitt illa. Þetta á ekki viö
um A Hard Day’s Night, sem var tíma-
mótamynd. Bitlarnir voru að komast í
efstu hæöir og voru með snjallar hug-
myndir á færibandi og leikstjórinn Ric-
hard Lester var ekki síður hugmynda-
frjór og náði hann að skapa snilldar-
verk úr nánast engu meö aö sjálfsögöu
aðstoð Bítlanna sem eru hver öörum
betri í myndinni. Sannarlega kvik-
mynd sem kom á óvart á sínum tíma
og gerir enn. -HK
0 Brother Where Art Thou
Sérlega fjörug kvikmynd frá Coen-
bræömm sem krydduð er meö sérlega
skemmtilegri kántrítónlist. Úr mikilli
samsuöu ólíkra atriöa hafa þeir bræöur
náö aö gera úr heilsteypta kvikmynd
sem verður þó ekki talin meö þeirra
^ bestu verkum, aöallega vegna þess
hversu stundum hægir á atburöa-
rásinni. Myndin stendur þó vel undir
þeim gæöastimpli sem er á öllum þeirra
kvikmyndum og satt best að segja væri
bandarísk kvikmyndagerð illa stödd í
dag ef ekki væri fyrir frjóa kvikmynda-
gerðarmenn á borö viö Joel og Ethan
Coen. -HK
Ikíngut
★★★ Góð kvikmynd sem byggist á þjóð-
sagna- og ævintýrahefð. Myndin fjallar
um grænlenskan dreng sem rekur á ís-
landsstrendur í vetrarhörkum. Aöall
myndarinnar er, likt og í góöum ævin-
týrum, bamsleg einlægni sem skilar sér
til áhorfenda. Mest áhersla er lögö á
samband Bóasar og Ikínguts og þar
mæðir mikið á hinum ungu leikurum,
Hjalta Rúnari Jónssyni og Hans Tittus
Nakinen. Drengimir ná upp sérlega góð-
um og einlægum samleik. Góð fjöl-
skylduskemmtun. -HK
Wonder Boys
★★★ Wonder Boys er um margt ákaf-
lega vel gerö mynd og glæsilega leikin;
persónumar lifandi og auðvelt að þykja
vænt um þær; samtöl hnyttin og fram-
vindan langt í frá fyrirsjáanleg. Sagan
er þroskasaga Grady Tripp, rithöfundar
sem hefur skrifaö marglofaða bók. En
það er fulllangt síöan. Leikstjórinn
Curtis Hanson setur persónur myndar-
innar í forgmnn og nær frábærum leik
út úr hverjum einasta leikara. Auk þess
klárar hann sig af heildarsvip, skrykkj-
óttri framvindu og hveiju eina. -GSE
Leiðin tii El Dorado
kkk Litrík og skemmtileg teiknimynd
gerö upp á gamla mátann meö aöstoð
tölva. Persónur eru vel afmarkaðar og
ólíkar og textinn oft skemmtilegur.
Tónlist Elton John er enn fremur ágæt
þó hann hafi gert betur. Myndin er
samt ekki á viö það besta í þessum
geira. Þaö vantar þá barnslegu gleöi
sem stundum er að fmna i slíkum
myndum. -HK
Unbreakable
"•r ★★ Unbreakable er næstum eins og The
Sixth Sense. Hún er myrk og hæg en
ekki eins ógnvekjandi og fyrirrennar-
inn. Andblærinn gefur til kynna hnign-
un fremur en ógn. Henni tekst hins veg-
ar aö fjalla um ævintýralegt efni á raun-
sæjan hátt; áhorfandinn trúir henni.
Stóri gallinn er hins vegar endirinn. Til-
raun sem er nánast móðgun viö áhorf-
endur. -GSE
The 6th Day
★★ Þegar Schwarzenegger á í hlut er
oftast mikill hasar og læti og það vantar
ekki hasarinn í The 6th Day. Myndin
rf hefur þaö samt fram yfir hefðbundinn
hasar að vera meö áhugaverðan sögu-
þráð og kemur á óvart stefnubreyting
sem verður þegar líöa fer að lokum. Því
miður hefur verið of mikið gert út á
hæfileika Schwarzeneggers sem ekki
liggja í töluðu máli á kostnaö sögunnar
svo myndin nær aldrei þeirri reisn sem
hæfir sögunni. -HK
A.I. Artificial Intelligence:
Nýr framtíöartryllir
frá Spielberg
Eftir að hafa leikstýrt þremur
kvikmyndum nánast í einni bendu -
Lost World: The Jurassic Park,
Amistad og Saving Private Ryan tók
Steven Spielberg sér gott frí frá leik-
stjórn en er nú kominn á fulla ferð
aftur og er með þrjár kvikmyndir í
takinu sem hann mun leikstýra: A.I.
Artificial Intelligence, Minority
Reoport og The Memoirs of a Geisha
og verður sú fyrsta frumsýnd í sum-
ar og sú síðasta seint á næsta ári.
Það er A.I. Artificial Intelligence
sem frumsýnd verður í sumar og ef
áætlanir standast er frumsýningar-
dagur ákveðinn 29. júní í Bandaríkj-
unum. Myndin er framtíðarmynd
og gerist um miðja þessa öld. Maö-
urinn hefur þróað nýja gerð af tölvu
sem nánast veit af eigin tilveru.
Tölvan getur meðal annars hjálpað
manninum við að vinna bug á
bráðnun íss á norður- og suðurpóln-
um og þá i leiðinni að bjarga strand-
borgum frá því að fara undir sæ.
Þessi gervigreind hefur verið látin í
vélmenni, ungan dreng (Hayley Joel
Osment), og nú er það hans að fara
í ferðalag i mannheimum og sjá
hvort hann getur orðið eitthvað
annað en vélmenni.
Hayley Joel Osment, sem fer með
aðalhlutverkið, er sami drengurinn
og lék svo eftirminnilega í The
Sixth Sense. Hann leikur einnig
stórt hlutverk i Pay It Forward þar
sem mótleikarar hans eru Kevin
Spacey og Helen Hunt. Auk hans
leika í A.I. Jude Law, Frances
O’Connor og William Hurt.
Hayley Joel Osment og Jude Law
/' hlutverkum sínum í nýjustu kvikmynd Stevens Spielbergs,
A.l. Artifical Intelligence.
Double Take:
Benicio Del Toro
Fékk tilnefningu fyrir leik í Traffic.
Viðbrögð við
tilnefningum
Sjálfsagt eru fáir leikarar sem lík-
legir eru til að fá tilnefningu til ósk-
arsverðlaunanna heiðarlegir í svör-
um þegar þeir svara spurningum
blaðamanna um það hvort þeir hafi
ekki beðið með öndina í hálsinum eft-
ir að vita hvort þeir fái tilnefningu.
Flestir vilja sýnast yfirvegaðir og
kaidir þótt innst inni fagni þeir ákaf-
lega en viðurkenna yfirleitt að þeir
hafi verið spenntir en ekkert alltof
spenntir. Benicio Del Toro, sem til-
nefndur var fyrir Traffic, sagði að sér
hefði liðið eins og á úrslitaleik í fót-
bolta. Kate Hudson, sem tilnefnd er
fyrir Almost Famous, sagði að þetta
væri draumur sem væri að rætast, en
þess má geta að fengi hún óskarinn
þá er það í fyrsta sinn sem mæðgur
hafa hampað gripnum, en móðir
hennar er Goldie Hawn. Ellen
Burstyn, sem vann óskarinn 1974 og
er tilnefnd nú, var hin rólegasta og
sagði að það væri kominn tími að fá
hann aftur. Frances McDormant
sagðist ekki þurfa á óskar að halda til
halda við sjálfstraustinu og Willen
Dafoe sagðist hafa orðið undrandi og
að hann vonaðist til að hann myndi
meira frá þessari óskarshátíð en
þeirri þegar hann var tilnefndur fyrir
Piatoon, en hann sagðist muna lítið
eftir partiinu á eftir.
Skipt um hlutverk
Sam-bíóin og Nýja bíó Akureyri
frumsýna í dag gamanmyndin Double
Take þar sem tveir ungir gamanleik-
arar, Eddie Griffin og Orlando Jones,
fara með aðalhlutverkin. Jones leikur
bankamanninn Daryl Chase sem
hingað til hefur iifað áhyggjulausu
lífi þess sem hefur nóg af öllu. í einu
vetfangi breytast allar hans aðstæður
þegar hann er sakaður um að hafa
„peningaþvegið" milljónir dollara fyr-
ir mexíkanska eiturlyfjasala. Til að fá
leiðréttingu sinna mála á Chase
engra annarra kosta völ en að flýja og
reyna að fela sig fyrir FBI sem er á
eftir honum. Til að auðvelda þetta
skiptir hann um hlutverk við Freddy
(Eddie Griffin) og heldur að þá geti
hann í friði leiðrétt sín mál. En svo er
nú ekki því það kemur í ljós að
Freddy er enn ofar á lista hjá FBI yflr
hættulega glæpamenn heldur en
Chase.
samt telja öruggt að
Greene hefði ekki þekkt sitt höfunda-
verk í Double Take þar sem allt er
gert út á grínið og Greene var aldrei
þekktur fyrir mikinn húmor í sínum
skáldskap.
Eddie Griffin og Orlando Jones
koma úr sjónvarpinu eins og flestir
bandarískir grínistar og er Griffm
þekktur meðal bandarískra sjón-
varpsáhorfenda sem Eddie, annar
hluti sjónvarpsseríunnar Malcolm
and Eddie. Þá hefur hann einnig gef-
ið út plötur með eigin efni. Jones
varð þekktur þegar hann var einn af
grínistunum sem héldu uppi seríunni
Mad TV. Áður hafði hann í nokkur ár
skrifað handrit í þekktar gamanserí-
ur. -HK
Þó undarlegt megi
virðast kemur hugmynd-
in að Double Take frá
hinum þekkta rithöf-
undi Graham Greene.
Um miðja öldina skrifað
hann skáldsöguna Dou-
ble Take sem síðan var
gerð að kvikmynd árið
1957 með Rod Steiger í
aðalhlutverki. Fjallar
hún um mann sem er á
flótta til Mexíkó. í lest
hittir hann fyrir mann
og skiptir við hann um
hlutverk. Það má nú
Daryl og Freddie
Eddie Griffin og Oriando Jones leika tvo skrautlega náunga sem skipta um hlutverk.
Traffic
Michael Douglas sýnir snilldarleik
í aðalhlutverkinu.
Tvær fyrir einn
Á morgun bjóða
Sam-bíóin upp á
kvikmyndaveislu
sem kvikmyndaaðdá-
endur ættu ekki að
láta fram hjá sér fara,
það er að segja þeir
sem ekki munar um
þaö að sitja á fimmta
klukkutíma i bíói.
Verða sýndar tvær
úrvalsmyndir hvor á
eftir annarri, Trafflc
og Pay It Forward,
nýjar kvikmyndir
sem verða ekki sýnd-
ar á almennum sýn-
ingum fyrr en í mars.
Það sem bíógestir
græða á þessu er ekki
aðeins að fá forsýn-
ingu á þessum mynd-
um heldur er miða-
verð það sama og á
venjulega sýningu.
Trafflc hefur feng-
ið mikið lof hjá
gagnrýnendum vest-
anhafs og er til-
nefnd til ósk-
arsverðlauna sem
besta kvikmynd auk
þess sem leikstjór-
inn Steven Soder-
berg er tilnefndur
sem besti leikstjóri.
Myndin gerist í
heimi eiturlyfja og
þykir raunsönn lýs-
ing á ástandinu. Michael Douglas
leikur aðalhlutverkið og hefur feng-
ið góða dóma fyrir leik sinn og voru
margir á því að hann hefði átt aö fá
óskarstilnefningu.
í Pay It Forward, sem Mimi Leder
(Deep Impact) leikstýrir, leiða sam-
an hesta sína Haley Joel Osment,
ungi drengurinn sem fékk óskarstil-
Pay It Forward
Helen Hunt Hayley, Joel Osment og Kevin Spacey
í hlutverkum sínum.
nefningu fyrir leik sinn í Sixth
Sense, og óskarsverðlaunahafinn
Kevin Spacey, i mynd sem fjallar
um dreng sem tekur alvarlega sam-
þykki kennara síns um að hann
megi gera jörðina að betri stað til að
lifa á. Helen Hunt, annar ósk-
arsverðlaunahafl, leikur móður
hans. -HK