Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Page 22
■i
26
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001
JOV
Ættfræði
fc
*
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára___________________
Fróði Pálsson,
Markarflöt 20, Garðabæ.
Jóna S. Jensen,
Sólvallagötu 3, Reykjavík.
Knútur Armann,
Breiðvangi 8, Hafnarfirði.
75 ára____________________
Bragi Níelsson,
Esjubraut 7, Akranesi.
Margrét Valtýsdóttir,
Selárbakka, Éyf.
70 ára____________________
Ásdís Óskarsdóttir,
Framnesvegi 15, Keflavík.
Helgi Hallsson,
Vföilundi 24, Akureyri.
60 ára___________________________i_
Lárus Jónasson,
fyrrv.
bifreiðastjóri,
Hverahlíö 17,
Hveragerði.
Fyrrv. kona hans var Erla
Jóhannsdóttir.
Bergur Sigurðsson,
Njarðvíkurbraut 2, Njarövfk.
Gísli Hermannsson,
Ártúni, A-Skaft.
Ingibjörg G. Kristmannsdóttir,
Áshamri 69, Vestmannaeyjum.
Svanhvít Magnúsdóttir,
Goðatúni 25, Garðabæ.
———| Kristrún Árný
Sigurðardóttir
gjaldkeri,
J aft Fornuströnd 13,
\ JK Seltjarnarnesi.
... £gteiH|ð Eiginmaður hennar er
Stefán Ragnar Einarsson
skipstjóri. Þau verða aö heiman á
afmælisdaginn.
Birgir Páll Jónsson,
Sunnuflöt 29, Garðabæ.
Helga M. Sigurjónsdóttir,
Reykási 21, Reykjavík.
Jóhanna Stefánsdóttir,
Marbakka 11, Neskaupstað.
Jón Sigurgeirsson,
Hringbraut 96, Reykjavík.
Kristjana Fenger,
Akurholti 4, Mosfellsbæ.
Lilja Kristín Guðmundsdóttir,
Suðurgötu 86, Siglufirði.
Ómar Þórsson,
Fífuseli 32, Reykjavík.
40 ára____________________
Guðný Helgadóttir,
Austurbraut 6, Höfn.
Hrefna Stefánsdóttir,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Ingibjörg Laufey Ólafsdóttir,
Bakkastöðurri 5a, Reykjavík.
Sveinn Brynjar Diego,
Miðtúni 82, Reykjavík.
0 Sjónvarps- i
‘ hmtíMm \
hefur fengið nýtt
símanúmer
550 5850
Fax
550 5999-
Andlát
Klara Tryggvadóttir, Litla-Hvammi 7,
Húsavík, andaðist á Sjúkrahúsi
Húsavíkur 13.2. sl.
Halldór H. Þorgrímsson lést miðvikud.
14.2.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Fimmtugur
Sigurður Jónsson
skipulags- og byggingafulltrúi Ölfuss
Sigurður Jónsson, skipulags- og
byggingarfulltrúi sveitafélagsins
Ölfuss, Reykjabraut 4, Þorlákshöfn,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Sauðárkróki
og átti þar heima til 1973. Hann bjó
síðan á Skagströnd og í Reykjavík
til 1977 er fjölskyldan flutti til Hor-
sens i Danmörku. Þau voru síðan
búsett á Akureyri 1981-95 er fjöl-
skyldan flutti til Þorlákshafnar.
Sigurður lærði trésmíði hjá Litlu
trésmiðjunni á Sauðárkróki, lauk
sveinsprófi 1973 og lauk prófi frá
Meistaraskóla Reykjavíkur 1975,
stundaði nám í byggingarfræði við
Byggeteknisk Höjskole í Horsen í
Danmörku og lauk þar prófum 1981.
Sigurður starfaði hjá Litlu-Tré-
smiðjunni á Sauðárkróki frá 1969,
stundaði smiðar á Skagaströnd og í
Reykjavík og var með smíðaflokk
fyrir Búnaðarsamband Skagafjaröar
til 1977 vegna bygginga á gripahús-
um, hlöðum og íbúðarhúsum.
Sigurður var við teiknistörf og á
námskeiðum í Danmörku, starfaöi
skamma hríð hjá einingahúsafyrir-
tækinu Stuölafelli á Akureyri, starf-
aði hjá Húsameistara Akureyrar-
bæjar 1981-85, vann á Arkitekta-
stofu Svans Eiríkssonar 1985-89, var
framkvæmdarstjóri Meistarfélags
byggingarmanna, Norðurlandi frá
1989 og síðan forstöðumaður á
Svæðisskrifstofu iðnaðarins á Norð-
urlandi, sem Landssamband iðnað-
armanna opnaði 1990 og þar til
Landssamband iðnaðarmanna var
lagt niður við stofnun Samtaka iðn-
aðarins. Sigurður starfaði hjá
Ferðamálaráði íslands 1994-95, fyrst
við úttektir til úrbóta á ferðamanna-
stöðum og síðan sem umhverfisfull-
trúi þess. Hann varð síðan yfirmað-
ur tækni- og umhverfissviðs með
aðalstarf sem skipulags- og bygging-
arfulltrúi, hjá Sveitarfélaginu Ölfus
1995 og hefur starfað þar síðan.
Sigurður var í æskulýðsstarfi
innan þjóðkirkjunnar og skátastarfi
á æskuárunum en 1971-73 endur-
vakti hann, ásamt öðrum, skáta-
hreyfinguna á Sauðárkróki og var i
forystu hreyfingarinnar þar. Hann
hefur starfaö í Oddfellowreglunni
frá 1987, og í Oddfollowbúðunum frá
1998, var formaður ferðanefndar
Ferðafélags Akureyrar i nokkur ár,
í stjórn félagsins og síðan formaður
þess nokkur ár, var einn af stofn-
endum Ferðamálafélags Ölfuss 1997
og hef verið formaður þess síðan.
Hann starfar í sóknarnefnd Hjalla-
og Þorlákskirkna, situr í stjóm
Norrræna félagsins í Þorlákshöfn,
starfaði með íslendingafélaginu í
Árósum í Danmörku, sat þar í
stjórn og var formaöur þess um
skeið.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 8.3. 1975 Sig-
ríði Guðnadóttur, f. 13.2. 1950, hús-
móöur. Hún er dóttir Guðna Þor-
finnssonar, f. 8.3. 1916, d. 13.2. 1966,
og Steingerðar Þorsteinsdóttur, f.
2.2. 1926, fyrrv. gjaldkeri hjá Mjólk-
ursamsölunni.
Dóttir Sigríðar frá því áður er
Steingerður Ágústa Gísladóttir, f.
12.7. 1969, skrifstofumaður á skrif-
stofu Verkalýðsfélaganna á Húsa-
vík, búsett á Húsavík en maður
hennar er Hreiðar Hreiðarsson, f.
2.2. 1926, lögregluvarðstjóri á Húsa-
vík og eru börn þeirra Sigurður
Ágúst Hreiðarsson, f. 3.10. 1991,
Ragnhildur Hreiðarsdóttir, f. 16.8.
1996, og Sigurjón Hreiðarsson, f.
lé:8. 1996.
Börn Sigurðar og Sigríðar eru
Helga Jóna Sigurðardóttir, f. 15.12.
1975, nemi í iðjuþjálfun við HA;
Guðný Sigurðardóttir, f. 5.10. 1988,
nemi.
Systir Sigurðar er Sigurbjörg
Agnes Ósmann Jónsdóttir, f. 20.7.
1949, kennari.
Foreldrar Sigurðar: Jón Björns-
son, f. 9.1. 1916, d. 13.11. 1975, verk-
stjóri, og Helga Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, f. 10.4. 1922, d. 2.2. 1985, hús-
móðir.
Ætt
Sigurður var sonur Björns Pálma-
sonar frá Ytri-Húsabakka í Skaga-
firði og Sigurbjargar Agnesar, frá
Utanverðunesi.
Helga Ingibjörg er dóttir Sigurðar
Péturssonar vitaverkstjóra og Mar-
grétar Bjömsdóttur.
Sigurður og Sigríður verða með
opið hús og taka á móti gestum í
samkomusal Grunnskólans í Þor-
lákshöfn, Egilsbraut 35, á morgun,
milli kl. 18.00-21.00.
Fimmtugur
Gunnlaugur Oddsen Ólafsson
bóndi á Hallgilsstööum II
Gunnlaugur Oddsen Ólafsson,
bóndi á Hallgilsstöðum II, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Gunnlaugur fæddist á Möðrudal á
Fjöllum en ólst upp á Viðihóli á
Hólsfjöllum. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar og stundaði framhaldsnám við
Alþýðuskólann á Eiðum.
Gunnlaugur var starfsmaður Eg-
ilsstaðabæjar á árunum 1976-851,
var bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum
1970-75 og 1985-91 og hefur verið
bóndi á Hallgilsstöðum II frá 1992.
Gunnlaugur sat í stjórn Leikfé-
lags Fljótsdalshéraðs 1976-80, var
hreppstjóri á Fjöllum 1985-91, sat í
sýslunefnd Norður-Þingeyjarsýslu
1985-91, hefur verið grenjaskytta í
Noður-Þingeyjarsýslu frá 1972, sat í
sveitarstjórn Fjallahrepps 1986-90
og i sveitarstjórn Þórshafnarhrepps
frá 1994, og hefur verið formaður
Hjálparsveitar skáta á Fjöllum og
Björgunarsveitarinnar Hafliða á
Þórshöfn.
Gunnlaugur hefur leikið með
ýmsum danshljómsveitum á Fljóts-
dalshéraði og á Þórshöfn frá 1975.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnlaugs var Stein-
unn Sigurðardóttir, f. 6.8. 1952, d.
8.2. 1991, lengst af starfsmaður hjá
Pósti og síma á Egilsstöðum. Hún
var dóttir Sigurðar Guttormssonar
og Guðbjargar Jóhannesdóttur,
bænda í Hleinagarði í Eiðahreppi.
Börn Steinunnar og fósturböm
Gunnlaugs eru Valgerður Bergný
Birgisdóttir, f. 3.6. 1972 en maður
hennar er Þorsteinn Óli Þorbergs-
son og eru synir þeirra Viktor
Sindri og Gunnlaugur Berg; Arnór
Steinar Einarsson, f. 13.9. 1973 en
kona hans er Ragnheiður Vala
Bjarnadóttir.
Systkini Gunnlaugs eru Þórunn
Guðlaug, f. 30.8. 1946, fulltrúi á Eg-
ilsstöðum; Oktavía Halldóra, f. 4.10.
1954, forstöðumaður á Egilsstöðum;
Margrét Pála, f. 13.10. 1957, leik-
skólastjóri í Hafnarfirði; Stefán Sig-
urður, f. 29.1. 1964, sjúkraþjálfari á
Akureyri.
Hálfsystkini Gunnlaugs, sam-
feðra, börn Helgu Pálsdóttur, f. 2.12.
1915, eru Jónína Gunnlaug, f. 4.11.
1940, starfsmaður öldrunarþjónustu
í Reykjavík; Kristján, f. 4.8. 1942, d.
15.3. 1973.
Foreldrar Gunnlaugs voru Ólafur
Þorsteinn Stefánsson, f. 30.1.1917, d.
13.1.1999, bóndi á Víðihóli og starfs-
maður Sambandsverksmiðjanna, og
Kristín Gunnlaugsdóttir Oddsen, f.
22.12. 1922, d. 23.9. 1998, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sonur Stefáns, b. á
Amarstöðum í Núpasveit, bróður
Jóns á Arngrstöðum, foður Jóns
Hjörleifs skólastjóra. Stefán var son-
ur Tómasar, b. á Arnarstöðum,
Jónssonar, b. í Blikalóni, Pétursson-
ar. Móðir Tómasar var Dórothea
Hálltíórsdóttir. Móðir Stefáns var
Ingibjörg, systir Hildar, móður Guð-
rúnar, móður Zóphoniasar Péturs-
sonar og Gunngeirs Péturssonar,
skrifstofustjóra borgarverkfræð-
ings. Hildur var einnig móðir Stef-
áns, afa Björns Önundarsonar
tryggingayfírlæknis og langafa Vig-
dísar Grímsdóttur rithöfundar. Þá
var Hildur amma Kristveigar,
ömmu Hafliða Vilhelmssonar rithöf-
undar. Ingibjörg var dóttir Jóns, b.
á Skinnalóni á Sléttu og ættföður
Skinnalónsættarinnar, Sigurðsson-
ar, og Þorbjargar, langömmu Hilm-
ars bankastjóra, fóður Stefáns
bankastjóra og langömmu Hildar,
móður Ólafar Pálsdóttur mynd-
höggvara. Þorbjörg var dóttir Stef-
áns, b. á Skinnalóni Grímssonar,
bróður Eiríks. Móðir Ólafs var
Oktavía dóttir Ólafs, b. i Sauðanesi,
Þorsteinssonar og Gunnþórunnar
Halldórsdóttur.
Foreldrar Kristínar voru Gunn-
laugur Oddsen Gunnlaugsson, b. i
Heiðarseli í Hróarstungu, og Guð-
björg Árnadóttir húsfreyja.
Eiríkur Þorsteinsson, alþingismaður og
kaupfélagsstjóri, fæddist í Grófarseli í Jök-
ulsárhlíð 16. febrúar 1905. Hann var sonur
Þorsteins Ólafssonar, bónda í Grófarseli
og Firði í Seyðisfirði, og k.h., Jónínu
Arngrímsdóttur húsfreyju.
Eiríkur var einn vetur í Gagnfræða-
skólanum á Akureyri, stundaði nám
við Samvinnuskólann i Reykjavík og
lauk þaðan prófi 1928.
Eiríkur var starfsmaður Kaupfélags
Langnesinga á Þórshöfn 1928-1931,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Grímsnes-
inga að Minni-Borg í Grímsnesi
1931- 1932, en lengst af kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Dýrfirðinga á Þingeyri á árunum
1932- 1960.
Eiríkur Þorsteinsson
Auk starfa sinna sem kaupfélagsstjóri
sinnti Eiríkur útgerö, fyrst á Þingeyri, og
var framkvæmdastjóri ýmissa útgerðar-
félaga þar, en síðan í Reykjavík. Hann
var framkvæmdastjóri Kirkjusands hf.
og fiskibáta sem gerðir voru út frá
Reykjavík eftir að hann flutti þangað.
Eiríkur sinnti ýmsum trúnaðar-
störfum vestur á Þingeyri. Hann sat í
skólanefnd Núpsskóla og var formaður
hennar um skeið, sat í hreppsnefnd
Þingeyrarhrepps á árunum 1942-1950
og var oddviti hreppsins 1946-50. Hann
var alþingismaður Vestur-Ísaíjarðarsýslu
fyrir Framsóknarflokkinn 1952-1959.
Eiríkur lést 8. maí 1976.
Jarðarfarir
Þórdís Þorkelsdóttir, Brúsholti, verður
jarðsungin frá Bæjarkirkju í Bæjarsveit
laugard. 17.2. kl. 14.00.
Ragnar Örn Ásgeirsson verkstjóri,
Hjallabraut 60, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju,
Hafnarfirði, föstud. 16.2. kl. 15.00.
Ólafur Þ. Sigurösson, Álfheimum 3,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Vídalínskirkju I Garöabæ, föstud. 16.2.
kl. 15.00.
Jón Bjarnason bóndi, Dufþaksholti,
Hvolhreppi, Rangárvallasýslu, verður
jarðsunginn frá Stórólfshvolskirkju
laugard. 17.2. kl. 14.00.
Erlendur Jóhannsson Hamarsheiði.
Gnúpverjahreppi, verður jarðsunginn frá
Stóra-Núpskirkju, laugard. 17.2. kl.
14.00.