Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
35
DV
Sport
heldur áfram hjá 2. flokki Keflavíkur sem bætti titli viö í safniö eftir að liðið varð íslandsmeistari
innanhúss um síðustu helgi en þessir sömu strákar urðu íslandsmeistarar utanhúss sl. sumar
Úrslitin í íslandsmótinu í innan-
hússknattspymu í 2. flokki fóru
fram á laugardag og var spilað í KR-
heimilinu. Alls höfðu átta lið
tryggt sig í úrslitin og var spilað í
tveimur riðlum. Keflavík og KR
komust upp úr sínum riðli og skildu
eftir Fjölni og Hugin. Keflavík
vann riðilinn nokkuð örugglega en
KR komst áfram á betri markatölu.
í hinum riðlinum vom Valur, FH og
Víkingur jöfn í efsta sæti en marka-
tala Vals og Víkings varð til þess að
þessi lið komust áfram.
Mikiö af færum
Það voru Þór Ak. og Fjölnir sem
léku um 7. til 8. sætið. Halldór Hall-
dórsson kom Fjölni yfír eftir aðeins
tveggja mínútna leik og Fjölnir
komst síðan í 2-0 yfir aðeins mín-
útu síðar með marki beint úr auka-
spyrnu. Þórsurum tókst að minnka
muninn í 2-1 rétt fyrir hálfleik.
Fyrri hálfleikur var hin besta
skemmtun þar.sem bæði liöin fengu
mikið af markatækifærum.
Seinni hálfleikur var ekki eins
opinn og sá fyrri og því var ekki
skorað meira og Fjölnismenn
sigmðu, 2-1.
FH sterkari
Um 5.-6. sætið léku FH og Huginn
og þar reyndust FH-ingar öllu
sterkari. FH komst 2-0 yfir með
mörkum frá Davíð Viðarssyni og
Heimi Guðmundssyni. Birkir Páls-
son í liði Hugins var alls ekki á þvi
að gefast upp og jafnaði drengurinn
með tveimur mörkum og var það
seinna mjög glæsilegt. Emil Hall-
freðsson náði forystunni aftur fyrir
FH með marki rétt fyrir hlé og því
leiddu FH-ingar 3-2 í hálfleik. Það
var aðeins eitt lið á vellinum í
seinni hálfleik þar sem úthald Hafh-
firðinga reyndist meira. Björn
Guðbergsson skoraði tvö mörk
snemma í seinni hálfleik og kom FH
í 5-2 og Emil bætti síðan við sjötta
markinu. Sigurður Ástþórsson inn-
siglaði síðan sigur manna sinna
með marki á síðustu mínútunni og
stórsigur Hafnflrðinga var því stað-
reynd.
Frábær markvarsla
í fyrri undanúrslitaleiknum
mættust Keflavík og Valur. Vals-
menn mættu hálflamaðir til leiks
þar sem þjálfari þeirra og mark-
vörður höfðu náð sér í rautt spjald í
leiknum á undan og voru því í
banni í þessum leik. Arnar Steinn
Einarsson, sem er útispilari, skellti
sér í markið og átti heldur betur eft-
ir að eiga stórleik í markinu. Vals-
menn komu öllum á óvart og voru
Víkingar fóru alla leið í úrslitaleikinn en máttu játa sig sigraða gegn sterku liði Keflavfkur.
Víkingar geta þó vel við unað og annað sætið er góður árangur. DV-mynd BG
íslandsmeistarar Keflavíkur sjást hér eftir að þeir höfðu tekið við verðlaununum.
fyrir fleiri
mörk
þeirra Suðurnesjamanna. Það
breyttist hins vegar í framlenging-
unni. Magnús kom Keflavík í 3-2
yfir eftir aðeins nokkrar sekúndur
með þriðja marki sínu. Skömmu
síðar fékk leikmaður Vals rauða
spjaldið og þvi var sigur Keflvík-
inga í höfn. Þeir bættu síðan við
þremur mörkum og sigruðu 6-2.
Góöur lokasprettur
í hinum undanúrslitaleiknum
mættust KR og Víkingur. Víking-
ar komust 1-0 yfir með marki frá
Kára Árnasyni. Grétar Sigurðar-
son jafnaði fljótlega fyrir KR og
Brandur Brekkan kom síðan KR
yfir rétt fyrir leikhlé og staðan því
2-1, KR í vil. Það virtist áflt stefna
í KR sigur en Víkingar voru sterk-
ari á lokasprettinum og skoraðu
tvö mörk á 45 sekúndna kafla og
tryggðu sér þar með sigur og rétt-
inn tfl að leika til úrslita við Kefla-
vík en KR-ingar urðu að sætta sig
við að leika um 3. til 4. sætið við
Val.
Annaö rauða spjaldið
Þrátt fyrir að leika annan leik
sinn í röð þá reyndust KR-ingar
mun sterkari en Valsmenn í leikn-
um um 3. tfl 4. sætið. Grétar Sig-
urðarson og Oddur Guðmundsson
sáu til þess að KR leiddi 2-0 í hálf-
markvörður Vals sitt annað á
stuttum tíma. Liðin skoruðu sitt
markið hvort fyrir leikslok og KR
sigraði því 5-1 og náði þriðja sæti.
Það verður að teljast ásættanlegt
fyrir KR-liðið en það vantaði
nokkra lykilmenn að þessu sinni.
Sjö mörk Magnúsar
í úrslitaleiknum sýndu Keflvík-
ingar fáheyrða yfirburði. Enginn
lék þó betur en fyrirliðinn, Magn-
ús Þorsteinsson, en hann var held-
ur betur á skotskónnum i þessum
leik. Hann skoraði tvö mörk i
byrjun leiks og kom mönnum
sínum í
2-0.
Jónas
Sævars-
son skor-
aði þriðja
mark
Keflvík-
inga en
Víkingar
náðu að
minnka
muninn í
3-1.
Magnús
kom þá
með tvö
mörk til
viðbótar
DV-Mynd BG
og sitt annað í leiknum. Víkingar
náðu að breyta stöðunni í 8-2 með
marki frá Ragnari Hjaltested.
Guðjón Antoníusson gerði níunda
markið eftir laglega sendingu frá
Magnúsi og það var síðan Magnús
sjálfúr sem gerði tíunda markið og
sitt sjöunda í leiknum og verður
ekki á neinn hallað að nefna hann
mann leiksins.
Miðað við þann árangur sem
strákamir hafa náð er ljóst að
Keflavík er ekki á flæðiskeri statt
með unga og efnilega leikmenn
sem bíða þess að fara spfla með
meistaraflokki -BG
komnir í 2-0 um miðjan fyrri hálf-
leik og gerði Jón Karlsson bæði
mörkin. Nokkuð fát var komið á
Keflvíkinga en Magnúsi Þorsteins-
syni tókst að minnka muninn rétt
fyrir leikhlé og staðan var því 2-1 í
hálfleik, Val í vil. Magnús var aft-
ur á ferðinni í upphafi seinni hálf-
leiks og
skoraði
annað
mark sitt
og jafnaði
þar með
metin, 2-2.
Það - urðu
síðan loka-
tölur og því
varð að
grípa til
framleng-
ingar.
Keflvík-
ingar voru
öllu sterk-
ari í leikn-
um en
frábær
markvarsla
Amars í
marki Vals
kom í veg
leik og Brandur Brekkan bætti við
þriðja markinu á fyrstu mínútu
seinni hálfleiks. Igor Kostic, son-
ur Luka Kostics, bætti viö fjórða
markinu þegar rúmar þrjár mínút-
ur voru til leiksloka. í lokin fengu
markmenn beggja liða að líta
rauða spjaldið og þar með fékk
og þar með leiddi Keflavík 5-1 i
hálfleik
Magnús var hvergi nærri hættur
og byrjaði seinni hálfleikinn á þvi
að skora tvö mörk og koma Kefla-
vík í 7-1 og var sjálfur kominn
með sex mörk. Jónas var aftur á
ferðinni og skoraði áttunda markið
Islandsmót 2.
flokks karla
A-riðill:
KR-Huginn . 3-3
Keflavík-Fjölnir . 2-1
Huginn-Fjölnir 3-1
KR-Keflavik . 4-6
Keflavík-Huginn . 5-3
Fjölnir-KR . 0-4
Staðan:
1. Keflavik 3 3 0 0 13-8 9
2. KR 3 111 11-9 4
3. Huginn 3 111 9-9 4
4. Fjölnir 3 0 0 3 2-9 0
B-riðill:
Valur-Þór Ak 5-1
FH-Víkingur 5-4
Þór Ak.-Víkingur 4-8
Valur-FH 2-0
FH-Þór Ak .3-1
Víkingur-Valur .4-2
Staðan:
1. Víkingur 3 2 0 1 16-11 6
2. Valur 3 2 0 1 9-5 6
3. FH 3 2 0 1 3-7 6
4. Þór Ak. 3 0 0 3 6-16 0
Leikur um 7. sætið:
Fjölnir-Þór Ak 2-1
Leikur um 5. sætið:
FH-Huginn 7-2
Undanúrslit:
Keflavík-Valur 6-2
KR-Víkingur 2-3
Leikur um 3. sætið:
KR-Valur 5-1
Úrslitaleikurinn:
Keflavik-Víkingur . . . . . . . 10-2
Magnús Þorsteinsson 7, Jónas
Sævarsson 2, Guöjón Antoníusson -
Ragnar Hjaltested, Viggó Briem.
-BG
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
í toppformi
- segir Magnús
Þorsteinsson
„Andinn í liðinu er bara frábær og
menn voru aflir tilbúnir í þetta. Það
lögðu sig allir fram, allir sem einn.
Við vorum íslands- og bikarmeistarar
utanhúss sl. sumar og fengum svo
núna þennan titil þannig að höfum
sýnt styrk. Við erum með góða
breidd og með besta þjálfarann að
mínu mati. Við lentum í basli með
Val þar sem liðið spilaði mjög vel á
móti okkur og við lentum 2-0 undir
og það er alltaf erfitt að rifa sig upp
úr því þegar sú staða er komin upp en
það hafðist. Það var ótrúlegt hvað
útispilaranum, sem var í markinu,
tókst að verja. Síðan misstu þeir
mann út af og þá var þetta aldrei
spurning. Sigur okkur hefði verið
meira sannfærandi ef hann hefði ekki
lokað markinu í venjulegum leiktíma.
Við erum búnir aö æfa vel í vetur
og allir í toppformi og það hefur skil-
að sér hér því þetta er náttúrlega
erfitt likamlega. Viö æfum fyrst og
fremst í Reykjaneshöllinni en erum
einu sinni í viku í innanhússbolta í
íþróttahúsinu í Keflavík og tókum
síðan tvær aukaæfingar þar fyrir
þetta mót,“ sagði Magnús Þorsteins-
son. -BG
J ~
V
i..
*
«**-