Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 19
F
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
Sport
Nýtt veiðisvæði hjá SVFR
Mikil aðsókn hefur verið á
flugukastnámskeiðin í vetur
og þegar síðasta námskeiðið
hjá þeim í TBR-húsinu hófst
var allt fullt. Fleiri komust
ekki að og einhverjir urðu frá
að hverfa. Sömu sögu er víst
að segja af fleiri námskeið-
um.
Árshátið Stangaveiðifélags
Reykjavíkur þótti takast vel
og allir skemmtu sér vel. Gull-
og siifurflugan var veitt þar í
21 sinn og alltaf verður þessi
fluga verðmætari. Verðgildi
hennar liggur á milli 300 og
400 þúsund. Hverjum skyldi
detta í hug að kasta henni fyr-
ir þann silfraða?
Ferðavefurinn nat.is, með
Birgi Sumarliðason fremstan
í flokki, stendur núna fyrir
skemmtilegri keppni á
vefnum. Næstu tvo föstudaga
verður birt á vefnum fluga
sem verið að vinna í og eiga
þeir sem keppa að finna út
hvaða fluga þetta sé. Og það er
hægt að reyna aftur og aftur
giski maður á vitlausa flugu. í
verðlaun er einn dagur i
Minnivallarlæk í Landsveit í
boði Strengja og einnig ýmis-
legt veiðidót frá Útilífi. Það er
um að gera að vera með og
senda inn svar á natQnat.is.
Mikið aðsókn hefur verið á
flugukastnámskeiðin í vetur
og þegar síðasta námskeiðið
hjá þeim í TBR-húsinu hófst
var allt fullt. Fleiri komust
ekki að og einhverjir urðu frá
að hverfa. Sömu sögu er víst
að segja af fleiri námskeið-
um.
Hún hefur heldur betur
slegið í gegn, tjörnin við Húsa-
vík, þar sem ólíklegustu
veiðimenn hafa farið og
kastað fyrir bleikju - þeir
sem eru verst haldnir og geta
ekki beðið eftir sumrinu með
nokkru móti. Það er víst tO
einn og einn svoleiðis veiði-
maður enn þá í veiðihópnum.
Rit og rœkt vinnur núna að
næsta tölublaði Veiðisumars-
ins sem á að koma út i apríl
og verður víst bryddað upp á
ýmsu góðgæti í blaðinu. Við
höfum heyrt að þar verði við-
tal við Eið Smára knatt-
spyrnukappa.
Eiður
Smári
veiddi meðal
annars í
Rangánum
síðasta sum-
ar. Rit og
rækt gefa
meðal ann-
ars út Sum-
arbústaða-
blaðið og
Sundsumar-
ið.
vatninu.
Það er
mikið farið
að spyrjast
fyrir um ís-
landsmótið í
dorgveiði
sem verður
haldið 10.
mars á
Ólafsfjarðar-
vatni. Veiði-
menn viða af
landinu ætla
að fjölmenna
út á ísinn til
að renna fyr-
ir þær teg-
undir sem er
að finna í
-G. Bender
Nýtt veiðisvæði SVFR, Eldvatnsbotnar, þ.e.a.s.
efsti hluti Eldvatns i Meðallandi, fyrir landi Botna,
er afar álitlegt sjóbirtingssvæði. Það er tveggja
stangá svæði, ekki ýkja langt og sérlega vel fallið til
fluguveiða," sagði Þorsteinn Ólafs, stjórnarmaður í
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, í samtali við DV-
Sport en Stangaveiðifélagið hefur innan sinna vé-
banda 2500 félagsmenn.
„Áin rennur í tveimur kvíslum og er einkum
veitt í vestari kvíslinni en báðar eru þó mjög falleg-
ar. Þá sem muna eftir veiðiþáttum Pálma Gunnars-
sonar, „Á veiðislóð", sem sýndir voru í Ríkissjón-
varpinu fyrir tveimur árum, rekur minni til þáttar-
ins þar sem farið var á vit sjóbirtinga i fylgd Sigurð-
ar Pálssonar málara og muna þá að dijúgur hluti
þáttarins var frá Botnasvæðinu í Eldvatni þar sem
þeir Pálmi og Sigurður drógu hvem fiskinn af öðr-
um úr líðandi fallegum breiðum," sagði Þorsteinn i
lokin.
í Veiðimanninum frá árinu 1999 er einnig
skemmtileg lýsing á veiðitúr Sigurðar Pálssonar í
Botna og þar hefur hann á orði að þeir sem „leiddu
hann inn í dýrðina eigi þakkir skildar." Verður
veiðisvæði eða gæðum þess vart lýst á lofsamlegri
hátt.
Áki Ármann Jónsson veiðistjóri:
Niðurstoðurnar ur
skotveiðinni nálgast
„Það hefur gengið vel að fá veiðitöl-
ur frá veiðimönnum en yfir 4 þúsund
hefur verið skilað á Netinu. Það ætti
að liggja ljóst fyrir eftir einhverja
daga hvað mikið hefur veiðst," sagði
Áki Ármann Jónsson, veiðistjóri á
Akureyri, í samtali við DV-Sport.
Fjöldi veiðimanna hefur skilað inn
veiðitölum síðasta árs á Netinu og það
flýtir fyrir því að sjá hvernig veiðin
hefur verið á fugli, ref, minki og
hreindýrum á síðasta timabili.
„Við getum ekki sagt til alveg strax
hvernig rjúpnaveiðin var en það
skýrist innan tiðar. Veiðin var eitt-
hvað minni en í fyrra,“ sagði Áki Ár-
mann í lokin.
-G. Bender
Gæsaveiðimenn meö góöan feng. Niöurstööur úr skotveiöinni eru
á næsta leiti og bíða margir þeirra með óþreyju.
Eins og víðar á sjóbirtingsslóðum í Vestur-
Skaftafellsýslu er til í dæminu að sjóbirtingur sjáist
í júlí en á móti kemur þá að í Eldvatni er til afar
væn bleikja. Þegar kemur fram í ágúst fer birtingur-
inn að ganga og þegar líður á mánuðinn því meiri
er veiðivonin. September er svo góður mánuður og
í október er fiskur náttúrlega löngu kominn en veið-
in þá fer eftir hreyfingu á svæðinu og árferði. Sé að-
eins leginn fiskur á svæðinu getur þurft verulega
vinnu til að fá fisk til að taka. Þá er að reyna eitt-
hvað nýtt, nýta ljósaskiptin, prófa lítt reynda staði.
Gangi dæmið upp veiðast gjarnan stærstu fiskarnir
á þessum tíma. Eldvatn í Meðal-
landi var fyrrum mun meira
vatnsfall og hefur gefið nokkuð
eftir sem veiðiá. Það er þó enn
sem fyrr eitt af stóru nöfnunum
á svæðinu og Botnasvæðið hefur
haldið nokkuð góðu veiðimeðal-
tali á sama tíma og áin hefur
dalað mikið síðustu ár ef litið er
á heildartölur. Eftir því sem
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
kemst næst hefur þetta svæði
iðulega gefið 100 til 200 fiska á
vertíð. Sú síðasta var þó slakari. Þessi prýðilega út-
koma á ef til vill rætur að rekja til þess að Kjartan
bóndi í Botnum hefur lengi verið með seiðaeldi í
hrauninu. Hann hefur veitt birting i gildrur á
haustin, kreist hænga og hrygnur og alið seiði sem
hann hefur sleppt í ána til stuðnings náttúrulega
klakinu.
Veiðitíminn á svæðinu er frá 27. júlí til 10. októ-
ber og eru tvær stangir á svæðinu sem eru aðeins
seldar saman. Nú þegar er talsvert farið að reytast
út af leyfum. Verð á stöng er frá 6.400 kr. upp í 8.900
kr. stöngin á dag.
nýtt og áhugavert veiðisvæði hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
Þaö er víöa veiðilegt um aö litast í Eldvatnsbotnum í Meöallandi enda svæöiö afar álitlegt.
Eldvatnsbotnar