Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 Fréttir Breyting á skólastarfinu á landsbyggðinni: Héraðsskólarnir horfnir húsin til sölu eöa hafa fengið nýtt hlutverk Þegar mest var voru átta héraös- skólar víös vegar um landiö i fuEum rekstri sem slíkir. Nú er enginn hér- aðsskóli rekinn með því nafni og skólastarfsemi hefur lagst niður á sumum þeirra sem áður hýstu slíka starfsemi. Þá hefur einn skóli verið seld- ur, Eiðaskóli. Skólamir átta sem um ræðir eru í Reyk- holti í Borgarfirði þar sem ekki er leng- ur skólastarfsemi og heldur ekki að Núpi í Dýrafirði eða í Reykjanesi í ísafjarð- ardjúpi. Á Reykjum í Hrútafirði eru rekn- ar skólabúðir grunn- skólanna, á Laugum í Reykjadal í S-Þing- eyjarsýslu er rekinn framhaldsskóli, Eið- ar hafa verið seldar sem fyrr sagði, á Skógum er rekið hót- el og á Laugarvatni hefur skólinn verið sameinaður mennta- skólanum. Enginn skólanna er því leng- ur rekinn sem eigin- legur héraðsskóli. Hermann Jóhann- esson, deildarstjóri Eignadeildar mennta- málaráðuneytisins, segir að i fjárlögum sé heimild að selja þá skóla sem ekki eru i notkun. Búið er að auglýsa skólann í Reykjanesi í ísa- fjarðardjúpi til sölu og bárust 12 til- boð í eignirnar á staðnum. Þau eru nú til skoðunar hjá Ríkiskaupum. Ákvörðun hefur ekki verið tekin um Reykholt í Borgarfirði Núpur í Dýrafirði Héraðsskólar JLaugar í Reykjadat Reykir /' Hrútafiröi EÉð Reykholt * 7 Borearfirö 1 Borgarfiröi J Laugarvatn Reykir í Hrútafiröi frekari sölu skólanna og þeirra mann- virkja sem þeim fylgia. Eiðaskóli var á dögunum seldur heimamönnum á Austur-Héraði fyrir 25 milljónir króna. Það kann mörgum að þykja lág upphæð fyrir mikil mannvirki en Hermann segir að hús- in hafi þarfnast mikillar viðgerðar og viðhalds. Þá segir hann það hafa spil- að inn í að jarðir sem heyra undir Eiðar voru fyrr á tímum í eigu heimamanna en ekki í eigu ríkisins. Rikið er eigandi skólamannvirkj- anna á öllum stöðunum. Þess vegna kom á óvart að heimamenn á Austur- Héraði voru komnir í viðræður við aðila, s.s. Sigurjón Sighvatsson, á síð- asta ári um hugsanleg kaup hans á eignunum á Eiðum. Hermann Jó- hannesson segir skýringuna á því vera þá að sala eignanna til heima- manna hafi þá þegar verið ákveðin þótt formlega hafi ekki verið frá henni gengið fyrr en nú nýlega. Auglýsing á skólamannvirkjum á Laugarbakka í Miðfirði sem birtist á dögunum vakti mikla athygli. í Húnaþingi vestra hefur allt logað í deilum vegna byggingar nýs íþrótta- húss á Hvammstanga þótt íþrótta- hús sé í fárra kílómetra fjarlægð á Laugarbakka, og þá er sveitarstjóm- in talin hafa ætlað að færa allt skólahald frá Laugarbakka til Hvammstanga. Varðandi auglýs- ingu skólamannvirkjanna á Laugar- bakka er ljóst að þeir sem þar áttu í hlut „fóru fram úr sjálfum sér“ og aöilar eins og ríkið, sem á mikið í mannvirkjunum, var ekki haft með I ráðum. -gk Ömurlegt ástand vega í Öxarfirði: Vegirnir ekkert nema holur og grjót - segir sveitarstjórinn sem orðið hefur fyrir tjóni DV, AKUREYRI:____ „Astand veg- anna hér í Öxar- firðinum er I einu oröi sagt rosalegt. Ég get varla ímyndað mér að það sé hægt að gera við vegina, þeir eru ekki orðnir neitt nema holur og grjót,“ segir Steindór Sig- urðsson, sveitarstjóri í Öxarfjarð- arhreppi, en ástand vega þar um slóðir er verra en menn muna í langan tíma, og eru þeir þó ýmsu vanir I Öxarfirði. Steindór segir að vegurinn frá Klifshaga að Kópaskeri, sem er um 20 kílómetra vegalengd, sé alveg skelfilegur og menn sem hafi neyðst til að fara þar um hafi orð- ið fyrir þvf að skemma bíla sína. „Ég hef sjálfur þurft að fara þarna um og hef orðið fyrir því að fram- rúða og ljós hafa brotnað vegna grjótkasts og fer ég þó varlega. Svo eru bílamir sand- og grjótbarðir," segir Steindór. Hann segir engar úrbætur á dagskrá Vegagerðarinn- ar en menn veigri sér við aö aka um vegina. Steindór segir að skrifstofustjóri Öxarfjarðarhrepps, sem starfar á Kópaskeri en býr ekki þar, hafi fariö fram á það við sveitarstjóm að þurfa aðeins að mæta til vinnu annan hvern dag. Hún sé á nýjum bíl og vilji hreinlega ekki leggja hann í keyrslu um vegina meira en nauðsynlegt er. „Ég er ekkert hissa á að hún skuli fara fram á þetta -og -a& Hún-vilji- ekki- laggja- - - - - Rekstrartekjur -á-síöasta. ári -voru sinn nýja bH í akstur um þessa 693,9 milljónir en 671,8 miljónir árið á Þaö var rok, skafrenningur og hálka í Landeyjunum en þokkalegt veður undir Eyjafjöllum á sunnudaginn en svo tók viö rok og skafrenningur þegar komiö var austur á Skógasand og var þannig til Víkur. Þessi mynd var tekin suöur af Raufarfelli undir Eyjafjöllum og sýnir aö loksins á góunni er skolliö á nokk- urt vetrarríki sem eru mikil viöbrigöi. Skammtíma- skuldir jukust á árinu í 180,9 millj- ónir úr 153,6 millj- ónum en langtíma- lán lækkuðu um svipaða tölu, í 60,9 milijónir úr 85,7 milljónum. Veltu- fjárhlutfail var á síðasta ári 1,98 en árið áður 1,82. Eig- ið fjárhlutfall 66,0 í stað 63,2 og arð- semi eigin fjár 19,8 en var 23,7 1999. Aðalfundur undan, rekstrargjöld 555,5 milljónir en Steinullarverksmiðjunnar verður 532.2 árið 1999. Veltufé frá rekstri var haldinn í lok mars og leggur stjóm fyr- 141.2 milljónir en 167,9 milljónir árið á irtækisins til að greiddur verði 10% undan. arður til hluthafa. -ÞÁ. DV, SAUDÁRKRÖKl: Um 88 milljón króna hagnaður varð af rekstri Steinullarverksmiðjunnar hf. á síðasta ári miðað við 108,8 millj- óna króna hagnað árið áður. Minni hagnað má að mestu rekja til þess að uppsafnað rekstrartap fyrri ára er nú að fullu nýtt og hækka skattar fyrir- tækisins því um 15,4 milljónir og nema nú 42,6 milljónum króna. Heildarsala fyrirtækisins varð um 182.000 rúmmetrar, sem er um 6% meira magn en árið áöur, og er þetta mesta sala frá upphafi rekstrar árið 1985. Sala á innanlandsmarkaði nam um 121.000 rúmmetrum, sem er um 4,5% aukning frá fyrra ári, og út voru fluttir um 61.000 rúmmetrar sem er u.þ.b. 11% aukning milli ára. Steindór Slgurðsson ástand veganna rosalegt. vegi meira en nauðsynlegt er,“ segir Steindór. Um vegina austan Kópaskers, um Melrakkasléttu til Raufarhafn- ar, er það sama aö segja. Nánast allur ofaníburður er farinn úr veg- inum og eftir Stendur grjótið og moldin sem verður að óskemmti- legri drullu þegar blotnar. Þungir flutningabílar aka þama um dag- lega og ástandið versnar dag frá degi. -gk Steinullarverksmiðjan Sauðárkróki: Sölumet og 88 milli óna hagnaður Steinullin á Króknum Mesta sala frá upphafi varö í fyrra - aukning á sölu bæöi innanlands og utan. Sandkorn Höröur Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.is Magnús Kjart- ansson tónlistar- maður hefur nú tekið upp merki Marðar Ámason- ar sem óvinur þjóðarinnar núm- er eitt. Magnús, sem áður gagn- rýndi Mörð harð- lega fyrir að hafa lagt fram tillögu um íslenskan texta Evróvisjónlags- ins, er nú kominn í sömu stöðu fyrir að verja „stefgjöld" á óátekna geisladiska og geisladiskabrennara. Maggi hefur staðið þétt að baki ákvörðun Bjöms Bjarnasonar um álagningu slíkra gjalda. Tölvunot- endur eru æfir af bræði. Hefur net- pósti rignt yfir ráðherra og Magn- ús og var fjöldi mótmælenda farinn að síga á annan tug þúsunda í gær. Tölvunotendur bíða nú spenntir hvort félagamir Björn og Magnús muni draga álagninguna til baka og verða þannig menn að meiri eins og Mörður í sínu máli... Er Siv að hætta? Slagurinn urr æðstu embættis- stöður í Fram- sóknarflokknum æsist dag frá degi. Nú eru komnar fram tvær meld- ingar í ritara- stöðu eftir að Siv Friðleifsdóttir sagðist gefa kost á sér í kjölfar framboös Hjálmars Árnasonar í sama embætti. Gárungar velta þvi fyrir sér hvort einhver sjálfseyð- ingarhvöt sé komin upp í flokknum þar sem tveir þingmenn hafa boðað framboð til ritara. Sterkar kröfur hafa nefnilega verið uppi innan flokksins aö undanfomu um að breyta reglum um embættið sem jafnframt útiloki að ritari geti orð- ið ráðherra. Þar með þyrfti Siv um- hverfísráðherra að afskrifa annað- hvort ráðherrasetu eða ritarafram- boðið.. Ekki föst í hendi Bjöm Bjarna- son liggur undir feldi að hætti sam- ráðherra sins og íhugar hugsanlegt leiötogahlutverk hjá Sjálfstæðis- flokknum i borg- arstjómarkosn- ingum. Sagt er að hann sé mjög tvístígandi, ekki síst vegna stöðu sinnar ef hann næði ekki væntanlegu takmarki um að vinna borgina úr höndum R-lista. Gróa gamla á Leiti segir að ekki séu allir borgarfulltrúar flokksins hrifnir af innkomu Bjöms og muni verja með kjafti og klóm stöðu Ingu Jónu Þórðardóttur. Hún hefur þó af hógværð fagnað stuðn- ingi í baráttunni við R-lista þó hún hafi ekki beinlínis afsalað sér for- ystuhlutverkinu. Oddvitastaða Bjöms virðist því enn ekki fóst í hendi... Hver gerir hvað? Sólveig Péturs- dóttir dómsmála- ráðherra hefur set- ið undir óvæginni skothrið stjómar- andstöðu fyrir peningasvelti lög- reglunnar og hvort yfirvinnu- bann fikniefna- löggu hafi veriö i gildi eða ekki. Reykjavíkurlögga lífgar líka upp á tilveru landsmanna meö þrætum viö Vestmannaeyjalöggu. Er þar rifist um hvort Vestmannaeyingar hafi beðiö um aðstoð eða ekki við rannsókn meints fíkniefnainnflutn- ings. Góökunningjar löggunnar kætast yfir þessum vandræðagangi og telja sér nú vel stætt á að hafa uppi efasemdir um hvort þeir séu fullir eða ekki næst þegar þeir detta í það...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.