Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 29 1>V Tilvera BB, Crouching Tiger, Hidden Dragon ickick Frábær kvikmynd. Þaö er eins og listin hafi loksins ratað aftur heim i fjölleikahúsið. Maður situr í sætinu sinu og er borinn gegnum ævintýrið, undrandi og þakklátur eins og barn. En myndin er líka svolítiö skrýtin. Leikar- arnir eru allir með sama íbyggna svip- inn og bera fram textann eins og þeir séu að lesa hann af blaði - og örugglega á einhverri mállýsku sem þeim er ekki eiginleg. En við hérna uppi á íslandi segjum bravó og tökum það sem hluta af ævintýrinu. -GSE Billy Elliot kkkk Billy Elliot er hefðbundin hetjusaga um dreng sem yfirvinnur bælingu samfélagsins og beitir ræktun hæfileika sinna til sjálfsköpunar. Þessi saga hefur verið sögö þúsund sinnum áður og er ekki annaö hægt en að dást að hversu vel þessi hetjusaga er sögð í Billy Elliot. Myndin er frumraun leik- húsmannsins Stephen Daldry í bió. Hann skilar frá sér fágaðri persónu- sköpun, ágengu raunsæi, áreynslulaus- um skiptingum milli frásagnaraðferða og einhvers konar líkamlegri nálgun í dansatriöum. Jamie Bell fer glæsilega með hlutverk Billys. -GSE O Brother Where Art Thou ★★★ Sérlega fjörug kvikmynd frá Coen-bræðrum sem krydduð er með sérlega skemmtilegri kántrítónlist. Úr ■ mikilli samsuðu ólíkra atriöa hafa þeir bræður náð að gera heilsteypta kvik- mynd sem verður þó ekki talin með þeirra bestu verkum, aðallega vegna þess hversu stundum hægir á atburða- rásinni. Myndin stendur þó vel undir þeim gæðastimpli sem er á öllum þeirra kvikmyndum og satt best að segja væri bandarísk kviktnyndagerð illa stödd í dag ef ekki væri fyrir frjóa kvikmyndagerðarmenn á borð við Joel og Ethan Coen. -HK Hannibal kkk Myndin sem allir biðu eftir er ekki sama meistaraverkið og Lömbin þagna en er í hópi betri sakamála- mynda. Ridley Scott skilar af sér mynd sem er stórfengleg í myndrænum skiln- ingi og með óhugnanlegum og sjokker- andi atriðum sem virka verr á áhorf- andann heldur en sams konar atriði í fyrri myndinni. Gæði myndarinnar eru ekki síst vegna frammistöðu Anthony Hopkins sem fer i gegnum hvert atriðiö af fmleika og krafti sem aðeins er á færi stórleikara. -HK Wonder Boys ★★★ Wonder Boys er um margt ákaf- lega vel gerð mynd og glæsilega leikin; persónurnar lifandi og auðvelt að þykja vænt um þær; samtöl hnyttin og fram- vindan langt í frá fyrirsjáanleg. Sagan er þroskasaga Grady Tripp, rithöfundar sem hefur skrifað marglofaða bók. En það er fulllangt síðan. Leikstjórinn Curtis Hanson setur per- sónur myndarinnar i forgrunn og nær frábærum leik út úr hverjum einasta leikara. Auk þess klárar hann sig af heildarsvip, skrykkjóttri framvindu og hverju eina. -GSE Ikíngut kkk Góö kvikmynd sem byggist á þjóðsagna- og ævintýrahefð. Myndin fjaUar um grænlenskan dreng sem rek- ur á íslandsstrendur í vetrarhörkum. Aðal myndarinnar er, likt og í góðum ævintýrum, bamsleg einlægni sem skil- ar sér tU áhorfenda. Mest áhersla er lögð á samband Bóasar og Ikínguts og þar mæðir mikiö á hinum ungu leikur- um, Hjalta Rúnari Jónssyni og Hans Tittus Nakinen. Drengirnir ná upp sér- lega góðum og einlægum samleik. Góð ijölskylduskemmtun. -HK Leiðin til El Dorado kki Litrík og skemmtileg teikni- mynd, gerð upp á gamla mátann með aðstoð tölva. Persónur eru vel afmark- aðar og ólíkar og textinn oft skemmti- legur. Tónlist Elton John er enn fremur ágæt þó hann hafi gert betur. Myndin er samt ekki á við það besta í þessum geira. Þar vantar þá barnslegu gleði sem stundum er að fmna í slíkum myndum. -HK Vertical Limit kki Varla er hægt að hugsa sér hrikalegra umhverfi fyrir spennumynd en snævi þakta fjallstoppa í mikill hæð þar sem allra veðra er von og líkamlegt sem og andlegt atgervi manna er þaö sem dugar. Þegar svo bætist við við- buröarík og spennandi atburðarás má segja að hægt sé að fullnægja spennu- þörfinni sé rétt staðið aö málum. Þetta er þó ekki allt til staðar í Vertical Limit, sem er köflótt spennumynd án alls raunsæis, oft á tíðum spennandi í áhættuatriöum en klisjukennd i sam- skiptum manna. -HK i U s J De Sade skemmtir sér og öðrum Geoffrey Rush í hlutverki hins fræga markgreifa sem er aöaipersónan i Quills hafi Quills: Maðurinn sem umfram allt vildi hneyksla Stjörnubíó frumsýnir á morgun Quills, eina af svokölluðum óskars- myndum ársins í ár, það er að segja hún er með nokkrar tilnefningar á bakinu, meðal annars er Geoffrey Rush tilnefhdur sem besti leikari í að- alhlutverki fyrir túlkun sina á de Sade greifa. Quills hefur farið sigur- fór um heiminn frá því hún var frum- sýnd seint á síðasta ári enda um magnaða mynd að ræða sem hefur hlotið lof bæði gagnrýnenda og áhorf- enda. Meðal viðurkenninga sem hún hefur fengið var að National Board of Review valdi hana sem bestu kvik- mynd ársins. í myndinni segir frá síðustu ævi- dögum í lífi markgreifans de Sade, sem hann eyddi á geðveikrahæli. Markgreifinn, sem var mikill hugsuð- ur og skrifaði lýsingar sem hneyksl- uöu og fengust ekki birtar, er í dag aðllega þekktur sem sá maður sem orðiö sadismi er dregið af. í Quills, sem Philip Kaufman leikstýrir, leikur Kate Winslet þvottakonu á hælinu sem de Sade dvelur á. Hún hrífst af hugarórum markgreifans, gerist að- dáandi hans og smyglar síðustu skrif- um hans út af hælinu. Michael Caine leikur lækni sem finnur upp á sínum eigin pyndingaraðferðum til þess að fá markgreifann till að draga úr öf- uguggahætti sínum. Joaquin Phoen- ix leikur prest sem reynir að koma í veg fyrir allan sadistaháttinn á hælinu. Höfundur handritsins er Dough Wright og byggir hann það á verð- launaleikriti sínu sem ber sama nafn. Þó allar persónur verksins verið til þá er leikritið skáldskapur, til að mynda er ákaflega lítið vitað um þvottakonuna Madelaine sem í leikritinu er áhrifavaldur í lífi de Sade. Philip Kaufman, sem hafði ekki gert kvikmynd í langan tíma, féll fyr- ir leikritinu og fékk Wright sjálfan til að skrifa handritið. Wright segir að í fyrstu hafi hann óttast að Kaufman myndi vilja breyta í þágu kvikmynd- arinnar en sá ótti var ástæðulaus því Kaufman sagði strax að hann vildi hafa textann sem mest óbreyttan. Saman unnu þeir svo að lokafrágangi handritsins. Geoffrey Rush, sem þykir sýna snilldarleik í hlutverki markgreifans, er sjálfsagt þekktastur fyrir að hafa leikið píanóleikarann David Helfgott í Shine. Kaufman segir þó að það hafi vegið þyngra í valinu að Rush er með mikla leikhúsreynslu og var nánast á sviði í tuttugu ár í mörgum af helstu Þvottakonan Madeleine Kate Winslett leikur stúlkuna sem er einlægur aödáandi de Sade á hælinu. Læknlrinn Michael Caine leikur Dr. Royall-Collard sem geröi illt verra meö því aö ■ ískipta sér af de Sade. m ; i; < ;• lidfrtri fcí f j u'iiö íiji ii j l’j;;. j | j } • i; j H’I- hlutverkum heimsbókmenntanna áöur en hann hóf að leika í kvik- myndum. Rush segist hafa verið mjög spenntur fyrir hlutverkinu. Það að fá að leika persónur á borð við mark- greifann, persónu sem er snillingur í aðra röndina en einmana og örvænt- ingafullur monthani í hina og fullur af brjálsemi í augum annarra, er áskorun sem ekki er hægt að neita. Það eru engir aukvisar í leiklist- inni sem eru mótleikarar Geoffrey Rush. Kate Winslett, sem hefur kom- Philip Kaufman Philip Kaufman, sem fæddist 1936, hafði ekki gert kvikmynd í sjö ár þegar hann hóf gerð Quills. Þessi athyglis- verði leikstjóri sem gerir fáar kvik- myndir, en þeim mun athyglisverðari, er lögfræðimenntaður frá Harward og með próf i sögu frá háskólanum í Chicago. Hann gerði sina fyrstu kvik- mynd, Goldstein, árið 1965 og fékk hún verðlaun gagnrýnenda í Cannes. Sú kvikmynd sem vakti athygli á honum var endurgerð Invasion of the Body Snatchers (1978). Sú kvikmynd sem svo færði honum frægð og frama var hin mikla epíska kvikmynd um fyrstu geim- fara Bandaríkjanna, The Right Stuff (1983). Á þeim sautján árum sem liðin eru síðan liggja aðeins eftir hann fjórar kvikmyndir. Góðu fregnirnar eru að Kaufman er þegar tekinn til; við undir- ið einstaklega sterk út sem leikkona eftir að fárinu með Titanic lauk, leik- ur þvottakonuna. Michael Caine sem, eins og rauðvínið, verður betri með aldrinum, leikur lækninn sem vildi einangra de Sade og láta hann hætta að hugsa og Joaquien Phoenix, sem er leikari í framför, leikur ábótann Abbé Coulmier sem í raunveruleikan- um var víst ekki nema 130 sentimetr- ar á hæð og krypplingur að auki. -HK Kvikmyndir sem Philip Kaufman hefur leikstyrt: Goldsteln, 1965 Fearless Frank, 1967 Great Northfleld Mlnnesota Raid, 1972 The White Dawn, 1974 Invaslon of the Body Snatchers, 1978 The Wanderers, 1979 The RlghtStuff, 1983 The Unbearable Lightness of Being, 1988 Henry and June, 1990 Rising Sun, 1993 Quills, 2000 búning á sinni næstu kvikmynd, Liber- ace, sem byggð er á ævi píanóleikarans glysgjama. Philip Kaufman hefur auk þess feng- ist við handritsskrif fyrir aðra og er meðal annars sá sem skrifaði fyrsta uppkastið að Indiana Jones. Þá skrifaði hann handritið að kvikmynd Clints Eastwoods, The Outlaw Josey Wales. ll IJ'" £ 11 1 V iú II. 13131 tíig « r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.