Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 24
28 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 Tilvera I>V Kombóið leikur af fingrum fram á Álafossi Kombóið, það er áður var kennt við Ellen Kristjánsdóttur hefur tekið krappa hægri beygju. Þeir eru búnir að gefa allar eiginlegar lagasmíðar upp á bátinn og semja nú lögin sín á staðnum. Þannig geta leikmenn og garðyrkjubændur horft á þá félaga Eðvarð Lárusson, Þórð Högnason og Birgi Baldursson fæða af sér ný afkvæmi með getnaði þeirra, hríðum og tann- töku. Gamanið hefst á Álafoss fotum bezt klukkan 22 í kvöld. Krár 1 FYNDNÍR. ÓRN OG KARL ÁGUST Orn Arnason og Karl Ágúst Ulfsson veröa fyndnir í kvöld í Leik- húskjallaranum. Órfá sæti eru laus. ■ LAND OG SYNIR Á SPORTKAFFI Land og synir fagna bjórdeginum í kvöld á Sportkaffi í kvöld. Þeir munu leika órafmagnaö í tilefni dagsins og hefst leikurinn um kl. 22.30. ■ BRAVÓ Á THOMSEN Þrjár nýjar sveitir bjóöa upp á rokk og ról á Thomsen í kvöld. og kynna fyrir gestum og gangandi það ferskasta sem í boöi er í heimi íslenskrar rokktónlistar. Hljómsveitirnar eru Godspeed, Trompet og Náttfari. Húsiö opnar kl. 21. Klassík ■ EINHENTIR SINFONIUTONLEIK- AR Þegar Paul Wittgenstein, píanó- leikari missti hægri hönd á vígvellin- um í heimsstyrjöldinni fyrri voru góö ráö dýr. Því hóf einhenti Austurríkis- maöurinn aö panta einleikskonserta fyrir vinstri hönd. í kvöld heyrist ein af pöntunum Wittgenstein á tónleik- um Sinfóníuhljómsveltar íslands ÍHáskólabíól. Er þar á ferö Píanó- konsert fyrir vinstri hönd eftir Maurice Ravel. Frakkinn Philippe Cassard leikur einleik sem og í Pí- anókonsert í G-dúr, einnig eftir Maurice Ravel. Aö auki eru Enigma- tilbrigöin eftir Edward Elgar á efnis- skránni. Hljómsveitarstjori er Rico Saccanl. Tónleikarnir hefjast kl. 19:30. ■ VOX FEMINAE í SALNUM Kvennakórin Vox Feminae heldur kórtónleika í kvöld klukkan 20.30 í Salnum, Kópavogi. Stjórnandi er Margrét Pálmadóttir en á píanó leikur Arnhildur Valgarðsdóttir. Leikhús ■ MÉÐ FULLÁ VÁSÁ ÁF GRJÖTÍ Leikritiö Með fulla vasa af grjótl eft- ir Marie Jones verður sýnt í kvöld kl. 20 á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Uppselt. Síðustu forvöð ■ EYÐIBYU I UOSMYNDASAFNI REYKJAVIKUR I dag lýkur sýning- unni Eyöibýli í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggva- götu 15. Um er að ræða samsýn- ingu Ijósmyndaranna Nökkva Elías- sonar og Brian Sweeney, sem sam- anstendur af á fjóröa tug Ijósmynda, svarthvítum og litmyndum, teknum af eyðibýlum víös vegar á Islandi. Eyöibýli Nökkva eru svarthvít, fjar- ræn og drungaleg, en eyöibýli Bri- ans, sem eru í lit, sýnast af þeim sökum einum nær okkur í tíma, virö- ast jafnvel hafa veriö yfirgefin af ábúendum í flýti skömmu áöur en Ijósmyndin var tekin. í i.,i i . ii ........ ii i Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Remember the Titans: Svartur þjálfar hvíta Þjálfarlnn Denzel Washington leikur ruðningsþjálfarann Herman Bone. Denzel Washington: Prestssonur meö mikla hæfileika Remember the Titans, sem frum- sýnd verður í Sambíóunum og Nýja bíói á Akureyri á morgun, er að nokkru leyti hetjusaga úr daglega lif- inu þar sem hetjuskapurinn felst ekki í einhverjum afrekum sem lengi verða höfð í minnum heldur í að sameina ólíkt fólk með ólikar skoð- anir og ná upp sigurvilja og sam- vinnu sem ekkert fær stöðvað. Mynd- in er byggð á sannri sögu um svart- an ruðningsþjálfara sem ráðinn er sem yfirþjálfari í skóla þar sem það hefur aldrei skeð að svartur stjómi hvítum. Sögusviðið er Virginia árið 1971. í menntaskólanum í borginni Alex- andríu snýst allt um ruðningsbolta og liggur við að öll vinna stöðvist þegar skólaliðið á heimaleik. Óvænt er ráð- inn sem yfirþjáifari liðsins Herman Boone (Denzel Washington) sem hafði gert góða hluti í Suður-Karólínu. í bæj- arfélaginu er þetta sérstaklega við- kvæmt mál þar sem reynslumikill þjáifari liðsins, Bill Yoast (Will Patton), er gerður að undirmanni Boo- nes. Báðir mennimir era sterkir per- sónuleikar og það gengur á ýmsu í samstarfi þeirra í fyrstu, auk þess sem hinir ungu leikmenn era ekki tilbúnir að treysta Boone. Þegar þjálfaramir ná loks saman þá er ekki að spyija að ár- angrinum og saman koma þeir upp raðningsliði sem var ósigrandi og í Virginíu er viðkvæðið oft enn þann dag í dag þegar ekki gengur allt of vel í raðningnum: Munið Tindana. Bæði Denzel Washington og Will Patton hittu fyrir mennina sem þeir leika og kynntust þeim, en þeir era vinir enn þann dag í dag. Boone sagði að hann hefði haldið að verið væri að gera grín að honum þegar fyrst var haft samband við hann og beðið um leyfi til að kvikmynda feril hans hjá menntaskólanum en þegar hann hafði sannfærst hafði hann mjög gaman af öllu tilstandinu og fylgdist vel með meðan á tökum stóð. Leikstjóri er Boaz Yakin sem hafði starfað á óháða markaðnum með góð- um árangri þegar honum bauðst að leikstýra Remember the Titans. Kvik- myndir hans, Fresh og A Price Above Rubies, hafa báðar unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum. Vinsældir Rem- ember the Titans hafa gert það að verkum að hann er með næg verkefni í höndunum. Næst mun hann leik- stýra Sympathy for the Devil eftir eig- in handriti og svo er hann orðaður við næstu Batman-mynd, Batman Beyond. -HK Denzel Washington fæddist í Mount Vermont 28. desember 1954. Faðir hans og nafni var prestur og móðir hans snyrti- dama og er hann annar í röð þriggja systkina. Þegar mennta- skólanámi lauk innritaðist hann í Fordham-háskólann í New York þar sem hann lagði stund á bókmenntir og blaða- mennsku. Þar komst hann í kynni við leiklistina og tók þar þátt í uppfærslu á Othello sem enn er í minnum höfð. Wash- ington lauk BA-prófi en leiklistin hafði heillað hann og fékk hann styrk til að nema fræðin við American Conseratory Theater í San Francisco. Eftir aðeins eins árs nám hætti hann. Einn kennarinn lýsti honum sem leiklistamema með óvenju mikla meðfædda hæfileika og Washington var greinilega sam- mála og fannst hann hafa lítið að gera á skólabekk og fór því að huga að atvinnu sem leikari. Leið Washington var ekki löng og ströng á toppinn, Miklir hæfileikar og gott útlit hjálpuöu til og eftir smátíma í sjónvarpi, þar sem hann sló Tgegn í sjón- varpsseríunni St. Elsewhere, voru þeir sem ráða í hlutverk i Hollywood komnir með mikinn áhuga á honum og var honum strax spáð miklum frama þar. Sú kvikmynd sem gerði hann frægan er Glory (1989), en fyrir leik sinn í henni fékk hann ósk- arsverðlaun sem besti aukaleik- ari. Hefur sigurganga hans ver- ið óslitin síðan og Washinton leikið mörg eftirminnileg hlut- verk. Það hefur ekkert illt verið hægt að segja um Denzel Wash- hington. Hann er trúaður maður sem á virðingu allra sem unnið hafa með honum. Hann er hamingjusamlega giftur og á fjögur börn og er fjölskylda hans dæmi um fyrirmyndarfjöl- skyldu upp á ameríska vísu. Washington hefur samt sagt það vera erfitt að vera kvikmyndastjarna: „Freistingarnar era margar og ég hef ekki alltaf staðist þær.“ -HK Kvikmyndir sem Denzel Washington heiur leikiö í: Carbon Coby, 1981 A Soldier’s Story, 1984 Power, 1986 Cry Freedom, 1987 Glory, 1989 The Mighty Quinn, 1989 Mo’ Better Blues 1990 Heart Condition 1990 Ricochet, 1991 MalcolmX, 1992 Mississippi Masaia, 1992 Much Ado About Nothing, 1993 The Pelican Brief, 1993 Phlladelphia, 1993 Crimson Tide, 1995 Devil in Blue Dress, 1995 Virtuosity, 1995 Courage Under Fire, 1996 The Preacher’s Wife, 1996 Fallen, 1998 He Got Game, 1998 The Bone Collector, 1999 The Hurricane, 1999 Remember the Titans, 2000 Sigri fagnað Þjálfararnir Hermann (Denzel Washington) og Bill (Will Patton) fagna sætum sigri ásamt liðsmönnum sínum. Filmundur: Stelpuslagsmál í kvöld og á mánudags- kvöld mun mun Filmundur sýna mynþina Girlfight eftir Karyn Kusama sem er jafn- framt fyrsta mynd hennar. Diana Guzman býr í Brook- lyn ásamt fóður sínum og yngri bróður. Hún á í erfið- jeikum með að finna sjálfa sig, hún er stöðugt að lenda í vandræðum í skólanum og upplifir mikið ofbeldi heima hjá sér. Hún veit ekki hvernig hún á að temja innibyrgða reiði sína en dag einn uppgötvar hún box- íþróttina fyrir tilviljun og þar með hefur hún fundið farveg fyrir reiðina og von- brigðin. Diana byrjar að æfa box í laumi og smám saman tekst henni að ná stjórn á skapi sínu og uppgötva eig- in styrk og öðlast sjálfsvirð- ingu í umhverfi þar sem box er óneitanlega tengt karl- mennsku og ekkert grín fyr- ir unga konu að ætla sér stóra hluti á þeim vettvangi. Girlfight kallast að mörgu Mlchelle Rodriguz í hlutverki Díonu Stúlka sem upplifir mikið ofbeldi og lærir að virkja það. leyti á við Billy Elliot sem er sýnd hér á landi við góð- ar undirtektir um þessar mundir en báðar myndimar fjalla um ungt fólk sem kýs að tjá sig eftir leiðum sem umhverfið samþykkir ekki auðveldlega vegna tengsla þeirra viö hefðbundin kyn- hlutverk. Jafnframt er Girlfight fyrsta flokks bar- dagamynd og kallast á við aðrar slíkar, ekki sist fyrstu Rocky-myndina. Girlfight vann til aðal- verðlauna á Sundance-hátíð- inni í fyrra og Karyn Kusama var valin besti leik- stjórinn á sömu hátíð og er þá aðeins upptalið örlítið brot af öllum þeim verð- launum og tilnefningum sem aðstandendur myndar- innar hafa hlotið undanfar- ið. Með aðalhlutverk fara Michelle Rodriguez, Santi- ago Douglas og Jaime Tirelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.