Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 4
20
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001
Sport
DV
íslandsmót í snjókrossi á Akureyri:
Frábær keppni
- sagði Halldór Óskarsson, sigurvegari í Pro Stock
„Ég er alveg brjálaður yflr því að
missa svona af möguleikanum á því að
berjast um sigur í peningapottinum en
sáttur við að frændi náði honum,“ sagði
Ólafsfirðingurinn og Arctic Cat-öku-
maðurinn Halldór Óskarsson að lokinni
keppninni á Akureyri. Hann ætlaði sér
sannarlega stóra hluti í keppni við stóru
karlana í Pro Open en lenti í samstuði i
fyrstu beygju eftir ræsingu og missti
þar með af möguleikanum á sigri. En
Halldór átti að öðru leyti frábæran dag
og sigraði í Pro Stock-flokknum og hef-
ur yfirburðastöðu í stigakeppninni í
flokknum til íslandsmeistara.
„Keppnin hér á Akureyri í dag var
frábær og ég er mjög ánægður með
minn árangur. Slagurinn í Pro Stock er
harður og harðnar með hverri keppn-
inni. Það sama á við um hina flokkana
líka en í heild er snjókrossinu mikið að
fara frarn. Liður í því er brautarlagning-
in. Brautimar skipta miklu imi framfar-
imar og við keppendumir komum að
því með mótshöldurum að þróa braut-
imar og það hjálpar okkur að bæta akst-
urinn. Brautin hér á Akureyri var í
lengra lagi miðað við það sem verið hef-
ur í vetur og hún krafðist mikiis af okk-
ur keppendunum og það er jákvætt."
- Nú er alþjóðlegt mót á næstu grös-
um í Ólafsfirði. Hvemig heldurðu að
samanburðurinn verði við þessa stóm
karla frá Ameríku, Norðurlöndunum og
Rússlandi?
„Við fómm til Ameríku í janúar og
sáum þá bestu keppa í snjókrossi. Þetta
em auðvitað menn í algjömm sérflokki
en það er alveg á hreinu að mumninn á
þeim og okkur er stöðugt að minnka.
Þaö mun sjást á alþjóðlega mótinu í vor
og verður mikil veisla fyrir okkur og
áhorfendur," sagði Halldór Óskarsson
og bætti við í lokin; „Það er svo alveg
ömggt mál að í næstu keppni ætla ég að
taka peningapottinn.“
Minn besti dagur í krossinu
„Þetta er minn besti dagur í snjó-
krossinu hingað til,“ sagði kampakátur
maður dagsins á Akureyri, Ólafsfirðing-
urinn, íslandsmeistarinn og Arctic
Cat-ökumaðurinn Helgi Reynir Áma-
son. Og hafði sannarlega ástæðu til að
gleðjast því hann sigraði i Pro Open úr-
slitariðlinum, sigraði í 100 þúsund
króna „Dash for Cash“ peningapotti 10-
11 þar sem þeir bestu í tveimur stærstu
flokkunum reyndu með sér og loks var
þetta þriðja mótið í röð sem Helgi Reyn-
ir stendur uppi sem sigurvegari í Pro
Open. Með sigrinum á Akureyri minnk-
aði Helgi Reynir á nýjan leik forskot Al-
exanders Kárasonar í stigakeppninni
um íslandsmeistaratitilinn.
„Ég fann mig vel í dag en að sjálf-
sögðu þarf lika heppni til að allt gangi
svona upp. Ég var til dæmis heppinn í
keppninni um peningapottinn þegar
Ámi Þór Bjamason var á undan mér,
yfirstökk pafl á næstsíðasta hring og
datt af sleðanum. Þar með komst ég í
forystuna og náði að halda henni til
enda. En ég vil líka tileinka aðstoðar-
mönnunum sigurinn í dag því þeir
smíðuðu sleðann nánast upp á milli
riðla. Ég lenti í vélarbilun, þurfti að
skipta um búkka og á öllu gekk. En
Fjölmargir áhorfendur fylgdust með mótinu og skemmtu sér hið besta.
svona er krossið," sagði Helgi Reynir.
- Hvemig kunnir þú við þig í þessari
löngu og erfiðu braut?
„Þetta er einmitt sú gerð af braut sem
ég vfl hafa. Til þess erum við að kaupa
þessa stærri keppnissleða að takast á
við erfiðar brautir. Stuttu brautimar
em fmar í bland en svona vil ég hafa
BÍLJm &€*&*
Stórt, veglegt 40 síðna aukablað
fylgir DV 11. apríl nk.
DV hefur um árabil verið í forystu fjölmiðla
í umfjöllun um bíla og hefur lagt metnað
sinn í að þjónusta bifreiðaumboðin og flytja
fréttir af nýjungum á bílamarkaðinum.
Pað var ekkert gefið eftir á mótinu á Akureyri og oft sáust glæsileg tilþrif eins og þessi mynd ber glöggt vitni.
góða keppnisbraut. Góðir paflar, hraðir
kaflar og mikið að gerast. En það sást
líka vel í dag að það skiptir máli að
keyra svona braut af skynsemi og halda
jafnvægi í aksturslaginu allan keppnis-
daginn. Það skilar árangri," sagði Helgi
Reynir Ámason sem segist ótrauður
stefna á að verja meistaratitilinn.
Tveir á sjúkrahús
í tvígang þurfti að fara með keppend-
ur á sjúkrahús úr brautinni á Akureyri
en snjókross er gríðarlega kreflandi
íþrótt fyrir keppendur og þurfa þeir að
vera vel þjálfaðir. Mikið er um byltur og
pústra og alltaf eitthvað um slys. í æf-
ingum fyrir keppnina lenti Baldur
Hólm í slæmri byltu og sleit liðbönd í
hné. Baldur verður fyrirsjáanlega frá
keppni þar sem eftir er tímabilsins.
Þá fékk Helgi Ólafsson slæma lend-
ingu eftir eitt stökkið í byrjun keppn-
innar í Pro Open og var fluttur á sjúkra-
hús með brákaðan handlegg og mar.
Líðanin var þó ekki lakari en svo að
hann var mættur eftir stutta stund á
keppnisstað til fylgjast með hamagang-
inum.
Harka í Lexa þrátt fyrir meiðslin
„Auðvitað er ég hundfúll að tapa
keppnum en ég er með innvortis bólgur
eftir óhapp í keppninni á Dalvik um síð-
ustu helgi og var teipaður í bak og fyrir
í dag. Ég fann því mikið fyrir öflum
ójöfnum í brautinni, stökkuin og lend-
ingum og gat engan veginn beitt
skrokknum eins og þarf í svona keppni.
En ég ætla ekkert að gefa eftir i
keppninni um meistaratitilinn," sagði
hmn gijótharði Akureyringur og Lynx-
ökumaður Alexander Kárason sem
heldur stigaforystu eftir fyrstu fiórar
umferðimar í vetur.
V t .Alexander sigraði í fyrsht umferðinni
Hörpu Haraldsdóttur á auglýsingadeild DV
í síma 550 5722,
netfang: harpa@ff.is
Skilafrestur er til 6. apríl.
(illmííjr&fh
Njáll Gunnlaugsson,
sími 550 5723,
netfang: njall@ff.is
síðan í stigakeppninni. Alexander sýndi
það best á laugardag hversu öflugur
ökumaður hann er því ekki er fyrir
hvem sem er að halda þriðja sætinu í
Pro Open-flokki í jafnerfiðri braut og
var á Akureyri, verandi lemstraður og
bólginn.
Fyrsti sigur Víöis
Akureyringurinn og Poiaris-ökumað-
urinn Víðir Garðarsson hefur tekið eft-
irtektarverðum framfórum í snjókross-
inu í vetur og náði þvi í fyrsta skipti á
laugardag að standa á efsta pafli eftir
keppni í Sport Open-flokki. Víðir hefur
verið í hörðum líkamlegum æfingum og
sést best á honum hvað gerist þegar
saman fara aksturshæfileikar og líkam-
leg þjálfun.
Fékk tilþrifaverðlaun DV
Fjórða umferð 10-11 mótaraðarinnar í
snjókrossi fór fram við Skautahöllina á
Akureyri á laugardag að viðstöddum
fjöldamörgum áhorfendum. Eins og best
sást á laugardaginn er mikil barátta í
öllum flokkum í snjókrossinu og úrslit
um íslandsmeistara hvergi nærri ráðin.
^ugardagurihn var sannarlega dagur
íslandsmeistarans, Ólafsfirðingsins og
Arctic Cat-ökumannsins Helga Reynis
Ámasonar. Hann sigraði i Pro Open-
flokki og minnkaði bilið í stigakeppn-
inni um íslandsmeistaratitilinn en þar
berst hann við Alexander Kárason sem
keppir á Lynx. Helgi Reynir fékk einnig
tiiþrifaverðlaun DV Sport og sigraði í
nýjasta keppnisatriðinu í snjókrossinu,
keppninni um 100 þúsund króna „Dash
for Cash“ peningapottinn.
Helgi Reynir gaf strax tóninn með
sigri í fyrsta riðlinum á laugardaginn í
Pro Open-flokki, barðist síðan við vélar-
vandamál í næsta riðli og vandamál í
búkka í þeim þriðja en sigraði síðan í
úrslitariðli dagsins og náði sér í 51 stig
til íslandsmeistara. í öðru sæti varð
Reynir Stefánsson á Arctic Cat og Alex-
ander Kárason náði þriðja sæti á Lynx,
þrátt fyrir að hafa engan veginn náð sér
af meiðslum sem hann varð fyrir í 3.
umferð á Dalvík um liðna helgi. Alex-
ander leiðir stigakeppnina til íslands-
meistara og er með 194 stig, Helgi Reyn-
ir með 190 stig og Ámi Þór Bjamason
með 176 stig.
Enn og aftur var mikið fjör í Pro
Stock-flokki og enn á ný sýndu keppend-
ur í þessu flokki síst lakari tflþrif en
„stóm strákamir" í Pro Open. Halldór
Óskarsson sigraði á Arctic Cat eftir æv-
intýralegan akstur í úrslitariðlinum en
annar varð Guðmundur Rafn Jónsson á
Polaris sem sannarlega hefúr komið
sjóðheitur inn í síðustu tvær keppnir.
Halldór Óskarsson er fyrstur i stiga-
keppninni í flokknum til íslandsmeist-
ara og hefur þar ömgga forystu.
Víðir Garðarsson á Polaris sýndi
mjög jafnan akstur 1 Sport Open-flokki
og sigraði í úrslitariðlinum. í öðm sæti
varð Sigvaldi Páll á Yamaha og Steinþór
Stefánsson á Polaris í þriðja. Víðir
komst með þessum árangri í annað sæt-
ið í stigakeppninni í flokknum en Stein-
þór leiðir þá keppni.
í minnsta flokknum, Sport 500, varð
Stefán Vignisson sigurvegari dagsins á
Arctic Cat. í öðm sæti varð Óðinn Þór
Baldvinsson á Lynx og Agnar
Stefánsson í þriðja á Polaris. Þeir tveir
fyrmefndu leiða stigakeppnina í
flokknum tfl íslandsmeistara.
Næsta mót í 10-11 snjókrossinu
fer fram á Ólafsfirði laugardaginn
14. apríl, laugardaginn fyrir páska,
og ekki að efa að Ólafsfirðingar
leggja mikið upp úr að halda
titilinum í höfuðvígi snjókrossins á
íslandi. Því má gera ráð fyrir
hörkukeppni og skemmtilegri
umgjörð um mótið.