Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001
21
DV
Sport
Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari segir það æðsta drauminn að stökkva:
- langtímatakmarkið er að taka þátt í Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004
Þórey Edda Elísdóttir, stangar-
stökkvari úr FH, sem frá áramótum
hefur dvalið við keppni og nám við
Georgía-háskóla í Athens í Bandaríkj-
unum, er heldur betur að gera það
gott þessa dagana. í gær náði hún sin-
um besta árangri utanhúss, þegar hún
stökk 4,35 m á móti sem fram fór á
heimavelli Georgía-háskólans í Athens
og var það hennar sjöundi sigur í röð
á háskólamótunum.
Þórey bætti þar með sinn besta ár-
angur utanhúss frá því um síðustu
helgi um fjóra sentímetra, en þá stökk
hún 4,31 m þegar hún sigraði á fyrsta
útimóti ársins sem fram fór í Arizona.
Það mót var jafnframt úrtökumót fyr-
ir háskólameistaramótið utanhúss sem
fram fer i Eugene í Oregonfylki i byrj-
un júní og tryggði Þórey Edda sér
þátttökuréttinn á mótinu.
Þórey hefur verið á miklu flugi síð-
an hún kom til Bandaríkjanna, en á
sínu fyrsta móti ytra, sem fram fór í
Tennessee i lok janúar, stökk hún 4,30
metra, sem var sjö sentímetrum frá
hennar besta árangri innanhúss og
síðan hefur leiðin stöðugt legið upp á
við. í lok febrúar, eftir að hafa sigrað
á íjórum háskólamótum í röð, gerði
hún sér síðan lítið fyrir á Meistara-
móti Suðurríkjanna og bætti sinn
besta árangur innanhúss um þrjá
sentímetra, þegar hún stökk 4,40 m.
Árangurinn var nýtt bandarískt há-
skólamet innanhúss og var aðeins
fimm sentímetrum frá íslands- og
Norðurlandameti Völu Flosadóttur,
sem var 4,45 m, sett sællar minningar
á heimsmeistaramótinu í Japan fyrir
tveimur árum. Þórey Edda gerði
reyndar atlögu að metinu á mótinu,
því eftir að hafa stokkið 4,40 lét hún
hækka í 4,46 m og átti tvær mjög góð-
ar tilraunir við þá hæð, en felldi
naumlega.
Þessi mikla og stöðuga stígandi gaf
vonir um að stutt væri í að stúlkan
færi að fljúga enn hærra og þann 10.
mars rættist sú von þegar Þórey Edda
sigraði á bandaríska háskólameistara-
mótinu með því að vippa sér yfir 4,51
m og var hún þar með orðin íslands-
og Norðurlandamethafi innanhúss.
Þórey Edda lét ekki þar við sitja, því
eftir metstökkið lét hún hækka í 4,71
m, sem var ný heimsmetstilraun. Mik-
il eftirvænting ríkti á vellinum í
Fayetteeville í Arkansas, þar sem
mótið fór fram, og eftir tvær mis-
heppnaðar tilraunir náði Þórey Edda
mjög góðu stökki í þriðju tilraun og
var vel yfir hæðinni, en felldi naum-
lega á niðurleiðinni. Meistaramótið
var siðasta innanhússmótið á tímabil-
inu ytra og því verður Þórey Edda að
bíða með næstu heimsmetstilraun
innanhúss til haustsins.
Þórey Edda, sem stundar nám í um-
hverfisverkfræði, sagðist í samtali við
DV-Sport fyrir helgina, vera mjög
ánægð með árangurinn síðan hún fór
utan. „Hann er reyndar framar von-
um og hefur komið mér virkilega á
óvart. Allavega átti ég ekki von á
þessu svona fljótt, eftir meiðslin og
erfiðleikana í fyrra.“
- Ertu ánœgð meó veruna i
Bandarikjunum?
„Hér er mjög gott að vera og mjög
góð aðstaða til allrar íþróttaiðkunar,
bæði hvað varðar keppni og æfingar.
Enda er Georgía-háskólinn mjög
íþróttalega sinnaður og mikið lagt
upp úr góöum árangri. Bandaríski fót-
boltinn er hér númer eitt og síðan
koma körfubolti og hafnabolti númer
tvö og þrjú. Það er alltaf troðfullt á
heimaleikjum fótboltaliðsins, en völl-
urinn tekur um 190 þúsund manns í
sæti og oftast komast færri að en vilja.
Toppleikmennimir í þessum greinum
Þórey Edda Elísdóttir í háloftunum í Sydney þar sem hún tók þátt í sínum fyrstu Ólympíuleikum á ferlinum og eflaust ekki þeim síöustu. Á myndunum hér aö
neðan sjáum við til vinstri Þóreyju gera sig klára fyrir sína síöustu stökktilraun á leikunum þar sem henni mistókst aö stökkva yfir 4,15 m og má greinilega sjá
vonbrigðin á myndinni til hægri. Þórey stökk slétta fjóra metra á leikunum og komst ekki í úrslit, en stefnir enn hærra á næstu leikum, í Aþenu áriö 2004.
eru mikið í sviðsljósinu, enda áhug-
inn á þessum íþróttagreinum mikill
um öll Bandaríkin. Við sem stundum
frjálsar íþróttir verðum ekki eins
mikið vör við þetta, en auðvitað vekj-
um við töluverða athygli þegar vel
gengur."
- Er þetta ekki strembið með verk-
frœðináminu?
„Æfmgarnar hérna fara mjög vel
saman við námið og ekkert yfir því að
kvarta. Ég er aldrei meira en fjóra
tíma í skólanum á dag og get því nýtt
tímann vel eftir hádegið til æfinga,
sem byrja yfirleitt ekki fyrr en
klukkan 14.30. Við æfum tuttugu sam-
an í hóp, sem er samsettur af tug-
þrautarmönnum og stangarstökkvur-
um. Æfmgamar standa misjafnlega
lengi fram eftir degi og eftir stökkæf-
ingamar er farið í æfingasali þar sem
teknar eru séræfmgar í fimleikum eða
styrkingum og farið yfir ýmis atriði
með þjálfaranum."
- Ertu heppin með þjálfara?
. „Vjð erum með mjög hæfan þjálfi.
ara, sem heitir Aaron James. Þetta er
annað árið hans hér hjá Georgía-há-
skólanum en áður hafði hann þjálfað
víða um Bandaríkin. Hann er 35 ára
gamall og hefur strax náð mjög góðum
árangri. Það var hann ásamt öðmm
þjálfara við skólann sem hafði sam-
band við mig og fékk mig til að koma
til Bandaríkjanna."
- Eru œfingarnar ólíkar því sem
þú átt að venjast?
„Þetta er mjög ólfkt því sem ég á að
venjast frá Svíþjóð. Æfingamar em
miklu skemmtilegri og allt öðruvísi
settar upp. Hjá Stanislav Szcyrba í
Svíþjóð var þetta allt miklu strangara
og þvingaðara. Við máttum helst ekki
tala og hvað þá hlæja á æfingum.
Hann lét okkur æfa mun meira og æf-
ingarnar voru mun þyngri og meira
um kraftæfingar. Ég held hann hafi
ekki verið á réttri leið með mig og á
endanum vora álagsmeiðsli farin að
hrjá mig. Ég lærði þó heilmikið hjá
honum og styrktist mikið. Hann
kenndi mér eiginlega að hlaupa og
þar fékk ég grunninn sem ég bý að í
dag. James leggur meira upp úr tækn-
inni en er þó ekki að þvinga fram
neinar meiri háttar breytingar. Hann
hefur frekar verið að slípa stílinn til
og leggur meiri áherslu á að útfæra
hann betur. Auk þess er ég búin að
skipta um stöng og stekk nú með mun
stífari og lengri stöng sem gefur mér
meiri möguleika. Þetta hefur strax
skilað mér bættum árangri, eftir að
hafa hjakkað í sama farinu í nærri
eitt og hálft ár, á meðan ég var
meidd.“
- Telurðu að þá sér laus við
meiðslin fyrir fullt og allt?
„Ég vona það svo sannarlega. En ég
verð þó að fara varlega þar sem ég hef
verið slæm í baki alveg frá því árið
1992 og fékk vott af brjósklosi núna
síðast."
- Nýtist hœðin þér vel i keppni?
"Hæðin er mikill plús fyrir mig og
hún gefur mér ákveðið forskot ef ég
nýti hana rétt. Ég hef líka mjög góðan
grunn eftir fjöldamörg ár í fimleikum
og það hefur hjálpað mér mikið.
Reyndar hafa fleiri stangarstökkvarar
verið í fimleikum og má þar nefna
þær Balakhonovu og Bartovu, en þær
vantar hæðina.“
- Hvað cetlar þú að vera lengi í
Bandarikjunum?
„Ég er ekki alveg búin að ákveða
hvað ég verð lengi hér ytra en alla-
vega út næsta tímabil. Það fer reynd-
ar allt eftir þvi hvað ég verð lengi að
klára námið en ég hefði helst viljað
klára það á tveimur árum. Ef mér
tekst það ekki þá bæti ég við þriðja ár-
inu og fer síðan líklega í framhalds-
nám einhvers staðar annars staðar.“
- Hver eru nœstu stórverkefni hjá
þér í stangarstökkinu?
„Næsta stóra mótið hjá mér er
bandaríska háskólameistaramótið ut-
anhúss sem fram fer í byjun júní. Síð-
an er það sjálft heimsmeistaramótið,
sem fram fer í Kanada fyrstu vikuna í
ágúst, en ég er þegar búin að ná lág-
markinu á það. Ég mun leggja alla
áherslu á að vera í mínu besta formi
fyrir þessi tvö mót, en þó taka fyrir
þau þátt í einhverjum mótum, bæði
hér ytra og heima á íslandi i sumar.
Auk þess stefni ég að því að komast á
einhver stórmót í Evrópu í sumar en
það er ekki enn komið á hreint. Ég fer
heim fslands beint eftir háskólameist-
aramótið í Oregon og stunda æfingar
heima í Kaplakrika í júní og júlí, áð-
ur en ég fer aftur til Bandaríkjanna,
beint af HM í Kanada.“
- Hver er stcersti draumurinn hjá
þér i dag?
„Stærsti draumurinn þessa dagana
er auðvitað að stökkva enn þá hærra,
sérstaklega eftir heimsmetstilraunina
um daginn. Ég var komin vel yfir með
mjaðmirnar og heimsmetið blasti við
þegar ég rak brjóstið í rána og felldi.
Þetta gaf mér mér aukið sjálfstraust
og sannaði fyrir mér að ég er á réttri
leið. Til langs tima litið er stærsti
draumurinn að taka þátt í Ólympíu-
leikunum í Aþenu árið 2004.“
-EK