Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Page 12
28
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001
Sport dv
Mikill áhugi á Istöltmóti Töltheima:
Keilir og Vignir
blómstruðu
- útlendingar sækja í tilþrif knapa og hesta á ísnum
Haldið var í fyrsta skipti ístöltmót í
skautahöllinni í Árósum í Danmörku
síðastliðið laugardagskvöld. Tuttugu
og fjórir hestar mættu til leiks, þar af
fjórir frá Noregi og þrír frá Sviþjóð.
Einnig voru sýndir sextán stóðhestar
og snarpskeiðskeppni fjögurra skeið-
hesta.
1500 áhorfendur voru á mótinu og
var skautahöllin troðfull. Sýningin
tókst með eindæmum vel og er þaö
mál manna að ekki hafi sést flottari
sýning á íslenskum hestum í Dan-
mörku. Þegar er búið að dagsetja
næstu sýningu á næsta ári, fyrstu
helgina í apríl. Jóhann R. Skúlason
er sigurvegari mótsins. Stóðhestur-
inn Heikir frá Kjartansstöðum, sem
Jóhann sýndi í stóðhestasýningunni,
var valinn glæsilegasti stóðhesturinn
en Jóhann sigraði einnig í töltkeppn-
inni á Snarpi frá Kjartansstööum.
Jóhann keppti fyrir Danmörku.
Siggi Óskarsson (Danmörku) var
annar á Káti frá Stördal, Guömund-
ur Björgvinsson (Danmörku) þriðji
á Þyt frá Hóli og Malu Logan (Dan-
mörku) fjórða á Drífu frá Hvolsvelli.
Bjarne Forsan (Noregi) á Spæni frá
Högali og Reynir Örn Pálmason
(Sviþjóð) á Funa frá Hvítárholti voru
í fimmta sæti. Jón Þórðarson sigr-
aði í 40 metra snarpskeiði á Sindra
frá Síðu á 4,88 sek.
Siguróur Kolbeinsson og Einar
Ragnarsson hafa verið valdir sem
dómarar á heimsmeistarakeppninni í
Austurríki fyrir Islands hönd. Þeir
eru margreyndir og farsælir dómar-
ar.
Siðastliðið miðvikudagskvöld var
haldið þriðja mótið í mótaröð Meist-
aradeildar 847 að Ingólfshvoli. Keppt
var i fimmgangi og mættu 23 kepp-
endur til leiks. Keppendur safna stig-
um í mótarööinni og gildir besti ár-
angur sex móta. í fimmgangi sigraði
landsliðseinvaldurinn Siguróur Sce-
mundsson á Esjari frá Holtsmúla
með 6,78 stig, Brynjar Jón Stefáns-
son var annar á Sindra frá Selfossi
með 6,71 stig, Sigurbjörn Bárðar-
son var þriðji á Byl frá Skáney með
6,62 stig. Þorvaldur Árni Þorvalds-
son var fjórði á Þór frá Prestbakka
með 6,55 stig og Hinrik Bragason
þriðji á Dreka frá Syöra-Skörðugili
með 6,37 stig.
Ármúlaskóli sigraði í sveitakeppni
framhaldsskólanna annað áriö í röð.
Keppt var i Reiðhöllinni í Reykjavík.
Sveitina skipuðu: Davið Matthias-
son, Nanna Jónsdóttir, Hrafnhild-
ur Eggertsdóttir, Þórunn Eggerts-
dóttir en liðsstjóri var Sigurður I.
Ámundason. Fjölbrautaskóli Suður-
iands var í öðru sæti og Menntaskól-
inn við Sund í þriðja sæti. Keppt var
í tölti, fjórgangi og fimmgangi auk
fljúgandi skeiðs sem sýningargrein-
ar.
Alþjóðleg dómararráðstefna verður
haldin á íslandi í aprílbyrjun. 1
tengslum við ráðstefnuna halda Fáks-
menn opna nýhrossakeppni og tölt-
mót og munu hinir alþjóðlegu dómar-
ar sjá um dómgæsluna.
Eftir keppni á þremur mótum í
mótaröð Meistaradeildar 847 er stað-
an sú að í fyrsta sæti er Sigurbjörn
Báróarson með 20 stig, Sigurður
Scemundsson er annar með 16 stig,
Hinrik Bragason þriðji með 15 stig,
Sigurður Sigurðarson fjórði meö 11
stig og þeir Tómas Ragnarsson og
Brynjar Jón Stefánsson eru með 8
stig.
Vetrarleikar Snæfellings voru
haldnir fyrir skömmu á Hellissandi.
Þátttaka var allgóð í fullorðinsflokk-
unum en slakari hjá ungknöputn. í
barnaflokki og töltkeppni barna sigr-
aði Eva Kristin Kristjánsdóttir á
Pjakki frá Hvoli, í A-flokki. Guð-
mundur Ólafsson á Dögg frá Ólafs-
vik og í B-flokki og tölti Kolbrún
Grétarsdóttir á Ófeigi frá Galtar-
nesi. Að því móti loknu verða verð-
launaöir vetrarmeistarar Snæfell-
ings. Stigastaöa er þessi: Kolbrún
Gretarsdóttir 51 stig, Lárus Á
Hannesson 46 stig og Guðmundur
Ólafsson 27 stig. Næsta mót hjá Snæ-
fellingi verður íþróttamót sem hald-
ið verður 29 apríl í Stykkishólmi.
Heimasiða Landssambands hesta-
mannafélaga hefur verið endursköp-
uö. Ætlunin er að Sigrún Ögmundótt-
ir og Sólveig Ásgeirsdóttir á skrif-
stofu LH uppfæri síðuna reglulega.
Slóðin er lhhestar.is
Aóalfundur Félags hrossabænda
verður haldinn fostudaginn 6. apríl
næstkomandi í húsakynnum íþrótta-
sambands íslands í Laugardalnum.
Auk almennra umræðna má búast
við umræðum um sölu á sæði úr
stóðhestum til útlanda og jafnvel
hækkun útflutningsgjglds. -EJ
. -Tfe i <ii i ltonRúie
Áhugi fyrir ístöltmóti Tölt-
heima hefur aukist smám saman
því útlendingar eru farnir aö
sækja í að sjá tilþrif knapa og
hesta á ísnum.
Mikil stemning myndaöist fyrir
mótið sem var haldið siðastliðið
laugardagskvöld í Skautahöllinni
í Reykjavík en þetta var fjórða ís-
töltmótið. Erling Sigurðsson er
einvaldur og valdi tuttugu og níu
knapa og hesta. Hann valdi flest
þeirra para sem hafa vakið athygli
á mótum i vetur auk þekktra
keppnishrossa fyrri ára. Töluvert
var um fyrstu verðlauna kynbóta-
hross, jafnt stóðhesta sem hryss-
ur.
Það er ljóst að þessi hross verða
áberandi á keppnisvöllum næstu
ár og er ekki aö efa að mörg þeirra
verða prófuð í úrtöku fyrir heims-
meistaramótið í Austurríki.
Áhorfendur völdu
stóöhestinn Smára
Fyrirkomulag sýninga var hið
sama allan tímann. Knapar
sýndu hægt tölt, tölt með
hraðaukningu og loks fegurðar-
tölt. Keppt var í níu þriggja
knapa riðlum og komust átta ein-
kunnahæstu knaparnir í úrslit.
Knapi með hæstu einkunn
keppti í bráðabana við knapa i 8.
sæti, knapi í 2. sæti við knapa í
7. sæti og svo framvegis. Sigur-
vegararnir fjórir komust í úrslit.
Þeir fjórir sem töpuðu fengu
aukamöguleika á að komast í A-
úrslit. Þeir kepptu eina umferð
til viðbótar og völdu áhorfendur
knapann Magnús Arngrímsson á
stóðhestinum Smára frá Skaga-
strönd.
Notaður var klappmælir til að
fá fram vilja áhorfenda. Lokaröð
keppenda var: Vignir Jónasson á
Keili frá Miðsitju, Hans Fr. Kjer-
úlf á Laufa frá Kollaleiru, Sigur-
björn Bárðarson á Amal frá
Húsavík, Leó G. Arnarson á
Stóra-Rauð frá Hrútsholti og
Magnús Arngrímsson á Smára
frá Skagaströnd. Hrossin nutu
sin misvel á ísnum en yfirleitt
virtust þau auka getu sína er
leið á kvöldið. Þulirnir Sigurður
Sæmundsson og Erling Sigurðs-
son voru vel vakandi er stefndi í
að knapar færu sér á voða og
heyrðist þá „passiði ykkur á
hraðanum, knapar góðir" en
keppnisskapið getur oft aukist
umfram það sem er skynsamlegt.
Þannig ættu öll mót á
íslandi aö fara fram
Auk töltkeppninnar sýndi Atli
Guðmundsson stóðhestinn Svein
Hervar frá Þúfu, Samantha
Leidersdorf Safir frá Viðvík og
Björn Jónsson Glampa frá Vatns-
leysu. Glampi og Björn voru
valdir athyglisverðasta par ís-
mótsins. Mótið gekk mjög vel
fyrir sig og skeikaði vart mínútu
á þeim tíma sem auglýstur var
sem upphafstími og mótinu lauk
töluvert fyrir áætlaðan móts-
slitatíma. Þannig ættu öll hesta-
mót á íslandi aö fara fram.
Opiö mót á Sauöárkróki
Þó svo að reiðhöllin Svaðastað-
ir á Sauðárkróki hafi ekki verið
vígð enn þá var hún tekin í notk-
un í febrúar. í gær var fyrsta
opna mótiö í höllinni og var
keppt í tölti fullorðinna og ung-
knapa, 55 metra skeiði og fjór-
gangi fullorðinna. Skráningar
voru 82 og komu knapar víða að
frá Norðurlandieystra. í 55
metra skeiði með fljúgandi starti
sigraði Stefán B. Stefánsson á
Blakki frá Árgerði á 5,23 sek.
Ragnar Eiríksson var annar á
Spóa frá Gröf á 5,24 sek. og Bald-
vin Ari Guðlaugsson þriðji á Eld-
járni frá Efri-Rauðalæk á 5,29
sek. í tölti fullorðinna sigraði
Baldvin Ari Guðlaugsson á Golu
frá Ysta-Gerði, Jóhann Þor-
steinsson var annar á Smið frá
Miðsitju og Bergur Gunnarsson
þriðji á Krapa frá Þóreyjarnúpi.
í tölti ungknapa sigraði
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir á
Þyt frá Saurbæ, Hjördís Sigurð-
ardóttir var önnur á Ágústi frá
Brúnastöðum og þriðja Stefanía
Sigurðardóttir á Flugu frá Hofs-
völlum.
Baldvin á Golu vann
fjórganginn
í fjórgangi sigraði Baldvin Ari
Guðlaugsson á Golu frá Yzta-
Gerði, Bergur Gunnarsson var
annar á Amor frá Ólafsfirði og
Anton Nfelsson var þriðji á
Skugga frá Víðinesi.
-EJ
Vigrýr Jfin^ssqn og.Keilir.frá Miösttju sigruöu í ístöltmóti Tölthpima. t j io,n \r t<i>0 |«, 11.,|, •• öbl ill ir piI