Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 2
34
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
I>V
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
Bílar
39
Bílar
TOYOTA PRIUS
Bensinvél: 1500 rúmsentímetra 4ra strokka Atkinson-línuvél.
Ventlar: 16.
Þjöppun: 13,5:1.
Rafmótor: Sísegul-riðstraumsmótor.
Rafgeymir aflvéla: Nikkel Metal Hybrid (Ni-MH) 6,5 amperstundir.
Gírkassi: Stiglaus sjálfskipting.
UNDIRVAGN
Fjöðrun framan: MacPherson. ;
Fjöðrun aftan: Sjálfstæð, gormar.
Bremsun framan/aftan: Diskar/diskar, hemlalæsivörn.
Felgur/dekk: 5,5JJx14/175/65 14 Low Resistance
YTRI TÖLUR
Lengd/breidd/hæð: 4275/1695/1490 mm.
Hjólahaf: 2550 mm.
Eigin þyngd: 1330 kg.
INNRI TÖLUR
Farþegar: 5.
Höfuðpúðar/líknarbelgir: 5/2.
Farangursrými: 390 lítrar.
HAGKVÆMNI
Eyðsla, blandaður akstur: 5,1 lítri.
Bensíntankur: 50 lítrar.
Verð: 2.390.000 kr.
Umboð: P. Samúelsson
Staðalbúnaður: Læsivarðar bremsur með bremsujöfnun, álfelgur, fjarlæsing, hitastýrt loftræstikerfi (AC), upplýsingatölva með skjá í mælaborði, ISOFIX-fest- j ing fyrir barnastól, útihitamælir.
SAMANBURÐARTÖLUR
Hestöfl/sn. bensínvélar: 72/4500.
Snúningsvægi/sn: 115 Nm./4200.
Hestöfl/sn. rafmótors: 45/1040-5600.
Snúningsvægi/sn.: 350 Nm./0-400.
Hröðun 0-100 km/klst.: 13,4 sek.
Hámarkshraði: 160 km.
Beygjuradius: 5,1 metrar (innri).
* Aðeins falur á rekstrarleigu.
FRÉTTIR UTAN ÚR HEIMI
Nýtt andlit Citroén
Arftaki Citroén Saxo er C2-bíllinn
sem sést hér á mynd í fyrsta
skipti. Stœrri útgáfa hans er lítill
fjölnotablll sem kallast C3. Báöir
bílarnir þykja framúrstefnulegir, í
œtt viö það orðspor sem fer af
framleiðandanum fyrir hönnun
nýtískulegra ökutœkja. Báöir bíl-
arnir eru meö háa þaklínu og
lóöréttan afturenda til að fullnýta
rými innandyra. Undirvagninn er
sá sami og á Peugeof 206 og
meðal annars verður tveggja lítra
vél frá Peugeot í VTS-útgáfunni.
Einng er von á dísilvél sem hönn-
uð hefur verið í
samvinnu við -------
Ford.
Nýr Roils árið 2003
Þessi nýtískulegi Rolls-Royce er
vœntanlegur árið 2003 og er
hann hannaður af BMW-verk-
smiðjunum. Hann ber nafnið
RR01 í augnabllkinu og er líklega
sá fyrsti af fjórum nýjum Rollsum
sem BMW œtlar að framleiða.
Hinir þrír eru tveggja dyra
bíll, blœjubíll og loks
lúxus Rolls fjórhjóla-
drifsbíll sem fer þá
beint í samkeppni
við Range Rover
Vouge. Nýi bíllinn er
á álgrind og með nýtt
fjöðrunarkerfi úr áli, loft-
púðafjöðrun og loks nýja sex lítra
V12 vél frá BMW sem er 400 hest-
öfl. Bíllinn verður smíðaður í
Goodwood í West Sussex, stutt
frá hinni frœgu kappakstursbraut
sem ber sama nafn. Um 1000
stykki verða smíðuð á ári.
Öryggispúöar
í beltunum
Bráðum mun Ford bjóða upp á
nýja tegund örygglsbelta, svo-
kallaða öryggisbeltapúða. Smart-
Belt er hannað af BF Goodrich í
Bandaríkjunum og hefur vakið at-
hygli fyrir góða útkomu í árekstr-
arprófunum. Beltið blœs þá
hratt út við árekstur og
setur farþega í betri
stöðu gagnvart öðr-
um öryggispúðum
sem minnkar hœttu
á meiðslum vegna
þeirra. Þetta er sér-
lega mikilvœgt fyrir
börn í bílum, sem eru í
meiri hœttu að meiðast þar sem
venjuleg belti halda þelm ekki
eins vel og hleypa þeim of ná-
lœgt öryggispúðunum. Ford seg-
ist vilja bjóða upp á þessa nýju
tœkni innan tveggja ára.Ford.
Reynsluakstur nr. 605
Vistmildur, sparneytinn,
hijóbiátur - og sprækur!
Kostir: Rúmgóður að innan.
Gallar: Vindhljóð á langkeyrslu.
Toyota Prius er fyrsti tvinnbíUinn
sem boðinn er á íslenskum markaði. í
orðinu tvinnbUl felst aö bfllinn tvinnar
saman orku af fleiri en einu tagi: í
þessu tilfeUi orku sprengihreyfils sem
gengur fyrir bensíni arrnars vegar en
rafmagni hins vegar. Prius er með tvær
vélar: bensínvél og rafmótor. Segja má
að hann sé rafmagnsbUl sem flytur með
sér sína eigin orkustöð, eða að hann sé
bensínbUl sem knýr bflinn með mflli-
göngu rafvélar.
Bensínvélin drífur hjólin við vissar
aðstæður en framleiðir einkum raf-
magn fyrir rafmótorinn sem er i raun
megindrifvél bilsins en safnar einnig
raforku þegar það á við. Við tilteknar
aðstæður vinna báðar aflvélarnar sam-
an að því að knýja bílinn og geta auk
þess notið aðstoðar rafals bflsins þegar
stýritölvu hans þykir það henta.
Lítur þetta út fyrir að vera flókið?
Hættið þá að hugsa um það því í jdag-
legri notkun bílsins skiptir það/ekki
máli. Það sem skiptir máli er annars
vegar að Prius er liklega vistmfldasti
bfllinn á markaðnum og jafnframt sá
spameytnasti miðað við stærð og hefð-
bundinn orkugjafa. í aflri daglegri um-
gengni hagar Prius sér hins vegar eins
og hver annar bíU eins og við þekkjum
þá.
Það er eiginlega ekki nema tvennt
sem ökumaðurinn tekur eftir að er
öðruvísi en á hefðbundnum bfl sem
gengur fyrir bensíni eða dísilolíu. í
fyrsta lagi heyrist ekkert startarahljóð
þegar lyklinum er snúið, enda gerist svo
sem ekkert við þá athöfn nema að
kveikt er á kerfum bílsins. í öðru lagi
má á stýriskala skiptingarinnar sjá staf-
inn „B“ sem ekki er vanalegt. Þetta er
sérstakur viðhaldsgír sem virkar líkt og
hamlari (retarder) á vörubíl eða rútu,
auk þess sem hann nýtir hemlunarork-
una til endurhleðslu rafgeymisins sem
er forðabúr þeirrar orku sem bfllinn
notar.
Allt er nýtt til orku
Þegar tekið er af stað og í umferð sem
gengur hægt notar Prius raforku ein-
göngu. Þegar numið er staðar, við um-
ferðarljós eða vegna seinagangs umferð-
ar, er algjörlega dautt á bílnum og þar
af leiðandi engin mengun. Samt er bíU-
inn tafarlaust tilbúinn að halda áfram
þegar færi gefst. Hann velur sjálfur
hvenær ástæða er til að ræsa bensínvél-
ina og það gerist gjörsamlega hljóðlaust;
það er rafbúnaðurinn sjálfur, sem er
virkur hvort sem er, sem sér um það.
Ökumaðurinn og farþegar hans vita
ekkert af því, hvað þá að þeir ráði neinu
þar um.
RafbiU þarf rafmagn. Rafbflar sem
ganga fyrir rafmagni eingöngu eru háð-
ir því að komast með stuttu mfllibili í
rafmagnsinnstungu og endurhleðsla raf-
geyma þeirra mælist í klukkustundum.
Prius þarf líka rafmagn en hann fram-
leiðir það sjálfur og nýtir tfl þess hvert
tækifæri. Það þarf aldrei að stinga hon-
um í samband og bíða hleðslu. Slepptu
„bensingjöfinni“ - sem hér ætti frekar
að heita aflstýring - og Prius fer að
hlaða sig. Stígðu á bremsuna og hann
notar hemlunarorkuna - sem á fræði-
máli heitir líka afhröðunarorka og fer í
hefðbundnum bflum til spfllis - tU þess
að safna raforku í geyminn.
Einn af kostunum við Prius er hve
lítið fer fyrir rafgeyminum. Hann liggur
þversum miUi afturhjólanna og sést að-
eins sem dálítiU stokkur fremst í far-
angursrými. Hann er viðhaldsfrír og
einhvers staðar telur undirritaður sig
hafa lesið að hann sé með fimm ára
ábyrgð en búist við 10 ára endingu
hans. Hann er aö öUu leyti úr endur-
vinnanlegu efni eins og flestir aðrir
hlutar bílsins. Hann er háspenntur, 280
volt, en það er sú orka sem rafmótor
bflsins gengur fyrir. Þar fyrir utan er
venjulegur 12 volta geymir f bílnum
sem nýtist fyrir rafknúna hluti, svo sem
miðstöð, ljós, útvarp, fjarlæsingu o.fl.
Gefur blóm fyrir orkuakstur
Samkvæmt upplýsingum framleið-
anda fer Prius með 5,1 lítra af bensíni
að meðaltali á hverja 100 km. Sam-
kvæmt aksturstölvu bílsins fór hann
með 5,3- 6,4 að meðaltali í reynsluakstri
DV. Hæsta talan kom í þjóðvegaakstri,
enda nýtist raforkan minnst þar.
Lægsta talan kom i innanbæjarsnatti
þegar ekið var með hugann við akstur-
inn. 5,8 var eyðslutala þarna á mflli og
kom í blönduðum akstri þegar ekið var
eins og gaman er að aka - þannig að
orkan sem býr í bílnum fái að njóta sín
þó það þýði fasta hemlun inn á milli.
Við þessar aðfarir sýndi aksturstölvan
mesta framleiðslu raforku og hag-
nýtasta: ökumaðurinn fær blóm á tölvu-
skjáinn fyrir hagstæðan akstur miðað
við raforkuframleiðslu og í þessum
skemmtiakstri fékk prófari einu sinni
fjögur heil blóm og þrjú hálf fyrir 25
mínútna akstur!
Að meðaltali mun Prius gefa frá sér
allt að helmingi minna af skaðlegum
efnum en hefðbundinn bensinbíll og er
þar með vel undir mengunarlöggjöfmni
Euro 4 sem tekur gfldi 2005.
Almenn umsögn:
Hér verður ekki fjallað um Prius
með tflliti tfl hefðbundinna atriða að
öðru leyti en þvi að segja að hann er
ágætlega skemmtflegur í akstri. Upp-
taktur er ágætur en ekkert rifandi; aft-
ur á móti hefur tvinnbíllinn mjög
skemmtilega millihröðun og tætir sig
upp t.d. frá 70-100, sem kemur sér vel,
t.d. þegar þarf að fara fram úr. Hann
er ágætlega búinn, m.a. meö hitastýrt
loftræstikerfí - sem oftaSt er víst kall-
að „loftkæling". Helsta aðfinnslan
gæti verið að á langkeyrslu ber all-
nokkuð á vindhljóði.
Ekki verður annað séð en tvinnbíll
sem Prius sé eini raunhæfi kosturinn
sem enn er í boði fyrir þann sem vfll
nota rafmagn tfl að knýja bíl án þess
að bíllinn sé þar með orðinn „fatlað-
ur“. Óumdeflt er að hann mengar
minna en hefðbundnir bílar, auk þess
sem hann er margfalt hljóðlátari í
borgamotkun - tímum saman alveg
hljóðlaus! Ökumaður og farþegar sitja
tfltölulega hátt í þessum bíl og hafa
furðumikið rými, borið saman við
helstu keppinauta í ytri málum.
Prius kostar 2.390.000 krónur en
fæst ekki keyptur og mun varkámi
framleiðanda ráða því. Hann er ein-
ungis í boði á rekstrarleigu og þá í tólf
mánaða bilum, einu, tveimur eða
þremur í senn.
o® / mælaboröinu er aksturstölva
sem sýnir m.a. hvort bíllinn gengur
á líöandi stund fyrir bensíni, raf-
magni eöa hvoru tveggja, sömuleiö-
is orkunýtinguna á hverju gefnu bili.
Ef tekst aö ná ákveöinni lágmarks-
rafhleöslu á hverju fimm mínútna
bili gefur tölvan blóm fyrir, hálft,
heilt eöa jafnvel tvö!
© Lítiö fer fyrir aðalrafgeyminum
sem lítur úr eins og stokkur þvers-
um milli hjólakassa fremst í skott-
inu.
-SHH
MUSSO GRAND LUXE II
Vélargerð: 602 Tdi E230 E320
Rúmtak: 2874 sm2 2295sm2 3199sm2
Eldsneyti: Dísil . Bensín Bensín
Hestöfl/sn: 129-155/4000 150/5300 220/5500
Snúningsvægi: 260 Nm./2000 210 Nm./2000 310 Nm./3750
Þjappa: 22:1 10,4:1 10:1
Eldsneytistankur: 80 72 72 lítrar
Þyngd: 1890 1835 1910 kg
Lengd/breidd/hæð: 4656/1864/1785 mm
Breyttur f. 33 tommur: 4656/2000/1845 mm
Hjólhaf/veghæð: 2630/215 mm
Breyttur f. 33 tommur: 2630/240 mm
Fjöðrun framan: Sjálfstæð með snúningsstöngum
Fjöðrun aftan: Heill öxull á gormum
Bremsur framan/aftan: Loftkældir diskar/diskar
Stýri: Hraðanæmt tannstangarstýri
Dekk: BF Goodrich 31/10 15 KO
Verð: 3.190.000 3.190.000 3.790.000 kr.
Umboð: Bílabúð Benna
Nýr og endurbættur
Musso Grand Luxe II
kynntur um helgina
Bílabúð Benna kynnir um helg-
ina nýja og breytta útgáfu af Musso-
jeppanum, Musso Grand Luxe II.
Bíllinn hefur fengið smá andlitslyft-
ingu og betri innréttingu, meðal
annars bólstraða stóla og stillanleg
aftursætisbök sem fella má niður.
Einnig er innréttingin efnismeiri.
Bíllinn er betur hljóðeinangraður,
bæði á undirvagni, hurðum og frá
vél. Farangursrýmið hefur og verið
endurhannað. Nú er Musso líka fá-
anlegur með rafstýrðri topplúgu og
bílabíói. Endurbætur hafa verið
gerðar á bremsubúnaði en allar
gerðir hans eru með ABS og spól-
vörn. Bílabúð Benna bauð bíla-
blaðamönnum í stuttan kynning-
arakstur á nýja jeppanum og var
jeppinn reyndur við hinar ýmsu að-
stæður, meðal annars í ám. Athygli
vakti hversu hljóðlátur bíllinn er
orðinn og hversu vel hann fer með
ökumann og farþega. DV-bílar
munu taka bílinn í reynsluakstur á
næstunni. -NG
Svona gæti nýr Porsche 928 hugsanlega litiö út
samkvæmt teikningu hönnuöar.
Hugleiða að endurvekja
Porsche 928 bílinn
Stjórnendur Porsche eru að hug-
leiða að endurvekja 928 bílinn með
V8 vélina fram í. Þetta yröi bíll sem
myndi keppa við Ferrari F550 Mara-
nello og Mercedes Benz CL. Porsche
vill bæta við framleiðslulínu sína og
þessi bíll þykir góður kostur þar
sem að hann gæti notað margt það
sama og væntanlegi Cayenne-jepp-
inn, þar með talið vélina, gírkass-
ann, afturöxulinn og loftfjöðrunina.
Hann yrði þá framleiddur við hlið
jeppans í verksmiðju Porsche í
Leipzig í Þýskalandi. Vélin sem fer
í Cayenne er 340 hestöfl og með tvö-
faldri túrbínu fer hún upp í 450
hestöfl. Til að hún henti þessum bíl
þarf að preppa hana upp til að
standa jafnfætis samkeppnisaðilun-
um. Búist er við ákvörðun frá
Porsche fyrir áramót og kemur
hann á markað árið 2005 - ef af
framleiðslu verður.
-NG
Notaðir bílar hjá
Suzuki bíium hf.
Suzuki Grand Vitara V6
Excl., skr. 4/98,
ssk., ek. 36 þús.
Verð kr. 2100 þús.
Toyota Yaris Sol, skr. 9/99,
ek. 16 þús., 5 d., bsk.
Verð kr. 990 þús.
Fiat Punto 75 ELX, skr.
9/97, ek. 46 þús., 5 d., bsk.
Verð kr. 630 þús.
Honda Civic Sl, skr. 10/98,
ek. 44 þús., 4 d., bsk.
Verð kr. 1020 þús.
Chrysler Stratus LE, skr.
2/96, ek. 74 þús., 4 d., bsk.
Verð kr. 740 þús.
Opel Corsa Swing, skr.
10/97, ek. 60 þús., 3 d., bsk.
Verð kr. 590 þús.
Suzuki Grand Vitara, skr.
3/00, ek. 15 þús. 3 d., bsk.
Verð kr. 1590 þús.
Suzuki Swift GLX, skr.
1/98, ek. 51 þús., 5 d., bsk.
Verð kr. 640 þús.
Suzuki Baleno GL, skr.
4/99, ek. 12 þús., 4 d., ssk.
Verð kr. 1120 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr.
3/98, ek. 43 þús., 5 d., ssk.
Verð kr. 1340 þús.
Suzuki Jimny JLX, skr.
6/00, ek. 19 þús., 3 d., bsk.
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Wagon R+ 4WD,
skr. 5/00, ek. 8 þús., 5 d.
Verð kr. 1140 þús.
Toyota Coroila Luna
L/B, skr. 9/97,
ek. 50 þús., ssk.
Verð kr. 990 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
----✓//>.... -........
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100
i