Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Blaðsíða 4
18 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 39 Sport Logi Gunnarsson (til vinstri) og Ragnar Ragnarsson í stuði í leikslok. DV-mynd Brink Sprungum út - í úrslitakeppninni, sagöi Logi Gunnarsson í leikslok „Þetta er æðislegt, ég lýsi þessari tilfinnmgu ekki einu sinhi, en ég hitti rosalega vel í þessu húsi. Maður fer eins í alla leiki en hér hitti ég betur en heima. Ég veit ekki hvað á að segja, mér líöur svo vel. Að koma hingað og vinna, eins og í fyrri leiknum þegar við vorum fyrstir tO að vinna hér í vetur, það sýnir hverjir eru bestir. Menn sáu það að leikurinn sem við töpuöum heima var klúður og við vorum byrjaðir að fagna of snemma. Við tókum á því, komum til baka og unnum. Ég er kominn með tvo titla en ég á enn langt eftir í pabba. Við vorum uppi og niðri í vetur. Við lentum í smá-bakslagi undir lokin á deildinni en náðum þó deildarmeistaratitlinum og sprungum síðan út i úrslitakeppninni," sagði Logi Gunnarsson eftir 32 stiga leik sinn í gær. Frábær vörn skipti sköpum „Ég vann í Danmörku 1995 þannig að ég kannast við tilflnninguna. Við komum hingað til að berjast, viö vorum virkOega hungraðir eftir að hafa tapað í Njarðvík sem á að vera sterkasti heimavöliur á íslandi. Ég held ég hafi verið örlítið stressaður í fyrri hálfleik, þetta var stór leikur, og kannski reyndi ég of mikið. Ég settist niður í hálfleiknum og náði aðeins að hugsa málið og ég held að það hafi skipt máli. Viö spiluðum frábæra vörn í úrslitakeppninni og hún skipti sköpum. Það er margt svipað með leiknum hér og í Danmörku. Leikurinn hér er örlítið lausbeislaðri en í Danmörku eru fleiri stórir menn. Ég hefði ekkert á móti þvi að vera hér lengur, mér líkar dvölin vel. Menn hafa tekið mér opnum örmum í Njarðvík og koma fram við mig eins og hluta af fjölskyldunni," sagði Jes Hansen í leikslok. -ÓÓJ NBA-DEILDIN Toronto-Detroit ..........94-92 Carter 21, A. Davis 16 (11 frák.), Oakley 15, Williams 11 (12 stoðs.) - Stackhouse 22, Williamson 17. New Jersey-Chicago.......94-100 Harris 27, Overton 17 (11 stoös.), Van Horn 15, Eschmeyer 12 - Guyton 24, Artest 19, Fizer 17, Hoiberg 15. Miami-Milwaukee ..........91-89 Mourning 25 (16 frák., 5 varin skot), Jones 23, Mason 15, Grant 12 - Robinson 22, Allen 21, Hunter 13. Atlanta-Washington .... 122-119 Glover 28, Terry 27,.Wright 23 (11 frák.), Mohammed 22 (14 frák.) - Hamilton 30, Alexander 25, Profit 18. Indiana-Philadelphia . . . 1Q5-111 Harrington 19 (13 frák.), Miller 15, Rose 13, Bender 15 - Jones 26 (13 frák.), McKie 18, Ollie 13, Lynch 11. Houston-Minnesota ..... 114-87 Olajuwon 24, Francis 18, Mobley 16 (10 frák.), Anderson 15, Cato 11 - Szczerbiak 16, K. Garnett 11. Utah-LA Clippers.........97-92 Malone 34, Russell 12, Stockton 12, Marshall 11, Manning 11 - Mclnnes 20, Odom 18, Richardson 10. Portland-San Antonio .... 93-99 Stoudamire 28, Harvey 15, Pippen 13, D. Davis 12 (16 frák.), Augmon 10 - Duncan 18, Robinson 12, Rose 12. LA Lakers-Denver.........108-91 O’Neal 33 (13 frák.), Bryant 26, Medvedenko 10 - LaFrentz 22 (13 frák.), Lenard 20, Goldwire 18. -ósk Tindastólsmenn eftir leikinn: Reynslan - kom þeim til góða í lokin „Við komum vongóðir tU leiks eftir sigurinn í Njarðvík í síðasta leik og ætluðum okkur að vinna. Við lékum líka ágætlega fram í seinni hálfleik, en þá reyndust þeir bara sterkari en við og reynslan kom þeim líka tU góða. Við tökum stoltir á móti silfrinu. Þetta er búið að vera mjög góður vetur hjá okkur, besti árangur liðsins í deUdinni, og ég þakka stjórninni og stuðningsmönnum fyrir leikina í vetur,“ sagöi Svavar Birgisson, en svo gæti farið að þessi sterki framvörður leiki ekki með TindastólsUöinu á næsta tímabili. Hann hyggur á nám syðra, en segir að það komi í ljós á næstu dögum hvað hann geri næsta vetur. Sýndum mikinn styrk „Þetta var gifurlega erfitt. En við getum verið stoltir, sýndum mikinn styrk í úrslitakeppninni, og komum til baka aftur og aftur þótt útlitið væri ekki bjart. Það vó þungt að við þurftum fimm leiki á móti Keflavík í undanúrslitunum en þeir þrjá á móti KR. Svo misstum við Kidda út í tvo leiki og það munar um allt þetta. Okkur skorti kraft i seinni hálfleiknum í kvöld og þeir eru með frábært lið. Þetta er búið að vera mjög góður vetur. Við erum meö frábæra áhorfendur sem hafa stutt okkur vel. Vonandi gera þeir það áfram. Við mætum sterkir til leiks á næsta tímabili,“ sagði Lárus Dagur Pálsson, fyrirliði Stólanna. Erum líka meö gott liö „Við vorum búnir. Þeir höfðu miklu meiri kraft í seinni hálfleiknum. Þeir eru með mjög gott lið, sterkir menn undir og skytturnar fyrir utan. En við erum líka með gott lið þó að þetta hafi ekki tekist í þetta skiptið. Nú vitum við það sem við vissum ekki í haust, hvað þarf til að klára svona dæmi. En við höldum svo sannarlega áfram að reyna. Þetta er bara fyrsta skrefið og við mætum tvíefldir til leiks næsta haust,“ sagði Valur Ingimundarson þegar lið hans hafði tekiö við silfrinu og af orðum hans má dæma að hann verði um kyrrt á Sauðárkróki og líklegt er að hann muni þjálfa Tindastólsliðið áfram næsta vetur. -ÞÁ *c I>V DV Sport Tindastóll-Njarðvík 71-96 Sé ekki eftir því að skipta í Njarðvík „Þetta er æðislegt. Þeir vanmátu mig í fyrri hálíleik þannig að ég tók skotin og hitti. Tímabilið er búið að vera frábært, við hefðum getað gert betur í öðrum keppnum en þetta stendur upp úr. Ég sé ekki eftir þvi að skipta yfir í Njarðvík, þeir gáfu mér möguleika og það er númer eitt, tvö og þrjú,“ sagði Halldór Karlsson sem komst á spjöld sögunnar þegar hann varð fyrsti maðurinn til að verða meistari með báðum liðunum úr Reykjanesbæ, Keflavík (1997) og Njarðvík (2001). -ÓÓJ Stolnir boltar: Tindastóll 8 (Lárus 3, Antropov 2), Njarðvík 18 (Brenton 10, Teitur, Hansen, Logi, Halldór 2). Tapaóir boltar: Tindastóll 22, Njarðvík 11. Varin skot: Tindastóll 6 (Svavar, Myers, Antropov 2), Njarðvik 5 (Hansen 5). 3ja stiga: Tindastóll 6/25, Njarðvík 8/24. Viti: Tindastóll 13/20, Njarðvík 20/29. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Jón Bender (8). Gœði leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 1300. Maður leiksins: Brenton Birmingaham, fyrirliði Njarðvíkur Brenton Birmingham lyftir íslandsmeistarabikarnum í leikslok en á minni myndinni hér að ofan fagnar Teitur Örlygsson Halldóri Karlssyni í leikslok. Hér á myndinnf til hægri fagnar síöan Njarövíkurliöiö titlinum saman í leikslok. DV-myndir Brink 5-0, 5-2, 7-2, 7-7, 9-12, 13-18, 15-23, 18-25, 21-26, (24-26), 26-26, 26-28, 34-28, 34-38, 40-39, 42^10, 42-28, (45-48, 45-50, 48-55, 50-60, 57-63, 57-71, (62-72), 62-77, 68-81, 68-90, 69-94, 71-96. Stig Tindastóls: Shawn Myers 24, Lárus Dagur 14, Antropov 13, Svavar 9, Ómar 6, Adonis 5. Stig Njaróvíkur: Logi Gunnarsson 32, Brenton 26, HaUdór Karlsson 12, Friðrik S. 10, Teitur 8, Jes 5, Friðrik R. 3. Fráköst: Tindastóll 43 (15 í sókn, 28 í vörn, Myers 16, Svavar 8, Antropov 7), Njarðvík 48 (18 i sókn, 30 í vörn, Hansen 12, Brenton 10, Friðrik 10, Halldór 6). Stoösendingar: Tindastóll 15 (Pomones 5, Myers 3, Antropov 3), Njarðvík 21 (Brenton 11, Teitur 5). þegar Njarðvík tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í ellefta sinn Njarðvíkingar tryggðu sér ellefta ís- landsmeistaratitil félagsins á tuttugu árum með því að vinna fjóröa leik sinn gegn Tindastóli, 71-96, í lokaúr- slitum körfuboltans á Sauðárkróki í gær. Það má segja að Njarðvikingar hafi endursýnt sýningu sína frá því i öðr- um leiknum en Tindastólsmenn voru taplausir í Síkinu í vetur þar til Njarðvíkingar komu þangað í heim- sókn í lokaúrslitunum og unnu tvo 21+ stiga sigra og skoruðu samtals 196 stig í þessum tveimur leikjum. Aðalhlutverkin í gær voru skipuð þeim sömu og fyrir viku, þeim Brent- on Birmingham og Loga Gunnarssyni sem áttu báðir frábæran dag. Brenton bar Njarðvíkurliðið uppi í gegn erfið- an fyrri hálíleik og náði fjórfaldri tvennu fyrstur leikmanna í sögu úr- slitakeppninnar. Logi, sem skoraði 10 af fyrstu 12 stigum Njarðvíkurliðsins, bætti við 32 stigum til viðbótar þeim 36 sem hann skoraði í öðrum leiknum á Króknum og kórónaði frábæran vetur hjá sér. Fjórföld tvenna hjá Brenton Brenton Birmingham hafði fengið silfurverðlaunin á íslandsmótiinu tvö síðustu árin en það sást á öllum hans aðgerðum í gær að svo myndi ekki verða í ár. Brenton náði einstakri fjór- faldri tvennu með 26 stig, 11 stoðsend- ingum, 10 fráköstum og 10 stolnum boltum en síðastnefnda afrekið er einnig met í lokaúrslitum úrslita- keppninnar. Stólarnir komu þó fullir sjálfs- trausts til leiks, komust í 7-2 í byrj- un, héldu í við Njarðvíkurliðið út fyrsta leikhluta og voru komnir aftur yfir, í 34-28, í upphafi þess annars. Gaman var að sjá Lárus Dag Pálsson blómstra á þessum kafla eftir erfiða leiki á undan en hann var með þrjár þriggja stiga körfur á fyrstu 12 mínút- um leiksins. Innkoma Halldórs En á þessum tíma hafði Halldór Karlsson brugðið sér inn á og setti hann niður átta stig á næstu 4 mínút- um. Þessi frábæra innkoma hans virt- ist koma Njarðvíkurliðinu á bragðið en því óx ásmeginn eftir því sem leið á leikinn. Tindastólsmenn töpuðu 13 boltum í fyrri hálfleik þrátt fyrir að vera að- eins þremur stigum undir og það varð þeim dýrkeypt er leið á leikinn. Brent- on var reyndar ábyrgur fyrir átta af þessum töpuðu boltum því hann stal átta boltum af Stólunum í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik áttu síðan Tinda- stólsmenn ekkert svar við góðum leik gestanna sem fóru á kostum og það sem stefndi lengi vel í jafnan og spennandi leik leystist upp í bið eftir lokaflautinu og bikarafhendingu í leikslok. Njarðvíkingar tóku þar við bikamum, þeir unnu 8 af 10 leikjum sínum í úrslitakeppninni og unnu úrslitakeppnina afar sannfærandi. Loksins „Loksins! Ég hef unnið nokkra titla á mínum ámm en þetta er sá sætasti. Ég vissi ekki að ég hefði verið að spila svona vel, ég náði að stela nokkrum boltum, en þessar tölur eru frábærar. Þetta er vissulega einn af bestu leikj- um mínum. Ég vildi virkilegá vinna titilinn með Njarðvík, auðvitað vildi ég gera það líka í Grindavík, en hjart- að er í Njarðvík og þetta skiptir mig miklu máli. Það koma allir fram við mann eins og hluta af fjölskyldu og það gerir þetta enn betra þegar maður vinnur svo stóran titil fyrir fólk sem manni er kært. Þetta er meira en bara starf í mínum augum, ég er hér með fjölskyldu minni,“ sagði Brenton Birmingham, maður leiksins, í sam- tali við DV-Sport í leikslok. Eiga heiöur skilinn Stuðningsmenn Stólanna eiga heið- ur skilinn fyrir frábæra frammistöðu í vetur líkt og leikmenn liðsins. Þaö var mjög táknrænt í lok leiksins að þeir stóðu við bakið á sínum mönnum út allan leikinn og hylltu þá á frábær- an hátt er þeir fengu siÚúrverðlaun sín afhent. Tindastólsmenn og Sauð- krækingar geta staðið stoltir upp eftir þessa úrslitakeppni, leikmenn liðsins náðu besta árangri félagsins frá upp- hafi og stuðningsmenn sýndu hvernig á að taka tapi með sóma og styöja áfram við bakið á sínum mönnum þótt á móti blási. -ÓÓJ * *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.