Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2001, Blaðsíða 1
15
Zola verður áfram í
herbúðum Chelsea
ítalinn Gianfranco Zola hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samn-
ing við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea. Vangaveltur hafa verið um
það á síðustu vikum að Zola myndi yfirgefa Chelsea eftir timabilið og
ljúka ferlinum á ítaliu. Leikmanninum snerist hugur og framlengdi
samning sinn við félagið um tvö ár. Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, var mjög ánægður með þessa ákvörðun Zola og sagði hann
mikilvægan hlekk í liðinu þrátt fyrir að hann væri orðinn 34 ára gam-
all. Zola sjálfur sagði að með þessari framlengingu myndi hann ljúka
ferlinum á Stamford Bridge. Hann kom til Chelsea frá Parma 1996 og
strax ári síðar kusu enskir íþróttafréttamenn hann leikmann ársins.
Claudio Ranieri var þegar farinn að líta eftir manni fyrir Zola ef
hann færi frá félaginu. Hann hafði augastað á löndum sinum, þeim
Benito Carbone hjá Bradford og Paolo di Canio hjá West Ham en Chel-
sea hefur reyndar um langan tíma verið með di Canio efstan á óskalist-
anum.
-JKS
Þjálfaraskipti
sph
■i'WSfófxjkfm
Jon Kar! Björnssot^aAasni
I^FrðWSfSbn og Einar Gunrr-
:jftjj|SSQn fagna sigrinum á KA
á Ásvöllum í gærkvöld,
DV-mynd E.ÓI.
\w
16-17
Urslit a Akureyri
- hjá kvennafiði KR þar sem Henning Henningsson var ekki endurráðinn og Keith Vassell tekinn við
Keith Vassell, Kanadamaðurinn
sem leikið hefur með karlaliði KR í
körfuknattleik sl. þrjú tímabil, hef-
ur tekið við þjálfun kvennaliðs fé-
lagsins af Henning Henningssyni
sem stýrði liðinu í vetur með góðum
árangri en var ekki boðið að halda
áfram með það. Vassell þjálfaði
meistaraflokk karla einn vetur,
tímabilið 1998—’99, og er þvi ekki
ókunnugur þjálfun hér á landi.
Verður erfitt að toppa
veturinn í vetur
„Ég er mjög spenntur að taka við
þjálfun meistaraflokks kvenna.
Þetta er besta liðið í kvennaboltan-
um á íslandi í dag. Það verð-
ur erfitt aö toppa þann
frábæra árangur sem
Henning náði í vetur þar
sem liðið vann allt sem
var í boði,“ sagði Keith
Vassell þegar DV-Sport
spurði hann út í nýja
starfið.
Henning Henningsson
sagði í samtali við DV-
Sport að hann væri hissa
á því að vera ekki boðið
að halda áfram með liðiö
þar sem hann heföi verið
í viðræðum við stjórn
félagsins um áframhald-
Henning Henningsson.
andi samning. „Strax eftir
tímabilið var rætt við
mig að ég myndi halda
áfram með liðið sem og
ég þáði.“
Eitthvaö breyttist
„Siðan hafði stjómin
samband við mig aftur
og mér var tjáð að þeir
ætluðu ekki að ráða
mig áfram, þannig að
eitthvað hefur breyst á
þessum stutta tíma.
Stjórnin ræður þessu
auðvitað og ég ber höf-
uðið hátt þrátt fyrir
þetta. Ég er auðvitað svekktur að fá
ekki tækifæri til að verja alla titl-
ana sem við unnum í vetur. Ég óska
stelpunum góðs gengis næsta vetur
og þetta hefur verið skemmtilegur
timi - þetta eina tímabil ég var með
þær,“ sagði Henning.
Henning náði frábærum árangri
með KR í vetur og gerði liðið að ís-
lands- og bikarmeisturum ásamt því
að vinna Kjörísbikarinn. í kjölfarið
var Henning valinn þjálfari ársins í
kvennakörfunni. Henning segist
ekkert vera farinn að spá í hvað
hann muni gera næsta vetur.
-BG
Heiðmar
á leið til
Hameln
Mestar líkur eru á því að
Heiðmar Felixsson, landsliðs-
maður í handknattleik, sé á leið-
inni til þýska úrvalsdeildarliðs-
ins Hameln. Heiðmar hefur leik-
ið með Wuppertal sl. tvö ár en
liðið er þegar fallið í 2. deild og
flestir leikmenn þess á förum til
annara liða.
Hameln hefur gert Heiðmari
tilboð og mun hann svara liðinu
endanlega um helgina. 2. deildar
liðið Dússeldorf hefur einnig
verið á höttunum á eftir Heið-
mari en liðið er stórhuga fyrir
næsta tímabil og hefur þegar
keypt nokkra leikmenn.
Heiðmar hefur verið með
fleiri járn í eldinum en lið á ítal-
íu og á Spáni hafa verið á hött-
unum eftir honum.
„Ég bíð ekki lengi úr þessu og
tek ákvörðun um það um helg-
ina hvar ég ætla að leika næsta
vetur. í dag eru mestar líkur á
því að ég fari til Hameln," sagði
Heiðmar.
-JKS
Þórður ekki
áfram hjá Derby
Taldar er verulegar líkur á því
að Þórður Guðjónsson verði ekki
áfram í herbúðum enska liðsins
Derby County en þar er hann í
láni frá spænska liðinu Las
Palmas. Derby hafði forgangsrétt
á honum en tíminn þess er senn
að renna út. Talið er að þar ráði
miklu að enska félagið hafi ekki
úr miklu að moða í leikmanna-
kaup sem stendur.
Þórður Guðjónsson segir á
enska netmiðlinum Teamtalk í
gær að þrjú lið hafi áhuga á sér
og nefnir þar Tottenham og
þýsku liðin Hansa Rostock og
Werder Bremen. Verðmiðinn
sem settur er á Þórð er um 260
milljónir króna. Síðan hann kom
frá Las Palmas hefur hann leikið
átta leiki með Derby og komið
inn á í sjö þeirra sem varamað-
ur.
-JKS
Slakasti hringur
Birgis Leifs í ár
Birgir Leifur Hafþórsson náöi
sér ekki á strik á sínu öðru móti
í Challenge-mótaröðinni í golfi í
gær. Mótið fer fram í Sviss og
lék hann fyrsta hringinn á 78
höggum, sjö yfir pari. Þetta er
lakasti hringur Birgis Leifs í ár.
Möguleikar hans á að komast
í gegnum niðurskurðinn í kvöld
verða að teljast afar litlir. Það
stefnir því í að þetta verði annað
mótið í röð þar sem hann situr
eftir með sárt ennið.
-JKS