Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2001, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2001
Islandsglíman á morgun
Íslandsglíman, sú 91. í
röðinni, fer fram í
íþróttamiöstöðinni í
Grafarvogi á morgun,
laugardag, og hefst
klukkan 13. Sjö af sterk-
ustu glímumönnum
landsins mæta þar til
keppni og glíma um
Grettisbeltið glæsilega,
en það eru þeir Lárus
Kjartansson, HSK, Ólaf-
ur Oddur Sigurðsson,
HSK, Pétur Eyþórsson,
Vikverja, Ólafur Helgi
Kristjánsson, Víkverja,
Ingibergur Jón Sigurðs-
son, Víkverja, Arngeir
Friðriksson, HSÞ, og
Sigurður Nikulásson
Víkverja.
Búist er viö
spennandi keppni og
mun Ingibergur Jón
Sigurðson nú reyna að
vinna Grettisbeltið
sjötta árið í röð.
-JKS
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþj álfar i velur fyrsta landsliðshópinn:
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjáifari valdi fjóra nýliða í fyrsta
landsliðshópinn sinn til undirbúnings fyrir leikina gegn Hvít-Rússum.
- er nægur í íslenskum
Guðmundur Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, tilkynnti
í gær landsliðshóp sem skipa 25 leik-
menn til undirbúnings fyrir leikina
gegn Hvít-Rússum í forkeppni Evr-
ópumóts landsliða. Fyrri viðureign
þjóðanna fer fram í Minsk 3. júní og
sú síðari í Reykjavík viku síðar.
Fjórir nýliðar eru í fyrsta landsliðs-
hópnum sem Guðmundur velur. Þeir
eru Hörður Flóki Ólafsson, mark-
vörður KA, Þorvarður Tjörvi Ólafs-
son, Haukum, Snorri Guðjónsson,
Val, og Jónatan Magnússon, KA.
Uppistaðan í hópnum er kjarninn
frá heimsmeistaramótinu í Frakk-
landi. Héðinn Gilsson úr FH kemur
inn í hópinn eftir nokkurra ára fjar-
veru. Bjarki Sigurðsson, sem ekki
hefur leikið með landsliðinu í síð-
ustu tveimur stórkeppnum, gefur
kost á sér. Sigurður Bjamason, sem
leikur með þýska liðinu Wetzlar, er
kominn inn að nýju en hann var
ekki með liðinu á HM í Frakklandi.
„Ég sagði á blaðamannafundi þeg-
ar ég tók við liðinu að ég myndi
verða með í hópnum hverju sinni 2-3
kornunga leikmenn, leyfa þeim að
kynnast hvemig þetta gengur fyrir
sig og annað slíkt. Ég vel þá i liðið
sem ég tel vera sterkasta á hverjum
tíma, óháð aldri, og Héðinn Gilsson í
því sambandi hefur verið að leika
mjög vel í vetur og í úrslitakeppn-
inni með FH sýndi hann mikinn
styrk. Ég ætla að skoða hann ásamt
fleirum þessa daga sem við æfum í
mai fyrir leikina gegn Hvít-Rússum,“
sagði Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur sagði að þegar svona
lið væri valið spyrðu menn af hverju
þessi eða hinn væri ekki valinn og
það væri bara eðlilegt. Hann sagðist
vera viss um að hann væri með
frambærilegan hóp í höndunum.
Margir efnilegir strákar
bankaá dyrnar
„Mér fmnst vera að koma upp
margir gríðarlega efnilegir ungir
leikmenn. Ég tek inn í liðið Snorri
Guðjónsson, sem hefur raunar verið
leikstjómandi Valsliðið sl. tvö ár, við
hliðina á þaulreyndum leikmönnum.
Ég get einnig nefnt leikmenn sem ég
valdi ekki núna en segja má að séu í
dyragættinni. Það eru, svo einhverjir
séu nefndir, Markús Máni, Einar
Hólmgeirsson, Ásgeir Örn. Það er
rnikill efniðviður fyrir hendi og ég
mun fylgjast grannt með þessum
strákum ásamt mörgum öðrum þótt
tími þeirra komi eftir 6 mánuði, ár
eða tvö ár. Ef þeir halda áfram á
sömu braut munu þeir fyrr eða síðar
leika með íslenska landsliðinu. Ég á
kvölina þegar ég þarf að minnka
þennan hóp í kringum 20. maí niður
í 16-18 leikmenn," sagði Guðmund-
handbolta
ur.
Liðið byrjar að æfa 9. maí með
leikmönnum hér heima, auk Dags
Sigurðssonar sem leikur í Japan.
Leikmenn erlendis koma svo heim
21. maí og liðið heldur utan 28. maí
til vináttuleikja við Belga og Hollend-
inga áður en farið verður til Hvíta-
Rússlands.
Hópurinn sem Guðmundur valdi í
gær er þannig skipaður: Guðmundur
Hrafnkelsson, HSG Nordhom, Birkir
ívar Guðmundsson, Stjörnunni,
Reynir Reynisson, UMFA, Hörður
Flóki Ólafsson, KA. Guðjón Valur
Sigurðsson, KA, Bjarki Sigurðsson,
UMFA, Einar Örn Jónsson, Haukum,
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, Haukum.
Patrekur Jóhannesson, TUSE
Essen, Sigurður Bjarnason, Wetzlar,
Dagur Sigurðsson, Wakunaga, Ragn-
ar Óskarsson, Dunkerque, Ólafur
Stefánsson, SC Magdeburg, Aron
Kristjánsson, Skjern, Rúnar Sig-
tryggsson, Haukum, Gunnar Berg
Viktorsson, Fram.Heiðmar Felixson,
Wuppertal, Guðfmnur Kristmanns-
son, ÍBV, Héðinn Gilsson, FH, Hilm-
ar Þórlindsson, Gróttu/KR, Snorri
Guðjónsson.Val, Jónatan Magnús-
son, KA, Róbert Gunnarsson, Fram,
Róbert Sighvatsson, Bayer Dor-
magen, Sigfús Sigurðsson, Val.
-JKS
Áhorfendaaðstaðan á íslenskum knattspyrnuvöllum:
Stenst ekki kröfur UEFA
- Laugardalsvöllur enn þá eini löglegi völlurinn fyrir Evrópukeppni félagsliða
Fulltrúar frá valla- og öryggisnefnd Knattspyrnu-sambands
Evrópu, UEFA, hafa undanfarna daga skoðað keppnisvelli efstu-
deildarliðanna á suðvestur homi landsins og komist að þeirri nið-
urstöðu að enginn þeirra standist væntanlegar kröfur UEFA um
keppnisvelli í Evrópukeppni félagsliða. Að sögn Geirs Þorsteins-
sonar, framkvæmdastjóra KSÍ, er ástæðan fyrir því að þeir komu
hingað sú að nú stendur yfir úttekt á þessum málum hjá UEFA.
„Nokkur lönd eru valin úr á hverju ári og nú var komið að okkur.
Þar mun einhverju hafa ráðið að við höfum aðeins einn löglegan
völl fyrir Evrópukeppni félagsliða sem er Laugardalsvöllur og gæt-
um þvi lent í vandræðum ef leika þarf fleiri en tvo leiki í sömu um-
ferð. Það gat hugsanlega komið upp í fyrra þegar ÍBV og ÍA voru
með í keppninni og spuming hvort KR-ingar kæmust áfram. Það
kom þó ekki til þar sem KR-ingar duttu út og þvi var hægt að spila
hina tvo leikina á þriðjudegi og fimmtudegi. Nefndarmennirnir
hafa þess vegna viljað kanna ástandið hér til að sjá stöðuna með
eigin augum og voru þeir mjög ánægðir með allan aðbúnað á
völlunum ef frá er talin áhorfendaaðstaðan," sagði Geir.
Þeir sem voru hér á ferðinni voru Austurríkismaðurinn Alfred
Ludwig, varaformaður vallar- og öryggisnefndar UEFA, Hollend-
ingurinn Cees de Bruin, sem einnig á sæti i nefndinni, og Sviss-
lendingurinn Claudio Negroni, starfsmaður hennar, sem hefur að-
setur í aðstöðvum UEFA. Að sögn Geirs vill UEFA sjá stöðugar
framfarir í þessum málum og með auknum kröfum leggja meiri
áherslu á að fylgjast vel með þróun mála i öllum aðildarlöndum
UEFA. „Á næstunni stendur til að setja nýjar reglur sem kveða á
um það að öll lið sem taka þátt í Evrópukeppnum þurfi að fá svo-
kallað „Licence", eða þátttökuleyfi frá viðkomandi knattspymu-
sambandi og þau leyfi verði háð nýjum reglum UEFA
þar um. Þessar nýju reglur, sem kynntar verða í sum-
ar, gera ráð fyrir þvi að öll lið í efstu deild þurfi að
uppfylla ákveðin skilyrði, ekki aðeins hvað varðar
áhorfendaaðstöðu heldur líka rekstrar- og tæknilegs
eðlis.
Hvað varðar áhorfendaaðstöðuna þá er það ekki
enn þá ljóst hver reglan um lágmarks sætaíjölda verð-
ur, en ég gæti trúað að það yrði á bilinu tvö til þrjú
þúsund sæti og að það verði ófrávíkjanleg regla,
allavega hvað varðar stærri þjóðirnar. Ætlunin er að
þessar nýju reglur verði kynntar fyrir tímabilinu 2002
til 2003 og komi síðan til framkvæmda fljótlega eftir
það. Eftir það verði aðeins hægt að sæja um tíma-
bundnar undanþágur, en aðeins fyrir færri sæti en
engin stæði. Ekki verður um annað að ræða en föst
sæti og engar bráðabirgðalausnir leyfðar."
- Hvað er hugsanlegt að lágmarks sœtafjöldinn
verði hér á landi?
„Hingað til höfum við aðeins gert kröfu um 500
stæði og fyrst nú í sumar munu öll liðin í efstu deild
hafa náð því takmarki. Þarna er þvi um stórt stökk að
ræða ef miðað er við tvö til þrjú þúsund sæti, en mér
finnst raunhæft að okkar takmark verði 1000 sæti.
Það er ólíklegt að það gangi upp fyrir umræddan tíma
en þangað til munum við notast við okkar eina
löglega völl og vona það besta.“
-EK
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, fremstur á myndinni, ásamt
fulltrúum frá UEFA á fundi með íþróttafréttamönnum i Laugardal í gær.