Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Blaðsíða 14
14 _________ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 Skoðun I>V Spurning dagsins Ertu svekkt/ur yfir Evróvisjón? Einar Valur Bjarnason iðjuleysingi: Viö flöggum I hálfa stöng þetta áriö. Ég sem ætlaöi aö keppa næst. Ingvar Valgeirsson gítarleikari: Ég er gráti næst aö þessi stórkostlegi hópur var ekki metinn aö veröleikum. Jón Kjartan Ingólfsson hljómsveitarstjóri: Já, mér fannst viö eiga skiliö aö komast aöeins ofar. Stefán Örn Gunnlaugsson pródúser: Ég var aöallega svekktur yfir því aö Danir skyldu gefa okkur 2 stig, heföi viljaö enda bara meö 1. Björn Ingi Jónsson atvinnubílstjóri: Ekki ánægöur, heföi mátt vera betra. Leiöinlegt aö keppa ekki næst. hj i llt .. K jj|\* ■r b r m ft Stefán Guðnason nemi: Já, ég er svekktur, ömurlegt lag og ekki góöir flytjendur. Niðurfærsla grænmetisverðs - ætlar að reynast þrautin þyngri Gæöagrænmeti innlent og erlent En „burt meö hrokann og háu tollanna. Helga Kristjánsdóttir skrifar: Það ætlar ekki að ganga þrauta- laust að ná sigri í orrustunni við grænmetisverðið og koma því niður eitthvað í námunda við það sem ger- ist í nágrannalöndum okkar. Land- búnaðarráðherra hefur lofað að fella niður tollana gegn því að hefja ríkis- ekna rækt á grænmeti með öðrum hætti - beinum stuðningi við græn- metis- og blómabændur. En þá heyrist hljóð úr horni frá framleiðendum. Þeir þykjast færa rök fyrir því að framleiðslukostnaður á íslensku grænmeti sé mun meiri en annars staðar. - Og gæði hins ís- lenska grænmetis sé líka miklu meiri! Hverjir segja að gæði hins ís- lenska séu meiri, aðrir en framleið- endur sjálfir? Það skal alltaf vera hótað ein- hverju svona löguðu, t.d. að ef við kaupum erlent og ódýrara þá fáum við um leið verri vöru, minni gæði og eigum jafnvel á hættu að smitast við neyslu hennar. En hvað með alla Is- lendingana sem eru í sumarleyfi ut- „Þad skal alltaf vera hótað ein- hverju svona löguðu, t.d. að ef við kaupum erlent og ódýrara þá fáum við um leið verri vöru, minni gœði og eigum jafnvel á hœttu að smit- ast við neyslu hennar. “ anlands eða allt námsfólkið? Verður ekki allir sjúkir af mat á erlendri grund? Eigum við íslendingar ekki að láta af þessari sjálfumgleði gagnvart er- lendum matvörum? Það er miklu meira úrval af mat handan við hafið og meira að segja mun fjölbreyttari fisk- tegundir en hér. Við höfum engin efni á að greiða meira fyrir grænmeti eða aðrar vörur en aðrar þjóðir sem hafa þó mun meiri tekjur en við. - Burt með hrokann, burt með himinháa tolla af grænmeti og öðrum matvælum. Styöjum skólastjóra Húsaskóla - svar frá starfsfólki Húsaskóla Kennarar og starfsfólk Húsaskóla skrifar: Við, kennarar og starfsfólk í Húsa- skóla, viljum lýsa óánægju okkar með frétt sem birtist i DV þriðjudag- inn 8. maí sl. Þar er með órökstudd- um fullyrðingum vegið að skóla okk- ar og stjóm hans. Viljum við hér með leiðrétta nokkrar grófar missagnir sem fram koma í fréttinni. í fréttinni er talað um að kvörtun- um hafi rignt inn á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsing- um frá Fræðslumiðstöð eru kvartan- ir vegna skólastarfs í Húsaskóla í vet- ur ekki fleiri en gengur og gerist i öðrum skólum og örfáir aðilar sem standa að baki þeim kvörtunum. Skólastjóri er nafngreindur í frétt- inni og er augljóst að tilgangur henn- ar er að koma höggi á skólastjórann. Tekið skaí fram að það er ekki ein- göngu skólastjóri sem kemur að og ber ábyrgð á líðan nemanda. Foreldr- ar, kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk skólans vinnur dag- lega að málum er varða nemendur. í fréttinni kemur fram að fjöldi bama í hverfmu sækir aðra skóla. Samkvæmt tölum frá Fræðslumið- stöð sækja 97% bama í hverfmu Húsaskóla en meðaltalið í Reykjavik er að 95% barna sæki sinn hverfis- skóla. Við viljum einnig geta þess að af 512 nemendum skólans eru 21 nemandi búsettur utan hverfis en kýs að vera í Húsaskóla. I fréttinni kemur einnig fram að vegna „ástandsins" í skólanum hafi „Tekið skal fram að það er ekki eingöngu skólastjóri sem kemur að og ber ábyrgð á líðan nemanda. Foreldrar, kennarar, skóla- stjórnendur og annað starfsfólk skólans vinnur daglega að málum er varða nemendur. “ fengist samþykkt aukafjárveiting til skólans til þess að ráða starfsmann í yfirstjórn sem eingöngu fengist við agavandamál. Þetta er alrangt. Allir skólar í Reykjavik af þessari stærð fengu fjárveitingu til aukinnar stjórnunar og deila því þrír skóla- stjórnendur með sér verkum. í Húsa- skóla sinnir fulltrúi skólastjóra ýms- um málum, þ. á m. útgáfumálum, samskiptum heimUa og skóla og líð- an nemenda. Fréttaflutningur af þessu tagi veldur óbætanlegum skaða á starfi skólans og bitnar ekki aðeins á stjórnendum og starfsliði hans heldur nemendum einnig. Nemendur skólans hafa komið miður sín tU kennara og skólastjórn- enda vegna þessarar neikvæðu frétt- ar. Svona skrif brjóta niður skóla- starf og eru til þess eins fallin að stuðla að vanliðan nemenda. Skólastjórum og kennurum hefur borist bréf frá foreldraráði Húsa- skóla þar sem fram kemur ánægja með það mikla og góða starf sem þar fer fram. Kennarar og starfsfólk skólans lýsa yfir fuUum stuðningi við skóla- stjóra Húsaskóla og kannast ekki við þann vinnustað sem lýst er í frétt- inni. Við hins vegar fordæmum þau vinnubrögð sem höfð voru í frammi við birtingu þessarar fréttar. Það var hægðarleikur fyrir blaðamann DV að kanna sannleiksgUdi aðdróttana sem komu fram í fréttinni, t.d. með sím- tali við skólastjóra eða fræðslustjóra. Blaðamaður sýndi hins vegar litla tU- burði til þess enda gat hann þá átt von á að botninn dytti úr fréttinni. Athugasemd ritstj.: Fréttir af málefnum Húsaskóla hafa fjallað um fingurbrot nemanda við skólann og brottvikningu ensku- kennara í framhaldi af þvi, óánægju fjölmargra foreldra nemenda sem sett hafa hús sín á sölulista tU að komast i annað skólahverfl með börn sín og meint agaleysi í skólanum sem staðfest hefur verið af Fræðslustjór- anum í Reykjavík. Að DV hafi ekki haft fyrir því að ræða við fræðslustjóra og skólastjóra er rangt. - Viðtöl við þá báða hafa birst í blaðinu af þessu tUefni enda sjálfsagt. Ef kennarar og starfsfólk Húsaskóla er ánægt með ástandið í skólanum er það einfaldlega á önd- verðum meiði við starfsmenn Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og íjölda foreldra í hverfinu. Garri Engill, sýndu merki „Angel, show me a sign,“ öskraði Árni Mathiesen í sturtunni um sexleytið á laugardag- inn. Hann haföi aldrei sönglað þetta lag áður og það var ekki einungis júróvisjónstuðið sem hafði tendrað þennan texta í munni hans. Síðustu vik- ur hafði hann verið að velta því endalaust fyrir sér hvort það ætti að setja lög á þessa sjómenn eða ekki. Núna stóð hann í sturtunni og söng há- stöfum selfossku bænina um engilinn sem ætti að gefa merki. Boas.ls Klukkan sjö hafði Árni lokið við að þurrka sér og var kominn í júrógaUann. Hann hafði plantað sér niður fyrir framan sjónvarpið. Júróvisjón- kvöldið er eini tíminn sem sjálfstæðismenn eru Evrópusinnaðir, ólíkt framsóknarmönnum sem eru júrófön allt árið um kring. Árni haföi heyrt því fleygt að Halldór ætti söngvakeppnir frá ár- inu 1986 á teipi og spUaði þær gjaman í sumar- bústaðaferðum framsóknarforystunnar. Ámi fylgdist spenntur með Two Tricky á svið- inu; dansararnir voru eins og Backstreet Boys og söngvaramir sambland af Buttercup og Oasis: Boasis: Boas.is. Eftir íslenska atriðið komu ein- hverjir lúserar í röðum og tuggðu einhverja fá- dæma vitleysu framan í heiminn. „Þetta er eins og þama myndin, þarna myndin," sagði Árni við sjálfan sig og reyndi að rifja upp myndina sem gamla frænka hans hafði boðið honum á. Hann hafði reyndar þurft að borga hálfan miðann sinn því gamla konan sagði að hækkun ríkisstjórnar- innar tU sín dygði ekki fyrir nema einum og hálfum - og hún lét svo Árna borga. Sálin, já sálin Ámi gat ekki slitið hugann almennilega frá sjómönnunum. Hann hafði orðið fyrir dálitlum vonbrigðum með þá. Honum hafði alltaf fundist Grétar Mar svo krúttlegur áöur en hann varð ráðherra. Steini Páls hafði líka sannfært Áma um að þetta væri gott ráðuneyti og það eina sem hann þyrfti að hafa áhyggjur af væri að lyftan í ráðuneytinu bUaði. Það hafði ekki gerst en hins vegar höfðu aUir sjómennirnir verið leiðinlegir og vondir við hann. „Ja, nema Helgi Lax,“ sagði Ámi upphátt eins og hann væri að tala við sænsku plastklæddu stelpurnar. Árni hafði ætlaö að bjóða Helga í júrópartí en hann hafði veriö boðinn til Kristjáns R. og kunni ekki við að af- boða. „Angel, show me a sign,“ hélt áfram í kolli ráðherrans þar sem hann dottaði yfir keppninni. Og þá kom svarið. Og það kom frá hinni frönsku Natöshu St. Pier en lag hennar hét á ensku Only My Soul. „Já,“ hugsaði Ámi: „aðeins sál mina. Setjum lög á and- skotana." GcllTI Námsgetan ráði Helga Guðrún hringdi: í frétt í DV, þar sem málefni Húsa- skóla í Grafarvogi voru til umflöllun- ar, kom fram að skólastjóri í þeim ágæta skóla hefur lagt áherslu á að skipta nemendum í bekki eftir náms- getu. Ég tel að hér sé mjög réttUega stefnt að betra kerfi innan skól- anna en áður hefur tíðkast þar sem ekki er tekið tUlit tU hæfileika tU náms eða að áhugi ráöi nokkru um. Ég tel að niðurröðun í bekki eftir gamla kerfinu gangi, t.d. fyrstu tvo veturna en eftir það eigi að taka tUlit tU hæfileika og námsáhuga við niðurröðun i bekkina. Það hvetur þau til dáða og keppni um góðan námsárangur. íslenskar þulur Ingibjörg Halldórsdóttir hringdi: I lesendadálki DV sl. fimmtudag undir yfirskriftinni Ráfengur Kolsson var óskað eftir upplýsingum um þul- ur og annan fróðleik þar sem finna mætti m.a. mannanöfnin Refur Rá- fengsson, Ráfengur Kolsson, Kolur Skæringsson, Skæringur Brandsson, Brandur Brettingsson o.s.frv. Ég get upplýst að nöfn og fleiri koma fyrir í bókinni íslenskar þulur og þjóðkvæði sem Ólafur Davíðsson fræðimaður safnaði á sínum tíma. Ég á útgáfu bókarinnar frá 1898. Líklega hefur þetta verið endurútgeflð þannig að nú er bara að leita fyrir sér. Hugsanlega í bókabúðum eða þá í söfnunum. Dýr tæki í kyrrstöðu En er þörf á þeim? S j ómannas amn- ingar óþarfir Þórður Jónsson skrifar: Það er nú ljóst að hvorki ríkis- stjórn né sjávarútvegsráðherra munu leggja fram neinar tillögur til lausnar sjómannaverkfallinu enda vandséð að þær hreyfðu málinu. Ég tel fyrir mitt leyti að ekki sé þörf fyrir neina frek- ari sjómannasamninga, þeir sem gerðir hafa verið milli vélstjóra og út- vegsmanna eru áreiðanlega það lengsta sem gengið verður í þeim efn- um. En svo er á hitt að líta hvort nokkur ástæða sé tO að bregðast við sjómannaverkfallinu yfirleitt. Útgerð- in skuldar svo hundruðum milljarða króna skiptir. Og hvað er fengið með því að lengja í skuldasnörunni og koma togurum á sjó á ný? Smábáta- veiðar duga þjóðinni. Plast í metratali? Eiríkur Sigurðsson hringdi: Ég tek undir með Ragnari sem kvartaði undan því í DV að ekki væri lengur á boðstólum plast í metratali. Fyrir ekki löngu síðan gat maður keypt plast af mismunandi þykkt af rúllum í flestum byggingavöruversl- unum. Þetta þýddi að ekki þurfti að kaupa meira í einu en maður óskaði eftir. Nú er þetta allt selt í rúllum, mismunandi löngum, i fyrir fram pökkuðum pokum. Ástæðan hlýtur að vera sú að starfsfólki verslana þykir of mikið í lagt að skera niður plastið af rúllunum - eða hitt að framleið- anda þykir ekki nóg salan og vill koma út sem mestu plasti í hvert sinn sem neytandinn þar á þessari vöruteg- und að halda. Þetta er afturfór í þjón- ustu með þessa sérstöku vörutegund. Valgerður Selma Guðnadóttir skólastjóri Stefnir í rétta átt meö bekkja- rööunina. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.