Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001
47
tolwsa-. tclcni ssf visimnSa
Plaza.is opnar meö pomp og prakt:
Verslunarmið-
stöð á Netinu
Síðastliðinn
fimmtudag var
Plaza.is. opnuð.
Hér er um að
ræða nokkurs
konar verslun-
armiðstöð á Netinu og er þetta
samstarfsverkefni Tölvumiðstöðv-
ar Sparisjóðanna, SPH, S24, Sam-
skipa og Opinnar miðlunar.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Opinni miðlun, sem sér um viðhald
á Plaza, er vefurinn hannaður með
það að markmiði að auðvelt og
skemmtilegt sé að flakka um hann,
kíkja í búðir og tína vörur í körf-
una. Sameiginleg karfa fyrir allar
búðirnar gerir það að verkum að
hægt er að versla í mörgum búðum
í einu og fá einn pakka sendan
heim, sem aftur þýðir eitt sending-
argjald. Að lokum er greitt fyrir all-
ar vörurnar með einni greiðslu á
þægilegan og öruggan hátt.
Ein karfa fyrir allar verslanir
Á Plaza er hægt að staðgreiða
vörur, óháð því í hvaða banka við-
skiptavinur er, og er einnig hægt
að greiða með kreditkorti. Til að
tryggja öryggi neytenda virkar
kerflð þannig að þegar kaupandi
hefur sett þær vörur sem á að
kaupa í körfuna er farið í greiðslu-
Ragnheiöur Clausen, sem fór í fyrsta verslunarleiðangurinn á Plaza og
keypti sér nýjan GSM-síma, skoöar Plaza ásamt Pórarni Pórhallssyni, fram-
kvæmdastjóra Opinnar miölunar.
miðlun þar sem gengið er frá netbanka eða skuldfærslu á kredit-
greiðslunni með öruggum hætti. kort.
Hægt er að velja um staðgreiðslu í Þegar greiðslan hefur verið innt
Ef einhverjar vörur skiia
sér ekki i söfmtnirmi
bakfærír TS inn á mikn-
ing kaupanóa en greiöir
að öðrum kosti út til
viðkomandi versfunar
efiir að staðfesting á
afhendingu hefurkom-
ið frá Samskipum. Með
þvi móti þarf viðskipta-
vinurínn ekki að standa
sjáffur í neinum vand-
ræðum efhann fær
ekki vörur sem hann
hefurborgað fyrir.
af hendi og lögð inn á biðreikning
hjá S24 er pöntunin send til vöru-
hótels Samskipa sem sér um að
safna vörunum saman og pakka
þeim. Ef einhverjar vörur skila sér
ekki í söfnuninni bakfærir TS inn
á reikning kaupanda en greiðir að
öðrum kosti út til viðkomandi
verslunar eftir að staðfesting á af-
hendingu hefur komið frá Samskip-
um. Með því móti þarf viðskipta-
„verslunarferöum" sínum, borgar
eina greiöslu og fær einn pakka
sendan heim.
vinurinn ekki að standa sjálfur í
neinum vandræðum ef hann fær
ekki vörur sem hann hefur borgað
fyrir. Að lokum sér íslandspóstur
um heimsendingu á vörum og er
sama sendingargjald fyrir allt land-
ið.
Tölvumiðstöð Sparisjóðanna sér
um greiðslumiðlunina og allar pen-
ingafærslur og persónuupplýsingar
eru meðhöndlaðar með sama ör-
yggi og um hraðbanka eða net-
banka væri að ræða. Allar við-
kvæmar upplýsingar eru þannig
geymdar hjá TS og hefur söluaðili
engan aðgang þar að.
Fer á stafrænt sjónvarp
Þórarinn Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Opinnar miðlunar,
segir að nú þegar sé m.a. hægt að
kaupa bækur og tímarit, geisla-
diska, fatnað, matvöru, barnavör-
ur, snyrtivörur, síma og aukahluti
fyrir GSM, íslenskt handverk,
snyrtivörur, tölvur og tölvuvörur
svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að
færa Plaza-verslunina yfir á staf-
rænt sjónvarp. Þórarinn segir það
vera ætlunina að prófa það í sumar
og að Gagnvirk miðlun sjái um
rekstur þess kerfis.
Hallgrímur Kristinsson, yfirmað-
ur efnismála hjá Gagnvirkri miðl-
un, segir að ætlunin sé aö tengja
um eitt hundrað heimili seinni
partinn á þessu sumri til tilrauna.
Þar verður Plaza í boði ásamt
annarri þjónustu sem gagnvirkt
stafrænt sjónvarp getur boðið upp
á.
Góöar fréttir fyrir fótboltaiökendur:
Óhætt að skalla
- bæði fullorðna og börn
Samkvæmt rann-
sókn sem unnin
var við Norður-
Karólínuháskóla
í Bandaríkjunum
þurfa foreldrar
ekki að hafa
áhyggjur af því krakkar séu í hættu
að fá heilaskemmdir af því að skalla
fótbolta.
Fyrir um 40 árum komu upp
áhyggjur af því að fótboltamenn
væru í hættu að fá heilaskemmdir út
frá síendurteknum skallaboltum.
Þessar áhyggjur voru styrktar á ní-
unda áratugnum þegar norskir vis-
indamenn birtu rannsóknir sem
tengdu heilaskemmdir og það að
skalla fótbolta. Þetta hefur valdið
áhyggjum af þvi að börn séu einnig í
hættu ef þau spila fótbolta.
Samkvæmt athugunum dr. Don-
alds Kirkendalls, barnalæknis og að-
stoðarprófessors við áðurnefndan
háskóla, er hins vegar lítil hætta
áheilaskemmdum vegna kollspyrnu-
iðkunar. Hann segir að þegar krakk-
ar eigi í hlut þá komi það afar sjald-
an fyrir að þeir noti höfuðið í fót-
bolta. Þegar það komi hins vegar fyr-
ir þá sé hættan lítil þar sem krakkar
geti ekki sparkað nógu fast til að
valda einhverri hættu. Þar að auki
séu fótboltar nú orðnir mjög léttir
sem dregur einnig úr hættunni. Ekki
séu notaðir sömu leðurboltar og áður
Þegar fótboltamaöur skallar bolta er hann búinn aö spenna hálsvöövana og
notar allan líkamann sem dregur verulega úr hættu á óþarfa hristingi á heil-
ann.
sem áttu það til að verða mjög þung-
ir, sérstaklega þegar rigndi. Boltar
hrinda nú hins vegar frá sér vatni.
Kirkendall bendir einnig á að þegar
leikmaður skallar bolta þá spenni
hann hálsvöðvana og noti allan lík-
amann í kollspymuna.
Kirkendall viðurkenndi hins veg-
ar að höfuðmeiðsl væru möguleg í
fótbolta en það væri þá í langflestum
tilvikum ef menn fengju boltann í
höfuðið án þess að vera viðbúnir því,
Fyrir um 40 árum
komu upp áhyggjur af
þvi að fótboltamenn
væru í hættu með að
fá heilaskemmdir út
frá siendurteknum
skallaboltum. Þessar
áhyggjur voru styrktar
á níunda áratugnum
þegar norskir visinda-
menn birtu rannsóknir
sem tengdu heila-
skemmdir og það að
skalla fótbolta.
dyttu í jörðina, hlypu hver á annan,
spörkuðu hver í annan eða hlypu á
markstangir - nokkuð sem enginn
stefnir beint að með knattspyrnuiðk-
un.
5k keppnin haldin í annað sinn:
Klámsíðan Pixxx-
elchix vinnur
í seinustu viku
voru úrslit 5k
keppninnar
kynnt i annað
sinn en keppnin
var haldin í
fyrsta skiptið I fyrra. Markmið
keppninnar er að fólk geti búið til
sem léttastar en um leið skemmti-
legar heimasíður og verða þær að
vera um 5 kílóbæt að stærð.
Sigurvegarinn að þessu sinni var
klámsíðan Pixxxelchix. Þar gefur
að líta lítið úrval af allsberum kon-
um og körlum sem teiknað hefur
verið í afar grófri tölvugrafík og allt
í aðeins 5 kílóbætum. ! 5k keppn-
inni er keppt í tveim yfirflokkum
þar sem i öðrum má nota hvaða for-
ritun sem er en í hinum má aðeins
nota html forritunarmál.
Heilinn á bak við 5k keppnina er
vefarinn Stewart Butterfíeld og seg-
ir hann að hugmyndin hafi verið sú
að vekja fólk til umhugsunar um
vefsiðugerð. Butterfield segir að vef-
arar gleymi því oft að stór hluti
fólks sé með lélega nettengingu.
Þetta þýði aö þeir hrúgi oft hlutum
til að gera síður flottar sem aftur á
móti veldur því að margir þurfi að
bíða í óratíma eftir að hlaða síðunni
niður.
Að þessu sinni tóku um 1200
manns þátt í keppninni sem er mik-
il fjölgun frá fyrstu keppni og var
keppt um aðalverðlaun upp á 50
dollara, ca 5000 ísl. kr. Auk þess
voru fleiri minni verðlaun. Hægt er
að skoða þær síður sem fengu
viðurkenningar í keppninni á
www.the5k.org.
Á Pixxxelchix er meöal annars aö finna hart klám í grófri upplausn.