Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2001, Side 8
26
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001
Sport
i>v
Ekki síðra lið
- segir Magnús Pálsson, þjálfari KR
íslandsmeistari: (4) 1993, 1997-1999.
Bikarmeistari: (1)1999.
Flest mörk á tímabili: 76 (2000)
Fæst mörk á sig á tímabili: 5 (1999)
Leikjahæst: Guörún Jóna
Kristjánsdótitr, 177.
Markahæst: Helena Ólafsdóttir, 140.
Markahæst á tímabili: Olga Færseth,
2000, 26 mörk.
„Við höfum misst nokkra lykil-
leikmenn en á móti höfum við feng-
ið aðra góða i staðinn og þá hafa
nokkrar ungar stelpur fengið að
spreyta sig í vorleikjunum og stað-
ið sig vel,“ sagði Magnús Pálsson,
þjálfari KR við DV-Sport.
„í raun tel ég að við séum ekki
með neitt síðra lið en í fyrra. Það er
nýkominn til liðsins bandariskur
markvörður sem lofar góðu og ég
sé enga ástæðu til annars en að
vera bjartsýnn varðandi gengi liðs-
ins i sumar. Ég held að við og
Breiðablik verðum í toppbarátt-
unni líkt og undanfarin ár þrátt
fyrir að mæta með nokkuð breytt
lið til leiks og eins tel ég að Valur
verði með í þeirri baráttu af krafti
og þá eiga Stjarnan og ÍBV eflaust
eftir að bíta vel frá sér. FH liðið er
spurningarmerki því ef útlending-
arnir þeirra verða sterkir þá er lið-
ið til alls víst og ég reikna í heild-
ina séð með talsvert jafnara móti
en í fyrra og fleiri hörkuleikjum.
Það verður síðan athyglisvert að
sjá hvað gerist í ágúst þegar marg-
ir leikmenn þurfa að yfirgefa lið
sín vegna náms í útlöndum; það
gæti jafnvel ráðið úrslitum verði
mótið jafnt,“ sagði Magnús Páls-
son, þjálfari KR.
Magnús Pálsson þjálfar lið KR
annað árið í röð, hans fyrstu ár
með úrvalsdeildarlið kvenna.
Guörún
Gunnarsdóttlr,
varnarmaöur, 19 ára,
175 cm, 55/2.
Hrefna Huld
Jóhannesdóttir,
miöjumaöur, 20 ára,
168 cm, 70/33.
Elín Jóna
Þorsteinsdóttir,
varnarmaöur, 20 ára,
169 cm, 43/2.
Þórunn Helga
Jónsdóttir,
miöjumaöur, 16 ára,
168 cm, 0/0.
Ólína K.
Sigurgeirsdóttir,
varnarmaður, 17 ára,
170 cm, 0/0.
Embla Sigríður
Grétarsdóttir,
sóknarmaöur, 19 ára,
167 cm, 33/5.
Hólmfríöur
Magnúsdóttir,
miöjumaöur, 16 ára,
171 cm, 4/1.
Anna Berglind
Jónsdóttir,
sóknarmaður, 17 ára,
163,4/0.
Leikir KR í sumar
24/5 Stjarnan Ú 17.00
30/5 Breiðablik Ú 20.00
4/6 Þór/KA/KS H 14.00
12/6 FH Ú 20.00
20/6 Valur H 20.00
26/6 ÍBV Ú 20.00
3/7 Grindavík H 20.00
9/7 Stjarnan H 20.00
20/7 Breiðablik H 20.00
9/8 Þór/KA/KS Ú 19.00
13/8 FH H 19.00
21/8 Valur Ú 18.00
28/8 ÍBV H 18.00
2/9 Grindavík Ú 14.00
Guörún Jóna
Kristjánsdóttir,
miöjumaöur, 28 ára,
162 cm, 177/78.
Helena Ólafsdóttir, Ásdís Þorgilsdóttir,
sóknarmaöur, 31 árs, varnarmaöur, 26 ára,
169 cm, 179/149. 160 cm, 110/19.
Komnar og farnar
Nýir leikmenn:
Hrefna Huld Jóhannesdóttir frá
Breiðabliki.
Beth Manghi frá
Bandaríkjunum.
KR í titilbaráttunni
„Ég spái KR-stúlkum öðru sætinu eftir haröa
keppni gegn Breiðabliki. Líkt og með Breiðablik
þá hefur KR misst marga sterka leikmenn sem
er mikil blóðtaka.
Það þyrfti þó ekki að breytast. mikið til að
þessi spá mín rættist ekki,“ segir Vanda Sigur-
geirsdóttir um KR-liðið í sumar.
„Ég tel að það skipti miklu máli fyrir KR-lið-
iö aö lykilmenn þess sleppi við meiðsli í sumar.
Þar get ég sérstaklega nefnt leikmenn á borð við
Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur, Eddu Garðars-
dóttur og Guðrúnu Gunnarsdóttur. Ef að þessir
leikmenn verða heilir megnið af keppnistíma-
bilinu verður KR-liðið mjög sterkt og þá fýkur
þessi spá ef til vill út í veður og vind.
Það hefur kannski ekki verið alveg að marka
úrslitin hjá KR í vorleikjunum. Það hefur verið
nokkuð um meiðsli það sem af er.
í KR-liðinu er mikið af ungum og mjög efni-
legum stelpum og líkt og í Kópavoginum er
mjög vel staðið að málum hvað varðar
kvennaknattspymuna.
Annars held ég að íslandsmótið veröi mjög
spennandi og skemmtilegt í sumar.
Og líklega hefur aldrei verið jafn erfitt að spá
fyrir um röð liöanna. Hjá mörgum liðum eru
margir erlendir leikmenn og gengi viðkomandi
liða ræöst mikið af frammistöðu þeirra," sagði
Vanda Sigurgeirsdóttir.
Spá Vöndu:
2. sæti.
Að auki í
hópnum
hjá KR:
Anna Lovísa Þórsdóttir,
23 ára sóknarmaður.
Tinna Hauksdóttir, 17
ára varnarmaður.
Brynja Guðmundsdóttir,
18 ára markvörður.
Tinna Rúnarsdóttir, 18
ára varnarmaður.