Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2001, Side 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ2001
Sjómannadagurinn:
Stjórnmálamenn
fá það óþvegið
Fjóla Sigurðardóttir, sjómannskona
úr Reykjavík, lét stjórnvöld hafa það
óþvegið í aðalræðu sjómannadagsins i
- > Reykjavík í gær. Gagnstætt hefðinni
talaði enginn stjómmálamaður á há-
tíð sjómanna en kona kom í þeirra
stað og sannarlega sópaði af Fjólu sem
er skipstjórafrú úr Breiðholtinu.
Guðmundur Hallvarðsson, alþingis-
maður og formaður Sjómannadags-
ráðs, varð undir þegar ákveðið var
hver yrði ræðumaður dagsins. Hann
vildi vera trúr hefðinni og fá ræðu-
mann úr kerfmu til að ávarpa sjó-
menn. Var formaðurinn ekki svekkt-
ur að fá ekki til dæmis sjávarútvegs-
ráðherrann, flokksbróður sinn og vin,
til að ávarpa sjómenn? „Ég segi því
miður, þetta var andstætt því sem ég
vildi að yrði gert. Alveg frá 1938 hefur
fulltrúi ríkisstjórnarinnar flutt ávarp.
ú*- Ég varð undir í þessu máli, það er
rétt. Dagurinn var hins mjög vel
heppnaður,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að Fjólu hefði mælst vel og eins
Guðrúnu Pétursdóttur. -JBP
Þroskaþjálfar:
Nýtt tilboð í
burðarliðnum
Samninganefnd Þroskaþjálfafé-
lags íslands mun leggja fram nýtt
tilboð í kjaradeilu sinni við Reykja-
•^ vikurborg á fundi hjá ríkissátta-
semjara sem haldinn verður á
morgun. Sólveig Steinsson, formað-
ur félagsins, sagðist í viðtali við DV
í gærkvöld ekki geta tjáð sig um
hvort yrði um miklar tilslakanir á
kröfum að ræða í því tilboði, unnið
yrði að gerð þess i dag. Að sögn
Sólveigar var sáttafundur hjá
ríkissáttasemjara í gær árangurs-
laus. Þroskaþjálfar felldu sem kunn-
ugt er kjarasamning við launanefnd
sveitarfélaga með 71,4 prósentum at-
kvæða gegn 28,6.
Þá hafa þroskaþjálfar hjá ríki og
séreignarstofnunum greitt atkvæði
um heimild til verkfallsboðunar.
Niðurstöður úr þeirri atkvæða-
, greiðslu liggja fyrir í kvöld. Þroska-
þjálfar höfðu áður samþykkt verk-
fallsboðun en félagsdómur úrskurð-
aði hana ógilda vegna formgalla.
-JSS
s
Isafjörður:
Drengir stálu
og veltu bíl
Tveir drengir, fimmtán og sextán
ára, veltu bifreið í Dýrafirðinum á
laugardagsmorgun. Annar þeirra
skarst illa í andliti en hinn meiddist
minna. Þeir voru undir áhrifum
áfengis og höfðu tekið bifreiðina
ófrjálsri hendi á ísafirði. Mildi verð-
ur að teljast að ekki urðu frekari
slys af uppátæki þeirra. -Gun
Mannfjöldi við Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var haldinn hátíölegur um allt land í gær. Á innfelldu myndinni má sjá Fjólu Siguröardóttur,
sjómannskonu úr Breiðholti, en hún hélt hátíðarræðuna í Reykjavík, fyrst kvenna.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins í rekstrarkreppu:
Reiðarslag
- segir forstöðumaður hennar um yfirvofandi samdrátt
Fyrirmæli félagsmálaráðuneytis til
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkis-
ins um endurskoðun rekstraráætlana
stöðvarinnar til að eyða 4 milljóna
króna rekstrarhalla munu verða þess
valdandi að mjög dregur úr þjónustu
hennar ef svo fer sem nú horfir. Hlut-
verk stöðvarinnar er að greina fótluð
börn og ungmenni og gefa leiðbeining-
ar um hvað hægt sé að gera til að
milda fötlunina þannig að viðkom-
andi einstaklingar nái sem mestri lífs-
fyllingu og sjálfstæði í þjóðfélaginu á
fullorðinsárum. Á ári hverju hefur
stöðin afskipti af rúmlega 500 börnum
og ungmennum. Um 200 börnum hef-
ur beinlínis verið vísað til hennar á
ári sl. tvö ár. Um er að ræða langvinn
vandamál þannig að sum börnin
þurfa að koma oft.
Greiningar- og ráðgjafarstöðin hef-
ur verið rekin með halla undanfarin
ár. í fyrra var hann minnkaður með
aukafjárveitingum. Nú vantar fjórar
milljónir til að hægt sé aðhalda
óbreyttum rekstri út þetta ár.
Forráðamenn stöðvarinnar hafa
gert félagsmálaráðuneytinu grein fyr-
ir hallanum nú. Svar barst nýlega frá
Niöurskuröur
Greiningar- og ráðgjafarstöðin hefur
verið rekin með halla undanfarin ár.
ráðuneytinu sem gefur fyrirmæli um
að endurskoða rekstraráætlanir til að
eyða hallanum.
Að sögn Stefáns Hreiðarssonar, for-
stöðumanns Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins, glímir stöðin einnig
við þann vanda að launaskrið hefur
orðið hjá fagfólki sem er með sam-
bærilega menntun og starfsfólk henn-
ar. Margt af starfsfólki stöðvarinnar
hefur 20-30 prósenta lægri laun held-
ur en sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, sál-
fræðingar og talmeinafræðingar fá á
öðrum stofnunum. T.d. hefur stöðin
leitað að talmeinafræðingi undanfarin
tvö ár. Þeir sem hefur verið leitað hóf-
anna hjá hafa getað fengið um 40.000
krónum meira annars staðar en
Greiningar- og ráðgjafarstöðin hefur
getað boðið.
„Ef við eigum að spara 4-5 milljón-
ir það sem eftir er ársins þýðir það á
mannamáli fækkun starfsfólks og nið-
urskurð á þjónustu. Ég heyri að
starfsfólkið er farið að líta í kringum
sig og það er mjög stutt í að einhverj-
ir hætti,“ sagði Stefán. „Þetta eru sér-
hæfð störf og það er erfitt að hugsa til
þess að missa okkar sérhæfða starfs-
fólk út. En ef við fáum ekki úrlausn á
næstu vikum stefnir i þessar afleið-
ingar. Það yrði afskaplega sárt og
kæmi niður á mörgum ef við þyrftum
að skera niður starfsemina. Við erum
að þjóna ákaflega viðkvæmum hópi.
Það fellur oftast í okkar hlut að fylgja
fólki fyrstu skrefin, aðstoða það við að
vinna sig út úr þeim fregnum að barn-
ið þess sé fatlað og síðan að finna úr-
ræðin sem milda áhrifm til framtíðar.
Okkur sýnist að það yrði reiðarslag ef
draga þyrfti úr þjónustunni."
-JSS
Tugmilljóna virðisaukasvindl byggingaverktaka:
Ekki öll kurl komin til grafar
- segir yfirmaður efnahagsbrotadeildar
„Umfang máls-
ins er mikið og
ekki nærri öll
kurl komin til
grafar. Þessi
svikastarfsemi
hefur viðgengist
býsna lengi, alla
vega þrjú misseri,
ef ekki lengur.
Þarna er um að
ræða blöndu af
ýmsum brotum sem hafa það sem
markmið að komast undan greiðslu
skatta og allt að því að fá greiddan
út virðisaukaskatt ranglega," sagði
Jón H. Snorrason yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglustjór-
ans í samtali við DV í gærkvöld en
embættið vinnur að rannsókn
skattsvika, sem nema tugum millj-
óna, hjá byggingaverktökum. Á
fyrstu stigum er rætt um 70 milljón-
ir króna. Þrír menn sitja i gæslu-
varðhaldi vegna rannsóknarinnar
og böndin kunna að berast að fleiri.
Jón H. Snorrason segir að þær að-
ferðir sem notaðar voru séu ekki
nýjar af nálinni, sams konar mál
hefðu verið að koma upp allt frá
upphafl virðisaukaskattsins og er
Vatnsberamálið stærst slíkra mála.
„En þetta er óneitanlega umfangs-
mesta málið og hæst í fjárhæðum
hjá sama hópi. Þetta eru einstakl-
ingar sem unnið hafa í sínu nafni
eöa annarra," sagði Jón H. Snorra-
son. Hann kvaðst ekki gefa upp nöfn
hinna grunuðu.
„Rannsóknin er rétt að fara af
stað en gagnaöflun og rannsókn í
samvinnu við skattrannsóknar-
stjóra hófst fyrir nokkrum vikum,“
sagði Jón H. Snorrason. -JBP
Könnun DV:
Sérréttindi fyrir
smábátana
Samkvæmt skoðanakönun DV
vilja 81,8% kjósenda að smábátar
njóti sérréttinda til veiða við Island.
Þægilega á óvart
„Þetta kemur mér þægilega á óvart.
Stjórnvöld róa í aðra átta en þjóðin
vill,“ sagði Sverrir
Hermannsson, for-
maður Frjálslynda
flokksins. „Ríkis-
stjórnin ætlar að
draga smábátana
inn í braskið.
Þessi könnun full-
vissar mig um að
réttlætið muni sigra að lokum og að
braskkerflð verði lagt að velli.“
Engar fréttir
„Þetta er alveg sama niðurstaða og
kom út úr sambærilegri könnun og
Landssamband smábátaeigenda lét
gera. Ég minni á
að smábátasjó-
menn hafa sérrétt-
indi en nú með
breyttum forsend-
um frá því sem
verið hefur," sagði
Árni M.
Mathiesen, sem
sagðist ekki vilja túlka niðurstöður
könnunar DV á þann veg að stefna
hans hefði beðið afhroð. Hagur smá-
bátamanna væri áfram tryggður en
með öðrum hætti en verið hefði.
Stjórnvöld hlusti
„Ég lít á niðurstöðuna sem vott
þess að þjóðin vilji að við njótum for-
gangs í veiðum og
það er í samhljómi
við könnun sem
við gerðum sjálflr
í apríl. Ég skora á
stjórnvöld að
hlusta á þann ríka
vilja almennings
að tekið sé á mál-
um með þessum hætti,“ segir Arthur
Bogason, formaður Félags smábáta-
eigenda.
Misskilningur hjá þjóðinni
„Þessi afstaða byggist á miklum
misskilningi. Fólk heldur að trillu-
karlinn sé maðurinn með færið sem sé
að dorga. En í dag
er allt vélknúið og
maður á smábát er
með 3-4 vélar sem
draga fyrir hann
færið og hann þarf
ekkert annað en
taka fiskinn af
önglunum. Fólk er
ekki meðvitað um þá breytingu sem
orðið hefur. Hér eru stórútgerðir á
ferð og allt annar útvegur en fólk ætl-
ar að sé. Þessum aðilum hafa verið
færð endalaus sérréttindi sem er rangt
fyrirkomulag," segir Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ. -Gun/sbs
Verð frá
35.500 EVRÓ
Allar stærðir
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
^x-treME