Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Blaðsíða 1
15
i
K}artan Sturiuson, markvörður Fyíkis, reynir hér að koma f
veg fyrir að skot Atia Viðars B|ömsson.ar rati í mark Fylkis í
heimsókn fi&sins tíl FH t gærkvöid. Liðin skildu jöfn og sitja
því enn á toppi deildarinnar, Fylkir með þriggja stiga forystu
-#1 en FH á leík tif góða. DV-mynd E.ÓI.
.
Dani til ÍBV
Eyjamönnum hefur borist liðs-
styrkur í Símadeild karla. Daninn
Tommy Schram
hefur gengið til
liðs við fBV og
er hann orðinn
gjaldgengur í
liðið. Eyjamenn
fara á Skagann i
kvöld en leikur-
inn hefst kl. 19.
Tommy, sem
er 30 ára gamall
miðjumaður, er
184 cm hár, 80
kg og getur leik-
ið allar stöður á vellinum. Hann
kemur frá Herfölge en lék áður fyr-
ir Bröndby. -esá
Tommy Schram.
Ótrúlegt hjá
Ivanisevic
Kroatanum Goran Ivanisevic tókst í gær hió ómögulega. Hann sigraöi í ein-
liöaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis eftir langan og strangan úrslita-
leik við Ástralann Patrick Rafter. Leikurinn fór í 5 lotur og hann réðst ekki
fyrr en eftir 16 sett þegar Ivanisevic innsiglaöi sigur, 9-7. Fyrir mótið var
hann í 125. sæti á styrkleikaiista tennisleikara í heiminum og þurfti hann aö
vera einn fárra útvaldra sem fengu „wild card“ til þess að fá þátttökurétt. Og
er hann fyrstur slíkra þátttakenda sem vinnur mótið í meira en 100 ára sögu
þess. Á myndinni til hliðar fagnar hann titlinum ásamt föður sínum en
saman hafa þeir gengiö í gegnum súrt og sætt. Reuters
Copa America í útrýmingarhættu?
Stjörnurnar aftur til Evrópu
Eftir að hafa skipt um skoðun
þrisvar sinnum á einni viku er
áætlað að halda áifukeppni Suður-
Ameríku, Copa America, eins og
upphaflega var áætlað. Keppnin
hefst á morgun og er hún haldin í
Kólumbíu. Stjómarmenn liða í Evr-
ópu sem eiga leikmenn í keppninni
hafa kallað þá heim og verður
keppnin því að mestu „stórstjörnu-
laus“.
Argentína ekki meö og
Uruguay sendir varaliö
í gær varð keppnin fyrir enn einu
áfallinu þegar Uruguayar tilkynntu
að þeir ætluðu að senda varalið sitt
á keppnina. Aöeins einn leikmaður
sem var í sigurliði Uruguay á Bras-
ilíu í undankeppni HM á dögunum
verður með í Copa America.
Argentinumenn hefur dregið sitt
lið úr keppninni en þeir gætu skipt
um skoðun í dag. Fari svo að þeir
sendi lið til Kólumbíu verður það að-
eins varaliðið.
Elber og Pizzaro skipað að
koma til Þýskalands
Karl-Heinz Rumenigge, varafor-
seti Bayern Múnchen, hefur skipað
leikmönnum sínum, hinum brasil-
íska Elber og Claudio Pizarro frá
Perú, að koma aftur til Múnchen til
að heQa æfingar með liðinu.
Brasilískir fiölmiðlar greindu frá
því að Elber legði af stað til Þýska-
lands á laugardagskvöld frá Brasil-
iu og því virðist sem leikmenn ætli
að hlýta evrópskum yfirmönnum
sínum.
Næstum öll lönd keppninnar
verða án stjarnanna sinna, gestgjaf-
arnir meðtaldir. Með nýju fyrir-
komulagi á undankeppni HM í Suð-
ur-Ameríku, þar sem öll lönd spila
við hvert annað tvisvar, er greini-
legt að þjálfarar og leikmenn lands-
liðanna vilja eyða meira púðri í
undankeppnina en álfukeppnina.
Það er því ljóst að mótshaldarar
þurfa að endurskipuleggja keppn-
ina vilji þeir að hún verði í hæsta
gæðaflokki. -esá
Hamar fær liðsstyrk
Samkvæmt heimildum DV-Sport þá hefur Hamar
frá Hveragerði fengið liðsstyrk fyrir komandi leik-
tíð. Svavar Birgisson, sem leikið hefur með Tinda-
stóli, hefur ákveðið að leika með Hamri þar sem
hann er að flytja suður. Svavar er sterkur leikmað-
ur sem hefur nokkrum sinnum verið í landsliðshóp
en hefur ekki hingað til gefið kost á sér. Tímabilið
‘99-00 var Svavar valinn í úrvalslið deildarinnar en
minna fór fyrir honum sl. vetur með tilkomu Rúss-
ans Michail Antropov.
Þá hefur Kjartan Orri Sigurðsson, sem lék með
Val/Fjölni í vetur, einnig ákveðið að spila í Hvera-
gerói næsta vetur. Kjartan Orri var með rúm 7 stig
í leik með Val/Fjölni. Það er þvi Ijóst að Hvergerðingar ætla að koma sterk-
ir til leiks næsta vetur og ættu að hafa meiri breidd en áður.
Vangaveltur hafa verið um hvort Skarphéðinn Ingason sé á forum til ann-
ars liðs en Skarphéðinn mun að öllum líkindum leika áfram með Hamri.
-Ben
Zidane staöfestir
Knattspyrnumaðurinn snjalli,
Zinedine Zidane, hefur staðfest
félagsskiptin frá Juventus til
Real Madrid fyrir 6,8 milljarða
króna. Zidane skrifar undir 4
ára samning með klausu
um eitt ár til viðbótar ef
allt gengur vel.
Hann tilkynnti þetta
á heimasíðu sinni og
bætti um leið við:
„Það verður þó ekki
að fullu gengið frá
kaupunum fyrr en Real
fær staðfestingu frá
Juventus í formi
símbréfs."
Þó Florentino Perez hafi aðeins
gegnt stöðu forseta Real Madrid i
eitt ár hefur hann þegar uppfyllt tvö
helstu kosningaloforð sín sem áttu
mikinn þátt í að tryggja honum
stöðuna; að fá til sín Zidane og Luis
Figo hefur undanfarið ár borið
nafnbótina „dýrasti knattspyrnu-
maður heims". Zidane tekur við
henni þegar hann skrifar undir nýja
samninginn.
Zidane, sem er 29 ára gamall,
mun fá um 525 milljónir króna í árs-
laun, eftir skatta.
McManaman veröur áfram
Steve McManaman, leikmaður
Real Madrid, ætlar sér að vera
áfram hjá félaginu þó svo að nýir
leikmenn hafi verið keyptir.
„Eg er ánægður hér og ég held
að nýju leikmannakaupin muni
engin áhrif hafa á mig. Enginn
hefur verið keyptur í mína
stöðu og ég held
ég sé í
framtíðar-
áætlunum
liðsins.
Hver sem
er
myndi
vilja
vera í
liði sem
hefur að
geyma leik-
menn á borð við
Rául, Figo og Zi-
dane.“
Til þess að
fiármagna kaupin
á Zidane er talið að
Real þurfi að selja
nokkra leikmenn
Zidane er orð-
inn lang-
og dýrastur
hefur '.. *•
McManam-
an oft verið
nefndur í því
samhengi. Ensk
lið hafa í kjölfar-
ið sýnt honum áhuga, þar á
meðal Arsenal.
-esá