Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Síða 4
Jt
\
Helgi Jóhann-
esson með lax
sem hann
veiddi í
Fnjóská í
Fnjóskadal fyr-
ir nokkrum
dögum. Fiskur-
inn veiddist í
Skúlaskeiði og
tók tóbý spún.
DV-mynd B.
Hólm
Laugardalsá viö ísafjarðardjúp:
- á aðeins sex dögum fyrir vestan
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001
Veiðiskapurinn heldur áfram.
Veiðimenn eru að fá hann þó sums
staðar gangi rólega eins og í Vatns-
dalsá í Húnvatnssýslu þar sem aðeins
eru komnir 30 laxar á land, í Laxá í
Dölum líka en þar eru aðeins komn-
ir 33 laxar á land og það sama má
segja um Miðfjarðará í Húnavatns-
sýslu þar sem eru komnir um 90 lax-
ar.
Hofsá 1 Vopnafirði hefur heldur
ekki náð sér á strik og hafa veiðst fá-
ir laxar þar. Norðurá í Borgarfirði
hefur gefið flesta laxana, yfir 500,
Þverá í Borgarflrði er með 340 laxa,
Blanda og Ytri-Rangá koma næstar
með yfir 220 laxa hvor veiðiá.
„Það veiðast núna orðið 10-12 lax-
ar á dag í Miðfjarðará og veiðin hef-
ur aðeins lifnað við, áin hefur gefið á
milli 80 og 90 laxa núna,“ sagði Árni
Baldursson er við spurðum um stöð-
una.
„Veiðin hefur gengið ágætlega í
Brynjudalsá i Hvalfirði og það eru
komnir nokkrir laxar á land, laxinn
er komin upp í efri fossinn. Ég var að
tala við Þorkel í Ferjukoti og það
voru laxar að stökkva á Ferjukotseyr-
unum, enda aðalgöngutíminn þessa
dagana. Það er bara að fá laxinn til
stoppa og taka agnið,“ sagði Árni
ennfremur.
Veiðin byrjaði rólega í Laugar-
dalsá við ísaöarðardjúp en veiði-
menn sem voru þar fyrir nokkrum
dögum veiddu 31 lax á sex dögum og
6 þeirra laxa veiddust á stuttum tíma
á flugu upp við vatn. Töluvert af laxi
hefur verið að ganga í ána og líklega
eru komnir um 90 laxar á land úr
henni.
Gengur vel í Langá á Mýrum
„Við erum í sjöunda himni hérna
við Langá, við erum með þetta 25-30
laxa á dag og áin er komin yfir 250
laxa. Á sama tíma i fyrra vorum við
komnir með 70 laxa og fiskifræðing-
arnir spáðu slöppu sumri,“ sagði
Ingvi Hafn Jónsson við Langá á Mýr-
um.
„Stærsti laxinn er 15 punda en
veiðimenn hafa séð stærri fiska, lik-
lega kringum 20 pund en þeir hafa
ekki tekið ennþá. Sleppingarnar eru
greinilega að skila sér héma í Langá
og vatnið er gott í henni þó það kæmi
þurrkur lengi," sagði Ingvi Hafn enn-
fremur. G.Bender
í fluguveiöi
Mælum stangir,
splæsum línur
og setjum upp
aui
gir. I
lur Æji
Sportvörugerðin hf„
Skipholt 5. s. 562 8383.
Bæjarstjórinn á Ólafsfirði segir kröfur KSI kosta 75 milljónir króna:
Kröfur í skjóli KSI
Mannvirkjanefnd Knattspyrnu-
sambands íslands hafði samþykkt
að veita undanþágu fyrir leiki i 1.
deild karla til 15. júní sl„ en fram-
lengdi frestinn svo til 15. júlí nk.
Verði ekki orðið við kröfum mann-
_ , virkjanefndar KSÍ verða engir deild-
* arleikir í knattspymu á Ólafsflrði
eftir 15. júli nk. Síðasti leikurinn
yrði þá daginn áður, 14. júlí, en þá
taka heimamenn í Leiftri á móti ÍR.
Ásgeir Logi Ásgeirsson bæjarstjóri
segir að það kosti ekki undir 75
milljónum króna að byggja stúku
við grasvöll Ólafsflrðinga, og það sé
0^ einfaldlega of stór biti nú.
Eggert Magnússon, formaður KSl,
sem staddur er í Argentínu á úr-
slitakeppni HM u-21, segir að eitt
verði yfir alla að ganga, en það sé
algjört bull í bæjarstjóranum að það
kosti 75 milljónir króna að uppfylla
kröfur KSÍ. T.d. hafi Grindvikingar
byggt stúku fyrir 1500 áhorfendur
sem kosti um 70 milljónir króna,
eða um 45 þúsund krónur á hvert
sæti. Kostnaðurinn sé ekki nema 2
til 3 milljónir króna. Á sömu villi-
götum sé Steinunn Valdis Óskars-
dóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík,
þegar hún heldur því fram að KSÍ sé
að gera alls kyns kröfur sem kosti
milljónir króna.
„Númer eitt er það að félögin
samþykktu á ársþingi KSt fyrir 10
árum síðan þessa reglugerð sem
unnið hefur verið eftir, og þetta er
ekkert sem vondir karlar í mann-
virkjanefnd eða stjórn KSt eru að
búa til til þess að skapa mönnum
vanda. Það er fyrst og fremst verið
að gera umhverfi vallanna betra fyr-
ir áhorfendur, og það hefur sýnt sig
alls staðar í heiminum að þar sem
er betri aðstaða fyrir þá, koma fleiri
á völlinn. Til þess eru menn að
leika knattspymu og um leið eykur
það tekjur. Sum félög hafa kannski
verið að fara fram á miklu meira
við viðkomandi sveitarstjórnir í
þeirri von að þær uppfylli það, og
það er auðvitað hið besta mál. En
staðreyndir málsins verða hins veg-
ar að liggja á borðinu og þau eiga
ekki að skýla sér bak við KSÍ i því
máli. Það verða að vera í gangi
ákveðnar tímaáætlanir um aðgerðir
sem uppfylla lágmarkskröfur og það
hafa flest sveitarfélög verið að gera.
Þetta tengist alls ekki því að upp-
fylla kröfur um EES-staðla, enda
værum við í miklum vandræðum ef
við værum að bera okkur við lönd
sem eru í meiri atvinnumennsku en
á íslandi. Næsta skrefið er hins veg-
ar að uppfylla kröfur Evrópuknatt-
spyrnusambandsins um leyfi fyrir
félagið og keppnisvöllinn sem er
lágmarkskrafa til þátttöku í Evrópu-
keppni," segir Eggert Magnússon.
Lúðvík S. Georgsson, formaður
mannvirkjanefndar, segir að í efstu
deild séu málin orðin í lagi nema
það vanti girðingu í Vestmannaeyj-
um og í Grindavík þar sem sé kom-
in ný áhorfendastúka. í 1. deild eru
það norðlensku félögin Dalvik,
Tindastóll á Sauðárkróki, Ólafs-
fjörður og Siglufjörður en síðast-
nefnda félagið fái aðlögun þar sem
það hafi ekki leikið í efri deildum
undanfarin ár. Fyrir sunnan er það
Stjarnan en þar sem fyrir liggi að
ráðast þar í stúkubyggingu í haust
er það tekið gilt, liggi fyrir staðfest
yfirlýsing þar um. Verði félögin
ekki búin að uppfylla skilyrðin 15.
júlí kann það að leiða til heima-
leikjabanna, en endanleg afstaða
þar að lútandi verður ekki tekin
fyrr en nær dregur þeirri dagsetn-
ingu að sögn Lúðvíks S. Georgsson-
ar. Hann ítrekar að ekki sé verið að
fara fram á neinar stúkubyggingar,
heldur uppbyggð stæði fyrir 300
manns í þessari deild. Það sé fram-
kvæmd sem ekki eigi að kosta
meira en 2 til 3 milljónir króna, en
smáskammtalækningar verða ekki
samþykktar. -GG