Dagblaðið Vísir - DV

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúlí 2001næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    2930311234
    567891011

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001 DV Fréttir Mál Árna Johnsens í fjölmiðlum: Misskilningurinn reyndist hrein lygi - skriðan af stað með frétt í DV föstudaginn 13. Fátt hefur vakið jafn mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum á liðnum misserum en úttekt Árna Johnsens alþingismanns á byggingarvörum I eigin þágu í nafni Þjóðleikhússins. Allt þetta mál má rekja til fréttar í DV föstudaginn 13. júlí þar sem vökulir starfsmenn BYKO upplýstu um misferli þingmannsins með al- mannafé. Málið er talið háalvarlegt og full- yrt er að hvemig sem mál æxlist muni þetta hafa mikil áhrif í framtíð- inni. Siðferðisviðmið íslenskra stjómmálamanna verði litið öðrum augum en hingað til. Ferill málsins hefur verið þessi: Föstudagur 13. júlí Frétt í DV undir fyrirsögninni „Starfsmaður klagaði þingmann". í fréttinni er greint frá tveim pöntun- um á byggingarefni fyrir rúmlega milljón króna í BYKO. Pöntun á 2.500 metra af panil, auk þOullar, burðar- efnis, hefta og ýmislegs annars, gerð í nafni Þjóðleikhússins vegna leik- munageymslu. Geflnn er upp á seðl- inum GSM-sími Áma Johnsens, al- þingismanns og formanns byggingar- nefndar Þjóðleikhússins. Þá lýstu vitni því er Ámi breytti skráningu á sendingunni, sem stíluð var á Þjóð- leikhúsið Lindargötu 7, og skrifaði sjálfur Ámi Johnsen, Vestmannaeyj- Starfsmaður Byko klagaöi þingmann Föstudagsblað DV - bls. 6 um. Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu rikisins, segir að- spurður um ábyrgð í málinu að Ámi beri fulla'ábyrgð sem formaður bygg- ingamefndarinnar. „Við kvittum bara upp á þessa reikninga," segir Óskar. Árni segir í samtali við DV að um misskilning hafl verið að ræða sem hafi verið leiðréttur. Fréttin vakti mikla athygli og hlaut verulega umfjöllun i öllum ljósvakamiðlum það sem eftir lifði föstudagsins. Laugardagur 14. júlí Frétt var í DV undir fyrirsögninni „Óskar rannsóknar á byggingar- nefnd“. Gísli S. Einarsson segir á baksíðu DV að siðlaust sé að fjárlaga- nefndarmaður sitji beggja vegna borðs. í fréttinni kem- ur fram að Gísli hafi ákveðið að senda forseta Alþingis bréf þar sem hann fer fram á að Ríkisendurskoðun verði beð- in að fara yfír málefni bygg- ingarnefndar Þjóðleikhúss- ins. Júlíus S. Ólafsson, for- stjóri Ríkiskaupa, sagði að stofnunin hefði ekki með framkvæmdamál Þjóðleik- hússins að gera þar sem hók- haldi vegna framkvæmda byggingamefndar vegna breytinga á húsinu hefði ver- ið lokað fyrir mörgum árum. Mánudagsblaö DV samsett forsíöumynd Allir flöl- miðlar héldu áfram um- fjöllun á full- um dampi en athygli vakti þó að Morgunblað- ið birti að- eins skýring- ar Áma á málinu í eins dálks Laugardagsblaö frétt á síðu Morgunblaöslns. 10 þar held. 14■ ur Ámi sig við þá skýr- ingu að um mistök hafi verið að ræða. óðalssteinn hafi verið tekinn út hjá BM-Vallá hafl hann verið að hlaða slíkum steinum í garði sínum að Rituhólum 5 í Reykjavík, eins og kom fram í frétt í DV 28. maí. Þegar kom fram á mánudagsmorg- uninn greindu ljósvakamiðlar frá því að Ámi hefði viðurkennt að hafa sagt ósatt. Óðalskantsteinamir sem hann sagði í geymslu úti í bæ væru í raun á lóð hans að Rituhólum 5. Harm seg- ir af sér sem formaður byggingar- nefhdar Þjóðleikhússins en neitar að þörf sé að segja af sér þingmennsku og heldur til bústaðar síns í Vest- mannaeyjum. Davíð Oddsson heldur blaða- mannafund siðdegis þennan dag og segist sjálfur myndi segja af sér þing- mennsku í þessari stöðu. Mistök seT voru leið-, rétt um leic ÁRNI Johnsea alþutgisinaður KegirW að mistúk hafl átt sér atað via meiÁ- ’ ingar á löntun, sera hann hafi f eigin nafni hjá B>-ko, en pöutunm var inerki l^óðkakhúainu þcgar iuum kom að sa>kja hana. GótK S. Kinarsaon, þingmaðiir ’ Samfyllóngarírtnar, fiifnli í aamtali vid Morgunblaðið í garkvöldi, að hann , hygðiat twka t-fúr oljómsysluúitekt i bygginganeftitl Þjóðieikhúasins^ Sagðist hami u.*|ja öcðlilegt að sam^ maður, Ánii Johnsen. weti kcði i (jár- laganefiKÍAljjingisof'byapnganffml i Itjoðlcskhúíwins, en ajálfur i GkIí weti í Qirl»gan«ifn<l. Sagt v»r frá jr.í ÍDVid gsrr Að i\rni Johnaen hefði tekið j byggingarefni út i Byko f nafni Þjóð- 4 leikhússins fyrir ú aðra mitljðn króna ■' ‘ V'A ‘ Sunnudagur 15. júlí Ríkisútvarpið greinir frá úttekt Áma á óðals- kantsteinum í nafni Þjóðleik- hússins. Hvorki þjóð- leikhússtjóri SiÓNVARPIÐ ne husvorður könnuðust við að steinasendingin hafi skilað sér þangað. Ámi lýsir þvi að steinamir hafi átt að fara í endurbætur á tröpp- um við austurhlið Þjóðleikhússins. Hann gat ekki gert grein fyrir hvar steinamir vom niðurkomnir, þeir væm í geymslu úti í bæ. Stöð 2 fjall- ar líka itarlega um þetta mál í kvöld- fréttum en lítillega er fjallað um mál- ið aftarlega í sunnu- dagsútgáfu Morgun- blaðsins. Undir mið- nætti greindi RÚV frá því að Ámi hefði sjáifur inn- heimt skilagjald af sekkjum undan óðalskantsteinum hjá BM-Vallá. Mánudagur 16. júlí „Grábölvaö," segir Ámi Johnsen á forsíðu DV. í baksíðufrétt segist hann vonast til að þurfa ekki að segja af sér þingmennsku en heldur sig við þá skýringu að aðeins hafi verið um leiðinleg mistök að ræða varðandi efniskaup í BYKO. í frétt á siðu 6 í DV segir: „Menntamálaráðuneytið leyföi uppáskrift". Þar er rætt við Óskar Valdimarsson, framkvæmda- stjóra Framkvæmdasýslu ríkisins, vegna umdeildra uppáskrifta Áma Johnsens. „Þetta er gert í samráði við menntamálaráðuneytið sem sam- þykkti að Árni skrifaði upp á,“ segir Óskar. Um kaup á óðalskansteinum segir Ámi á sömu síðu: „Þetta er vin- sæll steinn“. Þetta segir hann að- spurður um hvort það sé ekki ein- kennileg tilviljun að stuttu eftir að Þriðjudagur 17. júlí Forsíða DV: „Ámi íhugar afsögn". Á baksíðu segist Ámi íhuga orð for- sætisráðherra um að segja af sér þingmennsku. „Ámi tók út efni i tvígang" segir í annarri fyrirsögn á baksíðu. Þar upplýsir BYKO um út- tektir Áma i nafni Þjóðleikhússins sem framkvæmdastjóri BYKO hafði þó áður sagt að hafi verið mistök. Fram kemur að starfsmenn Byko hafi látið Þjóðleikhúsið vita um þess- ar úttektir Áma. Fram kemur í blað- inu að fjölmargar upplýsingar hafi komið um frekari viðskipti Árna Johnsens. Staðfestir Ámi sjálfur frétt Þriöjudagsblaö DV - forsíöa á baksíðu um að þakrennur, sem pantaðar voru í nafni Þjóðleikhúss- ins í síðustu viku, hafi upphaflega verið inni í sinni pöntun. Pöntunin var afturkölluð. I frétt á bls. 2 í DV segist Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra ekki vita hver hafi gefið Áma prókúm fyrir byggingamefnd Þjóðleikhússins. Ámi Johnsen biðst afsökunar á mistökunum í Morgunblaðinu. -HKr. Ef The Way Of f he Gun er ekki inni bá færðu hana FRÍTT næst hegar hú kemur. BÓNUSVIDE0 R0FABÆ 9 MÁVAHIÍ0 25 ÁNANAUST 15 GRUNDARSTI0 12 GRiNSÁSVEGI 40 LÆKIARGÖTU 2, HAFN. BREKKUHÚS11 MJÓDD L0UH0LUM 2 NÝBÝLAVEG116 ENGIHIALLA 8 ÞVERHOLTI 2, M0SF. UNDIRHLÍD 2, AKUR. LAUGALÆK6 SMIÐSBÚÐ 4, GARÐABÆ KLEPPSVEG1150 Laugardagsblaö DV - baksíöa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað: 163. tölublað (18.07.2001)
https://timarit.is/issue/200427

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

163. tölublað (18.07.2001)

Aðgerðir: