Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2001, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001
DV
Utlönd
11
Evrusinni og harölínu-
íhald eftir í boði
Þvert ofan í allar spár 1 upphafl
útsláttarkosninga til leiðtoga íhalds-
flokksins breska varð Michael
Portillo að játa sig sigraðan í næst-
seinustu umferðinni. Nú býðst al-
mennum félögum flokksins að kjósa
á milli harðlínuihaldsmannsins
Iains Duncans Smith og Evrusinn-
ans Kenneths Clarke.
Portillo var fyrir upphaf fyrstu
umferðar kosninganna talinn sigur-
stranglegastur þar sem hann stend-
ur fyrir vinstrisinnaðri viðhorf inn-
an íhaldsflokksins án þess að að-
hyllast óhefta Evrópuaðild.
Kenneth Clarke hlaut flest at-
kvæði í atkvæðagreiðslunni í gær
eða 59. Smith fékk 54 og Portillo 53.
Clarke mun ekki tilkynna meginá-
herslur sínar fyrir seinustu umferð
kosninganna fyrr en seinna í dag.
Hann er hins vegar yfirlýstur stuðn-
ingsmaður þess að Bretland taki
þátt í myntbandalagi Evrópu og taki
upp Evruna. í öðrum málefnum er
Jacques Chirac
Dómarar í máli hans segja friöhelgi for-
setans meina þeim aö yfírheyra hann.
Chirac verður
ekki yfirheyrður
Dómarar í spillingarmáli Jacques
Chiracs Frakklandsforseta hafa
ákveðiö að þeir hafi ekki leyfi til að
kalla hann til yfirheyrslu. Þetta er
sigur fyrir Chirac, sem hefur ítrek-
að lýst því yfir síðustu mánuði að
hann sé þjóðarleiðtogi og því frið-
helgur fyrir yfirheyrslum. Dómar-
arnir höfðu vonast til þess að fá
skýringar hjá forsetanum um hvar
hann fékk reiðufé upp á meira en 3
milljónir króna til að greiöa fyrir
lúxusferðir i borgarstjóratíð hans í
París.
Ekki er þó öll von úti fyrir dóm-
arana, því dóttir Chiracs hefur ver-
ið yfirheyrð, enda er hún ekki
vernduð af friðhelgi. Einnig hefur
verið ýjað að því aö eiginkonan
muni sitja fyrir svörum á næstunni.
Chirac er ævareiður yfir því að fjöl-
skylda hans skuli vera yfirheyrð.
Svíþjóð:
Barn reynir
að skera af
sér eyrun
Emil Nilsson, 5 ára sænskur
gutti, fékk nóg af allri stríðninni
sem hann mátti þola vegna út-
stæðra eyrna sinn og reyndi að
skera þau sjálfur af, að sögn vefmið-
ils Aftonbladet.
Foreldrum Emils var sagt að að-
gerð á eyrum drengsins fengist
borguð af félagslega kerfinu. Það
hefur hins vegar komið upp úr kaf-
inu að slíkir styrkir fáist ekki leng-
ur. Móðir drengsins veit ekki sitt
rjúkandi ráö þar sem hún telur að
Emil takist ætlunarverk sitt einn
daginn. Hann mun hafa reynt þó
nokkrum sinnum.
Clarke mun nær meginstefnu
íhaldsflokksins. Evrustefna Clarkes
gæti komið honum í koll. Eindregin
afstaða flokks hans gegn henni í
seinustu kosningum er hins vegar
talin vera ein af ástæðum fyrir stór-
tapi hans.
Innkoma Iains Duncans Smith í
kosningabaráttuna var skyndileg en
fljótt safnaðist þó nokkur stuðningur
í kringum hann. Smith er eindreginn
andstæðingur Evrópusamstarfs.
Hann hallast frekar til samstarfs við
Bandarikin og styður m.a. eldflauga-
vamarkerfi rikisstjórnar Bush. Þvert
ofan á skoðun flestra um að íhalds-
flokkurinn eigi að líta sér til vinstri í
stjórnmálum til að nálgast fólk þá lét
Smith hafa eftir sér í gær að hann
ætlaði að laða fram hinn „innri
íhaldsmann“ í fólki með hefðbund-
inni ihaldsstefnu.
Kenneth Clarke Portillo lýsti því yflr eftir ósigur-
Tilkynnir í dag megináherslur sínar fyrir lokaumferö leiötogakosninga íhalds- inn að hann hygðist draga sig út úr
flokksins þegar 330.000 félagar flokksins fá loks aö segja sitt álit. stjómmálum.
Hundur og maöur á brimbretti
Perúski brimbrettakappinn Domingo Pianezzi á sér djarfan félaga á brettinu. Hundur hans af boxarakyni nýtur stööug-
leika fjögurra fóta og ríður öldum af einstakri djörfung. Saga þeirra félaga er hjartnæm. Áöur en rakkinn hitti tvífætt-
ann vin sinn ráfaöi hann heimilislaus og hungraöur og lúsugur um göturnar. Hann var í upphafi vatnshræddur en Pi-
anezzi setti hann á brimbretti sem bundiö var á milli tveggja báta og lét hann dveljast þar í nokkra tíma. Þaö vandist.
FBI týnir tölvum
og skotvopnum
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
tilkynnir að hundruðum tölva og
skotvopna sé saknað hjá stofnun-
inni. Ný rannsókn á innri starfsemi
stofnunarinnar, sem John Ashcroft
dómsmálaráðherra fyrirskipaði,
leiðir í ljós að hátt í 500 vopn hafl
týnst á síðustu ellefu árum. Þar á
meðal eru rifflar, léttar vélbyssur og
skammbyssur. Talið er að 184 vopn-
um hafi verið stolið en afgangurinn
ýmist týndist eða var ekki skilað
þegar lögreglumenn fóru á eftir-
laun.
Rannsóknin gefur einnig til
kynna að 171 fartölvu sé saknað og
hafi 13 verið stolið. Grunur leikur á
að þrjár af fartölvunum týndu
geymi leynilegar upplýsingar, stofn-
unin skoðar það enn. FBI notar 13
John Ashcroft
Dómsmáiaráöherrann hefur aukiö
vald ráðuneytisins yfir FBI í kjölfar
klúöursmála. 500 vopna er saknaö.
þúsund fartölvur. Talið er líklegt að
kenna megi slælegri skráningu á
úreltum tölvum um hluta af týndu
tölvunum.
Bandaríska alríkislögreglan hef-
ur verið staðin að nokkrum neyðar-
legum klúðursmálum upp á síðkast-
ið. Skemmst er að minnast þess að
starfsmenn FBI klikkuðu á að birta
þúsundir blaðsíðna af gögnum úr
máli sprengjumannsins Timothys
McVeighs sem leiddi til frestunar
aftöku hans. Nýlega viðurkenndi út-
sendari stofnunarinnar, Robert
Hansen, að hafa njósnað fyrir rúss-
nesk stjórnvöld í flmmtán ár.
Margir bandarískir þingmenn
hafa kvartað undan því að FBI hafi
frekar hneigst til þess aö hylja mis-
tök sín en leiðrétta þau.
Suzuki Grand Vitara, 3 d.
bsk.Skr. 3/00, ek. 15 þús.
Verð kr. 1.590 þús.
Suzuki Baleno Wagon,
bsk.Skr. 4/97, ek. 73 þús,
Verð kr. 850 þús.
Suzuki Baleno GL, 3 d.,
ssk.Skr. 3/98, ek. 53 þús,
Verð kr. 750 þús.
Suzuki Wagon R+, 4wd,
5 d.Skr. 8/00, ek. 12 þús.
Verð kr. 1.090 þús.
Suzuki Jimny, 3 d., bsk.
Skr. 12/98, ek. 36 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d.,
bsk.Skr. 9/97, ek. 34 þús.
Verð kr. 630 þús.
Daihatsu Applause Xi, 4 d.
ssk.Skr. 10/98, ek. 15 þús.
Verð kr. 1.090 þús.
Daihatsu Terios SX, bsk.
Skr. 5/99, ek. 42 þús.
Verð kr. 1.090 þús.
Mazda 323F, 5 d., ssk.
Skr. 12/99, ek. 21 þús.
Verð kr. 1370 þús.
Notadir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Opel Astra GL st., bsk.
Skr. 3/98, ek. 32 þús.
Verð kr. 980 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---W................
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, slmi 568-5100