Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2001, Side 22
50
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001
íslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________DV
Jmsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Fólk í ftóttum
Gísli S. Einarsson
?0 ára_________________________________
Ólöf Gunnarsdóttir,
Bröttugötu 29, Vestmannaeyjum.
85 ára_________________________________
Arnþór Guðmundsson,
Oddeyrargötu 3, Akureyri.
80 ára_________________________________
Ingvi E. Valdimarsson,
Álfaheiöi 8, Kópavogi.
75 ára_________________________________
Haraldur Aöalsteinsson,
Noröurbrún 1, Reykjavík.
Þórunn Þorsteinsdóttir,
Búöageröi 10, Reykjavík.
Berta Herbertsdóttir,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Laufey Finnsdóttir,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
70 ára_________________________________
Hrefna Ragnarsdóttir,
Hraunbæ 44, Reykjavík.
Kristín Dagbjört Þórðardóttir,
Grundarvegi 13, Njarövík.
Guðlaug Guðmundsdóttir,
Hömrum, Grundarfirði.
Gunnar Bjarnason,
Aöalstræti 46, Þingeyri.
Guðmundur Björnsson,
Höfðagötu 5, Hólmavík, er sjötugur í
dag. Guömundur tekur á móti gestum á
milli klukkan 16 og 19 laugardaginn 21.
júl! næstkomandi í Félagsheimilinu á
Hólmavlk.
Ragnar Már Hansson,
Aðalgötu 19, Siglufiröi.
60 ára_________________________________
Sigurjón Þór Hannesson,
Vesturbraut 9, Hafnarfiröi.
Ingibjörg Þórarinsdóttir,
Hörpulundi 1, Akureyri.
Þórsteinn Arnar Jóhannesson,
Báröartjörn, S. Þing.
Guðmundur Haraldsson,
Nesbakka 17, Neskaupstaö.
Blanca A. Ingimundardóttir,
Reyrhaga 9, Selfossi.
50 ára_________________________________
Kristbjörg Róselía Ólafsdóttir,
Álftamýri 22, Reykjavík.
Czeslaw Brunon Krefft,
Minni-Vatnsleysu, Vogum.
Árni Emanúelsson,
Hraunbrún 36, Hafnarfirði
Helga Guðrún Gísladóttir,
Melavegi 3, Njarðvík.
Sveinn Ingi Grímsson,
Skólabraut 3, Mosfellsbæ.
Helga Jóhannesdóttir,
Tangagötu 4, Stykkishólmi.
Kjartan Agnarsson,
Miötúni 8, Seyðisfiröi.
Kolbeinn Agnarsson,
Miðtúni 8, Seyðísfirði.
40 ára_________________________________
Guðný Óskarsdóttir,
Laugateigi 10, Reykjavík.
Þór Gunnarsson,
Sogavegi 52, Reykjavík.
Sigríöur Helgadóttir,
Jörfabakka 24, Reykjavík.
Guðríður Guðjónsdóttir,
Viöarási 83, Reykjavík.
Guöjón Arnar Betúelsson,
Spóahólum 10, Reykjavlk.
Björgvin Már Hilmarsson,
Ástúni 14, Kópavogi.
Sigurður Árni Ólafsson,
Háseylu 32, Njarövík.
Stefán Már Guðmundsson,
Krókatúni 2, Akranesi.
Sigurður R Tryggvason,
Gamla-Lundi, Kópaskeri.
Sigurjón Sigurðsson frá Borgarfirði, síö-
ast til heimilis á Háengi 11, Selfossi,
varð bráðkvaddur aö Borgarfelli sunnu-
daginn 15. júlí.
Einar Stensby, Vestre-Haugen 24, 1054
Ósló, lést á Ákersjúkrahúsinu í Ósló
miðvikudaginn 11. júlí.
Hjalti Magnússon, Heiöarhrauni 41,
Grindavík, lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur
aöfaranótt sunnudagsins 15. júlí.
Pálína Elíasdóttir, Aðalstræti 20, 400
ísafiröi, lést á Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn 15. júlí.
Ásrún Pálsdóttir, frá Garði, Skarðshlíð
16, andaöist á Fjóröungssjúkrahúsinu á
Akureyri laugardaginn 14. júlí.
Þóra Ólafsdóttir lést á Landspítalanum
viö Hringbraut sunnudaginn 15. júlí.
alþingismaður
Gísli S. Einarsson hefur verið í
fréttum að undanförnu þar sem
hann hefur óskað eftir bókhalds- og
stórnsýsluúttekt á fjárveitingum til
Þjóðleikhússins, nýframkvæmda og
viðhalds, vegna yfirstandandi fjár-
lagaárs og liðinna ár frá skipun
starfandi byggingarnefndar. Ástæða
beiðninnar er mál Árna Johnsens
sem verið hefur í fréttum síðustu
dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Súðavík í Norður-
ísafjarðarsýslu 12. des. 1945. Hann
lauk gagnfræðaskólaprófi 1962 og
vélvirkjaprófi frá Iðnskóla Akra-
ness 1968. Gísli stundaði síðan nám
í sementsvélaviðhaldi hjá Álborg
Portland í Danmörku 1976-1977.
Hann tók vélstjórapróf frá Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi 1982 og
fékk skipstjómarréttindi (30 t) 1989.
Gísli var verkamaður hjá Sements-
verksmiöju ríkisins 1963, vélvirkja-
nemi og vélvirki þar 1964-1976, vél-
virki hjá Álborg Portland i Dan-
mörku 1977-1978, yfirverkstjóri hjá
Sementsverksmiðju ríkisins
1979-1992, við tölvustýrt vélaviðhald
þar 1992-1993.
Gísli var bæjarfulltrúi á Akranesi
1986-1993, formaður bæjarráðs 1990,
forseti bæjarstjórnar 1991-1992.
Hann sat þing Álþjóðaþingmanna-
sambandsins 1995. Gísli hefur verið
alþingismaður fyrir Vesturlands-
kjördæmi síðan 1993 og situr nú á
þingi fyrir Samfylkinguna. Frá des-
ember 1991 til 1993 var Gísli vara-
þingmaður fyrir Vesturlandskjör-
dæmi.
Gísli hefur átt sæti í ýmsum
nefndum á Alþingi. Hann var í alls-
herjamefnd 1993-1994, félags-mála-
nefnd 1993-1995 (form. 1994-1995),
iðnaðarnefnd 1993-1995 og
1997-1999, landbúnaðarnefnd
1993-1995, fjárlaganefnd frá 1995,
umhverfis-nefnd 1995-1998. Gísli
hefur auk þess átt sæti í íslands-
deild þingmannanefndar EFTA-
/EES 1993-1995 og hefur verið í ís-
landsdeild Vestnorræna ráðsins frá
árinu 1999.
Fjölskylda
Eiginkona Gisla er Ólöf Edda
Guðmundsdóttir, f. 9. júlí 1946,
húsmóðir. Þau giftu sig 12. desem-
ber 1964. Foreldrar Ólafar eru Guð-
mundur Jónsson og kona hans, Ólöf
Eggertsdóttir.
Börn Gísla og Ólafar Eddu eru: 1)
Einar Kristinn, f. 1964; 2) Ólafur
Þór, f. 1965; 3) Erla Björk, f. 1983.
Systkini Gísla eru: 1) Kristin
Sesselja, f. 28.11. 1943; 2) Rögnvald-
ur, f. 27.2. 1942; 3) Elísabet Halldóra,
f. 15.9.1951; 4) Droplaug, f. 1.10.1954;
5) Rósa, f. 22.5. 1956.
Foreldrar Gísla voru Einar Krist-
inn Gíslason, f. 19. febrúar 1921, d. 1.
okt. 1979, skipstjóri, og kona hans,
Elísabet Sveinbjörnsdóttir, f. 4. okt.
1917, d. 24. jan. 1995, ljósmóðir.
Ætt
Einar er sonur Gísla, sjómanns í
Bolungarvík, Sigurðssonar, í Reykj-
arfiröi við Djúp, bróður Steins, afa
Magnúsar hljómlistarmanns Ingi-
marssonar. Sigurður var sonur
Bjarna, b. í Hálshúsum, Einarsonar.
Móðir Gisla var Guðflnna, systir
Guðmundínu, langömmu Kjartans
Ólafssonar, fyrrv. ritstjóra. Guð-
finna var dóttir Jóns, hreppstjóra á
Kirkjubóli, Halldórssonar. Móðir
Jóns var Kristín Torfadóttir, á Snæ-
fjöllum, Ásgrímssonar, b. í Arnar-
dal, Báröarsonar, ættföður Arnar-
dalsættarinnar, Illugasonar. Móðir
Einars var Sesselja, dóttir Einars,
sjómanns í Grindavík, Guðmunds-
sonar og Kristínar Finnsdóttur.
Elísabet er systir Mörtu, konu
Karvels Pálmasonar. Þær eru dætur
Sveinbjöms, b. á Uppsölum, bróður
Amalíu, móður Hrefnu Tynes skáta-
höfðingja. Sveinbjörn var sonur
Rögnvalds, b. á Uppsölum, Guð-
mundssonar. Móðir Rögnvalds var
Gunnfríður, systir Rannveigar,
langömmu Gunnars Hvanndals,
veðurfræðings og ættfræðings.
Gunnfríður var dóttir Hjalta, pró-
fasts á Stað, Jónssonar og Sigríðar,
systur Gunnlaugs, ættfóður Briems-
ættarinnar. Móðir Sveinbjörns var
Kristín Guðmundsdóttur, smiðs á
Þúfum. Móðir Kristínar var Hall-
dóra Ásgeirsdóttir, prófasts í Holti,
Jónssonar og Rannveigar Matthías-
dóttur, stúdents á Eyri, bróður
Markúsar, langafa Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta. Matthías var sonur
Þórðar, ættfóður Vigurættarinnar,
bróður Ingibjargar, ömmu Jóns for-
seta. Þórður var sonur Ólafs, ættfóð-
ur Eyrarættarinnar, Jónssonar.
Móðir Elísabetar er Kristín Hálf-
dánardóttir, b. á Hesti, bróður Guð-
flnns, fóður Einars í Bolungarvík,
Hálfdán var sonur Einars á Eyri,
Hálfdánarsonar, bróður Helga lekt-
ors, langafa Ragnhildar Helgadótt-
ur, fyrrv. ráðherra. Móðir Hálfdáns
var Kristín, systir Bergs Thorbergs
landshöfðingja og Hjalta, langafa Jó-
hannesar Nordals. Móðir Kristínar
Hálfdánardóttur var Daðey Daða-
dóttir, b. á Eiríksstöðum, Arasonar.
María Haraldsdóttir, Hæöagarði 23b,
veröur jarösungin frá Bústaöakirkju miö-
vikudaginn 25. júlí kl. 13.30. Þeim, sem
vilja minnast hennar er bent á Styrktar-
félag vangefinna og líknardeild Landspít-
alans.
María Pálsdóttlr, Ofanleiti 17, veröur
jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn
20. júlí kl. 13.30.
Erlendur Snæbjörnsson, Byggöavegi
138a, Akureyri, veröur jarösunginn frá
Akureyrarkirkju á morgun, 19. júlí, kl.
13.30.
lYTttrKir líiJondmtiAr
Þorsteinn Jósepsson, blaðamaður og rit
höfundur, var fæddur 18. júlí 1907 á
Signýjarstöðum i Borgarfirði og voru
foreldrar hans Jósep G. Elieserson og
Ástríður Þorsteinsdóttir.
Þorsteinn byrjaði snemma að ferð-
ast og ferðaðist mjög mikið alla tíð,
bæði innanlands sem utan. Um ferðir
sínar skrifaði hann ferðasögurnar Æv-
intýri förusveins, 1934 og Undir suó-
rœnni sól, 1937. Hann gaf einnig út sögu-
safnið Tinda 1934, smásagnasafnið Týr■
ur 1946 og rit um íþróttagarpa í djörfum
leik 1946. Þorsteinn var lika mikill bóka-
safnari og kom sér upp afar fágætu einka
bókasafni.
Hann var blaðamaður á Vísi frá 1939 allt til dauða
Þorsteinn Jósepsson
dags. Þorsteinn var án efa einn mikilhæfast:
blaðamaður sem þjóðin hefur átt, góður rit
höfundur, vandvirkur, fjölmenntaður o%
auk þess mjög listrænn ljósmyndari.
Þorsteinn bjó yfir feikilegri þekkingu á
íslenskum staðháttum, sögu höfuðbólt
og annarra sögufrægra staða. Rit hans
Landiö þitt, kom upphaflega út 1966 0£
fjallaði þá um staði í byggð. Eftir ábend
ingu Þorsteins jók Steindór Steindórssor
síðan við verkið umfjöllun um óbyggðir
landsins. Saman eru þeir því höfundar ac'
öndvegiritinu Landiö þitt ísland, vinsælastt
og mest notaða uppflettiriti sem gefið hefui
verið út hér á landi. Þorsteinn Jósepsson lési
29. janúar 1967.
Þú nærð alltaf sambandi
við okkur!
i ©
'oD
3
(0
550 5000
alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
(g) dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringsins sem er
DV
550 5000