Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Qupperneq 4
36
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
notaðw
bílar
Subaru Impreza turbo, árg.
2000, ek. 10 þ. km., 16" álf„ stærri
spoiler, sverara
púst.
V. kr. 2.490.000
Nubira II SX Wagon, árg. 2000,
ek. 32.000 km, ssk., álf., dökkar
filmur, þakbogar, samlitur,
Verð kr. 1.390.000. Ath. sk.
á ódýrari.
Porsche 968 Steptronic, árg
1992, ek. 138 þús. km, 240 ha„
Porsche-álfelgur, topplúga,
loftkæling o.fl.
Ath. 100% bílalán - Alvöru
sportbíll!!!
Musso E32, árg. 1997, ek.71 þ.
km, ssk„ grænn, CD, 31" dekk.
Verð 2.140.000. Ath. skipti á
ódýrari.
VW Polo, árg. 1995, ek. 91 þús.
km, karrígulur, 5 gíra.
Verð 420.000.
Sparneytinn í skólann!
Renault Twingo, árg.1998, ek.
54 þ. km, beinsk., 1300
vél, rafdr. rúður, álfelgur,
Verð 560.000 - líka mjög
sparneytinn í skólann.
Chrysler Intrepid, árg. 2000, ek.
30 þús. km, 3,3 I, 224 ha, ssk, 16"
álf„ cruise, loftkæling, spoiler,
Verð 3.400.000 - ath. ýmis
skipti, helst á Musso
Renault 19 RT 1800, árg.
1995, ek. 93 þ. km, ssk„ álf„
rafdr. rúður, samlæsing,
plussáklæði.
Verð 650.000. Ath. sk. á
ódýrari.
Greiðslukjör, Visa/Euro
raðgreiðslur.skuldabréf, öll skipti
möguleg, ódýrari. Komdu með bílinn,
skráð'ann og við auglýsum hannfrítt
á Netinu með mynd.
BÍLASALAN <3S> SKEIFAN
• BILDSHOFÐA 10 >
S: 577 2800 / 587 1000
Bílar
I>V
—
Reynsluakstur nr. 638
Nýja dísilvélin er í senn
hljóðlát, kraftmikil og
eyðslugrönn
VOLVO S80 TD 2,4
Vél: 2,4 lítra, 5 strokka dísilvél með forþjöppu
Rúmtak: - 2401 rúmsentímetri
Ventlar: 20
Þjöppun: 18.5:1 f
Gírkassi: 5 gíra beinskiptur
UNDIRVAGN
Fjöðrun framan: Sjálfstæð með fram- og afturstífum
Fjöðrun aftan: Fjölliða Multilink fjöðrun
Bremsur: Diskar framan og aftan, læsivörn
Dekk: 205/65VR15
YTRI TÖLUR
Lengd/breidd/hæð: 4820/1830/1450 mm
Hjólahaf: 2790 mm
Beygjuradíus: 10,9 metrar i
INNRI TÖLUR
Farþegar ásamt ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/6
Farangursrými: 440-1105 lítrar
HAGKVÆMNI
Eyðsla á 100 km: 6,5 lítrar
Eldsneytisgeymir: 70 lítrar
Verð: 4.198.000 kr.
Umboð: Brimborg
Staðalbúnaður: Stillingar útvarps á stýrishjóli, fjarstýrðar samlæsingar m. þjófavörn, tvöföld miðstöð, hæðarstilling á framsætum, þokuljós, málmlitur, út- varp með geislaspilara og kassettutæki. upphituð sæti. skrikvörn.
SAMANBURÐARTÖLUR
Hestöfl/sn.: 163/4000
Snúningsvægi/sn.: 340/1740-2760
Hröðun 0-100 km: 10 sek.
Hámarkshraði (sjsk.): 210 km/kist.
Eigin þyngd: 1470 kg
Kostir: Mikill togkraftur, þœgileg
sœti, hljóölát vél
Gallar: Fyrsti gír með frekar
lágum hlutföllum
Nokkuð er um liðiö síðan Volvo
kynnti fyrst flaggskip sitt, S80. Lín-
an hefur nú fengið sína aðra kyn-
slóð einbunu dísilvéla, en fyrri gerð-
in byggði á hönnun frá Volkswagen
og Audi. Nýja vélin er öll hönnuð í
herbúðum Volvo og hefur marga
kosti fram yfir gömlu vélina. DV-bíl-
ar reyndu hana við blandaðar að-
stæður, í borg og sveit.
Létt vél og eyðslugrönn
Nýja vélin vegur aðeins 185 kg
enda því sem næst öll úr áli. Hún
er byggð á RN-bensínvélinni sem
kom í Volvo-bílana árið 1999. Létt-
leikinn minnkar ekki aðeins
eyðslu því minni hætta er á undir-
stýringu eftir því sem kílóin verða
færri frammi í vélarrýminu. Mjög
lítið verður vart við undirstýringu
í S80 með nýju dísilvélinni sem er
kostur í þetta stórum, framhjóla-
drifnum bíl. Vélin er á mismun-
andi stífum mótorpúðum sem ein-
angra hana betur frá bílnum og
minnka hættuna á að hávaði og
titringur frá vélinni berist inn i
farþegarýmið. Ný gerð af forþjöppu
nær betri virkni við lægri snúning
og verður togið því jafnara yfir
snúningssviðið. Þessi nýja dísilvél
mengar líka enn minna en áður
með betri bruna og nýtingu olíunn-
ar, Einnig notar hún hluta útblást-
ursloftsins aftur i brunahólfinu
sem minnkar niturmagn loftsins.
Auk þess er hún búin tveimur
hvarfakútum til að hámarka niður-
brot mengandi efna. Afleiðingin er
venjulega sú að nýjustu gerðir
disiivéla eins og þessi menga
minna en hefðbundnar bensínvél-
ar í dag. Annað mikilvægt atriði er
minni eyðsla heldur en á bensín-
vélum. Fyrir þennan stóra bíl er
6,5 lítrar á hundraðið lítið.
Hljóðlát og togmikil
Það sem vekur fyrst athygli er
hversu hljóðlát hún er, jafnvel fyrir
utan bílinn. Nánast ekkert vélarhljóð
er inni í bílnum og dísilskröltiö nán-
ast horfið, aðeins vottar fyrir því þeg-
ar vélin er köld. Satt að segja átti gam-
all Volvo-eigandi eins og undirritaður
ekki von á jafn silkimjúkum og hljóð-
látum gangi eins og er i þessari vél.
Annað sem kemur á óvart er hversu
feikilegt tog vélin hefur. Togið er mest
á milli 1740 og 2760 snúninga enda er
bíllinn eins og áður sagði búinn for-
þjöppu til að auka hröðun og há-
markshraða. Togið er svo gott að gæta
þarf sig á að gefa honum ekki of mik-
ið inn í fyrsta gír því annars rýkur
hann upp í spól. Eiginlega er fyrsti
gírinn of lágt gíraður fyrir þetta tog- ’
mikla vél og kæmi sjálfskipting ör-
ugglega betur út með vélinni, en
hennar er að vænta næsta vor. Jafn-
vel i fimmta gír flnnst togið vel þegar
stigið er á olíugjöfina við akstur upp í
móti.
Leðurinnrétting þægileg
S80 er sérsniðin að þörfum at-
hafnamannsins þar sem lögð er
áhersla á aukin þægindi, glæsileika
og samskipti. Sem dæmi um mögu-
legan búnað má nefna hraðastilli, 16
tommu álfelgur, innbyggðan GSM-
síma og viðaráferð á innréttingu.
Billinn sem DV-bílar prófuðu var
búinn leðurinnréttingu og einum
þeim þægilegustu sætum sem und-
irritaður hefur setið í lengi. Mið-
stöðin er tvöföld frammi í og upphit-
un á sætunum. Útvarpi og geislaspl-
ara er hægt að stjórna úr stýri og
eru takkarnir þægilega staðsettir til
þess. Sem fyrr er öryggisbúnaður í
sérflokki og má þar nefna öryggis-
púða að framan og í hliðum og enn
eina nýjungina sem eru öryggis-
gardínur og verja höfuð farþega við
hliðarárekstur eða veltu.
-NG
o Dísilvélin er 2,4 lítra og þver-
stæö enda bíllinn framhjóladrifinn.
Hún er mestöll úr áli og því létt og
minnkar þaö hættu á undirstýr-
ingu.
©L/'ós leöurinnréttingin kemur vel
út og er sérstaklega þægileg.
Akuroyri: Bil.is.il.in Os - Hjalteyrargötu 10 - Siini 462 1430