Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
29
Það að stóri bróðir stjórni
hvar má ekki keyra yfir
hámarkshraða gæti orðið fyrr
en margir halda.
Mercedes Benz SL 55 AMG:
Lúxusótemja frá Benz
Það fór ekki milli mála hvílíkan
áhuga menn höfðu á
„lúxusótemjunni" frá Mercedes
Benz, SL 55 AMG-sportbíl með 476
ha. vél, á 18“ felgum og með fjögur
krómuö púströr. Þessi eðalgripur
kemur á Evrópumarkaðinn eftir
áramótin en sennilega verður engin
óðasála í honum á íslandi. Myndin
sýnir áhuga gesta á þessum ein-
staka bíl - nánast ekki hægt að
komast að honum til að mynda
hann nema ofan af næstu hæð.
-SHH
Að aka ekki einu sinni hraðar en
einum kílómetra yflr hámarkshraða
gæti orðið veruleiki á þessum ára-
tug ef að Evrópusambandið ákveður
að taka i notkun nýtt hraðatak-
mörkunarkerfi. Kerfið sem gæti
verið komið í notkun áriö 2010 í
löndum Evrópusambandsins og þá
væntanlega hérlendis líka gegnum
EES samninginn, notast við GPS
tækni til að fylgjast með og stjóma
hraða bílanna.
Hraða stjórnað á
afmörkuöum svæðum
ISA kerfið svokallaða stjórnar
hraða bílanna með því að senda raf-
boð til stjómtölvu bílsins. GPS tæki
í bílnum sendir upplýsingar um
hvar bíllinn er og hvort að hann sé
að aka inn á svæði þar sem er
minni hámarkshraði. Þegar bíllinn
nálgast svæðið sendir kerflð boð til
stjórntölvunnar að minnka elds-
neytisflæðið og hægir einnig á bíln-
um með því að beita létt bremsun-
um. Ökumaður getur hægt á sér og
aukið hraðann innan markana en
þótt að bensínið væri stigið i botn
færi hann ekki yfir hámarkshrað-
Margir mótmæla
Verið er að þróa og prófa kerfið
um þessar mundir i nokkrum lönd-
um, meðal annars í tuttugu bifreið-
um í Bretlandi. Þetta hefur vakið
hörð viðbrögð margra og bílasam-
bönd mörg mótmælt þessu. Bera
þau helst við hættunni á að öku-
menn slaki of mikið á og fari í
óvirkt ástand á meðan að bíllinn
ekur gegnum hraðatakmörkunar-
svæðið. Sum lönd eins og Svíþjóð
hafa verið að prófa kerfið með þeim
möguleika á að geta slökkt á því ef
á þarf að halda með takka úr bíln-
um. Liklegra er þó talið að endan-
legt kerfi innihaldi ekki þann mögu-
leika. -NG
Einstaklega vel
búinn en um
leið hófsamur
Pininfarina Ford Start
Hrada stjórnad
undir vökulu auga
stóra bróður
Með 200
hestafla
Duratec-mótor
Kóreskir bílaframleiöendur
Keyra
á fullu
BILAR
JlSIUGESTOnE
Dekkar allar aðstæður
Lexus SC430 reynsluakstur
Hvar er best að gera bílakaupin?
VW Golf Highline, 1,6 bensín,
f.skrd. 05.01. 2000, ekinn 24 þús.
km, 5 dyra, rauður, ssk, 15"
álfelgur, cd, spoiler, leður, lúga,
skriðstillir, hiti í sætum.
Verð 1.980.000.
MMC Galant V6 4x4, 2,5 bensín,
f. skrd. 21.07. 1994, ekinn 130
þús. km, 4 dyra, grár, bsk.
Verð 890.000.
VW Goif Comf., 1,4 bensín, f.
skrd, 28.01. 2000, ekinn 16 þús.
km, 3 dyra, hvítur, bsk., 16"
álfelgur.
Verð 1.370.000.
VW Golf Comf, 1,6 bensín, f.
skrd, 21.09. 2000, ekinn 11 þús.
km, 5 dyra, d-blár, bsk., 16"
álfelgur.
Verð 1.640.000.
Velkomin á Laugaveg 174 og www.bilathing.is
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 og laugard. kl. 12-16
0
m
BÍLAMNGÍEKLU
NuM&r &iH~ í no'hj^uM bíluw!
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 590 5000
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.biiathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is •