Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Page 2
30
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
35
Bílar
DV
Bílar
Eitt af því sem einkennir nýja Skoda
Superb er sérlega breiðar afturhurðir.
Skoda Superb var framleiddur frá
1934 til 1949 sem stærsti fólksbíll
Skoda. Þetta eintak hefur veriö
endurgert einstaklega fallega en um
tima var þetta þjóöhöföingjabíll í
Finnlandi. Hann er meö hægri hand-
ar stýri sem á árunum fyrir síöari
heimsstyrjöld var algengt á megin-
landi Evrópu þótt hægri umferö væri
í gildi. Ástæöan var sú aö vegir og
stræti voru svo mjó aö heppilegt þótti aö hafa stýriö hægra megin til aö
geta varaö sig á vegarkantinum.
Skoda Superb:
Rúmgóöur bíll í efri-millistærð
Nýr Skoda Superb, sem kynntur var
á alþjóðlegu bílasýningunni í Frank-
furt 13.-23. september, er byggður á
kínversku útgáfunni af Volkswagen
Passat en hún er lítið eitt stærri en
þýska útgáfan. Þetta er laglegur bíU að
sjá og ber augljós einkenni frændskap-
arins við Volkswagen en Skoda er nú
orðinn hluti af samsteypunni
Volkswagen-Audi-Seat. Hann tilheyrir
efri-millistærðarflokki og er býsna
rúmgóöur og augljóst að honum er ætl-
að að vera þægilegur bíll.
Superb er gamalt nafn hjá Skoda en
stærsti fólksbíll sem Skoda hefur fram-
leitt var einmitt Skoda Superb sem
framleiddur var með nokkurri þróun
frá 1934 til 1949 þó framleiðsla lægi
niðri nokkur striðsárin. Meðal þess
sem þessi gamli, stóri Superb státaði af
var möguleikinn á 4,018 strokka 90 ha.
vél.
Nýi Superb er jafnframt stærsti
Skoda-fólksbíllinn nú til dags. I honum
er hægt að velja um fimm vélar, þar af
tvær dísilvélar. Bíllinn er dável búinn,
m.a. með fjóra liknarbelgi sem staðal-
búnað. Með stærstu vélinni fylgir raf-
eindastýrð stöðugleikastýring og spól-
vöm en þessi búnaður er einnig fáan-
legur gegn aukagjaldi með minni vél-
unum.
Að sögn Sverris Sigfússonar, for-
stjóra Heklu hf., er Skoda Superb ekki
væntanlegur á íslenskan markað fyrr
en á miðju ári 2002. -SHH
Ford Start frá Pininfarina - gerður á sömu botnplötu og Ka og getur hvort
heldur verið framhjóladrifinn eða með aldrif.
Pininfarina Ford Start:
Með 200 hestafla Duratec-mótor
í endurminningum sínum rifjar
ítalski verkfræðingurinn og bíla-
hönnuðurinn Pinin Farina það upp
þegar hann sem 27 ára verkfræðing-
ur hjá Stabilamenti Farina á Ítalíu
fór til Bandaríkjanna vorið 1920 og
heimsótti þar m.a. verksmiðjur Ford
í Detroit. Um þær mundir framleiddi
Ford 3000 bíla af gerðinni Ford-T á
dag með framleiðslukerfi sem enn
var óþekkt í Evrópu. Pinin Farina
var dolfallinn yfir tækninni og hug-
vitsseminni hjá Ford og Henry fyrir
sitt leyti skoðaði teikningar Pinins af
miklum áhuga og bauð honum svo
að koma og vinna hjá sér. „Ég varð
upp með mér en vissi um leið að ég
gat ekki þegið það. Ég var bara þama
til að læra,“ sagði Pinin í endur-
minningunum. „Á þessum eina degi
hjá Ford lærði ég kannski engin
ósköp um fyrirtækið sem slíkt heldur
um mikilvægi andans á bak við fyr-
irtækið."
Þetta hagnýtti hann sér þegar hann
skipulagði sitt eigið fyrirtæki tiu árum
seinna og nú, 35 árum eftir fráfall Pin-
ins, er samstarf Ford og Pininfarina
kannski meira en nokkru sinni fyrr. Á
alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfúrt
sýnir Pininfarina hugmynd að Fordbil
sem í meðfórum Pininfarina hefur
fengið nafhið Start - vísbending um að
þaö sé upphafið að einhverju meira.
Þetta er götusportari sem hugsanlega
gæti oröið að veruleika árið 2003 og þá
með 2,0 1 Duratec turbo-vél með for-
þjöppu, 200 ha. Hér má sjá gripinn í út-
færslu sem kölluð er 2+2 en í grund-
vallaratriðum þýðir það tvö góð sæti
frammi í og önnur tvö kannski ekki al-
veg eins góð aftur í. -SHH
Renault Talisman:
Framúrstefnulegur sportbíll
Renaultmenn hafa löngum verið
djarfir í því sem þeir setja á mark-
aðinn en ennþá djarfari í því sem
þeir sýna sem hugmyndir. Þeir
bregðast heldur ekki með sport-
kúpubaknum Talisman sem þeir
sýna í Frankfurt nú: 4,5 lítra V8 vél
með sjálfskiptingu/valskiptingu,
drif á afturhjólum; hurðimar svo-
kallaðir „mávavængir“. Sýn aftur
úr bílnum er með þremur radd-
stýrðum myndavélum sem varpa
myndum sínum á skjá í mælaborði.
-SHH
.'jjJiif/ujjjJ yj
Jíyyfij Íj /íjJJiJ
Kóreskir bílaframleiðendur eru í ess-
inu sínu á bílasýningunni í Frankfurt og
sýna hvern nýjan bílinn á fætur öðrum,
fyrir utan hugmyndabíla. Strax við dym-
ar inn í sal 9 á sýningasvæðinu tekur
Kia á móti gestum með hugmyndabílinn
K?AVC (Kia Advanced Concept Car).
Þetta er útlitslega einn áhugaverðasti
hugmyndabíllinn í Franltfurt þetta árið;
aðalefnin í honum em ál, gler og
neoprene, en að öðru leyti er kannski
ekki mikið um hann að segja á þessu
stigi málsins.
Innar í salnum er Hyundai með nýjan
kúpubak. Nýr Hyundai Copué er 2+2
sportbíll með hreinar línur og val um
tveggja lítra fjögurra strokka vél, 138 ha.,
eða 6 strokka 2,71 álvél, 167 ha. Þessi bíll
er alltaf að verða evrópskari í útliti -
kannski væri rétt að segja ítalskari?
Hyundai með skemmtibíl
í sal Hyundai má einnig sjá hug-
myndabílinn Clix sem framleiðandi seg-
ir að sé fjórir bilar í einum. Hann er 2+2
sportbíll sem aldrifi/sídrifi, hann má
nota sem venjulegan heimilisbíl eða sem
eins konar pikkuppbil, eða að vissu
marki sem jeppling. Framleiðandi vill þó
ekki skilgreina hann sem SUV, eins og
jeppar/jepplingar kallast nú einu nafni
úti í heimi, heldur FAV sem er skamm-
stöfun á Fun Activity Vehicle, skemmti-
bíll.
Eitt af einkennum Clix er þakið sem
er úr fjórum dökkgráum glereiningum
sem sex mótorar sjá um að hreyfa að
óskum ökumannsins. Þannig má breyta
bílnum í skyndi úr kúpubak i „targa“-
topp, opinn bíl eða skúffubíl, bara með
því að þrýsta á hnappa. Þakið hverfur
einfaldlega aftur í skott - er það er ekki
fullt af öðru, en þá sjá skynjarar um að
stöðva hreyfinguna áður en nokkuð
skemmist. Vélin í Clix - eins og er - er
2,2 1 300, ha„ en hjólin eru á 19 tommu
felgum.
Daewoo dreymir fallega
Liggi leiðin áfram inn salinn kemur
röðin að Daewoo sem nú er undir stjóm
skiptaráðanda í Kóreu
og bíður hugsanlegrar
yfirtöku General Motors.
Hugmyndabíllinn Da-
ewoo Kalos Dream
(Kalos er gríska og þýðir
fallegur) er hugmynd Da-
ewoo um hvemig næsti
smábill ætti hugsanlega
að vera. Hann er rúm-
góður innan og vel bú-
inn, m.a. með upphitaða
útispegla sem staðalbún-
að. Hann er með 2480
mm hjólahaf og er ætlað
að bjóða upp á val um þijár vélar, 1,2 1,
1,4 1 og 1,6 1, með handskiptingu sem
staðalbúnað en sjálfskiptingu í boði. Sæt-
um er þannig upp stillt að ökumaður og
farþegar sitja hátt í bílnum, líkt og gerist
í litlu fjölnotabílunum, en æ fleiri em að
átta sig á hve þægilegt er að umgangast
þannig bíla.
Það á einmitt við um Daewoo Rezzo,
fjölnotabilinn sem kynntur var á síðustu
bílasýningu í Frankfúrt, 1999, og þá und-
ir nafninu Tacoma. Nú er þetta orðinn
fullburða bíll, laglegur eins og fyrirheit-
ið var um og von er til því útlitið er
hannað hjá PininFarina á Ítalíu. Fleira
gott er aðfengiö: fjöðmn frá Porsche og
bremsukerfi ffá Delphi. Búnaður fjöl-
breyttur: farþegasætið frammi í snún-
ingsstóll svo hægt er að horfast í augu
við þá sem sitja aftur í. Val um helm-
ingaskipt aftursæti eða þrjá stóla sem
hægt er að fella fram, val um tvær vélar,
handskiptingu eða sjálfskiptingu.
Nýr og stærri jeppi frá
SsangYong
Síðast en ekki síst skal svo nefna
SsangYong, sem nú er aftur orðinn sjáif-
stæður bílaframleiðandi. Varð það í fyrra
eftir að hafa verið undir Daewoo um hríð.
En nú kemur sjálfstæður SsangYong til
skjalanna aftur og sýnir nýjan myndarleg-
© Rexton - nýi jeppinn frá SsangYong, viO-
bót viö Musso og Korando.
© K?AVC hugmyndabíllinn frá Kia er meö
snotrari hugmyndabílum I Frankfurt þetta
haustiö. Ekki skaöar aö hafa laglega stúlku
hjá honum. Þaö vakti nokkra athygli aö nú var
aftur víöa reynt aö punta upp á sýningarbíla
meö ungum stúlkum I heldur nærskornum föt-
um, en sá siöur haföi beöiö nokkuö afhroö
meöan femínisminn var í mestum algleymingi.
- Því miöur uröu blessaöar stúlkurnar nokkuö
aö draga sig í hlé víöast hvar þegar leiö á
morgun fyrsta dags undan áfjáöum bílablaöa-
mönnum - þaö er aö segia áfjáöum í bílana.
® Nýr Hyundai Coupé - alltaf aö veröa evr-
ópskari.
® Daewoo Kalos Dream er hugmynd Daewoo
um næstu kynslóö smábíls.
© Hyundai Clix - hugmyndabíll sem er fjör-
faldur í roöinu.
© Daewoo Rezzo hét Daewoo Tacoma þegar
hann var kynntur sem hugmyndabíll í Frankfurt
1999 - nú fullgeröur fjölnotabíll í minni milli-
stæröarfiokki.
an jeppa sem gæti komið á markað á
næsta ári, Rexton. Hann er viðbót við
Musso og Korando en kemur í staðinn fyr-
ir hvorugan. Rexton er stærri en Musso
og afar vel búinn, keppir að sögn framleið-
enda beint við Grand Cherokee, Land
Rover Discovery, MMC Pajero og Toyota
LandCruiser 90 með hönnunarlegri hlið-
sjón af Lexus RX300, Benz M og BMW X5.
SsangYong hefur lagt mikla vinnu í
Rexton og ætlar honum stóran hlut, m.a.
hvað snertir óvirkt öryggi. Rexton er með
aldrif/sídrif og er sá búnaður frá Borg
Wamer, enda er gangverkið allt mjög
áþekkt og í Musso, m.a. vélar eru þær
sömu, nema ekki 100 ha. dísilvélin. Rexton
er væntanlegur hingað til lands næsta
sumar. -SHH
CJievrolet TrailBlazer:
Með sér-
lega spar-
neytna 273
hestafía
bensínvél
Amerískir Chevroletjeppar hafa
ekki verið í miklu upplagi á íslenskum
götum eða fjallvegum síðan nokkuð
var um Blazerjeppana, aðallega á sjö-
unda og áttunda áratugnum. Hugsan-
lega fer að verða einhver breyting á
því. Chevrolet sýnir í Frankfurt falleg-
an jeppa, framlengingu af gamla Blaz-
er sem heitir TrailBlazer.
Hjartað í þessum nýja bíl er ný 4,21
sex strokka Vortec-vél, smiðuð úr áli.
Hún er býsna öflug, skilar 273 hestöfl-
um með snúningsvægi upp á 373 Nm
við 3500 sn.mín. Samt staðhæfir fram-
leiðandi að meðaleyðslan sé ekki nema
um 13 lítrar á hundraðið „sem er vel
undir þvi sem gerist í þessum flokki“,
segir í upplýsingunum. Ef satt reynist
Chevrolet TrailBlazer: Liölega teikn-
aöur bíll sem sýnist nettari en hann er.
er óhætt að taka undir það. Þessu er
m.a. náð fram með breytúegum ventla-
tíma (WT) ásamt endurnýtingu af-
gassins sem jafnframt tryggir litla
mengun frá vél. Rafeindastýrð drifstýr-
ing, kölluð Autotrac, kemur til skjal-
anna þegar virkilega er þörf á að nota
aldrifið.
Millikassi með fjölplötutengslum
gefur val um hátt og lágt drif og fjög-
urra gíra sjálfskipting er staðalbúnað-
ur. TrailBlazer er með 16 tommu álfelg-
ur og samkvæmt bókinni á hann að
geta tekið snjókeðjur á staðaldekkjun-
um, 215/70x16, þannig að vandalaust
ætti að vera með 4 sm hækkun að
koma honum á 30“ dekk til að auka
jeppaeiginleikana. Bíllinn er allur á
gormum, með jafnvægisása framan og
aftan. Hvað öryggi snertir má nefna að
bíllinn er með fjóra líknarbelgi en nú
keppist hver um annan þveran við að
Ekki síöur fallega hannaöur og frá-
genginn aö innan en utan.
koma sem flestum liknarbelgjum og
líknarpulsum fyrir í bilum sínum - allt
upp í 8 stykki í venjulegum smábú!
Þetta er virkilega vel búinn bill með
fallegt handbragð, ekki síst á innrétt-
ingu og sætafrágangi. Hann á að fara í
sölu á meginlandinu þegar í þessum
mánuði og að sögn talsmanna Bíl-
heima hf. er ekki ólíklegt að hann
verði á boðstólum í Sævarhöfðanum
áður en langt um líður. -SHH
Ford Fusion Concept:
Með þriggja strokka 110 hestafía vél
Ford Fusion Concept er fallega hannaöur bíll og álitlegur lelöarvísir Ford inn I
framtíöina.
Fyrir utan nýju Fiestuna, sem
gerð voru góð skil í DV-bílum 1.
sept. sl., frumsýndi Ford nýjan
og áhugaverðan hugmyndabíl á
bílasýningunni í Frankfurt:
Ford Fusion. Með þessum bil
sýnir Ford fallega hönnun sem
vel mætti ímynda sér að gæti
vísað til þess sem kemur með
næstu kynslóðum bíla; senn líð-
ur að því að önnur kynslóð
Focus komi fram þó hann hafi
fengið dálitla andlitslyftingu nú
til bráðabirgða.
Ford Fusion Concept er sýnd-
ur í Frankfurt ekki aðeins sem
fallegt útlit heldur einnig með
áhugaverðri tækni: þriggja
strokka 1,1 1 forþjöppuvél, DISI,
sem skilar 110 ha. orku. Hún er
byggð á þrautreyndri 1,6 1 Zetec-
vélinni að breyttu breytanda og
bættu bætanda og er orðin svo fyr-
irferðarlítil að hún vegur aðeins 100
kg. Forþjappan eykur afköst vélar-
innar um 15% en góð eldsneytisnýt-
ing, lítil eyðsla og mikil vistmildi
næst fram með breytilegum ventla-
tima.
Með þessari vél kemur einnig ný
kynslóð sjálfskipts gírkassa - það er
að segja hefðbundins girkassa sem
skiptir sér sjálfur og sjálfvirkri kúp-
lingu. Kjósi ökumaður það getur
hann líka skipt sjálfur handvirkt.
Skiptingar af þessu tagi eru sem óð-
ast að ryðja sér til rúms en eftir því
sem þeim framleiðendum fjölgar
sem tileinka sér tæknina tekst betur
að útrýma þeim barnasjúkdómum
sem tækninni fylgja. Með þvi að
nota hefðbundinn gírkassa af þessu
tagi, með þeim skiptibúnaði sem
Ford hefur þróað, segjast þeir
Fordarar hafa bætt spameytni Ford
Fusion með þriggja strokka vélinni
um 4-8% miðað við heföbundna
sjálfskiptingu. -SHH
Mikiö var lagt í sýningarsal Volkswagen í Frankfurt. Hér svífa tveir Polo-bíl-
ar yfir höföum gestanna.
Volkswagen Polo:
Með stór, kringlótt augu
Volkswagen kynnti á Frankfurt-
sýningunni fjórðu kynslóð Polo og
þó við fyrstu sýn virðist munurinn
ekki mikill er
hann þó nokkur
þegar betur er
að gætt. Meðal
annars er skarp-
ari útlitsmunur
en áður var
milli tveggja
dyra og fjögurra
dyra útfærsln-
anna og svo
horfir nýi
Volkswagen Polo fjögurra huröa
- meiri munur er á tveggja og
fjögurra huröa Polo nú en áöur.
Poloinn út í heiminn með þessum
stóru og kringlóttu augum - ef nota
má þannig samlíkingu um ljósabún-
aðinn. Hann er
hærri en þriðja
kynslóðin sem
hann tekur við af
og enn betur búinn.
Val er um 5 mis-
munandi vélar, þar
á meðal annars
nýja þriggja
strokka 65 ha. vél
og tvær dísilvélar.
-SHH
Citroén C3:
Milli Saxo
og Xsara
Citroén kynnir í Frankfurt nýjan
snotran bíl, C3, sem að stærðinni til
er mitt á milli Saxo og Xsara. Boðið
verður upp á val um fimm vélar,
þar af tvær dísilvélar sem gætu
komið sér vel þegar búið verður að
laga dísilskattinn hérlendis. Sjálf-
virkur skiptibúnaður er boðinn
með stærstu bensínvélinni. Citroén
C3 er með rafmagns-hjálparátaki á
stýri, sem í sjálfu sér er eldsneytis-
sparandi, en hvað óvirkan öryggis-
búnað snertir verður C3 boðinn
með allt upp í 6 líknarbelgi! Meðal
nýjunga má telja svokallað Modubo-
ard, en það er fjölhagaskilrúm sem
hægt er í fljótheitum að hólfa far-
angursrýmið með eða leggja það
flatt í gólfið. C3 ætti að vera vænt-
anlegur á markað á næstu mánuð-
um. -SHH
i