Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Blaðsíða 3
□ LÉTTA U N G- LINGSSTÚLKNA Ragnheiður Gestsdóttir hóf fer- il sinn sem höfundur lengri texta- bóka fyrir börn feikilega vel í fyrra með verðlaunasögunni Leik- ur á borði. Su bók hlaut einróma lof gagnrýnenda og hefur útgáfu rétturinn verið seldur til sænska forlagsins Liber AB. í ár fylgir hún verðlaunasögunni eftir með bók fyrii unglinga sem ber titilinn 40 vikur og segír frá 16 ára stúlku sem verður ólétt. Ætli það séu ekki ein tuttugu ár síðan unglingar lásu allt um óléttu ung lingsstúlkna í bókum sænska rit- höfundarins Gunnel Beckman, Vorið þegar mest gekk á og Þrjár vikur framyfir. Fyrir fimmtán árum eða svo sá Eðvarð Ingólfs- son um uppfræðsluna með bókum sínum Fimmtán ára á föstu og Sextán ára í sambúð, en siðan hef- ur ekki verið um auðugan garð að gresja í þessu efni. Teygist úr íslenska spennusagnavorinu Islenska spennusagnavorið er orðið að hinu blómlegasta sumri. Arni Þórarinsson heldur áfram að gefa út bækur sem vísa í útlendan heim dægurlaga - fyrir þremur árum var það Nóttin hef ur þúsund augu, fyrra Hvíta kanínan og að þessu sinn er það Blátt tungl sem er að sögn svolítið atvarlegr en hinar fyrri. Hulduhöfundurinn Stella Blómkvist sendir frá sér Morðið í Hæstarétti. Leikkona er myrt og hæstaréttardómari Iigg- ur undir grun og hann hefur ákaf- lega slappa fjarvistarsönnun. Arn- aldur Indriðason, sem var tilnefndur til Menningarverð- launa DV i fyrra fyrir spennusög- una Mýrina, fylgir henni eftir með Grafarþögn. Mannabein finnast í hinu nýja hverfi Grafarholti. Hver skyldi bera ábyrgð á þeim? Spennufíklar fá mikið fyrir sinn snúð á þessari vertfð. Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur ekki setið heima með hendur í skauti síðustu fimm árin þó að þessi ár hafi liðið án þess að eftir hann kæmi út skáldsaga. Sfðast var það 101 Reykjavík og nú er það Höfundur íslands Stefnt að nóbelnum > Eins og aUir förum vid Hallgrímur ad ræda árásirnar á WTC þegar vid hittumst. Hvernig koma þessir atburdir manni fyrir sjónir sem stjórnadi einu sinni Útvarp Manhattan? „Þetta er skelfilegt,“ segir Hallgrímur. „Ég sá seinni turninn hrynja íbeinni útsendingu og gjörsam- lega lamadist. Þad er búid ad brjóta framtenn- urnar íAmeríku. Hún brosir víst ekki íbrád. Ég gat ekkert unnid í tvo sólarhringa. Hins vegar las ég það íNew York Times ígær ad Stephen King hefði aðeins tekið sér tíu mín- útna pásu til að kíkja á þessar fréttir, en síðan farið upp í herbergi ad skrifa og sett tappa í eyrun svo hann myndi ekki heyra ísjónvarpinu sem konan hans var ad horfa á. Þarna skilur á milli feigs og ófeigs - þetta er ástædan fyrir því að Stephen King er heimsfrægur en ekki ég-“ Skáldsaga Hallgríms Helgasonar, Höfundur Islands, fjallar um vel þekktan aldraðan rithöf- und sem deyr og vaknar upp í eigin skáldverki. Höfundurinn er ansi lengi að átta sig á þvf hvar hann er staddur, en framhaldslffinu eyðir hann í sögunni, sem er heldur óþægileg fyrir hann vegna þess að hún gerist í afdal úti á landi, en höfundurinn er heimsborgari. „Þetta er þetta gamla góða „höfundurinn lifir fverkum sfnum“ tekið bókstaflega,“ segir Hallgrfmur. Hafðirðu einhvern sérstakan höfund f huga? „Já, aðalpersónan er byggð á sjálfum mér, afa mfnum , Knut Hamsun og Halldóri Laxness. Hugmyndin kom til mín í draumi. Fyrir fjórum árum dreymdi mig að Halldór Laxness lægi á þrfskiptum jakkafötum úti á túni f Sumarhús- um og Bjartur kæmi og bæri hann inn f bæ. Fyrst datt mér f hug að gera smásögu úr hugmyndinni, en svo vafði hún utan á sig. Til þess komast burt frá Laxness og Bjarti færði ég sfðan söguna fram ftfma, læt hana gerast upp úr 1950.“ Hraun-, jökla- og álfarómaniík Síðasta skáldsaga Haltgríms, ioi Reykjavfk, hefur hetdur betur slegið f gegn og um þessar mundir er verið að þýða hana um allan heim. Nú hefur hún komið út á þremur tungumálum; dönsku, finnsku og sænsku og segir Hallgrfm- ur að dómarnir hafi verið fjölbreyttir. „Mér skilst að allir dómarnir f finnsku blöð- DVMYND E.ÓL Hallgrímur Helgason rithöfundur Fyrir fjórum órum dreymdi miq od Halldór Laxness læqi ó þrískiptum jakkofötum úti ó túni í Sumor- húsum oq Bjartur kæmi oq bæri honn inn íbæ. Fyrst datt mér íhuq ad qera smósöqu úr huqmyndinni en svo vafði hún utan ó siq. unum hafi verið frábærir, en auðvitað skildi ég ekki orð f þeim. Einhverjir landsbyggðar- femfnistar f Svfþjóð sögðu að Hlynur Björn væri ógeðslegasti karakter sem þær hefðu á ævinni kynnst. Dómarnir eru Ifka allt þess á milli.“ Eru menn með Islendingasögurnar á heilan- um og miða þig við þær - eins og oft vill verða þegar íslendingar gefa út bækur á Norðurlönd- unum? „Jú, nokkrir akademfskir Islendingasagna- nördar - velvildarmenn Islendingasagnanna skrifuðu: „Sjaldan hafa fslenskar bókmenntir verið eins langt frá Islendingasögunum og f þessari bók,““ segir Hallgrfmur og flissar. „Annars finnst mér nauðsynlegt að við Islend- ingar komumst út úr þessari hraun-, jökla- og álfarómantfk - þó að ég sé viss um að það taki okkur kannski 100 ár f viðbót að berja það af okkur. I Berlingske Tidende var til dæmis sagt að ioi Reykjavfk væri „Geysisgos af orðum“.“ Nóbellinn Þegar Hallgrímur er spurður hvers vegna svo langur tími hefði liðið á milli skáldsagna seg- ist hann hafa verið að sýsla ýmislegt annað. „Fyrst þegar ég byrjaði að skrifa var ég ailtaf að mála inn á milli, og sfðan hafa bæst inn f þetta leikrit og Grim og fleira. Það er mörgu að sinna á stórum bæ. Fólki finnst langt sfðan ég gaf út bók en gleymir þvf að ég gaf sfðast út bók 1998. Það voru „Ljóðmæli ‘78-’98“ sem eru nú Ifklega mitt stærsta verk, mfn geð- veikasta vinnutörn. Ég var eiginlega alveg bú- inn eftir þá bók og skrifaði þá nokkur leikrit mér til skemmtunar. En kannski eru skáldsög- ur eina formið sem maður á að fást við. Fólk virðist ekki taka mark á neinu öðru,“ segir skáldið og andvarpar. I sfðasta tölublaði Skýja nefnir Þorvaldur Þorsteinsson þig sem næsta nóbelsskáld Is- lands. Hvernig Ifst þér á það? „Ég þakka Þorvaldi fyrir og verð að segja að mér finnst mjög gott að núna veit ég loksins að hverju ég á að stefna. Ég er þegar farinn að vakna fyrr á morgnana og leggja harðar að mér og alveg hættur að mæta f barnaafmælin f fjöl- skyldunni. Þegar nóbellinn er annars vegar þá verður nú að fórna einhverju. -þhs Þorvaldur Þorsteinsson Djarfur við fullorðna - huqljúfur vid börnin Matthías Johannessen Hann nærist ó qódum minninqum Álfrún Gunnlaugsdóttir íslendinqur tekur þótt í borqarastrídinu ó Spóni Stefán Máni Þórunn Valdimarsdóttir Hótel Kalifornía - Vonir oq draumar Fólk skriftar ó Netinu íbók unqs manns enda með skelfinqu hennar Hvíti skuqqinn M Íkorni gengur affur Sá tími nálgast þegar allir sem koma nálægt bókum verða vitlausir í stressi - höfundar jafnt sem útgefendur - blaöa- menn sem og lesendur. Nú eru allir tiltölulega rólegir ennþá en heyrst hefur að margir okkar bestu rithöfunda gefi út skáldsögur og barnabækur sem fara á jólamarkaðinn. Hjá Bjarti eru helstu tfðindin sú að Bragi Olafsson gefur út aðra skáldsögu sfna en Hvfldardagar hans var tilnefnd til Islensku bókmenntaverðlaunanna fyrir tveimur árum. Skáldsaga Braga gengur undir nafn- inu Gæludýrin. Tfðindum sætir einnig að þúsundþjalasmiðurinn Þorvaldur Þorsteins- son gefur út sfna fyrstu skáldsögu sem mun vera f djarfari kantinum - en hann er einnig með hugljúfa barnabók sem nefnist Vett- lingarnir hans afa. Jón Kalman Stefánsson hefur skrifað bók um dreng sem fer f vist hjá ættingjum sfn- um f útlöndum og Haraldur Jónsson kemur á óvart með óvenjulegri sögu sem hefur hlot- ið nafnið Ekki ástarsaga. Hjá Vöku-Helgafelli eru helstu tfðindin þau að eftir Matthfas Johannessen kemur ITSS^ út skáldsaga sem nefnist Hann nærist á góðum minningum. Arnaldur Indriðason gefur út nýja glæpasögu sem nefnist Graf- arþögn og f flokki barna- og unglingabóka er Guðmundur Olafsson að leggja lokahönd á söguna Lfsa og galdrakarlinn f þarnæstu götu. Hlín rassskellir Hjá Forlaginu kemur út skáldsaga Stefáns Mána, Hótel Kalifornía, en hún fjallar um ungan verkamann óg gerist f kringum 1980. Segir í kynningu að bókin sé launfyndin lýs- ing á daglegum störfum, vonum og draumum þessa unga manns - sem enda með skelfingu. Magnús Guðmundsson sendir frá sér sam- bland skáldsögu, sjálfshjálpar- og viðtals- bókar, sem nefnist Sigurvegarinn. Kvennaforiagið Salka skartar tveimur höfundum sem ekki hafa gefið út skáldsög- ur áður. Þetta eru þær Oddný Sen, sem skrifar söguna Medúsan, sem að sögn er skáldskapur samofinn úr minningum og ímyndunarafli, og Hlín Agnarsdóttir gefur út bókina Hátt uppi við Norðurbrún. Hlfn hefur sem kunnugt er áður skrifað leikrit en nýtir kraftinn f skáldsagnaskrif fyrir þessi jól. I kynningu frá Sölku segir að Hlfn taki fslensku þjóðina og rassskelli hana á einu bretti f bók sinni. Flóttinn er önnur skáldsaga Sindra Freys- sonar en hann hlaut bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir þá fyrri. Flóttinn fjallar um Þjóðverja sem örlögin leiða til Is- lands f þann mund sem seinni heimsstyrj- öldin brýst út. Bók Sindra kemur út hjá JPV- útgáfu sem og skáldsaga Þórunnar Valdi- marsdóttur, Hvfti skugginn, sem gerist í ný- stárlegu samfélagi þar sem fólk öðlast frið- þægingu fyrir syndir sínar með skriftum á Netinu. Snillingurinn Guðbergur Bergsson hefur skrifað barnabókina Hundurinn sem þráði að verða frægur og kemur hún út hjá JPV. Ovinafagnaður Einars Mál og menning hefur á að skipa mörgum færustu höfundum landsins. Gyrðir Elías- son verður þar með sjálfstætt og sfðbúið framhald af Gangandi íkorna, Steinunn Sig- urðardóttir skrifar Jöklaleikhúsið um áhugamannaleikfélag úti á landi sem setur upp Kirsuberjagarð inn með öllu sem þvf til- heyrir. Álfrún Gunnlaugsdóttir gefur út bók um Islending sem tekur þátt í borgarastrfð- inu á Spáni og nefnist hún Yfir Ebrufljót. Hallgrfmur Helgason gefur út Höfund Is- lands og Einar Kárason er með skáldsöguna Óvinafagnað sem gerist á Sturlungaöld. Sjón sendir frá sér síðbúið og sjálfstætt framhald af Augu þfn sáu mig og Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar um Islending sem bú- settur hefur verið í Bandaríkjunum en kem- ur til Islands vegna þess að hann erfði jörð. Spennusagnahöfundarnir Stella Blóm- kvist og Árni Þórarinsson valda ekki lesend- um sfnum vonbrigðum og hjónin Auður t Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson skrifa f barnabók um Tinnu trassa og félaga hennar en bókin nefnist Algjört frelsi. Kristfn ? Helga Gunnarsdóttir gefur út I Mánaljósi - ] •? ævintýri Silfurberg-þríburanna, Ragnheið- ' ur Gestsdóttir er með 40 vikur og Yrsa Sig- urðardóttir skrifar Brotnar styttur og boð- orðin tfu. Einnig skrifa barnabækur þau Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, Draumey Ara- dóttir og Helgi Guðmundsson. -þhs jH . '. U, -Hii u •;. i;. ■, ; . 25 M , E N. N I N' G 2 □ □ 1 /2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.