Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 11
11 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 H>V Norðurland Eimskip leggur nýtt gjald á strandflutningana: íþyngjandi fýrir fyrirtækin okkar - segir Ásgeir Magnússon, forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Akureyri Eimskipafélag íslands hefur lagt álag á nýtt gjald vegna strandílutn- inga sem mælist ekki vel fyrir á landsbyggðinni. Benedikt Ingi Elís- son, forstöðumaður Eimskipafélags- ins á Akureyri, segir að nýja gjaldið reiknist eftir rúmmáli eða þunga sendingarinnar hverju sinni og erfítt sé að segja til um hversu hátt það er. Hann segir þó að hækkunin kunni gengumsneitt að nema um 27 þúsund krónum á hvern 20 feta gám og helmingi hærri upphæð á 40 feta gám. „Við höfum fengið bæði jákvæð og neikvæð viðbrögð við þessu nýja gjaldi," segir Benedikt Ingi. Hann segir jákvæðu viðbrögðin koma frá þeim sem gera sér grein fyrir mikil- vægi þess að Eimskip eða einhver annar aðili reki flutninga á sjó um- hverfis landið. „Menn sjá að þeir væru illa í sveit settir ef slík þjón- usta væri ekki fyrir hendi til fram- tíðar og allir flutningar færu á veg- ina,“ segir Benedikt og bendir á að á fyrstu 6 mánuðum ársins hafi Eimskip tapað um 500 milljónum á flutningastarfseminni einni og sér. „Þetta eru viðbrögð af okkar hálfu til að halda þess- ari þjónustu úti og reka metnað- arfulla þjónustu á landsbyggð- inni. Meginmál- ið er að Eimskip stefnir að því að reka áfram strandflutninga umhverfis land- ið af metnaði og til þess að það sé unnt að veita þessa þjónustu þurf- um við á því að halda að varan taki þátt í rekstrarkostnaði," segir Bene- dikt. Ásgeir Magnússon, forstöðumað- ur Skrifstofu atvinnulífsins á Akur- eyri, er allt annað en hrifinn af þessari hækkun flutningsgjaldanna. „Þessar stöðugu álögur á fyrir- tækjareksturinn á landsbyggðinni eru auðvitað mjög slæmt mál. Það er ljóst að allur flutningskostnaður sem bætist á það sem fyrir er er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækin okkar,“ segir Ásgeir. Aðspurður hvort nokkuð óeðlilegt væri að kostnaður væri samhliða því að flytja vörur út á land frá höfuðborg- arsvæðinu eða þangað sagði hann að hafnir landsins hefðu verið byggðar upp til að þjónusta atvinnu- lífið og fyrirtækin hafi verið tilbúin að nýta þær til inn- og útflutnings. „Mér finnst það ekkert sjálfgefið að sú vara sem flutt er til landsins komi öll að landi á einum stað á þessu skeri okkar og allir sem búa utan Reykjavíkur þurfi að borga mikinn viðbótarkostnað. Við höfum ekki beðið um það að vörunum sé ávallt skipað upp í Reykjavík," sagði Ásgeir. -gk Ásgeir Magnússon. MYND: -SBS Flutningar Blikkrás á Akureyri hefur nú flutt starfsemi sína í ný húsakynni aö Óseyri 2 á Akureyri, þar sem í gær var efnt til ofurlítils hófs af því tilefni. Húsnæöi fyrir- tæksins, sem er í eigu Odds Helga Halldórssonar bæjarfulltrúa, margfaldast viö þetta - sem er líka í samræmi viö viögang og vöxt fyrirtæksins á siöustu misserum. Þaö sinnir blikksmíðavinnu vítt og breitt um Noröurland — og austur á firöi einnig ef því er aö skipta. Brennuvargur á Húsavík: Gómaður eftir þrjár íkveikjur Lögreglan á Húsavík hefur upp- lýst þrjár íkveikjur í ruslagámum í þar síðustu viku. Á mánudags- kvöld var kveikt í ruslagámi við olíusölu Esso á Húsavík og tókst lögreglu að ráða niðurlögum elds- ins. Kvöldið eftir var borinn eldur að tveimur ruslagámum við sorp- brennslustöðina og þá þurfti að kalla til slökkvilið til að ráða nið- urlögum eldsins. Á sunnudags- kvöld var svo kveikt i ruslagámi við Fnjóskárbrú í Hálshreppi og þá þurfti að kalla til slökkviliðið á Stórutjörnum. Gámamir teljast í öllum tilfellum ónýtir og ljóst að tjón varð verulegt þó bótakröfur hafi ekki enn verið lagðar fram. Að sögn Sigurðar Brynjúlfsson- ar yfirlögregluþjóns var lögð mik- il áhersla á að upplýsa þessi mál, enda vöknuðu strax grunsemdir um að sami aðili væri valdur að öllum íkveikjunum og brennu- vargur gengi laus. Eftir ítarlega rannsókn og eftirgrennslan kom í ljós að svo reyndist vera og telst málið að fullu upplýst, að sögn Sigurðar. Hann sagði enn fremur að óhappamaðurinn væri þegar kominn 1 viðeigandi meðferð vegna íkveikjuáráttunnar. -JS Rekstrarkostnaður Norðurmjólkur lækkar um 35-40 milljónir króna á ári Mjólkurvinnslu hætt á Húsavík vinna alla mjólk sem til fellur á einum stað Hagræðing Noröurmjólk mun sþara á milli 35 og 40 milljónir á ári vegna hagræöingar sem veröur viö aö hætta mjólkur- vinnslunni á Húsavík. Á fundi stjórnar Norðurmjólkur á fóstudaginn var samþykkt að hætta mjólkurvinnslu á Húsavík í áföngum á árinu 2002. Öll mjólkur- vinnsla félagsins mun því í fram- haldinu fara fram í mjólkursamlag- inu á Akureyri. Með þessari breyt- ingu er mögulegt að lækka rekstrar- kostnað Norðurmjólkur um 35-40 milljónir króna á ári en tap hefur verið á rekstri félagsins. Við fram- leiðsluna á Húsavík hafa staifað 13 manns og verður þeim boðinn for- gangur aö störfum í starfsstöðinni á Akureyri. Jafnframt hefiu' stjórn fé- lagsins lýst sig reiðubúna til að koma til liðs við heimamenn á Húsavik í að byggja upp arðbæra starfsemi í fasteign fyrirtækisins. Norðurmjólk er að 68% í eigu KEA og 32% í eigu bænda í Eyja- firði og S-Þingeyjarsýslu Breyttar forsendur Helgi Jóhannesson, framkvæmda- stjóri Norðurmjólkur, segir að i upphafi hafi engar hugmyndir verið uppi um að hætta vinnslu á Húsa- vik heldur hafi áætlanir frekar mið- ast við að færa framleiðslu á ein- stökum vörutegundum á milli starfsstöðvanna og hagræða með - hægt að þeim hætti. Þó sé ljóst að slíkar aðgerðir skili aldrei nema takmörk- uðum árangri á meðan halda þarf sama um- fangi rekstrarins á báð- um stöðum. Menn verði einnig að gera sér Ijóst að rekstrarumhverfið tekur sífelldum breyt- ingum. Tæknivæðing, bætt skipulag, vakta- kerfi og aukið rjnni í samlaginu á Akureyri leiðir til þess að hægt er að þjappa framleiðsi- unni meira saman. Sú staða er einfaldlega komin upp að hægt er að vinna alla þá mjólk sem til fellur á félags- svæði Norðurmjólkur á einum stað, þ.e. í sam- laginu á Akureyri. „Að reka tvær starfsstöðvar þegar ein getur annað framleiðslunni er óhag- kvæmt. Það hljóta allir að sjá,“ seg- ir Helgi. Tugmilljóna króna sparnaður „Reksturinn skilar okkur ekki þeim árangri sem við væntum og nauðsynlegur er til að viðhalda frekari vexti og uppbyggingu fyrir- tækisins. Við getum ekki setið hjá og horft á að hægt sé að vinna mjólkina á einum stað með sparn- aði upp á 35-40 milljónir á ári án þess aö bregðast við,“ segir Helgi. Við samþjöppun á rekstrinum á einn stað sparast þau verkefni sem unnin eru á báðum stöðum í um- sýslu ýmiss konar. Einnig næst fram verulegur sparnaður í launa- kostnaði við sjálfa mjólkurvinnsluna. Aukinn kostnaður vegna mjólkur- flutninga er óveru- legur auk þess sem mun hærri upphæð sparast i flutningi á fullunnum vörum frá Húsavík til Ak- ureyrar Á yfirstandandi ári verður mjólkur- framleiðslan á fé- lagssvæði Norður- mjólkur um 26,5 milljónir lítra, þar af um 6,4 milljónir lítra á svæði sam- lagsins á Húsavík. Af þeim eru um 2,4 milljónir lítra flutt- ar til vinnslu á Ak- ureyri þannig að samlagið vinnur úr um 4 milljónum lítra. Þess má geta að þær vinsælu vörur sem fram- leiddar hafa verið á Húsavík verða áfram á boðstólnum, m.a. hin víð- fræga Húsavíkurjógúrt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.