Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 24
40 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 Tilvera DV Affleck slapp med skrekkinn Leikarinn, leikstjórinn og rithöf- undurinn, Ben AfQeck, sem síöast gerði garðinn frægan fyrir leik sinn í myndinni Pearl Harbor, komst enn einu sinni i fréttirnar um síðustu helgi þegar hann var tekinn fyrir allt of hraðan akstur nálægt Macon í Ge- orgíu, nýkominn úr mánaðar langri afvötnun vegna óhóflegrar áfengis- neyslu. Ben var þar á ferðinni ásamt Casey bróður sínum og hans heittelsk- uðu þegar lögreglan mældi þau á 114 mílna hraða þar sem aðeins 70 mílur eru leyfilegar. Ben var færður til næstu lögreglustöðvarinnar en var fljótlega sleppt lausum eftir að hafa greitt um 1200 dollara í sekt. Þegar lög- reglan á staðnum var spurð um málið á eftir sagðist hún ekki hafa gert sér grein fyrir þvi að þarna var um Hollywoodstjörnu að ræða en hældu Ben fyrir kurteisi og sögðu að hann væri aðeins einn af þúsundum sem væru teknar fyrir of hraðan akstur. Stone með væga heilablæðingu Leikkonan Sharon Stone var um helgina flutt á sjúkrahús vegna vægr- ar heilablæöingar og mun væntanlega dvelja þar næstu daga. Sharon, sem er 43ja ára, fór að finna fyrir miklum höfuðverk á laugardaginn og þorði eiginmaður hennar, Phil Bronstein, ritstjóri San Francisco Chronicle, ekki annað en koma henni strax und- ir læknishendur og ók henni því strax á næsta sjúkrahús. Eftir rannsókn á sjúkrahúsinu kom í ljós að væg heila- blæðing hafði valdið höfuðverknum, svo væg að hún mun ekki þurfa að gangast undir aðgerð. Andrés á að efla viðskiptin Andrés prins á Englandi, næstelsti sonur Elísabetar Englandsdrottning- ar, hefur fengið nýtt hlutverk í liflnu. Honum er ætlað að verða eins konar farandviðskiptasendiherra Bretlands. Honum er ætlað að reyna að efla við- skipti milli Bretlands og annarra landa. Breskir kaupsýslumenn hugsa sér gott til glóðarinnar og binda miklar vonir við prinsinn, sem hefur sæmd- arheitið hertoginn af Jórvík. „Allir sem hafa hitt hertogann hafa hrifist af áhuga hans á starfmu og telja að hann muni gagnast vel þeim sem kynna Bretland sem viðskiptafé- laga,“ segja kaupsýslumenn. Hornin íþyngja ekki kúnni: Hugmyndin um framandleika Erfitt aö koma heim Kristín Loftsdóttir segir aö það hafi veriö erfitt aö fóta sig í framandi samfélagi til aö byrja meö. „Ég var algerlega upp á fólkið komiö og gat mig iitiö hreyft nema í fylgd meö því. Þaö sem kom mér þó mest á óvart var hversu erfitt var að koma aftur heim. “ Dr. Kristín Loftsdóttir, lektor i mannfræði, stendur þessa dagana fyrir sýningu, í samvinnu við Þjóð- arbókhlöðuna, á ljósmyndum og munum tengdum WoDaaBe-fólkinu í Afríku. Myndirnar tók Kristín í tveggja ára vettvangsrannsókn í Ní- ger. Kristín lauk BA-námi í mann- fræði frá HÍ 1992 og Ph.D-prófi frá háskóla i Arisona árið 2000. Rann- sóknarsvið hennar er pólitísk vist- fræði, kynmenning, hjarðmennska, sjálfsmynd, þjóðerni, hnattvæðing- arferli, frumbyggjar, orðræða um „hina“ Afríku. Kristín, sem er brosmild og hlý í viðkynningu, er fædd 1968 og með yngstu doktorum á landinu. Hún hefur einnig gott auga fyrir mynd- um því myndirnar á sýningunni eru bæði fallegar og fræðandi. Tilviljun að ég lenti hjá WoDaaBe „Það blundaði í mér löngun til að gera vettvangsrannsókn i Afríku þegar ég fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna. Ég hef lengi haft áhuga á hugmyndum fólks um framandleika og Afríka er framandi í íslensku samfélagi." Kristín segir að það hafi verið til- viljun að hún lenti hjá WoDaaBe- fólkinu. „Fjölskyldan sem ég var hjá valdi mig frekar en ég hana. Athygli mín á þessum hluta Afríku vaknaði i háskólanum í Bandarikjunum þar sem ég kynntist manni af Fulani- fólki i Máritaníu en WoDaaBe er hluti af Fulani. Ég rakst síðan á bók um WoDaaBe og skömmu seinna leitaði ég að upplýsingum um fólkið á Netinu. Fljótlega kom í ljós að þessi hópur hentaði vel fyrir það sem mig langaði til að gera og ég fór til Níger 1995 til að kynna mér að- stæður. Þar kynntist ég hópi af far- andverkamönnum WoDaaBe og þeir fengu svo mikinn áhuga á verkefn- inu að þeir kynntu mig fyrir fjöl- skyldum sínum sem ég bjó síðan hjá.“ Eignaðist góða vini Kristin segir að þaö hafi verið erfitt að fóta sig í framandi samfé- lagi til að byrja með. „Ég var alger- lega upp á fólkið komin og gat mig litið hreyft nema í fylgd með því. Það sem kom mér þó mest á óvart var hversu erfitt var að koma aftur heim. Ég var búin að gera mér grein fyrir því að það yrði erfitt að búa í Níger en maður reiknar alltaf með að það sé auðvelt að koma heim. Þegar ég steig upp í flugvélina á leiðinni í vettvangsferðina hugsaði ég með mér: Guð minn góður, hvað er ég að gera? Fyrstu mánuðina átti ég erfiðast að með að höndla ein- manaleikann sem fylgir svona rann- sókn. Maður er frábruginn fólkinu í kringum sig og finnst maður eiga fátt sameiginlegt með því. Það tók líka tíma að kynnast fólki því lífs- hlaup mitt er mjög frábrugðið lífi þessa fólks. Þegar á leið eignaðist ég nána vini og tel þá í dag til minna kærustu vina.“ Kristín segir að það sé óhjá- kvæmilegt annað en að anda að sér nýjum gildum þegar fólk býr við framandi aðstæður. „Þegar ég kom heim þurfti ég hálft ár til að aðlaga mig íslenskum aðstæðum aftur og það var erfiðara en ég hélt.“ Daglegt líf „Ég tók töluvert af myndum með- an á rannsókninni stóð og í dag vildi ég óska þess að ég hefði tekið miklu fleiri. Sýningin var upphaf- lega sett upp í Hafnarborg. Mig langaði til að koma því sem ég hef verið að gera á framfæri við breið- an hóp en ekki bara fræðimenn. Markmiðið með sýningunni er tvíþætt. Annars vegar að kynna vettvangsferðir mannfræðinnar og minna á að rannsakandinn er hluti af því sem hann er að rannsaka. Hins vegar finnst mér umfjöllun um Afríku mjög neikvæð og einkennast af tveimur hugmyndum, framandi trúarbrögðum og hörmungum eins og striði og hungursneyð. Ég er ekki að gera lítið úr þeirri umræðu en mig langaði til að sína hverdags- legri hlið á lífi fólksins í landinu." Sýning Kristínar Loftsdóttur í Þjóðarbókhlöðunni stendur til 9. nóvember. -Kip Hornin íþyngja ekki kúnni Nafniö á sýningunni er gamall málsháttur WoDaaBe-hirö- ingla í Níger og vísar til þess aö rétt eins og kýrin er vön hornunum þá íþyngir okkur ekki þaö sem viö erum vön. Hátíð WoDaaBe-fólksins Á tyrsta mánuöi vettvangsrannsóknarinnar í Níger kynntist Kristín þessum Gerewol-dansara á hátíö WoDaaB- fólks- ins. ítölsk vika á íslandi Tónlist frá Napólí og nokkrar bíómyndir Ekta tónlist frá Napólí mun hljóma í fyrirlestrasal á annarri hæð Þjóðarbókhlöðunnar í kvöld, miðvikudag. Þar stilla saman strengi sína hinn ítalski Leone Tinganelli og íslendingarnir Jón Rafnsson og Jón E. Hafsteinsson sem mynda tríóið Delizie Italiane. Tónleikarnir hefjast klukkan átta. Þeir eru liður i dagskrá ítalskrar viku sem stendur yfir á vegum fé- lagsins Ítalíazzurra. Þrjá næstu daga, þ.e. fimmtudag, fóstudag og laugardag verða einnig sýndar ítalskar kvikmyndir á ýmsum tím- um í þessum sama sal. Á fóstudag- inn kl. 12 verða íslendingum líka af- hentar þar ítalskar samtímaskáld- sögur sem gjöf frá ítalska utanríkis- ráðuneytinu. Þær verða aðgengileg- ar á Landsbókasafninu. Félagið Ítalíazzurra hefur verið við lýði í fimm ár og í því eru um 50 fjölskyldur sem hittast á samkom- um af og til. Félagið er með ítölsku- námskeið fyrir börn og veitir ítöl- um sem hingað koma margs konar aðstoð, svo og þeim íslendingum sem eru á leið til Ítalíu til dvalar eða búsetu. -Gun. Tríóið Delizie Italiane Þeim þremenningum er fleira til lista lagt en ieika og syngja. Hér eru þeir viö pitsubakstur Leone Tinganelli, Jón Hafsteinsson og Jón Rafnsson. Djass á Austurlandi Jazzkvartett Reykjavikur er á ferð um Austurland. í gærkvöld hélt kvar- tettinn tónleika í Félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og 1 kvöld verða þeir í Blúskjallaranum í Nes- kaupstað. Hefst leikurinn kl. 21.00. Þá er kvartettinn að leika í grunnskólum á Austurlandi á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla. Á skólatónleikunum kynnir kvartettinn djasstónlist. Jazzkvartett Reykjavikur hefur leikið á Listahátið í Reykjavík og á tónlistarhátíðum á Norðurlöndum, í Þýskalandi og í Bretlandi, svo nokkuð sé nefnt. Hljómsveitin lék í viku á hin- um þekkta klúbbi Ronnie Scott’s í Lundúnum 1994 og var afraksturinn tónleikaplatan Hot house - Reykjavik Jazz Quartet live at Ronnie Scott’s. Hljómsveitina skipa Sigurður Flosa- son, Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einarsson og Gunnlaugur Briem.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.