Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 33 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjóri: Birgir Guömundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rítstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblað 300 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum tyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Skattar og taumhald Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem lagt var fram i byrjun vikunnar, endurspeglar i nokkru þann veruleika sem blasir við íslensku þjóðarbúi. Uppsveifla síðustu ára er að baki og lítill sem enginn hagvöxtur fyrirsjáanlegur á næstu misserum. Að líkindum er það rétt sem haldið er fram að ríkissjóð- ur hafi aldrei verið betur í stakk búinn á siðustu áratug- um en nú til að takast á við efnahagslega erfiðleika. Á síð- ustu árum hefur tekist að greiða skuldir ríkissjóðs umtals- vert niður með töluverðri skynsemi. Hitt er svo rétt að staða hins sameiginlega sjóðs gæti verið enn betri ef góð- æri undanfarinna ára hefði verið notað til róttækra að- gerða í ríkisfjármálum almennt en þó einkum í rekstri ríkisins. Heilbrigðiskerfið er enn eitt blæðandi sár og þess sjást því miður engin merki að tekið verði á vandanum. Kerf- isbreytingar i heilbrigðisþjónustu eiga ekki upp á pall- borðið og fyrir það liða sjúklingar jafnt sem starfsfólk heilbrigðisstofnana. Það er kominn tími til þess að skilja að sá sem greiðir fyrir þjónustuna - ríkið - þarf ekki þar með að veita hana. Þegar kreppir að er hins vegar erfið- ara að takast á við verkefni af þessu tagi - pólitísk tæki- færi sem góðæri síðustu ára gaf rann mönnum úr greip- um. Frumvarp fjármálaráðherra til fjárlaga á komandi ári verður ekki dæmt sem tímamót í íslensku efnahagslífi eða talið sýna mikla framsýni og pólitíska djörfung. í nokkurn tíma hafa launamenn jafnt sem atvinnurekendur beðið eftir skýrri stefnu í skattamálum og útfærslu ríkisstjórn- arinnar um víðtækar skattalækkanir. Þessir aðilar þurfa enn að bíða, þó fyrri loforð séu ítrekuð. En eitt er þó nokkurt fagnaðarefni við fjárlagafrum- varpið, þrátt fyrir allt. Sú keynesiska-hugsun sem náði að eitra alla hagstjórn hér á landi, eins og víðast um heim, er á undanhaldi. í stað þess að falla í þá freisni að auka rík- isútgjöld stórkostlega gefa fjármálaráðherra og forsætis- ráðherra loforð um skattalækkanir til að efla atvinnulífið. Þannig er stefnan mörkuð og yfir því ber að gleðjast. En hér skiptir mestu hvernig staðið verður að skattalækkun- um og þó umfram allt hvort um leið verði gerðar breyting- ar á skattkerfinu sem slíku. Vandi fjármálaráðherra á næstu vikum verður ekki að- eins fólginn i því að semja skynsamlegar tillögur um lækkun skatta heldur ekki síður að hafa taumhald á félög- um sínum á Alþingi þegar jólagleðin færist yfir þá við af- greiðslu fjárlaga. Reynslan sýnir og sannar að góður ásetningur fjármálaráðherra má sin lítils gagnvart nokkrum tugum þingmanna sem gæta sértækra hags- muna. í leiðara DV um fjárlagafrumvarp þessa árs sagði fyrir ári: „En jafnvel þótt litið sé fram hjá ávinningi sem rikis- sjóður hefur notið vegna uppgangsins í efnahagslífinu er ljóst að fjármálastjórn hefur verið með styrkari hætti á síðustu árum en íslendingar hafa átt að venjast. Hitt er hins vegar rétt, þegar litið er á þróun ríkisútgjalda undan- farin ár, að ríkisstjórnarflokkarnir, undir forystu fjár- málaráðherra, hafa ekki stigið fast á bremsurnar.“ Þvi miður eiga þessi orð enn við um frumvarp til fjár- laga. Óli Björn Kárason ____________________________________________________ Skoðun Grannt skal að gæta Stundum undi’ar mig hve umræðu um annars mikils- verð málefni er illa fylgt eft- ir af fjölmiðlum, en alls kyns mál sem litlu skipta í raun fá nær ótakmarkað rými, en þykja væntanlega þess eðlis að þau kitli ill- girnis- eða öfundartaugar okkar. Ég heyrði á dögun- um imprað í útvarpi á máli sem ég hygg að þarft sé að ræða ítarlega og vekja verð- uga athygli á víða. Kannski mætti kalla þetta mál æsku- dýrkun tíðarandans eða þá alveg eins að hinir eldri verði að víkja af vinnumarkaðnum, aðeins til þess oft á tíðum að yngja upp og þá eflaust „bæta“ ásýnd fyrirtækjanna. Viðmælendur útvarpsins, sem eru þaulkunnugar vinnumarkaðsmálum og ég treysti mætavel, fullyrtu óhik- að að í þessum efnum væru ófá dæmi þess að án sýnilegs tilefnis væri eldri starfsmönnum annaðhvort ýtt til hliðar eða þeir hreinlega látnir hætta og yngri ráðnir í þeirra stað. Sömuleiðis bentu viðmælendurnir á allt of mörg dæmi þar sem færu starfsfólki væri hafnað í vinnu af þeirri einföldu ástæðu að það væri of gam- alt og þá var gjarnan verið að tala um fólk um eða inn- an við fimmtugt, þ.e. fólk á bezta starfsaldri með ærna reynslu og þekkingu í farteskinu. Innhaldsleysi orða- flaums Fulltrúar atvinnulífsins báru þetta til baka og kváð- ust ekki kannast hér við, en einhvern veginn trúði ég nú betur þeim sem höfði ótal dæmi á taktein- um um slíka mismunun, slíka rangs- leitni og öfugþróun í reynd. Ég hefi af áþekkum dæmum spurnir og veit að dagsönn eru og í einu slíku var ástæðan blákalt fram borin aö þaö þyrfti yngri starfskraft og umfram allt hressari, en það hefur orðið vin- sælt til notkunar um kjaftagleiðar persónur, svo sem við höfum kynnzt þeim í þáttum útvarpsstöðva og breytir víst litlu þó sá eða sú sé ómælandi á íslenzka tungu og inni- haldsleysi orðaílaumsins sé algjört. í umrœddu tilfelli hafði starfsmaðurinn, fullorðin kona, gegnt starfi sínu óaðfinnanlega og m.a. unnið ýmis verkefni sem ofurhressir starfsfélagar hennar skildu eftir sig í skreppitúrum sínum á kaffihús eða bari til að hitta þar aðra ofurhressa. umræddu tílfelli hafði starfsmaður- inn, fullorðin kona, gegnt starfi sínu óaðfinnanlega og m.a. unnið ýmis verkefni sem ofurhressir starfsfélag- ar hennar skildu eftir sig í skreppi- túrum sínum á kaffihús eða bari til að hitta þar aðra ofurhressa. En einn hress til viðbótar þurfti að að komast og þó hann entist nú ekki nema nokkra mánuði, hljóta yfir- mennirnir að hafa verið einkar ánægðir, þvi þeir höfðu svarað „kalli tímans“ um ofurhressa ímynd. Mörg áþekk dæmi þekki ég og þá Vaxtadreki gegn verðbólgudraug Efnahagssérfræðingar keppast við að segja landsmönnum að ekki sé nokkur leið að lækka okurvextina á íslandi. Það er svo mikil þensla, það verður að halda henni niðri með hæstu vöxtum sem þróaðar þjóðir búa við. En efnahagsfræði er erfið og engin nákvæmnisvísindi, það er alltaf hægt að finna einhvern sem segir eitthvað annað en sá síðasti í þeim fræðum. „Þenslan“ Það eru ekki bara vextirnir sem stjórna „þenslunni", vettlingatök stjórnvalda eru ein aðalástæðan, dýr- um þensluhvetjandi stjórnvalds- ákvörðunum ijölgar stöðugt. Ríkis- sjóður og sveitarfélögin eyða og spenna meira og meira, óþörf skrif- finnska hins opinbera vex með mikl- um hraða. Hagsmunahóparnir heimta meira og meira af almannafé. Nokkrir klikukarlar i einhverju hags- munafélagi geta stöðvað ísland í lengri tíma. Reglur um verkfóll hefur ríkisvaldið ekki enn þá haft döngun í sér til að laga og kaupið hækkar úr takti við markaðinn. Unga fólkið skil- ar sér ekki á vinnumarkaðinn vegna óhnitmiðaðs skólakerfis, á kostnað skattgreiðenda, meðan manneklan á vinnumarkaðnum veldur þenslu. Of- bólgið velferðarkerfi heldur fjölda fólks i iðjuleysi á alls kyns bótum. Og skattheimtan er að komast úr bönd- unum, skattafinngálknið gleypir um 2/5 af þvi sem landsmenn afla, var rif- lega 1/3 fyrir nokkrum árum. En samt er eyðsla opinberra sjóða orðin meiri en skattheimtan, gervipeningar sem valda þenslu. Og meira er af gervipeningum, t.d. fiskikvótinn sem ríkisvaldið álpaðist til að gefa, eigur þjóðarinnar, nokkur hundr- uð milljarðar, sem eru i hringrás um efnahagskerfið án þess að raunverulegt fé sé á bak við, og fjármagninu er dælt í alls kyns þensluhvetj- andi ofljárfestingu. Þenslan búin Helsta þenslutímabilinu lauk reyndar fyrir einu og hálfu ári og ræfildómurinn í fyrirtækjarekstrinum hefur hríðversnað síðustu mánuð- ina. Ríkisbanki Bandaríkj- anna hefur lækkað vexti hvað eftir annað allt árið, stýrivextimir eru komnir niður í 3%. Nágrannalöndin eru með 3-5% stýrivexti og Japanar minna, að nálgast núllið. En ekki ís- land, hér er stýrivöxtunum haldið í 11%, margfóld vaxtabyrði á við við- skiptalöndin. Gamalt heimskupar í islenskri stjórnun, verðtryggingin, er enn við lýði, bankastarfsemi er ein- hver harðast regluvædda athafna- semi sem til er, það hefði verið auð- velt að afnema verðtrygginguna alveg fyrrir áratugum ef kjarkurinn hefði verið fyrir hendi. Þeir sem helst búa við þenslu hér (enn þá) eru þeir sem hafa lögverndaðan rétt tU að heimta fé af landsmönnum (þar með taldir skattar, tryggingaiðgjöld, vextir, líf- eyrissjóðsiðgjöld o.fl). Og svo eru það þeir sniðugu sem selja erlendis hluta- fé i fyrirtækjum sem þeir búa tU sjálf- ir og koma með töskuna fulla af fé hingað heim. Það gæti þurft fleiri svoleiðis þensluvalda von bráðar þeg- ar vindurinn er farinn úr efnahagn- um. Verðbólguvandi? Það er ekki skrýtið að sé verðbólga á íslandi, það er oft verð- bólga þar sem er uppbygg- ing og framfarir. ísland er í uppbyggingu, enn þá a.m.k. Það alvarlegasta við vaxta- okrið er að þessi uppbygg- ing getur stöðvast og þar með endurnýjun efhahags- lífsins. Þeir nýju og ungu komast ekki af stað, eða eru kæfðir í fæðingu, litlu ís- lensku fyrirtækin sligast undan vaxtaokrinu. Lands- byggðinni er að blæða út meðan fiskurinn syndir fram hjá. En stórfyrirtækin og ríkið fara bara til New York og London og fá þar lánsfé eins og þau lystir og valda þannig „þenslu“ hér meðan landsmenn sjálfir og litlu fyrirtækin þeirra eru fóst í gininu á vaxtadrek- anum sem er búinn að rýja marga æru, eigum og lífsvilja. Hver fer með efnahagsstjórnun? Stjórnvaldið íslenska hefur oft upp á síðkastið fallið fyrir tískufyrirbær- um utan úr heimi, munstrið er orðið vel þekkt; stjórnmálamennirnir fá embættismönnum völd og semja laga- eða reglubálka í anda stórríkja. Síðan kemur í ljós að þessi stjórnun er ónot- hæf á íslandi, enda von, litla ísland er bara einn þúsundasti eða svo af stórnágrönnunum. Það þýðir ekki að gefa Seðlabankanum fyrirmæli um að eltast við verðbólguna á eigin vegum með því að beita okurvöxtum. Það er eins og að gefa Vegagerð rikisins fyr- irmæli um að þrengja vegina til þess að hamla á móti aukinni umferð. Vaxtadreki Seðlabankans ræður ekki við verbólgudrauginn. Friðrik Danielsson Það eru ekki bara vextirnr sem stjórna „þenslunni“, vett- lingatök stjórnvalda eru ein aðalástœðan, dýrum þenslu- hvetjandi stjórnvaldsákvörðunum fjölgar stöðugt. ekki síður dapurleg um reynslumik- ið hæfileikafólk í atvinnuleit sem sannkölluð píslarganga hefur reynzt. Dýrmætur reynslusjóöur Fjarri sé mér að alhæfa hér um og vel veit ég um fjölmarga vinnuveit- endur sem vilja einmitt halda í sitt reynda starfsfólk og líta aldrei á ald- urinn, heldur eingöngu á hversu starfið er rækt, en þetta mál þarf sannarlega að skoða, því illt er að vita ef eðlileg jafnréttissjónarmið eru ekki þarna í heiðri höfð. Vel veit ég um öra þróun á ýmsum sviðum svo sem tölvutæknin er máski gleggst dæmi um, en vissulega hef ég séð að eldra fólk er ekki í neinum vanda með að aðlaga sig slíku og svo á það dýrmætan reynslusjóð sem aldrei skyldi fram hjá litið. Ögmundur Jónasson hefur haft um það lofsverða framgöngu að færa þetta mál inn í sali Alþingis og ég veit að hann mun endurflytja það mál nú á komandi þingi, enda mun það hafa fengið einkar góðar viðtök- ur að vonum. Hér þarf örugglega grannt að gæta að. Helgi Seljan Á bólakafi í braski „Þrátt fyrir fækk- un afgreiðslustaða er aukin framleiðni og hagræðing í banka- kerfinu furðu lítil. Starfsfólki fækkar lít- ið þótt flestir afgreiði sig nú orðið sjálfir á netinu. Gjaldtaka í formi þóknana hækkar stöðugt. Krafan um aukna arðsemi umfram framleiðniaukningu veldur auknum vaxtamun og skortur á samkeppni veitir það svigrúm sem þarf til þess. Þessu til viðbótar eru bankarnir sjálfir og stórir hópar stjórnenda þeirra á bólakafi í alls konar braski með hlutabréf bæði í bönkunum sjálfum og í fyrirtækjum sem jafn- framt eru stærstu viðskiptamenn þessara sömu banka. En hverjir fá reikninginn þegar slík viðskipti misheppnast og útlánatöpin vaxa á ný? Því er fljótsvarað. Það eru litlir og meðalstórir viðskiptamenn þess- ara lánastofnana." Sveinn Hannesson á vef Samtaka iönaðarins Jafnaðarhúnninn „Jafnaðarmanna- björninn ógurlegi sem átti að verða til við myndun Samfylk- ingarinnar er þegar best lætur lítill, ve- sæll og máttlaus húnn. Og hann blundar blessaður og verður aldrei stór meðan sama gamla og þreytta liðið tyggur sömu siðferðistugguna ár eftir ár. Það þarf nefnilega annað og meira en nýtt nafn og nýja kennitölu." Guöjón Ólafur Jónsson á hrifla.is Spurt og svarað Veljast orðið til þingmennsku fremur þeir sem kunna vel á fjohmðla Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar. Leiðin er um fjölmiðlana „í fyrsta lagi er ekkert hægt að fullyrða um að þeir sem vel kunna á fjölmiðla hafi minna til mála að leggja við að setja landinu lög en aðrir. í annan stað eru leikreglur samfélagsins þannig að almenningi er faliö að velja sér fulltrúa á Alþingi - og i nútimasam- félagi er leiðin til almennings I gegnum flölmiðlana. Og í þriðja lagi skiptir því miklu máli að fjölmiðlam- ir reyni að stuðla að upplýstri umræðu, sem þeim tekst oft á tíðum vel upp, en stundum síður. Þegar hæstaréttardómari kemur með svona yfirlýsingu finnst mér ekki ósanngjöm krafa að hann útskýri ummæli sin frekar, nema við sé átt að nauðsyn sé á fleiri lögfræðingum meðal þingmanna." Ámi Magnússon, framkvstj. Framsóknarfl. Fjölbreytt reynsla affarasœlust „Ég held að affarasælast sé fyr- ir þjóðina að til setu á Alþingi veljist fólk sem er með ólíkan bak- grunn og fjölbreytta reynslu af ýmsum sviðum þjóðlífsins. í þeim hópi sem nú situr á Alþingi eru meðal annars gamlir fjölmiðlamenn og það er vel. Mín skoðun er sú að þeir hafi ekki lagt minna af mörkum til löggjafastarfsins en aðrir þingmenn. Sem betur fer er það einnig þannig að meðal starfs- fólks Alþingis er að finna fræðinga á ýmsum svið- um sem þingmenn geta sótt sér aðstoð til, þar á meðal lögfræðingar. Og í umræðu um löggjafastarf- ið er þáttur starfsmanna þings og ráðuneyta stór og ef til vill vanmetinn á stundum." Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður. Misskilningur dómarans „Því miður eru þeir sárafáir alþingismennirnir sem kunna að umgangast fjölmiðla af þeirri háttvísi sem þeim ber. Eftir að hafa skrif- að um pólitik í dagblöð í áratugi þekki ég engan sem hefur komist inn á þing vegna þess að hann „kunni á fjölmiðla". Aftur á móti þekki ég marga lögfræðinga sem hafa verið og eru á þingi og höfðu og hafa ekkert til málanna að leggja umfram aðra þingmenn þegar kemur að lög- gjafasviðinu. Þetta er því mikill misskilningur hjá Hrafni Bragasyni hæstaréttardómara, sem áður en hann tók við núverandi stöðu kunni allra manna best að umgangast íjölmiöla." Ingvi Hrafn Óskarsson, lögfr. ogformaður SUS. Fjölmiðlamir veita aðhald „Vissulega má til sanns vegar færa að í dag séu uppi aðrar og ríkari kröfur til manna um fram- komu i fjölmiðlum en áóur var. Nú eru ílokksblöð- in dauð og að hinu leytinu rikir meiri samkeppni á fjölmiðlamarkaði, einkum í ljósvakanum. En á hinn bóginn sé ég ekkert samhengi milli þessara breytinga og þess að stjórnmálamenn ættu að hafa minna til málanna að leggja en var áður. Aukið og eflt aðhald fjölmiðla ætti í raun að virka þannig að kjósendur hefðu betri aðstöðu til að fylgjast með störfum fulltrúa sinna á þingi - og þar með ættu hinir öflugu fjölmiðlar einnig að fylgjast með þvi að löggjafastarfið sé vandað.“ 0 Þetta er sjónarmiö Hrafns Bragasonar hæstaréttardómara sem hann viöraöi á þingi Lögfræöingafélags íslands í sl. viku. Stéttskiptar líf- eyrisgreiðslur Ráðamenn þjóðarinnar tala oft um lffeyrissjóði al- mennra launþega ems og þeir hafi umráðarétt yfir þeim, eins og ríkissjóði og öðru almannafé. Davíð Oddsson mælir væntanlega fyrir munn rikisstjórnar- innar allrar þegar hann tal- ar eins og sá sem valdið hef- ur þegar hann atyrðir um- sjónarmenn lífeyrissjóða fýrir að neita að fjármagna áhættusamar áætlanir stjórnarinnar eða kaupa ríkiseignir á uppsprengdu verði. Heimtað var að lífeyrissjóðirnir fjármögnuðu álbræðslu fyrir austan en vafasamt er að sjóðirnir hafi heim- ild til að stofn'a atvinnufyrirtæki þótt þeim leyfist að kaupa hlutabréf í fyr- irtæki í rekstri fyrir tiltekinn hundraðshluta af eigin fé. En þegar sjóðirnir drógu sig út úr ævintýrinu lét forsætisráðherra eins og þeir hefðu svikið hann og þjóðina. Sama var upp á teningnum þegar lífeyrissjóðirnir héldu að sér hend- inni þegar hluti af Landssímanum var settur á almennan markað. Þá dró Davíð Oddsson enga dul á að þeir hefðu brugðist sér, ríkisstjórninni, Landssimanum og þjóðinni allri. Hins vegar er óútskýrt hvaðan hon- um kemur vald eða yfirleitt nokkur heimild til þess að hafa áhrif á með hvaða hætti almennir launþegar ávaxta sparifé sitt. Er ekki nóg að ráðherragengin tví- skatti lífeyrissparnað fólksins í land- inu þótt þau fari ekki líka að ráðskast með sjóðina og noti þá sér til upp- hefðar og atkvæðaveiða? Stéttskiptir lífeyrisþegar Annars ætlar það seint að komast inn í höfuð okkar stéttskipta þjóðfé- lags að lífeyrissjóðir eru tvenns kon- ar. Söfnunarsjóðir og gegnumstreym- issjóðir. Opinberi sjóðaaðallinn er í gegnumstreymissjóðunum, sem ríkis- sjóður skuldar ótalda milljarða í og bankamenn sem fá sína uppbót af því mikla fé sem bankarnir taka í vaxta- mun. Söfnunarsjóðirnir eru eingöngu greiddir af kaupi launþega og þurfa skattgreiðendur eða þeir sem skulda bönkum fé aldrei að leggja til eyri til að drýgja þá sjóði og þar með lífeyri þeirra sem eiga þá sjóði. Hið undarlega er svo að stór- skuldugir gegnumstreymissjóðir hins opinbera greiða miklu betri lífeyri fyrir enn styttri starfsævi en söfnunarsjóðir almennra lífeyrisþega sem aldrei hafa notið ölmusu frá hinu opinbera, nema síður sé. Það byggist meðal ann- ars á því að þeir opinberu þurfa ekki að taka á sig verðbólgutap þeirra afglapa fyrri tíða sem bjuggu yfir álíka fjármálaviti og köttur- inn á sjöstjörnunni. En þeir höfðu alltaf nóg vit til að hlúa að eigin hagsmunum. Þannig hafa t.d. ráðherrar þrefald- an eftirlaunarétt miðað við aðra. Þingmenn hafa einnig gegnum tíðina séð mjög vel um eigin hag að starfs- lokum og embættismenn hafa lengi vitað hvernig þeir komu ár sinni best fyrir borð í þessum efnum. Ef eitt- hvað vantar upp á að full eftirlaun náist, og þar vantar mikið á, er mis- munurinn einfaldlega sóttur I ríkis- sjóð. Bankarnir eiga auðvelt með að hækka þjónustugjöld og auka vaxta- mun ef hætta steðjar að eftirlaunum hálaunamannanna í bankakerfunum. Höfuötilgangurinn Nú er oft haft á orði að lífeyrissjóð- irnir séu orðnir svo fjársterkir og öfl- ugir að þeir eru ríki í ríkinu og eru jafnvel komnir i vandræði með að ávaxta sínar miklu fjárfúlgur. Sé það rétt að söfnunarsjóðirnir séu orðnir svo ríkir að þeir séu að springa utan af auðæfum sínum bendir það til að uppsöfnun þeirra sé óeðlilega mikil. Það þýðir að þeir eru óþarflega spar- ir á greiðslu lífeyris til hinna raun- verulegu eigenda sinna, sjóðfélag- anna. Of mikil áhersla er lögð á að safna sem mestu og skemmta þeim sem trúað er fyrir að fara með féð og ávaxta það með því að spila stóra karla á fjármálamörkuöum. En það hefur þeim tekist vel til þessa og hafa flestir gætt hagsmuna sjóðanna sem þeim er trúað fyrir í hvívetna, þótt telja mætti upp dæmi um hið gagn- stæða. Höfuðtilgangur lífeyrissjóða er að greiða lífeyri. Góð stjóm og arðbær ávöxtun auðveldar það hlutverk. En óeðlileg uppsöfnun fjár og nær alræð- isvald á fjármálamarkaði sýnir kannski að tilgangur sjóðanna er að gleymast. Væri ef til vill eðlilegra að bæta lífeyrinn heldur en að safna í hlöður löngu eftir að þær eru orðnar yfirfullar. Níska stjómenda almennra lífeyr- issjóða skýrir ef til vill að hluta hve þeir opinberu standa miklu betur að vígi að þessu leyti en verkamenn í víngarði frjálsa markaðarins. Talnaliprir tryggingafræðingar geta sjálfsagt afsannað flest það sem hér er imprað á en það breytir aldrei því að eigendur almennu lífeyrissjóð- anna gera nær engar kröfur til þeirra sem trúað er fyrir að stjórna þeim. Þeir taka því með þökkum sem skammtað er eins og skít úr hnefa. Er ekki nóg að ráðherragengin tvískatti lífeyrisspamað fólksins í landinu þótt þau fari ekki líka að ráðskast með sjóðina og nota þá sjálfum sér til upphefðar og atkvœðaveiða ?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.