Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Page 13
13
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001__________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
Bush Bandaríkjaforseti hvatti þjóð sína til dáða í sjónvarpsávarpi í gær:
„Heyjum stríð til að bjarga
sjálfri siðvæðingunni"
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði 1 ávarpi til bandarísku þjóðar-
innar í gær að hún væri sterkari og
sameinaðari eftir hryðjuverkaárás-
irnar þann 11. september sl. Hann
notaði einnig tækifærið til að hæla
„nýju þjóðarhetjunum", slökkviliðs-
mönnunum sem unnu að björgun úr
rústum World Trade Center og öðr-
um opinberum starfsmönnum sem
unnið hefðu að endurreisnarstarf-
inu. Hann minntist einnig á þátt
starfsmanna póstþjónustunnar sem
öðrum fremur hefðu borðið byrðarn-
ar af miltisbrandsfárinu, sem tröll-
riðið hefur þjóðinni.
„Við erum ekki sama þjóðin og við
vorum þann 10. september. Við erum
sorgmæddari og ekki eins saklaus,
sterkari og samheldnari, og frammi
fyrir aðsteðjandi ógn erum við ein-
beittari og hugrakkari," sagði Bush,
sem ávarpaði þjóðina í beinni sjón-
varpsútsendingu frá WCC-ráðstefnu-
höllinni í Atlanta í Georgíu, þar sem
Georg W. Bush
Bush Bandaríkjaforseti segir þjóö sína sterkari og samheldnari eftir
hryöjuverkaárásirnar þann 11. september. „ Viö erum sorgmæddari og ekki
eins saklaus, sterkari og samheidnari, og frammi fyrir aösteöjandi ógn erum
viö einbeittari og hugrakkari, “ segir Bush.
um 5000 manns, aðallega í þjónustu
ríkisins og saman komin til að hylla
forsetann sem yfir tuttugu sinnum
varð að gera hlé á ræðu sinni vegna
fagnaðarláta.
Bush lagði áherslu á það að
Bandaríkin væru að heyja stríð til
að bjarga sjálfri siðvæðingunni og
það væri munur á að vera í við-
bragðsstöðu eða að vera buguð.
„Þjóðin mun ekki láta buga sig,“
sagði Bush og bætti því við að ríkis-
stjórnin gerði sitt tU ýtrasta til að
hindra ný hryðjuverk og kallaði eft-
ir stofnun nýrra öryggissveita sjálf-
boðaliða til að sinna neyðartilfellum
innanlands.
„Þessi nýja staða kallar á ábyrgð,
bæði ríkisstjórnar og borgara. Við
eigum að varðveita það góða í okkur
og til þess höfum við tækifæri núna.
Eftir harmleikinn erum við nú aftur
að endurheimta kraftinn sem ein-
kennt hefur þjóð okkar, sagði Bush.
REUTER-MYND
Blair og Musharraf
Leiötogar Bretlands og Pakistans
voru ekki sammála um þaö á fundi
sínum t gær hvort halda ætti áfram
loftárásunum á Afganistan í föstu-
mánuöi múslíma.
Blair hafnar hléi
á loftárásunum
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hafnaði þvi í gær að hlé
yrði gert á loftárásunum á Afganist-
an í ramadan, föstumánuði
múslíma sem hefst um aðra helgi,
eins og Pervez Musharraf, leiðtogi
herforingjastjórnarinnar í Pakistan
fór fram á. Musharraf var í heim-
sókn í London í gær.
Blair sagði eftir viðræður við
Musharraf, lykilbandamann i her-
ferðinni gegn talibönum og hryðju-
verkamönnum í Afganistan, að taka
yrði tillit til viðkvæmni múslíma
fyrir því aö berjast í föstumánuðin-
REUTERTMYND
Ungt og leikur sér
Þessi sætu hvítu tígrisdýrshvolpar geta leikiö sér áhygglulaust í dýragarðinum í Nýju-Delhi á Indlandi. Hvítir tígrar eru
ekki lengur til í villtri náttúru indlands þar sem þeir hafa veriö auöveld bráö veiöimanna af því aö þeir geta ekki dulist
jafn vel og gulröndóttir bræöur þeirra. Sjö hvítir tígrar eru í dýragaröinum í indversku höfuöborginni.
„En þegar öllu er á botninn hvolft
held ég að allir skilji að baráttan
verður að halda áfram þar til mark-
miðum hennar hefur verið náð,“
sagði Blair.
Musharraf hafði áður sagt í París
að loftárásir í föstumánuðinum
yrðu til þess að draga úr stuðningi
múslíma við herferðina.
Dönsku stjórnar-
flokkarnir hopa
Umræðurnar um útlendinga og
rétt innflytjendafjölskyldna til að
sameinast i Danmörku að undan-
fömu hafa skaðað stjórnarflokkana,
jafnaðarmenn og radikale venstre,
að þvi er fram kemur í nýrri skoð-
anakönnun sem fréttastofan Ritzau
lét gera.
Stjórnarflokkarnir hafa tapað
fylgi síðustu daga en íhaldsflokk-
arnir Venstre og íhaldssami þjóðar-
flokkurinn hafa unnið á.
Fylgi jafnaðarmanna fór úr 30,8
prósentum í 28,3 prósent á einni
viku. Venstre eykur hins vegar fylgi
sitt úr 28,9 prósentum atkvæða í
31,2 prósent.
Afganskir flóttamenn fluttir
í betri búðir á laugardaginn
Hefja á flutning á afgönskum
flóttamönnum frá bráðabirgðabúð-
um skammt innan landamæra
Pakistans til betri og öruggari búða
lengra inni í landi á laugardag.
Peter Kessler, talsmaður Flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, sagði frönsku fréttastofunni
AFP að flóttamennimir yrðu fluttir
í ellefu nýjar búðir.
Kessler sagði að flóttamenn sem
hafast við í Killi Faizo-búðunum
nærri borginni Quetta í suðvestur-
hluta Pakistans og í öðrum búðum
nærri Peshawar fengju forgang.
Pakistönsk stjórnvöld gáfu leyfi
fyrir þessum flutningum í gær.
Pakistanar hafa verið tregir til að
hleypa afgönskum flóttamönnum
inn i landið.
Flóttamannastofnun SÞ telur að
meira en 135 þúsund afganskir
REUTERJVIYND
Flóttamenn í nýjar búðir
Afganskir flóttamenn sem búa viö
hvaö verstan kost í Pakistan veröa
fluttir í skárri búöir um helgina.
flóttamenn hafi komið til Pakitans
frá því hryðjuverkaárásirnar voru
gerðar á Bandaríkin í september.
Flestir þeirra hafa farið ólöglega yf-
ir landamærin.
Nýju flóttamannabúðirnar hafa
verið tilbúnar um nokkurt skeið en
stjórnvöld í Pakistan hafa tafið fyr-
ir því að þær væru teknar í notkun.
Leyfi hefur verið gefið fyrir flutn-
ingum þrjú þúsund flóttamanna, að-
allega kvenna og barna. Flótta-
mennimir hafa búið við mjög illan
kost í búðunum við Quetta og Pes-
hawar þar sem svo til engin aðstaða
er til neins og þar sem matur er af
skornum skammti.
Peter Kessler sagði að aðstaðan í
nýju búðunum væri mun skárri,
þótt þar væri aðeins það allra brýn-
asta. Hann sagði að þar væri nóg af
bæði tjöldum og mat.
Tilbúinn í heilagt stríö
Alls 85 pakistanskir liðsmenn
Harket-fylkingarinnar, sem berst meö
talibönum, féllu í loftárásunum í gær.
Fjöldi Pakistana
féll í Afganistan
Abu Okasha, talsmaður paki-
stönsku Harket-fylkingarinnar, sem
berst með talibönum í Afganistan,
sagði að 85 liðsmenn hennar hefðu
farist í sprengjuárásum Bandaríkja-
manna í gær, á svæðinu suður af
borginni Mazar e-Sharif í norðu-
Afganistan og að tveir hinna föllnu
hefðu verið háttsettir foryngjar.
Okasha sagði að hersveitir þeirra
hefðu verið á svæðinu síðustu átta
daga og aðstoðað talibana við að
styrkja varnir sínar gegn Norður-
bandalaginu. Hann neitaði að ræða
stöðu talibana á svæðinu, en sagði að
Harket-fylkingin myndi halda áfram
að styðja talibana í því sem hann kall-
aði „heilagt stríð“ gegn Bandaríkjun-
um og Norðurbandalaginu.
Fjöldamorðingi á
ferð í Mexíkó
Mexíkanska lögreglan í landa-
mæraborginni Ciudad Juarez, í ná-
grenni E1 Paso í Texas, hefur síð-
ustu daga fundiö lík átta kvenna,
sem bendir til þess að fjöldamorð-
ingi sé þar á ferðinni. Þrjár kvenn-
anna fundust á akri í nágrenni
borgarinnar á þriðjudaginn og aðr-
ar fimm til viðbótar daginn eftir í
næsta nágrenni. Lögreglan óttast að
konurnar hafi allar verið myrtar af
sama manninum, en á árunum 1994
tO 1997 hurfu að minnsta kosti 50
konur á sama svæðinu og óttast lög-
reglan að tengsl gætu verið þar á
milli. Aðallega mun um að ræða
ungar konur sem vinna kvöldvinnu
í verksmiðjum borgarinnar.
REUTERTVIYND
John Howard
Ástralski forsætisráöherrann stend-
ur fast á sínu og þvertekur fyrir aö
hleypa flóttamönnum af háskafleyt-
um inn í landiö.
Howard neitar
enn að taka við
flóttamönnum
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, sat enn við sinn keip í
morgun og neitaði að hleypa flótta-
mönnum inn í landið, daginn fyrir
kosningar til ástralska þingsins.
Tvær konur létu lífið eftir að
kveikt var í báti með flóttamönnum
þegar ástralski sjóherinn kom í veg
fyrir að hann kæmist til hafnar í
gær.
Howard nýtur stuðnings
áströlsku þjóðarinnar í að neita að
taka við flóttamönnunum sem hafa
reynt að komast til Ástralíu á
manndrápsfleytum undanfarnar
vikur. Flóttamannamálið er enda
orðið að helsta kosningamálinu.