Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Qupperneq 33
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001
DV
%
_________________37
Eiríkur á föstudegi
... með einum af fjölmörgum
nemendum á Bifröst.
Brillerar á Bifröst
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra sló í gegn á fjölmennum fundi
sem hann hélt með nemendum Við-
skiptaháskólans á Bifröst í vikunni.
Guðni mætti á fundinn i fylgd bíl-
stjóra og aðstoðarmanns og kom víða
við í langri ræðu. Sagði meðal annars
að þeir sem óttuðust að islenskar kýr
yrðu norskar ef leyfðir yrðu norskir
fósturvísar gætu eins haldið því fram
að íslenskir kjúklingar væru ítalskir.
Þegar Guðni yfirgaf fundinn voru
flesti fundarmenn orðnir framsóknar-
menn.
Nýtt kaupfélag
Hinn 1. desem-
ber verður opn-
aður nýr veit-
ingastaður á
Laugavegi 3 þar
sem Búnaðar-
bankinn var
áður til húsa.
Staðurinn verður
á tveimur hæð-
um og þar verð-
ur „...góður mat-
ur, tónlist,
nettengdar tölv-
ur og verslun með fágæta muni,“
eins og Friðrik Weisshappel, fram-
kvæmdastjóri staðarins, orðar það.
Veitingastaðurinn hefur hlotið
nafnið Kaupfélagið og verður rek-
inn í tengslum við Hús Málarans í
Bankastræti sem áður hét Sólon ís-
landus en Friðrik hefur keypt sig
inn í rekstrarfélag þess staöar.
Friðrik
Matur og fágætir
munir.
Kynlífssaga
Út er kom-
in bókin
Mannkynið
og mimúðin
- kynlífssaga
mannsins
eftir R.
Tannahill í
þýðingu
Kristins R.
Ólafssonar,
fréttaritara á
Spáni. í bók-
inni er fariö
vítt og breitt
yfir svið
kynhegðunar
mannsins frá
örófi alda og fram til kvenrétt-
indabyltingar síðari ára. Borið
hefur á gagnrýni þess efnis að bet-
ur hefði mátt myndskreyta bókina
þó þar sé að finna ýmsar merkar
myndir sem varðveist hafa um
aldabil. í lokaorðum höfundar
hittir hann þó naglann á höfuðið
þegar hann segir og skrifar:
„Þá er söguöld hófst, höfðu ger-
ræðissamfélög þegar uppgötvað að
með því að koma aga á kynferðis-
leg mök var hægt að ná valdi á
fjölskyldunni og stuðla þannig aö
auknum stöðugleika ríkisins."
'I tfV i/.OMAl’fi l
fe,
MANNKYNIÐ OG MIJNÚÐIN
Myndskreyting
Samræöi viö dýr var
ekki óalgengt í iand-
búnaöarsamfélög-
um.
Leiðrétting
Vegna tilkomu lúxussala í kvik-
myndahús í höfuðborginni skal tek-
ið fram aö almennir sýningarsalir
eru ekki eingöngu fyrir fátæklinga.
Þeir eru öflum opnir óháð fjárhag
gesta.
Velheppnað kvöld í Oskjuhlíð
Ef hugmynd milljaröamæringsins yrði aö veruleika - „...þetta þyrfti aö augiýsa vei í þáöum heimsálfum
og þá þarf ekki aöspyrja um businessinn. “
SAMSETT MYND
Draumur íslensks milljarðamærings erlendis:
Spilavíti í Perluna
- eins og í Mónakó og Las Vegas - Alfreð líst vel á
Einn af milljarðamæringunum
sem kemur við. sögu í nýrri bók
Pálma Jónassonar um ríkustu ís-
lendinga samtímans hefur viðrað þá
skoðun í bréfi til vinar síns hér á
landi að Perlunni verði breytt í
spilavíti og stílað á alþjóðamarkað.
Fyrirhuguð sala á Perlunni er
kveikjan að hugmynd milljarða-
mæringsins sem ekki vill láta nafns
síns getið þar sem málið sé enn á
umræðustigi í þröngum kunningja-
hópi hans. Alfreð Þorsteinssyni,
stjórnarformanni Orkuveitunnar og
upphafsmanni Perlusölunnar, líst
ekki illa á hugmynd milljarðamær-
ingsins:
„Ég er fyrst að heyra þetta núna
en líst ekki illa
á. Reyndar
finnst mér þetta
athyglisvert,"
segir Alfreð og
bætir því við að
áhugi manna á
Perlunni sé
miklu meiri en
hann hafi órað Alfreð
fyrir. Fyrir- Athyglisvert.
spurnir hafi 1
borist jafnt frá innlendum aðilum
sem og erlendis frá. Ljóst sé að auö-
veldara verði að selja Perluna en
búist hafði verið við.
í bréfi milljarðamæringsins, þar
sem hann viðrar hugmyndir sínar
um alþjóðlegt spilavíti í Perlunni,
segir meðal annars:
„...annars hvað viðvíkur Perlunni
þá sé ég fyrir mér að þar verði sett
upp Casínó með tilheyrandi finiríi.
Þetta þyfti að auglýsa vel í báðum
heimsálfum og þá þarf ekki að
spyrja um businessinn. Að vísu
mættu Reykvíkingar ekki spila
þarna enda trúi ég því að það yrði
ekki vel séð. Þannig er það í Las Ve-
gas. Þar mega bæjarbúar ekki spila
og það sama er í gildi í Mónakó.
Hugsaðu um þetta fyrir mig og með
mér. Við ættum kannski að
arangera einhverju. Þetta númer
gæti gefið af sér nokkrar kúlur.
Þinn vinur, ...“ o.s.frv.
Kolla og karlarnir
Þórhallur
Sverrisson
Umkomulaus
í eldhúsinu.
Heimir Már
Pétursson
Öfugur þokki.
Jónmundur
Gudmarsson
Þokkalegur
frambjóðandi.
Gísli S.
Einarsson
Flýgur á
hneykslunum.
Erlingur
Gíslason
Betri en Strindberg.
Amaldur
Indriðason
Spennandi gæi.
Toppsex-llsti Kollu byggir á grelnd, útgelslun
og andlegu menntunarstlgi þelrra sem
á honum eru. Nýr llsti næsta fóstudag.
Ellsabeth
Hurley
Hugh kæmi
aldrei aftur.
Jennlfer
Lopez
Tom færi
aftur heim.
Stjörnu-
spik
Ákveðið hold þarf til að skapa
ákjósanlegar linur kvenlíkamans
svo eftir sé tekið. Sá er leikur kynj-
anna innbyrðis. Holdið má þó
aldrei verða of mikið því þá renna
linumar út í formleysu yfirþyngd-
ar sem íþyngir mörgum. Banda-
rískir tölvumenn hafa gert það að
leik sínum að þyngja nokkrar af
helstu stjórstjörnum kvikmynd-
anna myndrænt eins og hér má sjá.
Catherlne
Zeta-Jones
Douglas liti
undan.
Gwyneth
Paltrow
Hlutverkin
myndu breytast.
Bræöraborg - bráöum café - bar
Kaupmaöurinn segir æpandi eftirspurn eftir krá í hverfinu.
Rétta myndin
Loks í Vesturbænum:
Kjörbúð verður krá
- kaupmaðurinn í Prag að kaupa húsgögn
Heimir L. Fjeldsted, kaup-
maður í kjörbúð Reykjavík-
ur á Bræðraborgarstíg 43,
hefur ákveðið að leggja
verslunina af og opna þess í
stað kaífihús og bar í hús-
næðinu undir nafninu
„Bræðraborg - café - bar“.
Heimir er nú i Prag í Tékk-
landi að skoða og kaupa inn-
réttingar fyrir veitingahús
sitt sem ætlað er að bæta úr
brýnni þörf í vesturbænum
sem ekki hefur státað af krá
svo árum skiptir.
„Prag er Mekka veitingahúsanna
og þá sérstaklega innréttinga. Hér
sit ég nú og skoða stóla sem milljón
mans hafa sest í og þaö sést ekki á
þeim,“ sagði Heimir í símtali frá
Prag en hann sat þá á veitingahús-
inu Kaffi Reykjavík sem löngu er
víðþekkt í höfuðborg Tékk-
lands. „Hér eru framleidd-
ar bestu og ódýrustu inn-
réttingarnar."
Heimir segir krá sína á
Bræöraborgarstíg eiga
góða lífsmöguleika enda sé
æpandi eftirspurn í hverf-
inu eftir slíkum stað. Fólk
sem vflji fá sér eina bjór-
kollu eða tvær eigi ekki í
nein hús að venda „...og
sumir þora hreinlega ekki
niður í bæ,“ segir Heimir
sem stefnir að því að opna í vor.
Reyndar á hann eftir að kynna borg-
arstjóra og hennar fólki hugmyndir
sínar en verið sé að vinna í leyfis-
umsóknum á fullu. Frá þeim málum
verði gengið strax og hann komi
heim frá Prag - með mublur sínar
allar.
Heimir Fjeldsted
Ætlar aö
opna í vor.
DV-MYND E.ÓL.
Fyrir flóölö
Hailgrímur Helgason býr sig undir jólabókaflóöiö meö gerö auglýsinga í Öskju-
hlíö. Hnarreistur stendur hann í hlíöinni og markaöurinn bíöur spenntur eftir
bókinni um rithöfundinn sem vaknaði upp í eigin draumi. Besta bók hans til
þessa, segja sumir - nóbelsverölaunin innan 20 ára, segja aörir.
<r
*.