Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Side 2
18
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001
Sport
Brynja Steinsen, Haukum, fær
hér all hressilegar móttökur frá
sínum gömlu félögum í Val.
DV-mynd Pjetur
íslandsmeistarar Hauka sigruðu
Val, 23-18, á Ásvöllum í efstu deild
kvenna á laugardaginn. Fyrir þennan
leik höfðu meistaramir tapað tveim-
ur síðustu viðureignum sínum frekar
óvænt og það var greinilegt að nú átti
að snúa blaðinu við enda mætti liðið
ákveðið til leiks undir stjórn nýs
þjálfara, Gústaf Adolfs Björnssonar.
Valur, sem hefur verið að spila
nokkuð vel það sem af er þessu móti,
var þó ekki á því að hleypa Haukun-
um of langt fram úr og munurinn var
þrjú mörk í hléi og allt virtist geta
gerst. Fyrstu mínúturnar í seinni
hálfleik gáfu fyrirheit um nokkuð
jafnan leik en íljótlega tóku Haukarn-
ir mikinn kipp og breyttu stöðunni á
stuttum tima úr 13-10 í 17-10 og eftir
það var engin spuming hvorum meg-
in sigurinn myndi lenda.
Þrátt fyrir þennan örugga sigur
var Haukaliðið alls ekki að spila sinn
besta leik þótt vörnin væri góð meg-
inpart hans sem og markvarslan.
Sóknin var aftur á móti afar slök þeg-
ar á heildina er litið og voru sóknir
liðsins langar og leiðinlegar og hug-
Kaflaskipt á Nesinu
- í baráttuleik þegar Grótta/KR vann upp góöa forustu Víkings og vann
Geysileg spenna var á Seltjarnar-
nesinu á laugardag þegar
Grótta/KR vann mikinn baráttusig-
ur á Víkingum, 20-19, í efstu deild
kvenna. Með sigrinum komust
heimastúlkur í annað sætið í deild-
inni og eru með 9 stig eftir sex um-
ferðir.
Víkingsstúlkur komu mun
ákveðnari til leiks. Mun meiri bar-
átta var í þeirra liði. Lifandi varnar-
leikur og hraður sóknarleikur skil-
aði þeim fimm marka mun í hálf-
leik. Leikmenn Gróttu/KR voru
frekar andlausir í fyrri hálfleikn-
um. Náðu ekki upp mikilli baráttu i
vörn og sóknarleikurinn var mjög
einhæfur. Tvær stúlkur skoruðu
fyrir þær í fyrri hálfleik og einung-
is tvær aðrar tóku eitt skot hvor að
marki.
í siðari hálfleik var hins vegar
allt annar bragur á leik Gróttu/KR.
Varnarleikurinn var mjög sterkur
og í sókninni tóku fleiri leikmenn
liðsins af skarið. Þetta skilaði sér
því þegar 9 mínútur voru eftir af
leiknum náöu þær að jafna leikinn
og siðan að tryggja sér sigurinn þeg-
ar Heiða Valgeirsdóttir skoraði sig-
urmarkið í leiknum.
Guðbjörg Guðmannsdóttir komst
inn úr horninu á síðustu sekúndum
leiksins en skaut í stöng og þar með
voru úrslitin ráðin. Það var sóknar-
leikur Víkinga sem klikkaði í síðari
hálfleik og varð til þess að þær töp-
uðu leiknum. Tapið var ennþá sár-
ara fyrir þær vegna þess að þær
voru yfir nærri allan leikinn.
Amela Hegic og Ágústa Edda
Björnsdóttir voru langatkvæðamest-
ar hjá Gróttu/KR. Þóra Hlíf var
einnig nokkuð góð í markinu.
Hjá Víkingum var Guðmunda
Kristjánsdóttir atkvæðamest í sókn-
inni. Helga Torfadóttir varði vel í
markinu.
Þetta var skemmtilegur leikur
tveggja góðra liða. Sennilega hefði
verið sanngjamt að hann hefði end-
að með jafntefli.
Það var leiðinlegt að sjá í lok
leiks þjálfara Víkinga hella úr skál-
um reiði sinnar yfír dómara leiks-
ins. Þeir létu það óátalið. Dómarar
leiksins voru kannski ekki bestu
menn vallarins en dæmdu mun bet-
ur eftir því sem leið á leikinn. Þeir
virtust oft úti á þekju í fyrri hálfleik
og hugsanlega var þetta uppsöfnuð
gremja hjá þjálfaranum. -MOS
myndaleysið alls ráðandi og það
finnst manni skrýtið þegar litið er á
leikmannahópinn þar sem er mikið af
góðum sóknarleikmönnum en reynd-
ar gengu hraðaupphlaupin ágætlega
hjá liðinu.
Valsliðið, borið uppi af Drífu
Skúladóttur, tapaði þessum leik fyrst
og fremst á aragrúa byrjendamistaka
sem hreint skelfilegt var að horfa upp
á, hvað eftir annað gripu leikmenn
liðsins ekki boltann eða þá að þeir
misstu hann í lappirnar og er hér ver-
ið að tala um afar einfaldar sending-
ar. Þá voru leikmenn liðsins iðnir við
að henda boltanum rakleiðis út af og
gerðu Haukunum lífið afar létt en
bæði lið geta mun betur sóknarlega.
-SMS
Haukar-Valur 23-18
3-0,4-3, 7-4,9-5, (9-6), 9-7,11-8,14-10,17-12,
20-16, 23-18.
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Inga Fríöa Tryggva-
dóttir 9/3 (11/4), Nína K. Björnsdóttir 4
(10/1), Harpa Melsted 3 (5), Hanna G. Stef-
ánsdóttir 3 (5), Sandra Anulyte 2/2 (2/2),
Sonja Jónsdóttir 1 (1), Brynja Steinsen 1
(1), Telma B. Árnadóttir (2), Heiða Erlings-
dóttir (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 8 (Harpa 2,
Hanna 2, Nína 2, Inga, Sonja).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuö viti: Harpa 3, Brynja 2, Thelma 2.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Jenný
Ásmundsdóttir 16/1 (33/4, hélt 11, 48%),
Berglind Hafliðadóttir 1 (2, hélt 1, 50%)
Brottvisanir: 4 mínútur.
Valur:
Mörk/víti (skot/víti): Drífa Skúladóttir 9
(16), Hrafnhiidúr Skúladóttir 6/3 (15/4),
Elfa Björg Hreggviðsdóttir 1 (1), Eivor Pála
Blöndal 1 (3), Árný B. isberg 1 (6), Eva
Þórðardóttir (1), Kolbrún Franklín (l),
Hafrún Kristjánsdóttir (1), Svanhildur Þor-
björnsdóttir (3).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Drífa,
Eivor).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuó viti: Drífa 2, Hafrún, Svanhildur.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Berglind
Hansdóttir 11/1 (32/4, hélt 4, 34%). Sóley
Halldórsdóttir 1/1 (3/3, hélt 1, 33%).
Brottvísanir: 8 minútur.
Dómarar (1-10): Ámi Sverrisson og
Guðmundur Stefánsson (7). Gteói leiks
(1-10): 6. Áhorfendur: 125.
Maður leiksins:
Drífa Skúladóttir, Val.
Grótta/KR-Víkingur 20-19
0-2, 3-5, 4-8, 6-10, 7-11, (8-13), 10-13, 12-15,
13-17, 17-17,18-18,19-18, 19-19, 20-19.
Grótta/KR:
Mörk/viti (skot/viti): Amela Hegic 11/3
(19/5), Ágústa Edda Björnsdóttir 5 (13),
Heiða Valgeirsdóttir 2 (3), Eva Björk
Hlöðversdóttir 1 (2), Hulda Sif Ásmunds-
dóttir 1 (3).
Mörk úr hradaupphlaupunv 0.
Vitanýting: Skorað úr 3 af 5.
Fiskuú viti: Ágústa, Kristín Þórðardóttir,
Hulda, Heiða, Eva Björk.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Þóra
Hlíf Jónsdóttir 9 (28/3, hélt 4, 32%), Ásdís
Björk Kristjánsdóttir 1/1 (1/1, hélt 1,
100%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Vikinsur:
Mörk/víti (skot/viti): Guðmunda Ósk
Kristjánsdóttir 7/3 (18/4), Steinunn
Bjarnason 3 (5), Guðbjörg Guðmannsdóttir
3 (6), Anna Kristin Árnadóttir 2 (2), Mar-
grét Egilsdóttir 2 (3), Helga Birna Brynj-
ólfsdóttir 2 (4).
Mörk úr hradaupphlaupum: 3 (Steinunn,
Margrét, Guðbjörg).
Vítanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuó viti: Anna Kristín 3, Guðmunda Ósk.
Varin skot/viti (skot/víti á sig). Helga
Torfadóttir 16/1 (36/4, hélt 4, 44%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Ingi Már Gunnarsson
og Þorsteinn G. Guðnason (6). Gœði leiks
(1-10): 8. Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins:
Aniela Hegic, Gróttu/KR.
Sigurbrautin á ný
- hjá Haukastúlkum sem unnu fyrsta leikinn undir stjórn Gústafs Adolfs Björnssonar