Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001
19
DV
Sport
Birgir Leifur og
Björgvin áfram
Kylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson
og Björgvin Sigurbergsson eru báöir
komnir áfram á lokamót forkeppni evr-
ópsku mótaraðarinnar í golfi en ákveðið
var að aflýsa fjórða hring á Peralda-vell-
inum á Spáni og láta stöðu að loknum
þriðja hring gilda.
Þá var Birgir Leifur í 2. sæti á 13 und-
ir pari en Björgvin í 20.-23. stæti á fimm
undir pari. Lokakeppnin fer fram dagana
14.-19. nóvember á Sotogrande og San
Roque-vellinum á Spáni. Þrjátíu fyrstu á
því móti komast inn á evrópsku mótaröð-
ina en þeir sem verða í sætum 31.-75.
komast á áskorendamótin en Birgir Leif-
ur hefur þegar tryggt sig á þau mót með
ágætum árangri á liðnu tímabili.
-ÓK
Stefán
Gíslason til
Austurríkis
Stefán Gíslason,
fyrrum leikmaður
Austra á Eskifirði og
núverandi leikmaður
Strömgodset í Noregi,
gekk til liðs við aust-
uríska félagið Graz Ak
á laugardaginn.
Stefán hélt til Aust-
urríkis á fimmtudag-
inn til að skoða að-
stæður og ræða við for-
ráðamenn liðsins.
Eftir að hafa æft
með liðinu á föstudag
og laugardag var geng-
ið frá samningum og
mun Stefán halda al-
farinn til Austurríkis á
næstu dögum þar sem
hann mun dvelja
næstu tvö árin. -GÞÖ
Ólafur bjarg-
aði jafntefli
í sínum fyrsta leik í meistaradeild Evrópu gerði
Magdeburg jafntefli við franska liðið Chambery,
26-26. Það var Ólafur Stefánsson sem tryggði jafn-
teflið með marki 30 sekúndum fyrir leikslok en hann
gerði alls 5 mörk í leiknum. Magdeburg er í D-riðli en
í hinum leik riðilsin vann Veszprém frá Ungverja-
landi Skopje frá Makedóníu.
í þýsku deildinni skoraði Patrekur Jóhannesson
þrjú mörk fyrir Essen þegar liðið lagði Solingen,
22-24, á útivelli á laugardaginn.
Guðjón Valur Sigurðsson var ekki meðal marka-
skorara. Þá skoraði Sigurður Bjarnason fjögur mörk
fyrir Wetzlar sem sigraði Post Schwerin, 30-24, á fóstu-
dagskvöldið. Þá gerði Gústaf Bjarnason 5 mörk fyrir
Minden sem vann Willstátt, 33-27, í gær. -esá/ÓK
Allt er i einum
Stjarnan 6 5 1 1 165-144 11
ÍBV 7 5 0 2 146-123 10
Grótta/KR 6 4 1 1 119-108 9
Haukar 6 4 0 2 145-103 8
Valur 5 1 2 2 101-100 4
FH 5 2 0 3 98-109 4
Víkingur 6 2 0 4 100-119 4
Fram 6 1 0 5 115-155 2
KA/Þór 4 0 0 4 74-102 0
Markahæstar:
Ragnheiöur Stephensen, Stjö. . 61/26
Ana Perez, ÍBV ................42/8
Amela Hegic, Gróttu/KR........40/10
Ingbjörg Ýr Jóhannsd., Fram . . 33/7
Hrafnhildur Skúladóttir, Val. . 30/10
Andrea Atladóttir, ÍBV.........28/3
Nína K. Björnsdóttir, Haukum . 28/8
Ásdis Sigurðardóttir, KA/Þór . . 26/8
Harpa Melsted, Haukum..........26/9
Ágústa Edda Björnsdóttir, Gr/KR 26
Inga Fríða Tryggvad., Haukum . 26/7
Jóna Margrét Ragnarsd., Stjörn. . 25
Anna Blöndal, Stjörnunni........23
Dröfn Sæmundsdóttir, FH .... 22/4
Guðrún Þóra Hálfdánard., Fram 21/4
Drífa Skúladóttir, Val.........21/3
Guðmunda Kristjánsdóttir, Vík. 21/6
Maður leiksins: Ragnheiður
Stephensen, Stjörnunni.
Dómarar (1-10): Hörður Sigmarsson
og Þórir Gíslason (7). Gœói leiks
(1-10): 7. Áhorfendur: 190.
nnapp
- eftir 26-23 sigur ÍBV á Stjörnunni í Eyjum
Eyjastúlkur tóku í gær á móti efsta
liði 1. deUdar, Stjörnunni, í fyrsta
leik sjöundu umferðar. Stjarnan
hafði ekki tapað leik fram að þessu í
íslandsmótinu en með sigri gátu þær
styrkt stöðu sína á toppi deUdarinn-
ar og jafnframt sett stórt strik í
reikninginn hjá ÍBV. En heimastúlk-
ur mættu mjög ákveðnar tU leiks og
þrátt fyrir að tvær af lykilmanneskj-
unum væru meiddar þá sigruðu
Eyjastúlkur með tveimur mörkum,
26-24.
Stjarnan byrjaði betur í leiknum
og komst strax tveimur mörkum yfir.
Fyrri hálfleikur var reyndar nokkuð
kaflaskiptur því Eyjastúlkur komust
í 4-3 en gestimir með Ragnheiði
Stephensen í broddi fylkingar
komust aftur tveimur mörkum yfir.
En í liði Eyjastúlkna eru margir
mjög sterkir einstaklingar og með
mikUli baráttu tókst ÍBV að komast
einu marki yfir áður en gengið var til
leikhlés. Heimastúlkur urðu hins
vegar fyrir áfaUi undir lok fyrri hálf-
leiks þegar fyrirliði þeirra þurfti að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla en
Andrea Atladóttir er einnig meidd og
munar um minna.
Nýr leikmaður ÍBV fellur vel
inn í liöiö
Heimastúlkur voru hins vegar
skrefinu á undan á upphafsmínútum
seinni hálíleiks en eftir tíu mínútna
leik kom góður leikkafli hjá þeim.
Vigdís Sigurðardóttir hrökk í gang í
markinu og nýi leikmaðurinn hjá
ÍBV, Theodora Visockaite, virðist
faUa vel inn í lið ÍBV en þar er á ferð
mjög öflugur leikmaður sem var að
spUa sinn fyrsta leik með ÍBV í gær.
Mestur varð munurinn fjögur mörk
en Stjörnustúlkur neituðu að gefast
upp. Þær náðu að minnka muninn
niður í tvö mörk undir lokin og mun-
aði mikið um að HaUa María Helga-
dóttir kom inn á síðustu tíu mínút-
urnar en lengra komust þær ekki.
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV,
sagöi eftir leikinn að meiðslin væru
ekki mjög alvarleg. „Ég reyndar veit
ekki alveg hvað gerðist, ég byrjaði að
fmna fyrir þessu í síðasta leik og var
svo að drepast i dag. Ég fékk svo
högg á höndina í fyrri hálfleik og gat
ekkert beitt henni eftir það en það
kom ekki að sök enda erum við með
breiðan hóp í vetur. Leikurinn sjálf-
ur var eins og við áttum von á.
Stjarnan er með mjög öflugt lið og
leikurinn var jafn framan af en við
kláruðum þetta um miðjan seinni
hálfleik þegar við náðum fjórum
mörkum á þær. Við slökuðum svo
óþarflega mikið á undir lokin en sig-
urinn var samt sem áður aldrei í
hættu. Nýi leikmaðurinn hjá okkur
kom mjög sterkur inn í þetta. Við
vorum ekki að spila vel í dag en
sigruðum samt þannig að það segir
meira en mörg orð.“
Ragnheiöur meö 14 mörk
Ragnheiður Stephensen átti enn
einn stórleikinn í sókninni hjá gest-
unum og skoraði fjórtán mörk ann-
an leikinn í röð. Hún var nokkuð
ánægð með sóknarleik Stjörnunnar.
„Maður á í sjálfu sér alltaf von á erf-
iðum leik hér í Eyjum og við berum
að sjálfsögðu fulla virðingu fyrir
ÍBV. Við vissum að við þyrftum að
eiga toppleik hérna til að sigra, þær
voru með nýjan leikmann sem við
vissum lítið um en það verður að
segjast eins og er að sóknarlið ÍBV er
það sterkasta í deildinni í dag. Sókn-
arleikurinn gekk vel hjá okkur en
hann hefur yfirleitt verið okkar
Akkilesarhæll. Það var hins vegar
vörnin sem við vorum að klikka á en
það helgast kannski af því að við vor-
um að mæta mjög góðu liði.“ -jgi
0-2, 4-3, 6-8, 10-9, (13-12), 14-12, 17-14,
19-15, 24-20, 26-24
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Theodora
Visockaite 9/5 (16/6), Ana Pérez 6 (14/1),
Dagný Skúladóttir 4 (5), Isabel Ortis 3
(4), Ingibjörg Jónsdóttir 2 (2), Milana
Mileuzic 1 (1), Aníta Ýr Eyþórsdóttir 1
(1), Elisa Sigurðardóttir (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 3
(Ingibjörg, Pérez, Dagný).
Vítanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuó viti: Theodora 3, Dagný 2, Aníta,
Pérez.
Varin skot/víti (skot/víti á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 15 (39/8, hélt 7, 38%, víti
í slá). Brottvísanir: 2 mínútur.
Stiarnan:
Mörk/viti (skot/víti): Ragnheiður
Stephensen 14/8 (18/9), Jóna M.
Ragnarsdóttir 3 (7), Margrét
Vilhjálmsdóttir 2 (3), Halla Maria
Helgadóttir 2 (3), Anna B. Blöndal 2 (3),
Kristín J. Clausen 1 (2), Herdís
Jónsdóttir (2), Inga Lára Þórisdóttir (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 1
(Ragnheiður).
Vitanýting: Skorað úr 8 af 9.
Fiskuó viti: Halla María 4, Margrét 2,
Herdís, Kristín.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Jelena
Jovanovic 14 (40/5, hélt 7, 35%, víti í
stöng, víti fram hjá)
Brottvisanir: 6 mínútur.
Ana Perez og Theodora Visockaite léku vel fyrir (BV ( gær og skoruöu saman 15 mörk.
Theodora Visockaite var aö leika sinn fyrsta leik meö Eyjaliöinu. DV-mynd Ómar
Opna finnska meistaramótið í júdó:
Fern verðlaun í Finnlandi
Opna finnska meistaramótið í
júdó fór fram um helgina og stóðu
íslensku keppendurnir sig þar mjög
vel og unnu alls til fernra verð-
launa, 1 gull, 1 silfur og tvö brons.
Vernharð Þorleifsson vann í
sínum flokki, -100 kg, en hann
glímdi við Tima Pestola frá Finn-
land í úrslitaglímunni. Heimir Har-
aldsson glímdi einnig til úrslita en
hafnaði í 2. sæti sem telst mjög góð-
ur árangur. Margréti Bjarnadóttur,
sem keppti einnig í gær, gekk ekki
eins vel og strákunum en hún féll út
í fyrstu umferð.
Á laugardag unnu þau Bjarni
Skúlason (-90 kg) og Gígja Guð-
brandsdóttir (-70 kg) til bronsverð-
launa á opna finnska meistaramót-
inu. Bjarni glímdi til úrslita um
bronssætið við Kanadabúa en Gígja
við fmnska stelpu.
Aðrir keppendur áttu ekki eins
góðan dag á laugardag en Snævar
Jónsson (-73 kg) komst í aðra um-
ferð en þær Anna Soffía Víkings-
dóttir og Hjördís Ólafsdóttir féllu út
í fyrstu umferð.
Alls tóku 23 þjóðir þátt í mótinu
en íslenski hópurinn var með
stærra móti núna þar sem 8 þátttak-
endur voru í hópnum, 4 karlar og 4
konur. Landsliðsþjálfarar eru þeir
Sævar Sigursteinsson hjá körlunum
og Bjami Friðriksson hjá konunum.
Nú hefjast þriggja daga æfingabúðir
og kemur hópurinn ekki aftur heim
fyrr en á fímmtudaginn kemur.
-ÓÓJ