Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Síða 5
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001 21 Sport Tiu marka skellur - Hauka í Barcelona, 29-39, gerði Evrópudrauminn í ár að engu íslands- og bikarmeistarar Hauka töpuðu fyrir Barcelona, 29-39, í fyrri leik liðanna í Evrópukeppninni í handknattleik sem fram fór ytra á laugardaginn. Vitað var fyrirfram að róðurinn yrði þungur enda er lið Barcelona fornfrægt og margfaldir Evrópu- og Spánarmeistarar og eitt allra besta lið heims. Aðalkeppikefli Haukanna fyrir leik- inn var að reyna að halda hraðanum niðri enda vitað að lið Barcelona vill helst af öllu keyra leiki upp og ná sem flestum hraðaupphlaupum sem eru þeirra sterkasta hlið sem og mark- varslan, þar sem gamli refurinn Thomas Svensson ræður rikjum. Haukunum tókst ágætlega þetta ætlunarverk sitt meginpart fyrri hálf- leiksins og þeir stóðu rækilega í Spánarmeisturunum en í stöðunni 11-10 fóru hlutimir að fara úr bönd- unum. Barcelona náði þá hverju hraðaupphlaupinu á fætur öðru og þegar fyrri hálfleikur var liðinn var munurinn sex mörk, 19-13. í byrjun síðari hálfleiks litu hlut- irnir vel út fyrir Haukana og þeim tóks fljótlega að minnka muninn f fjögur mörk, 21-17, en bráðlega fór allt í sama farið og grimmir leikmenn Barcelona hreinlega keyrðu yfir ís- landsmeistarana og mestur varð mun- urinn tólf mörk, 34-22, og allt leit út fyrir algert rótburst. Það voru Haukarnir ekki tilbúnir að samþykkja og þeir bitu í skjaldar- rendur og segja má að lokakaflinn hafi verið þeirra. Þeim tókst að minnka muninn í sjö mörk, 36-29, og fengu síðan nokkur upplögð færi til að minnka hann enn meira en tókst það því miður ekki og eins og við mátti búast voru Spánverjarnir fljótir að refsa fyrir það og juku muninn í tíu mörk alveg í blálokin og það var pínulítið svekkelsi. Halldór Ingólfsson var langat- kvæðamestur Haukanna en þeir Ein- ar Örn Jónsson, Jón Karl Björnsson og Magnús Sigmundsson voru ágætir. -SMS Barcelona-Haukar 39-29 4-1, 6-4, 9-7, 11-10, 14-11, (19-13), 22-17, 26-19, 29-21, 30-21, 34-24, 39-29. Barcelona: Mörk: Bojinovic 9, Nagy 7, Ortega 6, Hemández 4, O'Callaghan 3, Ferrer 3, Masip 2, Xepkin 2, Franzen 2 og Bustos 1. Brottvísanir: 8 mínútur. Haukar: Mörk/víti: Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 14/7 (3 fiskuö víti), Einar Öm Jónsson 5 (eitt fiskað viti), Jón Karl Bjömsson 3, Rúnar Sigtryggsson 2, Ásgeir Öm Hallgrímsson 1, Aliaksandr Shamkuts 1 (2 fiskuð víti), Vignir Svavarsson 1 (1 fiskað viti), Óskar Ármannsson 1, Þorvarður Tjörvi Ólafsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 10, Bjarni Frostason. Brottvisanir: 14 mínútur. (Shamkuts rautt fyrir 3x2 mín.) Dómarar: Bemd Rosskamp og Freddy Rothkrank frá Belgíu. Áhorfendur: 2500. Ekki veik hlekkur - í liði Spánarmeistara Barcelona DV-Sport heyrði í Viggó Sigurðssyni, þjálfara Hauka, eftir leikinn í Barcelona á laugardag. Þróaöist leikurinn þá eins og þú hafóir búist vió? Leikurinn var nokkurn veginn eins og maður reiknaði með þvi þeir spila rosalega hraðan og öflug- an handbolta og það er hreinlega engan veikan hlekk áð finna í þessu liði. Þeir rúlluðu yfir okkur á tímabili í fyrri hálfleik sem var mjög dýrt og þótt við héngjum í þeim og værum að spila á köflum mjög vel duttum við of langt niður inni á milli. Við gáfumst þó aldrei upp þrátt fyrir að fá á okkur nokkrum sinnum á stuttum tima mörg mörk í röð. Þegar fjórar mín- útur voru eftir vorum við búnir að minnka muninn í sjö mörk en feng- um þá hraðaupphlaup sem við klúðruðum og fengum á okkur mark í staðinn og misstum i kjöl- fari$ leikmann út af og því var endirinn nokkuð sárgrætilegur. Eftirlitsmenn viðurkenndu að það hallaði á Hauka Hvernig stódu dómararnir sig? „Belgísku dómararnir, sem við kynntumst um daginn af eigin raun, voru arfaslakir og er þá vægt til orða tekið. Eftirlitsdómararnir viðurkenndu það eftir leikinn að verulega hefði hallað á okkur í leiknum og því miður er þetta eitt- hvað sem við verðum bara að kyngja, enn þann dag í dag. Dóm- aramir gerðu kannski ekki útslag- ið í þessum leik en áttu sinn þátt í því að munurinn var þetta mikill því með almennilegum dömurum hefðum við líklega sloppið með 6 til 7 marka tap og maður hefði ver- ið öllu sáttari með það.“ Barcelona er jþannig lið aó þaö má ekki gera smámistök, þeir refsa strax. „Það er alveg hárrétt og við gerð- um alltof mörg tæknileg mistök í leiknum. Ætli það hafi ekki verið dæmd á okkur tíu sóknarbrot, í það minnsta, og í kjölfarið fáum við alltaf á okkur mark enda lá munurinn á þessum liðum fyrst og undirbúa liðið fyrir leikinn og því kannski ekki gefist eins mikill tími og maður myndi vilja hafa haft til að rifja upp gömul kynni því það hefur verið mikil spenna í magan- klekkja um út af þessum leik. Á þessum á okk- stutta tíma sem við höfum verið ur,“ hér hef ég þó orðið þess var að sagði borgin sjálf hefur breyst gífurlega beinskeitt- og hraðinn aukist verulega enda ur Viggó Sigurðs- breyttir tímar en í heildina séð er son, þjálfari Hauka, í búið að vera virkilega gaman að samtali við DV-Sport að koma hingað aftur. leik loknum við . , . . .. _ Barcelona. Lualeg brogð ,Sms Svona rétt aö lokum, Viggó, aftur hingaö heim, hvaö segir þú um þá gagnrýni sem talsvert hef- ur boriö á undanfarið aó þið Haukamenn njótiö meiri virð- ingar og þar af leiðandi vafans en önnur lió þegar aö dómgœsl- unni kemur? „Ég lit á þetta sem kjaftæði og afsökun hjá lélegum liðum að ætla sér að beita svona lúalegum brögðum á okkur, það þarf meira en þetta til að fremst í hraðaupphlaupunum, þeim í vil. Þótt lið Barcelona sé gíf- urlega sterkt þá fannst mér við vera að tapa þessum leik með of miklum mun, sex marka munur hefði verið sanngjarn." Þetta Haukaliö er reynt og hef- ur á siöustu tveimur árum upp- lifaö mikla velgengni og þar af leióandi mikla pressu. Myndiröu segja aö þessi leikur heföi verió eitthvaö í likingu viö til dœmis leikina við KA í lokaúrslitunum í vor? „Það er alveg hiklaust hægt aö jafna því saman því strákarnir lögðu sig virkilega vel fram í þess- um leik og mættu einbeittir en jafnframt spenntir og fullir til- hlökkunar eins og vera ber í alvöru leikjum. Þeir gerðu virkilega það sem þeir gátu, það vantaði ekkert upp á það, og þeir voru á tánum allan tímann en í þetta sinn var andstæðingurinn sterkari en menn eiga að venjast." Myndu standa sig ágætlega í spænsku deildinni Hvernig telur þú aö Haukaliö- iö myndi spjara sig í spœnsku deildinni? „Spænska deildin er nokkuð ólík þeirri þýsku sem er afar jöfn, því hérna eru fjögur topplið en restin er miðlungs- lið og því tel ég að við gætum alveg staðið okkur ágætlega hérna og þá kannski með fimm-sex efstu liðunum en ekki toppliðunum." Var ekki gaman fyrir þig persónulega aö koma aftur til Barcelona eftir aö hafa gert garöinn frœgan þarna fyrir um þaó bil tutt- ugu árum sem leikmaður þar sem þú varöst meöal ann- ars Spánarmeistari og aö mœta gömlum samherja, Valero Rivera Lopéz, sem þjálfað hefur liö Barcelona frá 1984? „Það er búið að vera mjög gaman að koma hingað aftur en auðvitað hefur maður verið á fullu í því að Viggó Sigurðs- son, þjálfari Hauka:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.