Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Síða 7
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001 23 Sport Hefðum getað unnið leikinn „Ég átti ekki von á því aö vera svekktur eftir þennan leik,“ sagöi Sebastian Alexandersson, mark- vörður og fyrirliðið Fram, eftir leik- inn. „Að mínu mati fengum við tækifæri til að vinna þennan leik. Við vorum yflr í hálfleik og lékum þá vel. Við byrjuðum hins vegar seinni hálfleikinn mjög illa og gáf- um þeim fimm hraðupphlaup og þar með voru þeim komnir 4-5 mörkum fram úr okkur. Við það misstum við dampinn." Þannig ad dýrkeypt mistök i sóknarleiknum verda ykkur að falli. Já, og á móti svona liði má slíkt ekki gerast. Þeir eru eldsnöggir Anægður með Fram - segir Gunnar Berg Viktorsson „Þetta ætti að duga upp á fram- haldið," sagði Gunnar Berg Vikt- orsson, leikmaður Paris St. Germain og fyrrverandi leikmað- ur Fram, eftir leikinn en Gunnar átti góðan leik fyrir sína menn og skoraði sjö mörk. „Ég er hins vegar virkilega ánægður með Framarana í þessum leik. Þeir komu sterkir inn og ég held að þessi þátttaka í Evrópukeppninni gæti orðið vítamínsprauta fyrir þá í deUdinni. Það voru margir áhorfendur og góð stemning í húsinu. Þeir spUuðu vel í fyrri hálfleik en síðan hefur formið og leikæfingin sennUega farið að segja tU sín í þeim síðari.“ Gunnar var þó ósáttur við hversu iUa gekk að nýta dauða- færin í fyrri hálfleik. „Ég tel að aðalástæðan fyrir þessu sé að við erum ekki að skjóta nógu mikið á markið á æfingum. Ég er vanur því að skjóta svona mikið en Frakkarnir eru lítið fyrir að gera það á æfingum. Ég hef sagt það lengi að menn mættu skjóta meira þar.“ Það var ljóst að Gunnar kunni vel við að leika á sínum gamla heimaveUi. „Þetta var virkilega skemmtilegt. Ég vissi náttúrlega alveg hvar gólfið var og þar með hvar best var að stökkva upp, Mér tókst að gera ágæt mörk og hefði kannski viljað skora meira en ég er fyrst og fremst sáttur fyrir hönd Framaranna að það fór ekki verr en þetta fyrir þá.“ Gunnar hafði einnig gaman af að kljást við sinn gamla félaga í markinu, Sebastian Alexanders- son. „Hann varði þó nokkuð frá mér, ætli ég hafi ekki skorað úr helmingnum af skotum mínum á hann. En þaö var mjög gaman að þessu.“ -HI fram og fljótir að refsa. Vörnin hefði mátt halda betur og við hefðum mátt gera færri klaufamistök í byrj- un seinni hálfleiks.“ Sebastian var ekki sáttur við eig- in frammistöðu. „Ég hefði geta gert betur í seinni hálfleik. í svona leik verður markvarslan að vera í lagi og það gekk ágætlega í fyrri hálf- leik. Ég var svo ekki að taka boltana sem ég átti að verja.“ Sebastian hefur þó ekki lagt árar í bát. „Ef þetta er það besta sem þeir geta þá eigum við alveg möguleika. Það eiga margir í liðinu mikið inni, þar á meðal ég, og vonandi ná þeir sem léku vel í dag aftur góðum leik úti.“ -HI Fram-PSG 22-26 0-1, 2-2, 2-4, 4-5, 5-7, 6-9, 9-9, (11-10), 11-11, 12-11,12-15,13-19,16-20, 17-22,19-23,19-26, 22-26. Fram: Mörk/viti (skot/víti): Róbert Gunnarsson 9/4 (11/4), Hjálmar Vilhjálmsson 5 (11/2), Maxim Fedioukine 2 (3), Guðjón Drengsson 2 (5), Hafsteinn Ingason 1 (1), Ingi Þór Guðmundsson 1 (3), Martin Larsen 1 (3), Björgvin Þór Björgvinsson 1 (3), Lárus Jónsson (1). Mörk úr Itraóaupphlaupum: 2 (Róbert, Maxim). Vitanýting: Skorað úr 4 af 6. Fiskuó viti: Róbert 2, Hjálmar 2, Guðjón, Björgvin. Varin skot/viti (skot/viti á sig). Sebastian Alexanderssib 7 (21/2, hélt 3, 33%), Magnús Gunnar Erlendsson 2 (9, hélt 0, 22%) Brottvisanir: 4 mínútur. Paris St. Germain: Mörk/viti (skot/víti): Gunnar Berg Viktorsson 7 (12), Nikola Vojinovic 4 (9), Semir Zuzo 4 (7), Cédric Ignol 3/2 (3/2), Christophe Zuniga-Mora 3 (4), Olivier Girault 2 (4), Bruno Arive 2 (5), Teddy Chailly 1 (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Gunnar, Zuniga-Mora, Arive, Chailly, Zuzo). Vitanýting: Skorað úr 2 af 2. Fiskuð viti: Zuzo 2. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Stéphane Clemencon 11/1 (24/3, hélt 3, 46%, Arnaud Siffert 8/1 (17/3, hélt 3,47%). Brottvisanir: 10 mlnútur. Dómarar (1-10): Shal og Konoplyastij frá Úkraínu (8). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 700. Maöur leiksins: Róbert Gunnarsson, Fram. Hjálmar Vilhjálmsson er hér í kröppum dansi viö fyrirliða Paris St. Germain, Olivier Girault. DV-myndir Pjetur Vannýttir mogu leikar Framara Gunnar Berg Viktorsson ræðir hér málin viö þá Semir Zuzi og Grégory Racine. Framarar eiga litla möguleika á að komast áfram í Áskorendakeppni Evrópu eftir 22-26 tap fyrir Paris St. Germain í Safamýrinni i gærkvöldi. Framarar hefðu auðveldlega getað náð hagstæðarti úrslitum með þvi að nýta sér betur þau mistök sem París- arliðið var að gera, sérstaklega í fyrri hálfleik, en á hinn bóginn hefði liðið getað fengið verri útreið því að Framarar gerðu þrjú síðustu mörk leiksins og voru mest sjö mörkum undir í síðari hálfleik. Byrjunin lofaði góðu. Parísarliðið hafði reyndar frumkvæðið lengst af og hefði getað haft meira forskot ef ekki hefði verið fyrir það hversu mörg dauðafæri fóru í súginn en þeir áttu yfirleitt ekki í vandræðum með að skapa sér þau. Framarar léku sterkan varnarleik en sóknarleikur- inn var ekki nógu góður og var fyrst og fremst borinn uppi af Róbert Gunnarssyni, hinum frábæra línu- manni Fram, sem gerði sjö mörk í fyrri hálfleik, auk þess sem Hjálmar Viljálmsson átti ágætan leik. Lítið kom hins vegar út úr hornunum og það má í raun segja að vinstri væng- ur Fram hafi verið steindauður í leiknum. Framarar áttu hins vegar góðan endasprett, vörnin var sterk, sóknin öguð og þeir skoruðu fimm mörk gegn einu á síðustu sjö mínút- um hálfleiksins. Staðan var því 11-10 Fram í hag. En því miður báru Framarar ekki gæfu til að fylgja þessu eftir og slæm byrjun í seinni hálfleik gerði vonir Fram um sigur nánast að engu. Par- ísarliðið var búið að ná þriggja marka forskoti eftir fimm mínútur og eftir tæpar tólf mínútur var for- skotið komið í sex mörk. Eftir það var alitaf á brattann að sækja og það var sama þó að Magnús Erlendsson færi í markið og Ingi Þór Guðmunds- son í skyttustöðuna vinstra megin í stað Björgvins, það fór ekkert að ganga fyrr en á síðustu fimm minút- unum. Þá var munurinn kominn í sjö mörk en Framarar náðu að gera þrjú síðustu mörkin og minnka mun- inn þar með í fjögur mörk áður en yfir lauk. Framarar hefðu getað náð hag- stæðari úrslitum úr þessum leik ef þeir hefðu náð að halda áfram eins og þeir gerðu i fyrri hálfleik. Róbert Gunnarsson og Hjálmar Vlhjálmsson voru langbestu menn liðsins en aðrir geta miklu betur. Parísarliðið er vel spilandi en nýtti færi sin ekki vel. Gunnar Berg Viktorsson virtist kunna vel við sig á sínum gamla heimavelli og átti prýð- isleik ásamt línumanninum Zuzo auk þess sem báðir markverðirnir vörðu vel. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.