Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Side 13
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001
29
DV
Sport
Leikmaður helgarinnar: Diego Armando Maradona, Argentínu
Hinsta kveðja goðsagnar
hófst fyrir rúmlega 25 árum þegar 15 ára Mara-
dona lék sinn fyrsta leik í argentínsku deildinni.
Þaö var síðan 1997 sem hann lék sinn síðasta
deildarleik, aftur í argentinsku deildinni með
Boca Juniors. Á þessu 21 ári var alltaf mikið fjör
í kringum Maradona, af ýmsum ástæðum, góð-
um og slæmum. Hátindurinn var án efa heims-
meistarakeppnin í Mexíkó árið 1986 þegar hann
var allt í öliu í argentínska liðinu og vann
keppnina nánast upp á sitt eindæmi. Hann var
ítalskur meistari með Napoli tímabilin 1986/87
og 1989/90 og fyrra tímabilið vann liðið einnig
bikarkeppnina. Napoli vann svo Evrópukeppni
félagsliða árið 1990. Með Napoli lék hann 259
leiki og gerði 115 mörk.
Alls vann hann 10 titla á ferlinum sínum í
hinum ýmsum keppnum og gerði 356 mörk í
þeim 702 leikjum sem hann lék í 3 löndum og
með argentinsku landsliðunum. -esá
Argentínska knattspyrnugoð-
sögnin Diego Armando Maradona
var hyllt í hinsta sinn á knatt-
spyrnuvellinum um helgina á
Bombonera-leikvanginum, heima-
velli Boca Juniors, um helgina.
Argentínska landsliðið, með Mara-
dona innanborðs, lék gegn stjörnu-
liöi skipuðu mörgum af stærstu
nöfnum knattspyrnusögunnar á 9.
og 10. áratugnum, t.d. Lothar
Mattháus, Eric Cantona, Davor
Suker, Enzo Francescoli og Juan
Roman Riquelme sem nú klæðist treyju númer
10 hjá Boca Juniors, hinu gamla félagi Mara-
dona.
Þetta var tilfmningaríkur viðburður en
50.000 manns söfnuðust saman til að hyOa goð-
ið sem fannst sjálfum að einn maður ætti ekki
slíkt skilið. Hann skoraði i
leiknum 2 mörk, bæði úr víta-
spyrnum, en Argentina vann,
6-3.
Þrátt fyrir nokkur aukakiló
var Ijóst að kappinn býr enn að
miklum hæfileikum en hann
átti nokkrar eitraðar sendingar
sem tættu vöm stjörnuliðsins
sundur og saman. Önnur goð-
sagnapersóna í boltanum fylgd-
ist með en Pele sjálfur var
mættur tO að votta virðingu
sína. Undanfarið hefur mikil umræða skapast
um hvor þeirra sé besti knattspyrnumaður allra
tíma en FIFA veitti Maradona þá nafnbót í fyrra
eftir að hann vann kosningu þess efnis á Inter-
netinu.
FeriO þessa stórkostlega knattspyrnumanns
Diego A.
Maradona
Fæddur: 30. október 1960.
Hæð: 167 sm
Þyngd: 75 kg en fór hækkandi
Lið: Argentinos Juniors, Boca
Juniors, Barcelona, Napoli,
Sevilla og Newell’s Old Boys.
Landsleikir/Mörk: 91/34.
\^ í UNDANKEPPNI HM
--------------------------
Austurríki-Tyrkland..........O-l
0-1 Okan (60.).
Belgía-Tékkland ..............1-0
1-0 Verheyen (29.).
írland-íran ..................2-0
1- 0 Harte (45., viti), 2-0 Robbie Keane
(51.).
Slóvenía-Rúmenía..............2-1
0-1 Niculae (26.), 1-1 Acimovic (41.),
2- 1 Osterc (73.).
Úkraina-Þýskaland ............1-1
1-0 Zubov (18.), 1-1 Ballack (31.).
Sidari leikirnir í umspilinu fara
fram á miðvikudaginn, þá á heima-
velli síðartöldu liðanna.
Vináttulandsleikir:
Danmörk-Holland...............1-1
0-1 Hasselbaink (45., víti), 1-1 Jörgen-
sen (83., víti).
England-Svíþjóð ..............1-1
1-0 Beckham (28., víti), 1-1 Mild (44.).
Grikkland-Eistland............4-2
1-0 Nikolaidis (6.), 2-0 Tsartas (25.),
3- 0 Machlas (39.), 3-1 Viikmae (44.),
4- 1 Nikolaidis (60.), 4-2 Zelinski (77.,
víti).
Suður-Kórea-Króatía...........2-0
1-0 Choi (64.), 2-0 Kim (67.)
Ástralía-Frakkland ............1-1
1-0 Moore (44.), 1-1 Trezeguet (48.)
Suður-Afríka-Egyptaland .... 1-0
1-0 Bartlett (53.)
Gennadiy Zubov, Úkraínu, reynir aö
ná til knattarins á undan Michael
Ballack sem skoraöi jöfnunarmark-
iö mikilvæga fyrir Þjóöverja í Kænu-
garöi. Reuters
Fyrri leikirnir í umspili um 5 laus sæti á HM 2002:
Þýska stálið í góðu lagi
- Tyrkir eru í vænlegri stöðu eftir 0-1 sigur á Austurríki í Vínarborg
Þrátt fyrir að þýskt knatt-
spyrnustolt sé enn verulega sært eftir
1-5 tapið gegn Englendingum í
Múnchen iifir HM-vonin enn góðu lífi
eftir að hafa náð jafntefli gegn Úkra-
ínu þarlendis í fyrri leik liðanna um
laust sæti á HM á næsta ári.
Þýskir fjölmiðlar, sem hafa aldrei
veriö hræddir við að láta landsliðið
heyra það standi það sig ekki, tóku
úrslitunum vel um helgina og sögðu
drengina hafa barist vel fyrir jafntefl-
inu.
Vonandi jafngott
„Ég er mjög ánægður með frammi-
stöðu liðsins í dag en ég verð jafnvel
enn ánægðari ef við leggjum jafnmik-
ið á okkur í seinni leiknum og við
gerðum í dag,“ sagði Rudi Völler,
landsliðsþjálfari Þjóðverja.
Heimamenn komust yflr frekar
snemma í leiknum en Michael Ball-
ack jafnaði metin fyrir Þjóðverja eftir
31 mínútu. Þrátt fyrir að bæði lið hafi
fengið fjöldann allan af tækifærum til
að vinna leikinn kom allt fyrir ekki.
„Við höfum ekki unnið enn en mér
líst vel á möguleika okkar i seinni
leiknum," bætti Völler við.
Framherji Inter Milan, Okan
Buruk, skoraði sigurmark Tyrkja
gegn Austurríkismönnum á Ernst
Happel-leikvanginum í Vínarborg.
Það getur reynst gifurlega mikilvægt
og komið Tyrkjum í úrslitakeppni HM
í fyrsta sinn síðan 1954.
Bara tímaspursmál
Andreas Herzog sagði að sigur
Tyrkja hafði verið sanngjam. „Fyrir
utan tækifærið sem við fengum í fyrri
hálfleik áttum við í raun aldrei mögu-
leika. Það var bara spurning um tíma
hvenær þeir myndu skora.“
Mario Haas hefði getað komið sín-
um mönnum yfir í fyrri hálfleik en
markvörður Tyrkja, Rustu Recber, sá
um að ekkert yrði úr því.
írar unnu Irani, 2-0, í Dublin og
sköpuðu gott forskot fyrir ferðina til
Teheran. Miroslav Blasevic, hinn
króatíski þjálfari írana, sagði eftir
leikinn að vissulega yrði erfitt að
vinna upp tveggja marka mun en það
væri ekki ómögulegt. „Við sýndum
hvað við getum gert í sókninni í dag
og vonandi gerum við það aftur á mið-
vikudaginn."
Blazevic sagðist myndi hengja sig
fyrir allra augum í Teheran mistækist
liðinu að tryggja sér farseðilinn á HM.
írar tóku siðast þátt í stórmóti á
HM í Bandarikjunum fyrir 7 árum en
síðan þá hefur liðið alltaf tapað í um-
spilsleikjum um sæti í heimsmeistara-
og Evrópukeppnum.
Fyrir EM 1996 tapaði liðið fyrir
Hollandi, svo fyrir Belgíu tveimur ár-
um síðar fyrir HM í Frakklandi og að
lokum báru Tyrkir þá ofurliði og
unnu sér um leið sæti á EM í Hollandi
í fyrra.
Blóötaka hjá írum
Það má muna um minna en að þrír
af leikreyndustu leikmönnum írska
landsliðsins þurfa að sitja heima
vegna meiðla. Þeir Steve Staunton,
Niall Quienn og Roy Keane eru allir
meiddir en sá síðstnefndi lék reyndar
með um helgina. Hann á við meiðsl í
hné að stríða.Það þykja hins vegar
gleðitíöindi að Robbie Keane sé kom-
inn í landsliðshópinn á ný og byrjað-
ur að skora.
Enn og aftur rautt spjald hjá
Tomas Repka
Tomas Repka fékk að líta rauða
spjaldið í leik Belga og Tékka í Bruss-
el. Þetta tímabil er að verða að alger-
um hryllingi fyrir kappann en hann
hefur á sínum stutta ferli í ensku
deildinni fengið að líta tvö rauð spjöld f
í leikjum með West Ham. Þegar þá
var komið voru heimamenn með 1-0
forystu en tókst ekki að auka við hana
einum fleiri.
Draumamark Milans Osterc tryggði
Slóvenum 2-1 sigur á Rúmenum á
heimavelli þeirra í Ljubljana. „Þetta
er vissulega fallegasta mark mitt á
ferlinum og gott ef ekki það mikilvæg- jg
asta,“ sagði Osterc. -esá