Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Page 14
30 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001 Sport Litil frétt okkar fyrir hálfum mánuði um að veiðimenn hafi verið reknir heim af skotveiðum í næsta nágrenni Sauðárkróks hefur vakið mikla athygli meðal veiðimanna og hafa þeir margir haft samband við okkur. Einn sem hafði samband sagði að veiðimenn ættu alls ekki að fara af svæðinu heldur kalla til lögguna og þá gætu málin skýrst verulega. Þaó er kunnara en frá þurfi að segja að skotveiðimenn þekkja vel yfírgang landeigenda sem oftar en ekki eigna sér há- lendi landsins án þess að hafa fyrir því nokkrar sönnur. Á dögunum hitti DV-Sport þekktan veiðimann sem var á veiðum á heiði vestur á fjörðum. Varla var veiðimaðurinn stiginn út úr bílnum þegar bíll kom brunandi sem lögreglubíll væri. Út úr bílnum spruttu „landverð- irnir“ og báðu þessa óboðnu gesti vinsamlegast um að hypja sig af heiðinni. Veióimennirnir brugðust rétt við og er rétt að ítreka það hvernig þeir stóðu að málum. í mestu makindum báðu þeir „landverðina“ að sanna það með pappírum að þeir ættu landið sem veiðarnar áttu að fara fram á. Yrði það gert myndu veiði- mennirnir sáttir yfirgefa heið- ina. Þegar þessara sannana var krafist var lítið um svör og veiðimennirnir héldu óáreittir til veiða og veiddu vel en „land- verðirnir" til síns heima með skottið á milli lappanna. Þessa dagana er að koma út bókin Fluguveiðar á íslandi eftir þá Lárus Karl Ingason ljós- myndara og Loft Atla Eiríks- son blaðamann. Stórglæsilegar myndir og fróðlegur texti er um ár og vötn landsins í bókinni en með henni fylgir margmiðlun- ardiskur. Þaó styttist í aðalfund Stangaveiðifélags Reykjavíkur en eins og kom fram hjá okkur ætlar Arthúr Bogason að gefa kost á sér og síðan þeir Jóhann Steinsson, Árni Eyjólfsson og Bjarni Júlíusson, sem allir voru fyrir í stjóm félagsins. Þetta gæti orðið spennandi kosning á milli þessara fjögurra, enda töluverður titringur kom- inn i kosninguna. Fleiri nöfn hafa ekki heyrst nefnd og eng- inn hefur boðið sig fram gegn formanni félagsins, Bjarna Ómari Ragnarssyni. Aðalfund- urinn verður haldinn núna 25. nóvember. Ef marka má músagang víða um landið má búast við erfiðum og snjóþungum vetri. Þeir eru margir veiðimennimir sem ekki hefðu á móti því að töluvert myndi snjóa í vetur þannig að ámar myndu renna næsta sum- ar. Vatnsleysi kom mjög illa við margar ár síðasta sumar og hafði mikið að segja varðandi veiðina. -G. Bender/-SK Kjartan Sigurösson meö 17 punda lax úr Soginu en stórlöxum fækkar meö hverju árinu í laxveiöiánum. Enn lifnar ekkert yfir rjúpnaveiðinni og ljóst að ein lélegasta vertíðin i nokkur ár er um það bil hálfnuð. Veðráttan hefur verið snar þáttur þegar leitað er orsaka en einnig er stofninn i mikilli lægð sem ætti þó ekki að koma neinum á óvart þar sem hann sveiílast með nokkuð reglulegu millibili. Margir rjúpnaveiðimenn sem DV-Sport hefur talað við segja veiðina hafa verið drjúga fyrstu daga tímabilsins en síðan hafi án afláts dregið úr henni. Má þvi reikna með að þeir muni lenda í erfiðleikum. Fyrir skömmu fréttum við af tveimur skyttum sem gengu heilan dag í Skjaldbreið og höfðum eina rjúpu upp úr krafsinu, hálfa rjúpu á mann. Af öðrum fréttum við sem fóru á Lyngdalsheiði og í Hrafnabjörg og Kálfatinda en sáu ekki fjöður þrátt fyrir nokkuð hagstæð skilyrði. Lítið sem ekkert virðist vera af rjúpu á þessu svæði um þessar mundir. Veiddum stórlöxum í íslenskum veiðiám fer mjög fækkandi: Aldrei færri stórlaxar á land en síöasta sumar „Stórlöxum fækkar, það fer ekki á milli mála, kíkj- um aðeins á Víðidalsá í Húnavatnssýslu, þeir voru ekki margir þar yfir 20 pundin í sumar. Fyrir nokkrum árum veiddust margir stórir laxar en þeim fækkar á hverju ári og það er ekki mjög góð þróun,“ sagði leiðsögumað- ur sem þekkir ána vel og þetta sama á sér líka stað í miklu fleiri laxveiðiám. Það þykir gott ef stærsti laxinn í Norðurá í Borgar- firði nær 16-17 pundum, bara það lýsir málinu vel þrátt fyrir þá staðreynd að Norðurá hefur aldrei talist til áa sem gefa af sér mikið af stórlaxi. Stórir laxar, yfir 20 pund, sjást hins vegar ekki lengur í Norðurá, þau eru mörg árin síðan svoleið- is lax veiddist í perlunni í Borgarfirði. Laxá í Aðaldal kom að- eins til baka með stórlaxana á þessu sumri, einn og einn vænn finnst í ánni eins og þessi væni sem Eyþór Sig- mundsson veiddi í haust. Boltalaxar í Sandá en vildu ekki agnið í Sandá í Þistilfirði voru vænir laxar í sumar en þeir fengust alls ekki til að taka hjá veiðimönnum, sama hvað reynt var. „Það voru boltalaxar þama i ánni en þeir voru rosalega tregir, enda margir búnir að reyna við þá í margar vikur,“ sögðu veiði- menn sem veiddu í Sandá undir lok veiðitímans og fengu ekki þessa stóru laxa til að taka. Stórlöxum fækkar, það sést á veiðitölum síðustu ára svo ekki verður um villst. Margar góðar veiðiár sem vom að gefa marga 20 punda laxa gefa núna 15-17 punda laxa þegar best læt- ur. Hefur veiðimönnum farið aftur? Menn velta fyrir sér ástæö- um fyrir því að laxinn stóri er á undanhaldi. Viða hefur sést til þessara miklu höfð- ingja en þeir hafa ekki tekið agn veiðimanna. Getur það verið ein af skýringunum að veiðimönnunum sjálfum hafl farið aftur? -G. Bender Bændadagar heyra sögunni til - á meðan núverandi leigutakar eru með Svartá í Húnavatnssýslu á leigu Bændadagamir sem núna voru í Svartá í Húnavatnssýslu í haust og ollu gremju meðal leigutaka ár- innar verða ekki aftur meðan nú- verandi leigutakar eru með hana á leigu. Aðeins var veitt á flugu í ánni í sumar og þess vegna komu þessir bændadagar verulega á óvart þeg- ar þeir voru auglýstir í haust. Leigutakarnir mótmæltu þessu hressilega í fjölmiðlum en dagam- ir voru þrátt fyrir það og veiðin gekk ágætlega. Fyrir skömmu var haldinn fund- ur norðan heiða um málið og þessa bændadaga og þar lofuðu menn að þetta myndi ekki gerast aftur, að veitt yrði aftur á bænda- dögum. Þeir yrðu ekki meðan nú- verandi leigutakar væm með ána. Bændadagar hafa veriö við lýði í Svartá síðan elstu menn muna og kannski erfitt að hætta einhverju sem einu sinni hefur verið sett á. En því hefur verið hætt núna og verður alla vega ekki meðan nú- verandi leigutakar eru með ána á leigu. Eftir því sem DV-Sport kemst næst veiddust 50 laxar á þessum bændadögum, sem er 50 löxum of mikið í laxveiðiá þar sem lítið var af laxi. Reyndar gerðist það i haust að þegar Blanda fór á yfirfall rauk laxinn upp i Svartá og þess vegna veiddist svona vel á bændadögun- um. Þegar á að friða laxveiðiá fyrir veiðimönnum með maðk verða all- ir að skilja málið, hvort sem það eru landeigendur eða leigutakar, annars er ekki von á góðu. -G.Bender pað er^ ||taf vor>' 4iÓiV(

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.