Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2001, Blaðsíða 1
19
Lyngby gjaldþrota og
verður áhugamannalið
Eftir tilfinningaþrunginn fund
meðlima danska knattspyrnuliðsins
Lyngby frá norðurhluta Kaup-
mannahafnar var kosið að lýsa fé-
lagið frekar gjaldþrota og fella sig
niður um tvær deildir í stað þess að
sameinast öðru liði, FC Farum.
Úrslit kosninganna sýndu greini-
lega vilja félagsins að halda í það
minnsta stoltinu en hefði Lyngby
kosið að sameinast Farum hefði síð-
arnefnda liðið fengið að ráða um
nýtt nafn félagsins, nýjan leikvang,
nýtt merki og nýja félagsliti. 124 at-
kvæði höfnuðu boði Farum en að-
eins 20 samþykktu.
Lyngby er sem stendur í 10. sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar en
leikur frá og með næstu viku sem
áhugamannalið. Það mun svo falla
um tvær deildir þegar núverandi
tímabili er lokið.
Liðið varð danskur meistari árið
1992 en íjárhagsvandræði hafa verið
viðloðandi félagið síðan eigandi
þess, Jorn Terkelsen, tók peninga
sina út úr félaginu.
Fyrir um mánuði reyndi liðið að
sameinast 1. deildar liðinu AC Ball-
erup en það gekk ekki í gegn. -esá
Inter út úr
bikarnum
Inter Milan datt í kvöld út úr ítölsku
bikarkeppninni eftir að liðið gerði jafn-
tefli gegn Udinese, 2-2.
Udinese vann fyrri leikinn, 2-1, á sin-
um heimavelli og því samanlagt, 4-3. Int-
er byrjaði leikinn vel í kvöld og komst í
2-0 eftir 18 mínútur með mörkum frá
Nicola Ventola og Javier Zanetti. Roberto
Muzzi minnkaði muninn á 3 mínútum fyr-
ir hlé og danski landsliðsmaðurinn Mart-
in Jörgensen jafnaði metin á 79. mínútu.
Atalanta fer áfram eftir 0-0 jafntefli
gegn Bologna heima fyrir en þar sem fyrri
leiknum lauk 2-2 komst Atalanta áfram á
mörkum skoruðum á útivelli. -ósk/esá
Tottenham í
8-liöa úrslit
Tottenham og Fulham áttust við í Lund-
únaslag í ensku deildarbikarkeppninni í
gær. Leiknum lauk 2-1 og það var Simon
Davis sem skoraði sigurmark sinna
manna, 4 mínútum fyrir leikslok.
Sergiy Rebrov kom Tottenham yfir á 15.
mínútu en Barry Hayles jafnaði metin rétt
fyrir lok fyrri hálíleiks.
Þá er ráðið hvaða lið komust áfram I 8-
liða úrslit og eru 6 úrvalsdeildarlið þar á
meðal, Arsenal, Newcastle, Bolton, Black-
burn, Chelsea og Tottenham. Þá eru þar
einnig Sheífield Wednesday og Heiðar
Helguson og félagar í Watford en bæði lið-
in leika í 1. deild. -esá
Kanoute efstur á
óskalista Liverpool
Franski framherjinn Frederic
Kanoute, sem leikur með West
Ham, er efstur á óskalista for-
ráðamanna Liverpool sem eftir-
maður Robbie Fowler. Kanoute
hefur staðið sig mjög vel með
West Ham frá því að hann kom
til félagsins frá Lyon í mars á
_ siðasta ári og verið eftirsóttur af
stærri félögum.
Annar franskur leikmaður
sem nefndur er til sögunnar er
hinn eldfljóti leikmaður Aux-
erre, Dribril Cisse. Þá kemur
framherji Derby, Malcolm
Christie, einnig til greina.
Dalglish ósáttur
Gamla Liverpoolhetjan
Kenny Dalglish er ósáttur við að
jafngóður leikmaður og Fowler
skuli hafa verið seldur til
hættulegra andstæðinga eins og
Leeds.
„Ég er ekki hissa á því að
Fowler skyldi fara. Honum leið
ekki vel í skugganum af Mich-
ael Owen en að selja hann til
Leeds er heimskulegt," sagði
Dalglish. -ósk
NBA-DEILDIN
Sacramento-Dallas........110-98
Stojakovic 32, Turkoglu 17, Jackson
16 - Nowitzki 29 (11 frák.), Finley 21,
Hardaway 16.
Memphis-Toronto...........88-91
Gasol 22, Battier 20, Buford 18 -
Carter 23 (8 frák., 7 stoðs.), Davis 20
(11 frák.), Peterson 18.
Atlanta-Cleveland ........105-96
Kukoc 24, Rahim 19 (12 frák.),
Mohammed 16 (14 frák.) - Murray 21,
Person 20, Jones 17 (12 frák.).
Boston-Orlando ............99-89
Walker 33 (11 frák.), Pierce 26 (12
frák.), Anderson 13 (8 stoðs.) -
McGrady 22, Miller 16, Garrity 13.
Miami-Chicago..............72-78
Jones 15, Mourning 13, Strickland 13
- Mercer 19, Hassell 13, Miller 12.
SS-bikarinn í handbolta:
Stórlei
- á heimavöllum bikarme!
Bikarmeistara Hauka í karla-
flokki og ÍBV í kvennaflokki
hýsa stórleiki í undanúrslitum
SS-bikarsins í handbolta en dreg-
ið var í dag. Haukar fá Valsmenn
í heimsókn en þetta eru einu tap-
lausu liðin í Esso-deild og ÍBV
fær íslandsmeistara Hauka í
heimsókn til Eyja. Undanúrslit
SS-bikars karla og kvenna
2001-02:
SS-bikar karla, undanúrslit:
Haukar-Valur
Stjaman-Fram
Leikið veröur 5. desember
SS-bikar kvenna, undanúrslit:
Grótta/KR-Stjaman
ÍBV-Haukar
Leikið veróur 19. janúar
SS'M Ku,
k&ria
valur
SS-bikai
Karla
Haukar
Hallgrimur Hólmsteinsson, markaðs- og sölustjóri SS, og Ásgerður Halldórs-
dóttir, kvennaráði HSÍ, draga hér saman lið Hauka og Vals í undanúrslitum
karla.
DV-mynd Hilmar Þór
Bjarnólfur á-
fram hjá ÍBV
Miðjumaðurinn Bjarnólfur
Lárusson skrifaði í dag undir
tveggja ára samning við ÍBV.
Bjarnólfur var samningslaus eft-
ir tímabilið í haust en ákvað að
skrifa undir hjá sínu gamla fé-
lagi.
Hann er annar leikmaðurinn
sem framlengir samning sinn
við ÍBV á stuttum tíma en varn-
armaðurinn sterki Kjartan Ant-
onsson skrifaði undir eins árs
samning á þriðjudaginn. -ósk
Ólafur Jón
frá fram að
áramótum
Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði
KR, verður frá keppni fram að
áramótum vegna nárameiðsla
sem hann hefur átt við að stríða
I allan vetur. Ólafur Jón hefur
aðeins leikið fjórar mínútur það
sem af er þessu keppnistímabili
en spilaði níu mínútur I undan-
úrslitum Kjörísbikarsins gegn
Njarðvík áður en hann þurfti að
fara af velli meiddur. -ósk
Varnarmaður á
leið til Stoke
Allt bendir nú til þess að
varnarmaðurinn Sam Okikiolu,
sem er á mála hjá Wimbledon,
verði lánaður til íslendingaliðs-
ins Stoke. Okikiolu, sem er tví-
tugur, mun að öllum líkindum
fara til Stoke í næstu viku en
Terry Burton, knattspyrnustjóri
Wimbledon, vill sjá hvernig
hann stendur sig í hinni hörðu 2.
deild. -ósk
Di Canio fékk
háttvísiverð-
laun FIFA
ítalski framherjinn Paolo di
Canio fær háttvísiverðlaun Al-
þjóða knattspyrnusambandsins
fyrir árið 2001 eftir að hafa grip-
ið bolta sem hann hefði getað
sett í mark Everton til að hægt
væri að huga að meiddum mark-
verði Everton í leik liðanna á
Goodison Park í desember á sið-
asta ári. Það er af sem áður var
þegar Di Canio komst fréttirnar
fyrir að hrinda dómaranum Paul
Alcock og uppskar fyrir vikið 11
leikja bann. -ósk
Kostner söm við sig
Isolde Kostner frá Ítalíu hóf tit-
ilvörn sína í bruni kvenna vel en
hún vann fyrsta mót vetrarins sem
fór fram i Lake Louise í Kanada.
Þetta var þriðja árið í röð sem hún
vann brunið á þeim stað ásamt því
að vera 10. heimsbikarsigur
hennar á ferlinum.
Michaela Dorfmeister frá Aust-
urríki varð önnur og Corinne Rey-
Bellet frá Sviss þriðja. -esá