Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2001, Blaðsíða 3
20
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001
21
Sport
Sport
KR-Hamar 76-90
0-2, 4-2, 8-6, 8-10,10-15,15-15, (15-22),
17-22, 19-30, 21-32, 30-32, 32-38', 37-39,
43-43, (45-43), 45-18, 49-48, 49-53,
53-53, 53-66, (58-66), 60-66, 62-68,
62-72, 65-78, 70-80, 75-84, 76-90.
Stig KR: Keith Vassell 24, Jón Arnór
Stefánsson 20, Magni Hafsteinsson 13,
Arnar Kárason 9, Helgi Már
Magnússon 8, Hjalti Kristinsson 2.
Stig Hamars: Svavar Birgisson 19,
Nathaniel Pondexter 17, Gunnlaugur
Erlendsson 16, Skarphéðinn Ingason
15, Lárus Jónsson 8, Svavar Páisson
6, Sigurður Einar Guðjónsson 5,
Óskar Pétursson 4.
Fráköst: KR 44 (15 í sókn, 29 í vörn,
Helgi Már 13, Vassell 9), Hamar 41 (13
í sókn, 28 í vörn, Pondexter 12,
Svavar Birgisson 9).
Stoösendingar: KR 15 (Jón Arnór 5),
Hamar 26 (Pondexter 12).
Stolnir boltar: KR 12 (Arnar 5),
Hamar 17 (Pondexter 7).
Tapaöir boltar: KR 21, Hamar 17.
Varin skot: KR 6 (Magni 2, Jón
Arnór 2), Harnar 8 (Pondexter 3).
3ja stiga: KR 20/6, Hamar 19/7.
Viti: KR 25/16, Hamar 8/5.
Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson
og Eggert hór Aðalsteinsson (7).
GϚi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 300.
Maöur leiksins: Gunnlaugur
Hafsteinn Erlendsson Hamri
and í poka
Stjarnan-ÍR 89-93
0-2, 8-12, 21-14, (23-24), 26-28, 32-34,
39-48, (39-61), 41-61, 48-65, 61-73,
(69-76), 73-83, 83-83, 88-89, 89-93
Stig Stjörnunar: Magnús Helgason
31, Kevin Grandberg 29, Janus Cmer
23, Eyjólfur Jónsson 2, Örvar
Kristjánsson 2, Sigurjón Lárusson 1,
Davíð Guðlaugsson 1.
Stig ÍR: Eirikur Önundarson 34,
Cedrick Holmes 24, Halldór
Kristmannsson 16, Ólafur Sigurðsson
5, Sigurður Þorvaldsson 5, Ásgeir
Hlöðversson 2.
Fráköst: Stjarnan 39 (11 í sókn, 28 í
vörn, Grandberg 14), ÍR 26 (8 í sókn,
18 í vörn, Holmes 7).
(Grandberg, Cmer 5), IR 18 (Eiríkur
5).
Stolnir boltar: Stjarnan 12 (Cmer 5),
ÍR 18 (Ólafur 5).
Tapaöir boltar: Stjarnan 26, ÍR 13.
Varin skot: Stjarnan 2 (Eyjólfur 2),
ÍR 1.
3ja stiga: Stjarnan 14/33, ÍR 8/16.
Viti: Stjaman 8/12, fR 13/20
Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson
og Helgi Bragason (9).
Gϗi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 44.
Maöur leiksins:
Eiríkur Önundarson, ÍR
Haukar-Keflavík 66-72
0-2, 64, 12-6, 21-10, (28-14), 30-14,
32-20, 34-27, 38-29, (41-37), 41-39,
44-47, 49-49, 54-53,(58-56), 61-56,
64-61, 65-64, 66 69, 66-72.
Stig Hauka: Bjarki Gústafsson 15,
Marel Guðlaugsson 11, Lýður Vignis-
son 9, Predrag Bojovic 9, Guðmundur
Bragason 8, Sævar Haraldsson 6, Ró-
bert Leifsson 3, Ingvar Guðjónsson 3,
Davíð Ásgrímsson 2.
Stig Keflavikur: Magnús Gunnars-
son 21, Damon Johnson 16, Gunnar
Einarsson 14, Jón Norödal Hafsteins-
son 11, Sverrir Sverrisson 4, Falur
Harðarson 3, Davíð Jóhannsson 3.
Fráköst: Haukar 33 (12 í sókn, 21 í
vörn, Guðmundur 9), Keflavík 32 (9 í
sókn, 23 í vörn, Jón 13).
Stoösendingar: Haukar 17 (Ingvar 4),
Keflavík 17 (Davíð 4, Sverrir 4).
Stolnir boltar: Haukar 7 (Lýður 4),
Keflavík 7 (Jón 3).
Tapaöir boltar: Haukar 19, Keflavík
13.
Varin skot: Haukar 2 (Guðmundur,
Bojovic), Keflavík 3 (Jón)
3ja stiga: Haukar 25/9, Keflavik 22/7.
Víti: Haukar 13/11, Keflavík 20/11.
Dómarar (1-10): Sigmundur Már
Herbertsson og Bjarni G.
Þórmundsson (6). Gteöi leiks
(1-10): 7. Áhorfendur: 80.
Maöur leiksins:
Jón N. Hafsteinsson, Keflavik
Robbie Fowler hef-
ur staðist læknis-
skoðun hjá Leeds og
er þar með formlega orðinn leikmaður liðsins.
Frá þessu var gengið í gærkvöld. Hann mun
væntanlega verða í leikmannahópi Leeds gegn
Fulham á laugardaginn í treyju númer 27.
David O’Leary, knattspymustjóri Leeds, Pet-
er Risdale, stjómarformaður félagsins og
stuðningsmenn halda vart vatni yfir komu
Fowlers til félagsins og telja að hann muni
endurheimta markheppnina sem allir vita
hann býr yfir en hefur legið í dvala að undan-
fómu.
Þar með hefur O'Leary eytt rúmum 15 millj-
örðum í leikmenn á þeim tíma sem hann hef-
ur stjómað liðinu og ætti að vera ágætlega í
stakk búinn til að berjast um meistaratitilinn.
Michael Platini, fyrrum fyrirliði franska
landsliðsins í knattspyrnu og núverandi vara-
formaður franska knattspyrnusambandsins,
hefur ekki trú á öðru en Frákkar komi til með
að verja titil sinn frá 1998 í lokakeppni HM
næsta sumar.
„Franska liðið er gifurlega sterkt með 22-23
leikmenn sem geta allir verið í byijunarlið-
inu. Ég sé ekki hvemig önnur lið eiga að geta
staðist þeim snúning," sagði Platini og bætti
við að hann vonaðist eftir að sjá Frakkland og
Argentínu í úrslitaleiknum.
ítalska stórliðið Juventus mun spila í búning-
um frá bandaríska íþróttavömframleiðandan-
um Nike frá árinu 2003 til ársins 2015. Þangað
til mun liðið spila í Lottobúningum. Þessi
samningur Juventus við Nike færir félaginu
13,5 milljarða króna i kassann. -ósk
- Hamarsmenn urðu
fyrstir liða til að vinna KR
í úrvalsdeildinni í vetur
á slðustu tveimur mínútum
hálfleiksins og virtist sem KR-
liðið væri búið að rétta úr
kútnum en annað kom á dag-
inn í seinni hálfleik.
Þrettán stig Hamars í röð á
þremur mínútum i þriðja leik-
hluta gerðu útslagið fyrir
heimamenn. Hamar komst þá í
53-66 og Gunnlaugur Haf-
steinn Erlendsson skoraði 8 af
þessum þrettán stigum og alls
11 í leikhlutanum en þrjár vill-
ur sem fylgdu í kjölfarið héldu
honum frá leik það sem eftir
var leiks.
Það skiluðu margir góðum
hlutum hjá Hamri, baráttan og
vörnin var aðal liðsins, sem og
að átta leikmenn þess gerðu 5
stig eða meira. Sá eini sem
spilaði og komst ekki á blað
var þjálfarinn Pétur Ingvars-
son sem var stigalaus á 11 mín-
útum. Gunnlaugur, Svavar
Birgisson og Skarphéðinn
Ingason léku aUir mjög vel og
Nathaniel Pondexter náði í
þrennu á sama tíma (17 stig, 12
fráköst, 12 stoðsendingar) og
hann hélt aftur af Jóni Arnóri
Stefánssyni. Jón Arnór lék
samt ágætlega fyrir KR en
annars var liðið nánast óþekkj-
anlegt og flæðið í sókninni var
ekkert. 21 tapaður bolti,
sautján þeirra beint upp í
hendur Hamarsmanna, var
heldur ekki tU að létta þeim líf-
ið ei]da voru gestirnir fljótir að
refsa með ódýrum körfum.
Leikurinn var ekki bara
sögulegur fyrir þær sakir að
KR tapaði heldur fór Herbert
Arnarson í fyrsta sinn á ferlin-
um stigalaus í gegnum úrvals-
deUdarleik sem var sá 120. í
röðinni hjá honum. Herbert
klikkaði á öUum tíu skotum
sínum á þeim 27 minútum sem
hann lék.
Keith VasseU byrjaði leik-
inn vel hjá KR og var með 11
stig og 5 fráköst í fyrsta leik-
hluta en misnotaði 5 af síðustu
sjö skotunum og tók aðeins tvö
fráköst í seinni hálfleik.
seinni hálfleik virtist Vassell
skorta þann kraft og áræði
sem hann er þekktur fyrir.
„Við vorum ragir og náðum
ekki að taka á móti hörkunni
hjá þeim og það skUaði sér í
töpuðum boltum - þeir refsuðu
okkur mjög mikið fyrir mis-
tök. Ég ætla vona að við höfum
ekki verið að bíða eftir fyrsta
tapinu því við ætluðum að
vinna aUt fyrir jól en nú þurf-
um við að taka okkur saman í
andlitinu. Við fáum tækifærið
eftir tvær vikur til að hefna
okkar í bikarnum," sagði Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR,
eftir leik. -ÓÓJ
Varnarleikur í Borgarnesi
Hamarsmaöurinn Nathaniel Pondexter stingur sér hér fram hjá KR-ingunum Helga Má Magnússyni og Jóni Arnóri
Stefánssyni í leik liöanna í vesturbænum í gær. Pondexter náöi þrefaldri tvennu í sigri Hamarsmanna, skoraöi 17
stig, tók 12 fráköst og gaf 12 stoösendingar. DV-mynd Hilmar Por
Það var sannarlega leikur góðra
varna í Borgamesi í gærkvöld þegar
Breiðablik sótti SkaUagrím heim.
Leikurinn einkenndist af mikUli bar-
áttu og lélegri hittni á löngum köflum
og að lokum unnu Skallagrimsmenn,
69-62, sinn þriðja heimaleik í röð í úr-
valsdeUdinni.
Gestimir höfðu frumkvæðið
mestallan fyrri hálfleikinn og höfðu 8
stiga forystu í hléi. Borgnesingar,
sem léku án Hafþórs Gunnarssonar,
sem var veikur, náðu forystu um
miðjan 3. leikhluta, 34-33. Eftir það
skiptust liðin á forystunni. Þegar tæp-
ar 2 mínútur voru eftir höfðu heima-
menn 2 stiga forystu og spennan var í
hámarki. SkaUagrímsmenn reyndust
hins vegar sterkari í lokin og kláruðu
leikinn á vítalínunni.
„Þetta var ekki skemmtilegur leik-
ur en við sýndum góðan karakter.
Það er stígandi í liðinu og gaman að
sjá að erlendi leikmaðurinn okkar er
að ná sér á strik,“ sagði Sigmar EgUs-
son, leikmaður Skcdlagríms, að leik
loknum.
Hjá heimamönnum áttu stóru
mennimir Alexander, Hlynur og
Pálmi mjög góðan leik í vöminni.
Larry Florence var fimasterkur í
sókninni. í liði gestanna var Kenneth
Richards aUt í öUu og þá átti Pálmi
Sigurgeirsson fína spretti en Blikar
hafa nú tapað 18 úrvalsdefldarleikjum
í röð. -rag
Skallagr.-Breiðabl. 69-62
3-0, 9-2, 13-7, 13-10, (13-15), 17-20,
21-25, 22-27, (28-31), 34-33, 36-38,
42-38, 46-40, (49-42), 49-49, 51-53,
57-54, 69-62.
Stig Skallagrims: Larry Florence 26,
Steinar Arason 16, Hlynur Bærings-
son 12, Sigmar Egilsson 9, Alexander
Ermolinskij 2, Pálmi Sævarsson 2,
Leonid Zhdanov 2.
Stig Breiðabliks: Kenneth Richards
23, Pálmi Sigurgeirsson 14, Niko Viri-
jevic 9, Loftur Einarsson 6, Isak Ein-
arsson 5, Ómar Sævarsson 3, Þórar-
inn Andrésson 4, Þórólfur Þorsteins-
son 2.
Fráköst: Skallagrímur 46 (15 í sókn,
31 í vörn, Hlynur 13), Breiðablik 35
(11 í sókn, 24 í vöm, Richards 7, Viri-
jevic 7).
Stoðsendingar: Skallagrímur 14 (Sig-
mar 8), Breiðablik 10 (Richards 5)
Stolnir boltar: Skallagrímur 7 (Alex-
ander 2, Florence 2), Breiðablik 11
(Richards 3)
Tapaðir boltar: Skallagrímur 17,
Breiðablik 9.
Varin skot: Skallagrímur 5 (Alexand-
er 5), Breiðablik 4 (Pálmi 2)
3ja stiga: Skallagrímur 17/2, Breiða-
blik 13/2
Víti: Skallagrímur 21/15, Breiðablik
17/14
Dómarar (1-10): Jón Halldór
Eðvaldsson og Rúnar Gíslason (7).
GϚi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 200.
Maöur leiksins:
Larry Florence, Skallagrími
Grindavík-Njarðvík 81-86
8-0, 12-8, 18-11, (28-23), 32-32, 40-34,
45-36, (47-39), 50-41, 50-51, 61-57,
(64-64), 69-73, 73-80, 79-82, 81-86.
Stig Grindavikur: Guölaugur Eyj-
ólfsson 21, Miha Cmer 20, Dagur Þór-
isson 14, Guðmundur Ásgeirsson 7,
Pétur Guðmundsson 7, Páll Axel Vil-
bergsson 7, Nökkvi Már Jónssson 5.
Stig Njarðvikur: Logi Gunnarsson
28, Brenton Birmingham 21, Páll
Kristinsson 10, Sigurður Einarsson 9,
Sævar Garðarsson 8, Ragnar Ragn-
arsson 6, Halldór Karlsson 2, Friðrik
Stefánsson 2.
Fráköst: Grindavik 36 (11 í sókn, 25 í
vörn, Páll Axel 8), Njarðvík 44 (16 í
sókn, 28 í vörn, Friðrik 16).
Stoðsendingar: Grindavík 16 (Cmer
4), Njarövík 16 (Birmingham 9).
Stolnir boltar: Grindavik 5 (Páll 2,
Guðmundur 2), Njarðvík 5 (Birming-
ham, Halldór, Sævar, Siguröur, Páll).
Tapaðir boltar: Grindavík 6, Njarð-
vík 13.
Varin skot: Grindavík 3 (Páll, Pétur,
Guðlaugur 1 hver), Njarðvík 5 (Frið-
rik, Brenton 2 hvor)
3ja stiga: Grindavík 25/10, Njarðvík
30/10.
Víti: Grindavik 27/19, Njarðvik
27/20.
Dómarar (1-10): Jón Bender og
Einar Skarphéðinsson (6)
GϚi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 120.
Maöur leiksins: Brenton
Birmingham, Njarövík
Kjörísmeistarar Njarðvíkinga unnu alla sex leiki nóvembermánaðar:
Afmælisgjöf
Brenton Birmingham, fyrirliöi
Njarðvíkinga, fékk sigur í afmælis-
gjöf frá félögum sínum í gærkvöld er
nýkrýndir Kjörísbikarmeistarar sigr-
uðu gömlu félaga hans Grindvíkinga
á heimavelli þeirra síðarnefndu í
Röstinni. Lokatölur urðu 81-86, eftir
að heimamenn höfðu haft 47-39 for-
ystu í hálfleik.
Heimamenn byrjuðu mun betur og
gerðu 8 fyrstu stigin. Eitthvað fór lít-
ið fyrir vörninni hjá Njarðvíkingum
framan af og höfðu Grindvíkingar
sem dæmi gert 23 stig á fyrstu 5 mín-
útum leiksins. Munurinn varð þó
ekki meira en 5 stig eftir fyrsta leik-
hluta og var það meðal annars góð
innkoma Sigurðar Einarssonar sem
gerði það að verkum að gestirnir
misstu Grindvíkinga ekki langt fram
úr sér. í siðari hálfleik komu Njarð-
víkingar sterkir til leiks, varnarleik-
urinn mun betri og á skömmum tíma
gerðu þeir 10 stig í röð og komust yf-
ir í fyrsta sinn, 50-51. Liðin skiptust
svo á að hafa forystu og varð hún
mest 4 stig i báðar áttir, og jafnt eftir
þriöja leikhluta. Njarövíkingar voru
svo sterkari á endasprettinum þar
sem ýmislegt gekk á.
Tæknivillur og óíþróttamannsleg-
ar villur í báðar áttir var þema 4.
leikhluta en eins og áður sagði þá
voru það Njarðvíkingar sem voru
sterkari í lokin og þar voru 12 stig frá
Loga dýrmæt.
Grindvíkingar geta vel við unað
eftir þennan leik. Þeir komu Njarð-
víkingum í opna skjöldu með mjög
góðum leik, og án Helga Jónasar og
Bandaríkjamanns gáfu þeir ekkert
eftir í baráttunni. Guölaugur Eyjólfs-
son lék mjög vel og þá átti Dagur fín-
an leik. Pétur Guðmundsson fyrirliði
lék sinn fyrsta leik og stóð sig vel
þær minútur sem hann lék. Miha
Cmer lék mjög vel í upphafi en kapp-
inn var helst til of ör í sóknaiTeikn-
um er leiö á leikinn.
Afmælisbarnið Brenton Birming-
ham var traustastur í liði Njarðvik-
inga. Þá átti Logi góðan endasprett og
Sævar gerði fína hluti. Siguröur Ein-
arsson átti líka góða innkomu í fyrri
hálfleik og gerði þrjár 3ja stiga körf-
ur en lék ekki í síðari hálfleik sem
sýnir hugsanlega styrk Njarðvíkinga.
Brenton Birmingham var ánægður
með sigurinn. „Við fórum hægt af
stað, og með þá án Helga og Roni far-
inn heim þá héldu kannski einhverj-
ir að þetta yrði auðvelt, en þeir sýndu
fram á annað og gerðu okkur erfitt
fyrir en það er jú fyrir öllu að sigra
og okkur tókst það.“
„Viö spfluðum á móti nýkrýndum
Kjörísbikarmeisturum sem sýndu all-
ar sínar bestu hliðar um síðustu
helgi og við vissum því að þetta yrði
erfitt, og þá sérstaklega i ljósi þess
sem hefur átt sér stað hér í Grinda-
vík undanfarið. En við sýndum að
við höfum stórt hjarta og við ætlum
aö ala á því og ætlum okkur að eiga
gott timabil það sem eftir er. Við
mættum vigreifir og lékum til sigurs,
en þaö var smávegis fát á kafla í
sóknarleiknum í seinni hálfleik sem
setti smástopp á okkur en við héldum
okkur inni í leiknum með góðri bar-
áttu,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson,
þjálfari Grindvíkinga, að leik lokn-
um. -EÁJ
URVALSDEILDIN
KR 8 7 1 689-645 14
Keflavík 8 6 2 737-665 12
Njarðvík 8 6 2 700-631 12
Þór, Ak. 8 5 3 743-728 10
Tindastóll 8 5 3 643-644 10
Grindavík 8 4 4 701-694 8
Hamar 8 4 4 742-750 8
ÍR 8 3 5 673-700 6
Skallagr. 8 3 5 602-612 6
Haukar 8 3 5 604-634 6
Breiðablik 8 2 6 630-656 4
Stjarnan 8 0 8 581-686 0
£ M MEISTARADEILDIN
D-riöill
Juventus-Bayer Leverkusen . 4-0
1-0 Trezeguet (8.), 2-0 Del Piero (37.),
3-0 Tudor (44.), 4-0 Trezeguet (60.).
Arsenal sýnir
Árna Gauti áhuga
Samkvæmt enskum netmiðl-
um er enn þá mikill áhugi hjá
Arsenal fyrir að krækja í lands-
liðsmarkvörðinn Árna Gaut Ara-
son frá Rosenborg. Arsenal
fylgdist með Árna Gauti af
áhuga í sumar og haust og
frammistaða hans í Meistara-
deildinni varð ekki til að
minnka áhuga Lundúnaliðsins
sem er í verulegum vandræðum
með markmenn sína.
Hvorki Árni Gautur né um-
boðsmaður hans, Erik Soler,
hafa heyrt neitt frá Arsenal en
Soler sagöi að það væri ljóst aö
Arsenal væri að leita sér að
markverði og frammistaða Árna
Gauts hefði ekki farið fram hjá
því. Hann segir jafnframt að
Árni Gautur sé frábær mark-
vörður og geti leikið með hvaða
liði sem er í bestu knattspyrnu-
deildum Evrópu. -GÞÖ
Úrslit Kjörísbikars kvenna um helgina:
Heimboð Kjöríss
Um helgina verður leikið í ann-
að sinn um Kjörísbikar kvenna í
körfubolta þegar Keflavík, KFÍ,
Grindavík og KR mæta til heima-
bæjar Kjöríssins í Hveragerði og
glíma um hvert er fræknast af
þeim fjórum fræknu.
KR-stúlkur hafa titil að verja og
eru enn fremur taplausar I keppn-
inni frá upphafi. KR mætir topp-
liði Grindavikur í undanúrslitun-
um en Grindvíkurliðið fór áfram
eftir tvo hörkuleiki gegn ÍS en þau
lið eru einmitt í tveimur efstu sæt-
um 1. deildar kvenna eins og
stendur. Grindavíkurliðið hefur
verið að sýna bæði góða og slæma
leiki að undanförnu og fyrstu og
einu töp liðsins í vetur voru með
34 stigum á útivelli gegn ÍS og með
23 stigum á heimavelli gegn Kefla-
vík. Jessica Gaspar hefur verið
frábær í vetur og það má ekki bú-
ast við öðru en hún gefi allt í leik-
ina enda gæti fyrsti titilinn henn-
ar hér á landi verið í boði takist
henni vel upp.
Eftir sina verstu byrjun i tíu ár
eru íslands- og bikarmeistaramir
að komast í gang á ný og KR-kon-
ur unnu glæsilegan sigur á Kefla-
vík í síðasta deildarleik. KR-liöið
hefur aftur á móti mátt bíða i tvær
vikur frá þeim leik, þeirra síðasta
alvöruleik og óvíst hvernig þjálfar-
inn, Keith Vassell, hefur unnið
með liðið á þeim tíma en á sama
tíma hefur Grindavíkurliðiö leikið
fjóra hörkuleiki.
Keflavíkurstúlkur sýndu og
sönnuðu það í síðasta leik, þar
sem þær burstuðu topplið Grinda-
víkur á útivelli, að þar fer lið í
mikilli sókn, undir góðri leiðsögn
þjálfarans Önnu Maríu Sveinsdótt-
ir. Keflavík mætir liði KFÍ í und-
anúrslitunum en liðin eru að mæt-
ast í fyrsta sinn í vetur en léku alls
átta leiki í fyrra þar sem Keflavik
sló KFÍ-liðið út úr öllum þremur
keppnunum og vann alls sex af
þessum átta leikjum. Keflavík tap-
aði í úrslitaleik keppninnar fyrir
KR í fyrra.
KFÍ-liðið hefur aðeins leikið sex
leiki gegn tveimur liðanna í deild-
inni það sem af er vetri og nú er
að sjá hvort liðið er komið í nægi-
lega mikla leikæfingu.
Undanúrslitaleikimir fara fram
klukkan 14 (Keflavík-KFÍ) og 16
(Grindavík-KR) á laugardag og úr-
slitaleikurinn svo klukkan 16 á
sunnudaginn. -ÓÓJ
Ovænt spenna
í Garðabænum
Stjaman úr Garðabæ var ekki
langt frá því að vinna sinn fyrsta
sigur í deildinni í vetur þegar liðið
tók á móti ÍR í gærkvöld í stóra
salnum en fram að
þessu hefur Stjarnan
leikið í hliðarsal í Ás-
garði. Eftir að hafa
verið 22 stigum undir í
hálfleik, 39-61, léku
heimamenn við hvern
sinn fingur í seinni
hálfleik og jöfnuðu
leikinn þegar tæpar
fimm mínútur voru
eftir. ÍR-ingar voru
sterkari í lokin með þá
Eirik Önundarson og
Cedrick Holmes í far-
arbroddi og sigruðu,
89-93.
Stjarnan tefldi fram tveimur nýj-
um leikmönnum. Kevin Grandberg
lék í fjarveru Tyson Whitfield sem
er meiddur og Janus Cmer lék sinn
fyrsta leik með liðinu. Grandberg
lék mjög vel og spurning hvort hægt
Eiríkur Onundarson
skoraöi 34 stig fyrir ÍR-
inga í gær.
verður að setja hann út úr liðinu eft-
ir svona frammistöðu.
Cmer, sem er yngri bróðir Miha
sem leikur með Grindavík, lofar
góðu og gerði marga góða
hluti en gerði líka sinn
skerf af mistökum. Hann
styrkir þó liðið án efa og
verður fróðlegt að sjá
hvort hann nær að stýra
leik liðsins af röggsemi.
Þá átti Magnús Helgason
stórleik og kann greini-
lega betur við sig í stóra
salnum. Aðrir leikmenn
komu lítið við sögu.
ÍR-ingar fengu tvö dýr-
mæt stig en það hlýtur
að vera áhyggjuefni að
liðið á erfitt með að
halda góðu forskoti. Ekki alls fyrir
löngu tapaði ÍR fyrir Tindastóli eftir
að hafa veriö 28 stigum yfir.
Eiríkur og Holmes voru bestu
menn liðsins og Halldór Krist-
mannsson var góður í fyrri hálfleik.
-Ben
Góð byrjun Hauka
dugði skammt
Keflvíkingar unnu nauman sigur á
Haukum, 66-72, í Epson-deild karla í
körfuknattleik að Ásvöllum í gær-
kvöldi. Það voru þó heimamenn sem
tóku strax frumkvæðið í
leiknum og þeir léku hreint
út sagt frábærlega í fyrsta
fjórðungi þar sem hraðinn
og áræðið var í fyrirrúmi og
greinilegt að Haukarnir geta
vel beitt fyrir sig hröðum
leik og gaman væri að sjá
meira af slíku frá þeim.
í öðrum leikhluta komu
gestirnir ákveðnir til leiks
og notuðu óspart grimma
pressuvöm sem heimamenn
áttu i hinu mesta basli með. Fór svo
að Keflvíkingar minnkuðu muninn í 4
stig þegar flautað var til leikhlés en
mestur varð hann 16 stig í upphafi
fjórðungsins. Nokkurt jafnræði var
með liðunum í þriðja fjórðungi og
skiptust þau á um að hafa forystuna.
Jón Nordal Haf-
steinsson, Keflavík.
Síðasti fjórðungurinn einkenndist
öðm fremur af miklum mistökum
beggja liða og talsverðum flumbru-
gangi á kostnað gæðanna.
Það vom þó gestirnir sem
voru sterkari á lokakaflan-
um og geta Haukarnir nagað
sig í handarbökin því þeir
misnotuðu allt of mörg opin
færi.
Bestir hjá Keflvíkingum
voru þeir Magnús Gunnars-
son og Jón Nordal Haf-
steinsson og Gunnar Einars-
son og Damon Johnson áttu
ágæta spretti. Hjá Haukun-
um var Bjarki Gústafsson
sterkur og kjarkmikill og þeir Lýður
Vignisson, Marel Guðlaugsson, Sævar
Haraldsson, Predrag Bojovic og Guð-
mundur Bragason voru ágætir en
tveir þeir síðastnefndu voru reyndar
frekar slakir í síðari hálfleik eftir góð-
an fyrri hálfleik. -SMS